Morgunblaðið - 04.08.1973, Síða 17

Morgunblaðið - 04.08.1973, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1973 17 SKÁIP& Leonid Stein er látinn ÞAÐ er sem betur fer sjald- gæft að skákþættir séu helg- aðir minningu stórmeisitara, sem enn eru í blóma lifsins. Svo er þó í þetta skiptii. I siðastMðiminá viku bárust þær fregnir, að sovézki stórmeist- arinm Leomiid Steim hefði orð- ið bráðkvaddur á hóteli í Moskvu á leið sirnnii til Evr- ópumeistaramótsins í Bath. Steim tefld'i eims og menn rek- ur minni til á Reykjavikur- mótinu 1972 og mun vera flestum sem kynntust honum mimnistæður, enda mjög geð- þekkur maður. Er ekki úr vegi að rifja hér upp í fáum orðum helztu atriðim i skák- ferld Steim, sem óneitanlega var glæsilegur þótt ekki væri óslitim sigurgianga. Leonid Steim var Okráinu- maður af gyðingaaititum, fæddur árið 1934 og þvi að- eins 38 ára er hann lézt. Hamm vakti fyrst aliþjóða- athyglii er hanm varð í 3.—4. sæti á Skákþiingi Sovétrikj- anma árið 1961 og skaut þá aftur fyrir sig köppum á borð við Spassky, Smyslov, Polu- gajevsky, Bronstein o. fl. Skákþimg þetta veiitti réttimdi tii þátttöku í miMisvæðamót- imu í Stokkhólmi 1962. Þar skyldu sex efsitu menn kom- ast áfram í áskorendamót, en þó aðeims þrír frá sömu þjóð. Stein varð í 6. sætá i mótinu, en landar hans urðu allir hliutskarpari og því varð hann að láta sér nægja að vera fyrsti vamamaður. Á miil isvæðamótimu í Amster- dam endurtók sagan sdg og i Sousse árið 1967, þegar regl- umum hafði verið breytt á þanm veg, að nú skyldu sex efsitu memn halida áfram, án til'liís till þjóðemds, varð Stein í 6.—8. sæbi ásamt Hort og Reshevsky. Þeiir þremenn- ingamir háðu keppnd um sœt- ið og urðu alHr jafnir að vinnmgum, en Resihevsky hreppti hnossið sökum hag- stæðrair stigatölu. Stein varð þrisvatr sinmium skákmeisitari Sovétríkjanna. Hann sigraði á miklu skákmóti, sem haldið var í Moslkvu árið 1967 í til- efni af fimmtíu ám afmæli októberbyltimgarinnar og á minnimgarmóti Aljékins 1971 varð hann i efsta sæti ásamt ianda sínum Karpov. Þannig mætti lerugi telja, en hér skal þó aðeins nefnit eitt mót enn, siðasta mótið sem Stein tók þátt í, a. m. k. svo mér sé kunniugt um. Það mót var halidið í Lais Paknas á Kan- aríeyjum nú í vor og þar sigraði Stein ásiamt Petrosjan. Þegar Stein var staddur hér í Reykjavík i fyrra bár- ust honum fregnir um að hainn hefði verið valinn til þátttöku í mililisvæðamátinu, sem senn hefst i Brasilíiu. Hamn varð glaður við, en sagði siðan: „Nú eðia aldrei". Fæstum mun hins vegjar hafa til hugar komdð, að hann yrðí alilur áður en miiiliisvæðamótið hæfist. Við skulum nú líta á eina fallega skák frá hendi Stein. Hún er tefld i Skákþingi Sovétríkjanna árið 1961 og þar er varnansérfT'æðáinigurinn Petrosjan lagður að veffi í aðeins 27 leikjum. Hvítt: L. Stein. Svart: T. Petrosjan. Frönsk vörn. 1. e4 — e6, 2. d4 — d5, 3. Rc3 — Bb4, 4. e5 — Re7, (Annar vinsæll leikur er hór 4. — c5, þótit hann leiði að vísu oftast til sama af- brigðisit og textaJeikurinn). 5. a3 — Bxe3+, 6. bxe3 — c5, (Júgóslavneskii stórmedstar- imn Ivkov hefur reynit hér 6. — b6, ásarnt Ba6). 