Alþýðublaðið - 27.08.1958, Page 4

Alþýðublaðið - 27.08.1958, Page 4
4 AlþýðublaðiS fiðvikudagur 27. ágúst 1958. MGSMS VEGFABANDI skrifar: „Ég fer flesta virka daga ársins milli Hafnarfjaröar og Beykjavíkur. Þess vegna fylgist ég vel með vegagerð ríkisins og viðhaldi þessa vegaspotta, sem er með íiinum einkennilegasta hætti. Viðhald þessa vegar er með þeim eindæmum að undrun sæt ■ ir. Hann er skóbættur liingað og þangað og oft er það þannig, að þegar lokið er að gera við hann á öðrum enda, eru komn- ar gjótur í hann á hinum end- anum. í DAG er hann þannig að í fyrstu frostum mun hann spenn ast upp og valda skemmdum á bílum að ekki sé meira sagt. — Menn spyrja: Hví er ekki sett slitlag yfir verstu kaflana og fengnir kunnáttumenn til að gera þetta. Ég vil nú setja fram eina tillögu í fullri alvöru og er hún þessi: EF BÍKIÐ hefur ekki efni á að viðhalda þessum vegi þannig að hann sé sæmilega fær allan ársins hring, þá verða notendur hans að taka í taumana þannig: Allir bílar, sem aka allan veg- inn greiði lágt umferðargjald fyrir hverja ferð: Vörður sé við Álftarnesvegamót og annar í Fossvogi til innheimtu. Allir bílar, stórir og smáir, greiði á- kveðið gjald, stórir bílar meira litlir bílar minna. Sé þessi skatt ur notaður til þess að fullgera veginn og gæti þá komið til mála að gera tvær akbrautir og minnka þannig slysaiiættu. ÞESSI HATTUB er viða í Þýzkalandi og Ítalíu og talinn sjálfsagður og gefst vel. Marg- ra ára reynsla hefur sýnt og sannað að þakviðgerðir á vegin- um mun halda áfram með lík- um hætti og áður, sem sjálfsagt er að kenna féleysi vegamál- anna. Og með því að skapa Stefnt að því að aðalveg- irnir út úr borginni verði steyptir, Kleppsvinnan á Hafnar- fjarðarvegi. Rykmökkurinn á vegun- um. Vegaskattur til þess að standast kostnað við varanlegar endurbætur. Sementsverksmiðjan opn- ar nýjar Ieiðir. þannig öruggar tekjur, eins og hér er stungið upp á, myndi við- hald og breikkun vegarins tryggt. ÉG EB ÞESS viss, að allir sanngjarnir vegfarendur myndu greiða þennan hæfilega háa skatt, með glöðu geði, með þaö fyrir augum að fá síðar ailtaf veifæran veg, sem ekki skapaði farartækjum slysahættu eins og oft vill verða nú. ÉG SKORA á vegamálastjórn ina að taka nú þessa tillögu mína til athugunar og veit ég að ritstjóri pistla þessara myndi ljá rúm fyrr svar við uppá- stungu þessari. Gæti hér líka verið um tilraun að ræða, sem færa mætti frekar út, t. d. dett ur mér í hug vegurinn frá Hval- eyrarkoti til Keflavíkur og ef til vill fleiri leiðir.“ AF TILEFNI þessarar uppá- stungu vil ég segja þetta: Um líkt leyti og sementsverksmiðjan tók til starfa ók ég austur yfir fjall. Það var á laugardegi. Óslit in bifreiðalest rann austur veg- inn og var vegurinn í moldar- kafi. Mjög erfitt er að aka þegar þannig er og mikil slysahætla bæði við framúrakstri og þegar bifreiðar koma þjótandi á móti út úr kafinu .Er þá alveg sleppt að ræða um óhollustuna. ÉG FÓR að hugsa um það að mikill munur yrði á þegar búið væri að steypa veginn, þó að ekki væri nema austur að Sand skeið og hið sama yrðiþáaðnorð urleiðin yrði ekki steypt nema upp að Kollafirði. Nú þyrítum við ekki að eyða gjaldeyri í sem ent og ætti það að gera okkur auðveldara fyrir um að gera þær vegabætur, sem bráðnauð- synlegar eru. — En samt sem áður myndi þetta kosta offjáv og varla hægt að vænta þess að það yrði gert á minna en einum áratug. ÞÁ DATT mér í hug hvort ekki væri rétt að taka upp sér- stakan vegarskatt á þessum leið- um til að byrja með til þess ems að hrinda verkinu af stað. Mönn um finnst nóg um skattana, og það er von, en menn, sem ég hef minnst á þetta við hafa allir tekið þessu vel. Gjaldið þarf ekki að vera hátt til þess að heildarupphæðin yrði veruleg, og því mikill stuðningur við verkið. Öll bíðum. við þess með óþreyju að aðalvegirnir verði steyptir. Við bíðum þess fyrst og fremst vegna þægindanna en einnig vegna þess að bifreið- arnar endast betur. Ég tek þvi undir áskorun Vegfaranda hér að framan. Hannes á horninu. Þorvaldur yfirprentari Kveð juorð MÉR.er nokkur vandi á hönd um, er ég á að mæla eftir Þor- vald