Alþýðublaðið - 24.08.1958, Side 4
4
AlþýðublaðiS
Sunnudagur 24. ágúst 1958
Landhelgin |
ÞAÐ fer nú að líða að því'
að landhelgin verði færð út og
er því ekki úr vegi að minna
lítillega á það hér. ekki til að
deila um aðdraganda og niður-
stöður málsins heldur til að
vekja athygH allra bæði á sjó
og landi, á að framtíð þessa
mildlsverða máls er öll undir
þjóðinni sjálfri komin. Við
skulum snúa bökum saman og
verja rétt okkar til að lifa í
landinu ein’huga og samtaka,
þá munum við sigra að lokum
rúe'ö þolinmæði og krafti þess,
sem veit að hann er að gjöra
rétt. Yfirgangur erlendra þjóða
á íslandsmiðum er ekki ný
bóla. Hann htefur alltaf verið
staðreynd. Nú í svipinn virðist
hann hvað mestur í maga og
munni, þessara voldugu ná-
granna okkar, sem eiga erfitt
með að sætta sig við að þjóðir,
er búið hafa við átroðning og
ófrelsi á liðnum öldum leiti
réttar síns. Við skulum vona
að ríkisstjórnir þessara landa
skilji sinn vitjunartíma og
Jeggi ekki út í nein ævintýri
við íslandsstrendur.
En allur er varinn góður. Það
er því engin fjarstæða að ís-
lenzkir sjómenn séu viðbúnir
fólskuverkum einhverra er-
lendra sjómanna, sém kynnu
að láta skapið hlaupa með sig
í gönur við að bíða, að því að
þeim finnst, lægri hlut og
missa spón úr aski sínum fyrir
ekki meiri bóg en við erum
sem herveldi, enda munum við
aldrei sigra sem slíkir. Það er
því nauðsynlegt að ÖU þjóðin
sé vel á verði oa láti skapfestu,
þolinmæði og drenglund ráða
gjörðum sínum í þeim viðskipt
um sem framundan eru. Skap-
ofsi eða lítt hugsaðar aðgerðir
eiga hér ekki Við frekar en
annars staðar.
Verið varkár. Varizt slysin.
Slysavarnafélagið hefur lát-
ið setja upp spjöld með þessari
áletrun á nokkrum stöðum á
landinu til aðvörunar vegfar-
endum. Þessi varnarorð eiga
, þó víðar við en í umferðinni.
Á liðnu sumri hafa orðið sorg-
lega mörg slys á vinnustöðum
og í sveit vegna aukinnar vél-
væðingar. Emnig, er menn
hafa ætlað að hrista rvkið af
fótum sér og njóta ánægjunnar
út í náttúrunni hefur það kom
ið fyrir að slys hafa hlotizt af
lítt eða vanhugsuðum aðgerð-
um. Það er því full þörf á að
við tökum höndum saman um
að hamla á móti þessum vá-
gesti á hvern þann hátt sem
tiltækdegur er. Það er því
nauðsyn á almennri hvatningu
til þióðarinnar um að vera var
kár og varast slysin og. festa
sér það vel í mmni.
Fiskleysið í bænum.
Það myndu víst fáir trúa
því, sem ekk:, þekkja til að
fiskleysið í Reykjavík, sé eitt-
hvert erfiðasta úrlausnarefni
þessa bæjar. En það virðist það
vera ef dæma má eftir því hve
margir hafa lagt mikið
á sig við að gera alls konar til-
lögur til úi-bóta í þessum efnum
án þess þó nokkuð ætli að ræt-
ast úr. Kennir svo hver öðrum
um ástandið og enginn veit
hverju hann á að trúa. Ég ætla
ekki að koma með nfeinar nýjar
tillögur í þessu sambandi, það
er alveg hægt að notast við
eitthvað af þeim gömlu aðeins
ef það yrði gjört en ekki látið
sitja við orðin tóm.
Á. B.
c
3
Andarunginn á fjörninni
. ALÞÝÐUBLAÐIÐ birti 19.
þ. m. mynd, sem ljósmyndari
blaðsins hafði tekið af andar-
unga við tjörnina. Unginn var
illa útleikinn, — snöru hafði
verið vafið um háls hans og
fætur. Mynd þessi hefur vakið
mikla athygli og t. d. hefur 1S
ára gömul stúlka, Sólveig Ein-
arsdóttir, sent blaðinu eftirfar-
andi bréf:
„Kæri ritstjóri!
