Morgunblaðið - 04.08.1973, Page 22
22
MORGUNBLAÐEÐ — LAUGARDAGUR 4, ÁGÚST 1973
Minning:
Ásgeir Pálsson
hreppstjóri Framnesi
HINN 29. júlí sl. andaðist að
heimili sinu, Framnesi í Mýrdal,
Ásgeir Pálsson, hreppstjóri, eft-
ir mjög erfiða sjúkdómslegu.
Hann var fæddíúr 2. júlí
1095 að Bretkkúfoae í, Nesjum,
Austur-Skaftaíellssýsl'U. Voru
foreldrar hans hjónin Páll Þor-
steinsson og Stefanía Sigurðar-
dóttir, sem bjuggu á Ytri-Sól-
heimium í Mýrdal. Hjá þeim ólst
Ásgeir upp og þar átti hann
heimiili sitt þar til hanm kvsent-
ist árið 1925, Kristínu Tóimas-
dóttur frá Vík. Stofnuðu þau
fyrst heimili á Ytri-Sólheimum,
en árið 1936 reistu þau nýbýli
út frá Sáiheimunum, sem þau
t
Konam min
Bjarney S. Sigvaldadóttir
íézt að sjúkrahúsi Keflavikur
31. júJS. Jarðairför fer fram
mjiðvikudag 8. ágúst ki. 2 e.h.
Fyrir mína hönd og anjnarra
vandamanna.
Arnoddur Jóhannesson.
nefindu Framnes. Þar bjuggu
þau síðan alian sinn búskap.
Bkki naut Ásgeir langrar
skiólagöngu í æsku fremur en
allur fjöldi aiþýðufóiks á þeim
timum. Þó gekk hann í kvöld-
skóla eftir bamaskólanámið og
kom það honum að góðum not-
um. Hann var einn hinna
greindu íslenzku bænda, sem
aila ævi var að afla sér aukinn-
ar þekkingar jafnframt brauð-
stritinu og var því víða heima.
Ásgeir Pálsson var stilltur mað-
ur og prúður í allri framgöngu,
en jafnframt hýr og glaður, hve-
nær sem maður hitti hann —
jafnt heima sem að h.eiman. —
t
Biginmaður minn
Stefán Jónsson
bifreiðastjóri
Tunguvegi 7, Hafnarfirði
andaðist 3. ágúst að Landspít-
alainrmi. Fyrir hönd bama
okkar.
Jóhanna Rósants.
t
tiginmaður minn,
JÓN D. JÓNSSON.
málari,
lézt af slysförum fimmtudaginn 2. ágúst.
Svava Sigurðardóttir.
t
Móðir okkar,
INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR,
Bárugötu 17, Reykjavik,
andaðist að Sjúkrahúsinu Sólvangi hinn 3. ágúst 1973.
Jóharmes Guðmundsson,
Harald Guðmundsson,
Sveinn Guðmundsson.
' ..i ..........
t
Móðir okkar,
JAKOBÍNA ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Vöglum,
andaðist í Landspítalanum 2. ágúst.
Fyrir hönd vandamanna,
Hjörleifur Ingólfsson, Helgi Ingóifsson.
t
hmilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við and-
lát og jarðarför systur okkar og mágkonu,
GUÐRÚNAR M. K. JÓNSDÓTTUR,
Lönguhlíð 19.
Valgerður Jónsdóttir,
Magnús G. Jónsson,
Jóna Kristin Magnúsdóttir.
t
Þökkum hluttekningu við andlát og útför
SIGURÐAR STEINDÓRSSONAR,
Háteigsvegi 40.
Amdís Jónsdóttir,
Þórunn Sigurðardóttir, Jón Sigurðsson,
Sigurlaug Sigurðardóttir, Magnús Sigurðsson,
Asa Sigurðardóttir, Haraldur Sigurðsson.
tengdaböm, bama- og bamaböm.
.......................
Hann var vinsæll af sveitungum
sinum og öllum þeim, sem höfðu
kynni af honum.