7. Dg4 (Hvassasta áframhaldið, Fischer leikur hér gjaman 7. a4 ásamt 8. Rf3). 7—Rf5 (Önn ur leið er hér 7. — Dc7, 8. Dxg7 — Hg8, 9. Dxh7 — cxd4, og staðan er mjög tvisýn). 8. Bd3 — h5, 9. Df4 (Hér er einnig leiikið 9. Dh3, en textaleikurinn held- ur opnum möguleiikum á að leika g4). 9. — Rc6, (Þessi loikur leiðir til hvassrar baráttu. Annar möguleiki, sem þó er hag- stæðuir hvituim, er 9. — cxd4, 10. cxd4, 11. Dxh4 — Rxh4, 12. Bg5). 10. Re2 — Rce7, (Eftir 10. — c4, 11. Bxf5 — exf5, 12. Rg3 — g6, hefuor hvítur öll völd á svörtiu reiiíunum). 11. Rg3 — Rg6, (Ef 11. — c4, 12. Bxf5 — exf5, 13. Dg5, hefur hvítur mun betra taifl og sama gildir eítir 12. — Rxf5, 13. Rxf5 — exf5, 14. a4). 12. Dd2 — Bd7, 13. Hbl — Hb8, 14. 0-0 — c4, (Eða 14. — h4, 15. Rxf5 — exf5, 16. dxc5 ásanut a4 og hvitur stendur betur. Nú stefnir hvitur að því að koma biskupnum á skálin- una a3-f8 og þegar það tekst verða vonir svarts að engu). 15. Be2 — Rxg3, (Nú opnast f-línan hvítum í hag, en svartur á erfitt um vik. Eftir t. d. 15. — h4, 16. Rh5 — Kf8, 17. g4 — hxg3, 18. fxg3 hefur hvitur sterka sókn). 16. fxg3 — h4, (16. — Ba4 hefði hvíttir svarað með 17. h4, ásamt Ddl og efíir 18. — g6 hefði komið Bg5 með yfirburða- stöðu). 17. Bg4 (Ónákvæmur leifcur, betra var 17. a4). 17.— hxg3, 18. hxg3 — De7?, (Hér leibur Petrosjan af sér á úrsliitastundu. Sjál'f- sagt var 17. — Ba4 og svarfcur getur enn biitið frá sér, þótt hviitiur standi vissu- iega betur eftir sem áður). 19. a4!! (Auðviitað, nú eru dagar svairts taldir). 19. — Bxa4, (Ekki verra en hvað annað. Eftir t. d. 19. — 0-0, 20. Hal — Dd8, 21. Ba3 — He8, 22. Bd6 hefur hvitur yfirburða- tafil.). 20. Hal — b5, 21. Ba3 — Dd7, 22. Hf2 — Hb7, 23. Hafl — Dd8, 24. Ddl — Hh6, 25. Bcl — Hh7, 26. Bxe6! — fxe6, 27. Dg4 og svartur gafst npp. Jón Þ. I»ór. Gísli Guðmundsson; Ferðaspjall Húsavík Eins og ég minntist á i síð- asta spjaill minu ætla ég nú að ræða um nokkra þjónustu- staði utan Reykjavíkur, sumir þeirra nýir en aðriir éldri, sem eiga það skilið að athygld sé vakin á þeim. Þar sem hér er af tölverðu efnl að taka mun það duga mér I eina tvo þætti. Hið nýja hótel á Húsavík. verður tvímælalaust að teljast merkasta framlagið á þessu ári til aukinnar og betri ferða þjónustu, raunar eitt meiri háttar afrek (orð sem íþrótta- fréttamenn eru búnir að gera að lágkúru). Byggðarlaginu í heild óska ég hjartanlega til hamingju en þó fyrst og fremst hótélstjóranum, Sig- tryggi Albertssyni; hann hefi ég þekkt í starfi í yfir 15 ár og tel hann hiklaust einn af okkar beztu „vertum“. Það er raunar gleðilegt að Suður—Þingeyrjarsýslan hef- ur nú eignast mótvægi við þeim ægishjálmi, sem Mý- vatnssveitin hefur borið yfir öðrum ferðamannastöðum á Norðausturlandi en þar eru þeir þó sannarlega margir og fagrir. Nægir að nefna staði svo sem Ásbyrgi, Dettifoss, Aldeyjarfoss, Goðafoss, Tjör- nes, Laxárgljúfur, til að rök- styðja það. Nú gefca ferða- menn sannreynt þá staðreynd að Húsaví'k liggur engu síður vel við ti'l ferðalaga um þenin- an landshluta en Reykjahlið og að sumu leyti betur. Þar við bætist að bærinn er mjög aðlaðandi að yfirbragði, á sér yfirburðafagurt