Er ég í dag sá í blaðj yðar
mynd af önd, sem drepir, hafði
verið á níðingslegan hátt, fyllt
ist ég reiði og viðbjóði. Mér
ofbauð að vita, að nokkur mað-
ur gæti verið svo mikill níðing-
ur að drepa dýr, sem ekki getur
'borið hönd fyrir þöfuð sér, á
svo níðingslegn hátt. Og það
sem verra er, þetta er ekki í
fyrsta skipti, sem slíkt verk er
unnið. En þér segið orðrétt: —
„Enda þótt spilling og afsiðun
ungdmósins nú á dögum hafi ef
til vill vérið gagnrýnd einum
um of, hljóta atburðir sem þess
ir að vekja menn tilalvarlegrar
umhugsunar." Hér gefið þér
Jjóslega í skyn, að Það hafi ver-
ið unglingur, sem vann þetía
níðingsverk. Eitthvað hljótið
þér að hafa fyrir yður : þessu.
En gjörið svo vel að svara mér:
Hver er kominn til með að
segja, að það hafi verið ung-
lingur, sem vann þetta níðings
verk?“
| , i ; :; I- r
Blaðið verð'ur að hryggja Sól
veigu litlu með því, að það hef
ur ekki annað fyrir sér í þessu
en það, að líklegra hlýtur að
teljast, að óvitar hafi verið hér
að verki en fullorðið fólk. Börn
hafa því miður verið staðin að
verki ekki ósvipuðu þessu. En
þegar við höfðum lokið við að
lesa þetta ágæta bréf Sólveigar,
barst okkur annað bréf frá P.J.,
sem hljóðar svo:
„í blaðinu 19. þ. m. var birt
mynd af andarunga illa útleikn
um. Þó er þarna ekki um ó-
þokkabragð að ræða eins og
ætla mætti. Fyrir skömmu var
ég niður við tjörn og sá þá tvö
börn með andarungann, sem
ég þekki þarna fyrir hinn sama.
Ég tók þau tali, og sögðust þau
hafa fundið hann dauðann við
bakkann og ætlað að eiga hann.
I Síðan foundu þau hann með
snæri, sem þau fundu. Járn-
renninginn höfðu þau til að |
geta borið ungann á milli sín.
Ég benti þeim á, að hræið gæti
verið eitrað og sagði þeim að
henda því. Af þessu má sjá, að
þarna var ekki um óþokkabragð
að ræða, heldur aðeins barna-
skap. Væri æskilegt, að þetta
yrði leiðrétt.“
Frásögn P.J. er án efa rétt, o«
biðjumst við afsökunar á grun
okkar, sem vissulega var ekki
ártæðulaus, en reyndist rangur.
AUGLÝSIÐ 1
ALÞÝÐUBLAÐINU.
Norski rithöfundurinn
Agnar Mykle
les upn £ Austurbæjarbíói n.k. miðvikudag kl.
7,45.
Aðgöngumiðar á kr. 20.00 hiá Eymundsen
Eigkimaður minn_ faðir, tengdafaðir og áfi.
ÁRNI PÁLSSON,
fyrrverandi bifreiðarstjóri, Kópavogsbraut 61
verður jarðsunginn miðvikudaginn 27. ágúst kl. 3 e. h. frá
Fossvogskirkju.
Ingibjörg Sveinsdóttir
Sveinrún Árnadóttir
EHn Árnadóttir
Sigríður Helga Árnadóttir
Stella Árnadóttir
Stefán HaraUlsson
Bjarni Jensen
Hjörleifur Friðleifsson
Böðvar Jónsson
og barnabörnin.
Jarðarför eiginmanns míns,
SIGURJÓNS DANIVALSSONAR.
framkvæmdastjóra, Reymimel 47, sem andaðist 15. ágúst hef
ur farið fram í kyrrþey.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er vinsamlega bent
á minningarspjöld Náttúrulækningafélags íslands.
Jónasi Kristjánssyni lækni, Náttúrulækningafélagi íslands
og öðrum vinum vil ég færa mínar beztu þakkir fyrir auð-
sýnda samúð og vinarhug.
Fyrir hönd vandamanna. '
Sólveig Lúðvíksdóttir. r
K. S. I,
K. R. R,
ÍSLANDSMÓTIÐ1. deild. - í kvöld M. 8 leifca á Melavellinum
Valur — Keflavík
Dómari: Þorlákur Þórðarson. Línuverðir: Frím ann Gunnlaugsson og Skúli Magnússon.
Tekst Keflavík að sigra Val? — Allir á völlinn.
Mótanefndin.
s
$
s
s
s
s
s
s
s
s
s
i
s
. s
s
j