Ásgeiri var falinn ýmis trúnað
ur fýrir sveit sína og sýshi og
leysti hann öil störf sin af hendi
með mikilli snyrtimennsku. Um
heiðarlegheit hans og drengskap
í öUum viðskiptum efaðist eng-
inn. Harm var um langt skeið
hreppstjóri Dyrhólahrepps, í
stjóm Verzlunarféiags Vestur-
Skaftfellinga, í skattanefnd, og
ýmsum öðrum opinberum störf-
um gegndi hann um ævina. Þá
var Ásgeir einn síðasti formað-
urinn á opnu áraskipi við Jök-
ulsá á Sólheimasandi. For-
mennska á opnu skipi við sunn-
lenzku sandana var mikið
ábyrgðar- og trúnaðarstarf. Það
starf krafðist alis í sentn, karl-
mennsku, dirfsku, útsjónarsemi
og aðgæzlu. Líf aHrar skipshafn-
arinnar var í raun og sannleika
lagt í hendur formannsins í
Jarðarför bróður okkar
Hallfreðs Jóns Oddssonar,
Hátúni 10 A
sem andaðfet 29. júlí, fer
fram frá Fossvogskirkju
þriðjudagimn 7. ágúst kl.
10.30.
Fyrir hönd systkánarma.
Pétur J. Oddsson.
hvert skipti, sem haldið var á
miðin frá brimströndimni.
Aliit var komið undir ályktun-
arhæfni, þekkingu og stjóm-
semi formannsins. Algjör sam-
stilling huga og handa áhafnar-
innar var forsenda þess að vel
tækfet. Mörg landtakan var
hreiní tafi um lif og dauða. Þá
var betra að skipanir formanns-
ins væru réttar og höndin styrk,
sem um stjómvölm hélt. Marg-
ir gömlu sandaformennirnir,
sunnlenzku, voru hetjur og vík-
ingar þegar þeir voru setztir und
ir stýri — æðrulausir foringjar
á hættustund. Ég dái þessa
menn. Gifta margra þeirra var
mikil, þótt stundum yrðu höirmu
leg slys. Lífsbaráttan var hörð
á þeirn árum og erfitt að sjá sér
og sínum farborða. Þess vegna
varð að sækja fast.
1 áratugi stýrði Ásgeir Páls-
son skipi sinu frá Máriuhliði við
Jöfculsá. 1 því starfi var hann
mikill gæíumaður. Var hann
þakklátur forsjóninni fyrir þá
miklu hlífð, sem ætíð var yfir
honum og skipshöfnum hans á
sjónum.
1 einkalífi sinu naut Ásgeir
margra sólskinsstunda. Hann
áfcti mikilhæfa dugnaðar- og
ágætis komu, sem ætið stóð við
hlið hans í blíðu og stríðu til
hinztu stundar. Hjónaband
þeirra var ástúðlegt og gott. Það
duldist ekki fyrir þeim, sem á
heimili þeirra kornu. En áföllin
voru einnig mörg og þung. Þau
hjónin eignuðust 8 mannvaenleg
börn. En urðu að sjá á bak
þrennur þeirra ofan í gröfina.
Fyrst misstu þau tvær dætur sín
ar á unglingsaklri mieð skömmu
-millibili. Fyrir fáum árum lézt
sonur þeirra í blóma lífsins frá
konu og ungum bömum. En
ungu hjónin voru þá nýbúin að
byggja sér fallegt hús í Fram-
nesi. Ég hygg, að Ásgeir hafi
aldrei náð sér eftir það áfall,
enda var aJdurinn þá farinn að
segja til sín og þrekdð tekið að
bila.
Fyrir skömmu áttum við hjón-
in leið austur á fomar slóðir I
Skaftafellssýslu. Við vfesum að
Ásgeir í Framnesi hafði átt við
sjúkdóm að stríða undanfarið.