Þorkelsson látinn. Ekki þó vegna þess, að mig skorti kynni á störfum hans og persónu, öllu heldur hið gagnstæða. Við and- ]át hans er skyndilega rofin dagleg umgengni við hann, sem staðið hefur hátt á fjórða tug ára, og undir slíkumi kringum- stæðum er ekki nema eðiilegt að minningarnar sæki ört á. — Þær beinlínis hrannast upp, svo að ógerningur er að hemja þær í stuttri blaðagrein Þorvaldur Þorkelsson var Árnesingur að ætt, fæddur á Eyrarhakka 20. desember 1893, sonur hjónanna Þorkels Hreins sonar trésmiðs og Elínar Magn- úsdóttur hreppstjóra að Ljóts- stöðum. Þorvaldur hóf prent- nám f prentsmiðjunni Guten- berg 1. október 1908, jauk námi 1912 og vann þar síðan í nokk- ur ár, en í október 1916 hóf hann vinnu í Félagsprentsmiðj- unni og vann þar alla tíð síðan og sem verkstjóri samfellt frá árinu 1919. Þorvaldur var kvæntur Áróru Guðmundsdótt- ur og lifir hún mann sinn á- samt tveim börnum þeirra hjóna. Þorvaldur Iézt hinn 17. ágúst síðastliðinn og fer útföi hans fram í dag (27. ágúst) frá Fossvogskirkju. ;, {,,,, Þorvaldur Þorkelsson. Með Þorvaldi ÞorkeUsyni er traustur i'ð’naðarmaður fallinn í valinn. Hann lagði ávallt mikla rækf við starf sitt, vann heill og óskiptur, sýndi alúð og skyldurækni í kepnsiustörfum og brýndi vandvirkni fyrir þeim, sem lutu hans forsjá. — Vegna hans langa verkstjóra- ferils er nemendafjöldi sá, sem hann hefur leiðbeint, fyrr og síðar, orðinn geysifjölmerinur, og þar eftirlætur hann prentara stéttinni mikinn iðnfræðilegan arf. Fyrr á árum gegndi Þor- valdur trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélag sitt, prentarafélag- ið. Var hann ritari þess 1922 og ^ftur ,1928,t u |... ■j: Það mun ekki hafa ver.ið nein tilviljun, a;ð Þorvaldi var falin verkstjórastaða aðeins 26 ára gömlum. Augljósir hæfileikar hans, alúð og smekkvísi í störf umi mun ekki hafa dulizf fyrir- rennara hans. Það er langf frá því að vera vandalaust, að halda vinsældum f hinu mai'g- þætta starfi verkstjórans, þar kemur fleira til greina en verks vitið eitt. Skapgerð og réttar umgengisvenjur er ekki síður mikilsvert, ef sneiða skai hjá árekstrum og missætti. En Þor- valdur var þeim kostum búinn að þessu leyti, að ég tel allt að því einsdæmi. Þó hann væri ein' beittur og fastheldinn nokkuð á venjur sínar og skoðanir, þá var rólyndið og prúðmennsk- an svo 'mikils ráðandi í sam- skiptum við þá, sem hann um- gekkst, að ekki fór hjá því, að vinsældir hans unnu sífellt á. eftir þvf sem lengra leið. Starf verkstjórans er svo er- ilsamf á stundum, að flestir þurfa á öllu sínu að halda til þéss að halda skapgerð sinni ótrufiaðri, en svo virtist, sem geðprýði Þorvaldar færi aldrei úr skorðum, á hverju sem gekk. — Þetta á ekki sízt við um þá sem unnu undir hans stjórn. . FraiqJhald á 2. síðu. Vestfirzku krækiberin eru komin, góð og fín. Blóma- og grænmetisverzlunín Frá sjúkrahúsinu í Keiiavík Samkvæmt fyrirmælum reglugerðar um ráðningu sjúkrahúslækna framlengist hér með umsókmar- frestur um stöðu sjúkrahússlæknis í Keflavík, til 11. okt. n.k. Stjórnin. Húsnæði í Hafnarfirði fyrir verzlun, skrifstofur eða iðnað til leigu á ágætum stað í Miðbænum. Neðri hæðin, í ca. 100 ferm. steinhúsi, leigist allt í emu lagi eða að hluta. ÁRNI GUNNLAUGSSON hdl., Austurg. 10, Hafnarfirði, sími 50764 k]. 10—12 og 5—7. Tannlæknir óskast. Tannlæknir óskast til Sigiufjarðar 1. október næst komandi. Verður tryggt tannlæknisstarf við skóla bæj- arins. íbúð til staðar, einnig tannlæknastofa með nokkru af tækjum. Umsóknir sendist undirrituðum, sem gefur allar nánar.j upplýsingar varðandi starfann, fyrir 15. september n.k. Siglufirði 22. ágúst 1958. Bæjarstjórinn í Siglufirði. Sigui'ión Sæmundsson. Stiilka vön karlmannafatasaum óskast strax. Bragi Brynjóífsson klæðskeri -— Laugaveg 46 Útför eiginmanns mms KARLS KRISTJÁNSSONAR 7 Norðurbraut 17 — Hafriarfirði fer fram frá Fossvogskapellunni, föstudaginn 29. þ. m. kl. 1,30. Athöfninni verður útvarpað. Blóm eru afbeðin, en þeim sem vilja minnast hans 'er vinsamlega bent á krabbameinsfélagið. . Stefanía Jónsdóttir.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.