útsýni og býð ur upp á alhliða þjónustu við fólk og farskjóta. Ég ætla nú að rekja nokkrar ferðir út frá Húsavík til staðfestingar þess um fullyrðingum mínum: Ferð 1 Mývatnssveit verður þá fyrst fyrir okkur, haldið suður Aðaldal/Reykjadal, austur yfir Laxárdalsheiði til Mývatns og þar syðri leiðin til Reykjahlíðar. Á þeirri leið er nóg að sjá og skoða og nægiir að nefna Dimmuborgir, Grjótagjá og hliðarspor aust- ur í Námaskarð. Fagurt er síðan að aka siðdegis Kisil- veginn norður um Hólasand með útsýni út yfir dali, fjöll og flóa og ef tími vinnst til taka hliðarspor vestur að Lax árvirkjun og Grenjaðarstað tii að sltoða þar eitt athyglis- verðasta byggðasafn landsins. Þeir, sem vilja sjá þetta svæði vei, geta sem bezt eytt heilum degi á þessum slóðum, bætt við Laxárgljúfrum og ferð upp á Geitaféil til að njóta ógleymanlegs útsýnis. Þá er næst ferð austur um Tjörnes, sem býður upp á eiin- hver athyglisverðustu jarðlög á Islandi. Flestir munu svo hugsa um hinn hefðbundna hring um Ásbyrgi, Dettifoss, Grímsstaðd, Reykjahlíð og það an norður Kísilveg en þarna er um fleiri leiðir að velja. Sú styzta er að aka ekki áúst- ur um Kelduhverfi heldur aka hinn gamla veg suður með Fjöllum og svo vestur yfir Reykjaheiði til Húsavíkur en á sumrum mun vegurinn yfir heiðina fær : flestum bilium. Uppi á heiðinni er svo hliðar- vegur suður að Þeistarreykj- um, gömiu eyðibýli og einnig athyglisverðu jarðhitasvæði en sá vegur mun varasamur í ri'gningatið. Mun lengri ferð, en afar athyglisverð, er að aka aust- ur Kelduhverfi, yfir Jökulsá og norður Axarf jarðarsveit að vegamótum norðan við bæinn Khfshaga en þar er þá fram- undan hringakstur um Mel- ■rakkasiéttu, fær ölium biium og vegalengdin um 160 km. Sjálfsagt eru skiptar skóðanir um hvort eigi að aka með eða móti sól en kunnugir segja mér, að það sé betra að aka fyrst austur yfir Axar- fjarðarheiði til Þistiifjarðar, þar norður um Afrétt til Raufarhafnar, þaðan vestur með nyrstu strandlengju Is- lands og svo suður með vestur ströndinni um Kópasker. Á meðan nótt er björt mun furðu fagurt að vera á ferð þarna nyrðra í fögru veðri um lág- nættið. Ekki má ég skiljast svo við þessi héruð austan Tjörness, að ég ekki geti um leiðina suður vestan Jökuls- ár um Hljóðakletta og Hóima- tungur en hún er aðeins jeppa fær. Ekki má sleppa ferð um Bárðardal, tilvalið að aka frá Fosshól suður dalinn austan Skjálfandafljóts, vestur yfir brúna hjá Stóruvöllum, það- an S'uður að Mýri og að Áíd- eyjarfossi, sem talinn er einn af friðustu fossum landsins. Svo llggur leiðin norður dal- inn vestan fljótsins og best að halda áfram norður Kinn- arveg. Þar nyðra eru ekki síður skoðunarverðir staðir, svo sem Fellaskógur meðfram Skjáifandafljóti (akfær vegur hjá bænum Hóisgerði) eða þá að strekkja alla Leiðnorðuir að sjó, þar sem heitir „undir Björgum". Raunar eru þessir tveir staðir nægt verkefni i dagsferð, ég tala nú ekki um ef farimn er leiðangur norður i Náttfaravíkur. Tii að heim- sækja þær er einnig hægt að velja góðan dag og fara þang- að á báti frá Húsavik, um Framhald á bln. 20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.