Langaði ókitour til áð líta til hans
og frétta um líðan hans. Én við
urðum of sein. Okkur bar að
garði síðari hluta dags. Sama
morgun hafði dauðinn kvatt þar
dyra. — Ásgeir var látinn. Enn
eiinu sinni hafði góður vinur og
drengilegur samferðamaður um
langt skeið kvatt og lagt upp í
ferðina miklu, seim allra okkar
bíður. Þannig gengur þetta oft.
Dauðinn ér f.jótari i ferðum, en
við hyggjum. Á slíkum stundum
verða orð fátækleg og umkomu-
laus. Ég hef oft dáðst að Kríst-
ímu í Framnesi fyrir dugnað
hennar og hetjulund. Hún tók á
móti okkur, aldurhnigin, þreyfct
og slitin, - - búin að horfa á
eftir 3 efnilegum bömum ofan í
gröfina. Nú stóð hún við lik-
börur mainnsins síns éftir að
hafa stundað hann iengi sjúkan.
En Kristin var ekki brotin. —
Þessi smávaxna kona var þvert
á móti stór og sterk í hugum
okkar er við héldum á brott.
Ég á margar góðar miinning-
ar uin Ásgeir í Framnesi frá því
ég kynntist honum fyrst sem
ungur maður. Á annam tug ára
störfuðum við mikið saman að
sameiginlegum áhugamálium. —
Það samstarf var mér til mikill-
ar ánægju, svo og 511 kynni mín
af honum fyrr og síðar. 'Vámm-
lausari og drengilegri mann en
Ásgeir hittir maður trauðla. Vin-
átta hans var falslaus og ein-
læg — fylgi hans við þann mál-
stað, sem hann taldi réttan,
traust óg ótvirætt.
Ég kveð þennan góða vin
minn með virðingú og þökk fyr-
ir samfylgdina og óska honum
fararhedlla til landsins handan
móðunnar miklu.
Ástvinum hans öUum bið ég
blessunar Guðs.
Ragnar -Jónsson.
Yfirlýsing frá UMFI:
Niðurfelling sumar-
hátíða spor af tur á bak
AF GEFNU tilefnl vill Ung- I færi eftirfarandi yfirlýsingu varð
mennaféiag Islands koma á fram I andi samkomuhald um verzhinar
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðar-
för móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SÓLVEIGAR ÓLAFÍU ARNADÓTTUR
frá Búðardal.
mannahelgar, sem ungmennafé-
lögin víða um land hafa annazt
undanfarin ár, en fellur niður að
þessu sinni:
Ungmennafélögin í landinu
hafa um árabil haft forgöngu
um að koma á menningarlegum
útisamkomum víða um land, og
er það mál manna, að slíkar
böm, tengdaböm, bamabörn og bamabarnaböm. sumarhátíðir fari bezt fram, séu þær skipulagðar sem fjölskyldu
hátíðir og hæfilega margar,
dreifðar um landið, svo sem ung-
4- Framhald á bls. 20.
T Þökkum samúð og vináttu við fráfall systur okkar og t
mágkonu. Innllegar þakkiir fyrir auð-
ÞÓRDlSAR ÞORSTEINSDÓTTUR, sýnda samúð við andlát og
saumakonu. jarðiarför
Sérstakar þakkir færum við Elli- og hjúkrunarheimilinu Steins Jónssonar
Grund. vélstjóra
ViBijáhnur Þorsteinsson, Kristín Gisladóttir, Steindóra Albertsdóttir,
Vigfús Þorsteinsson, Þórunn Jónsdóttir. börn, tengdabörn og
barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarfðr
ELlNAR S. JÓNSDÓTTUfl,
fyrrverandi Ijósmóður á isafirði.
Þórður G. Jónsson,
Þ6ra S. Þórðardóttir, Haraldur Steinþórsson,
Svanfríður Þórðardóttir,
Jón Þórðarson, Ingibjörg Þ. Jóhannsdóttir,
Bjöm Jónsson, Jóhanna Svendsen,
bamaböm og tengdaböm.
Þaikka imniiilega samúð og vin-
arhuig við andlát og útför
Páis Helgasonar
Reykjahvoli, Mosfellssveit
SigTiður Heigadöttir.