Morgunblaðið - 20.11.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.11.1973, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1973 SKOTKEPPNI — Víkinga og Hauka lauk með sigri Víkinga 28:22 Óþarfi er a<1 fara mörguni orðuin um leik Vikings og Hauka í 1. deildarkeppni íslandsmótsins i handknattleik. sem frant fór í Laugardalshöllinni á sunnudags- kvöldíð. 50 mörk í ieik 1. deildar liða segja sína sögu um. hvers eðlis leíkurinn var. og raunar alla i þessu tilviki. þar sem þarna var um skotkeppni að ræða mílli skyttanna í liðunum. Lengst af var tæpast um nokkra vörn hægt að lala. og þar með var markvar/l- an einnif; slök á háða Ixíga. Það var helzt í byrjun, að hægt var að tala um einhver tilþrif i leiknum. I fyrsta sinn í langan tíma sá maður svolítinn hreyfan- leika i Víkingsvörninni. hreyfan- leika. sem orsakaði það. að Vík- ingur náði fljött forystu gegn hinu slaka Haukaliði. sem bauð \ikingana velkomna f hvert skipti. sem þeir voi'u í sókn. A fyrsta stundarf.jóröungnum mátti líka segja. að allt heppnaðist hjá Vfkingunum. en ekkert hjá Haukaliðinu. Slíkt kemur jafnan fyrir öðru hver.ju. og á það lið. sent gæfan snýr algjörlega við baki. sjaldan viðreísnar von. Eftir 18 mfnutna leik var staðan orðin 8-2 fyrir Vikinga og í hálf- leik höfðu þeir náð 9 marka for- ystu 14-5. Seinni hálfleikurinn var svo nánast leikleysa. Sóknir liðtuina stóðu oftast ekki nema 5-10 sek.; þá var skotið. sama hvort um færi var að ræða eða ekki. Reyndar voru færin afar mörg. þar sem vörnin virtist auka- atriði hjá báðum liðunum. Svolítil spenna færðist í Ieikinn. er Hauk- ununt tókst að rninnka ntuninn niöur í fjögur ntörk. en þeir voru of ákafir til þess aðgeta fylgt því eftir. og Urslitin urðu 6 marka sigur Vfkings. Óhugsandi er að leggja nokk- urn dónt á liðin eftir þennan leik. Maður veit, að bæði geta betur. og það ntiklu betur. Leikur Vfking- anna í upphafi leiks. bendir þó ákveðið til þess. að Karli Bene- diktssyni, þjálfara liðsins, sé að takast að korna einhverju lagi á varnarleikinn. og ef það heppn- ast. þarf ekki að því að spyrja. að Víkingarnir blanda sér í toppbar- áttuna. Stíknarleikur liðsins er fjölbreyttur og ógnandi. og þar má segja. að valinn maður sé í hverju rúmi. Eftir ágæta b.vrjun í niótinu virðast Ilaukarnir vera að dala, og ef til vill verður þetta tap þeint þörf áminning I STL'TTL' M.\LI: Laugardalshöll 18. növember. Íslandsmötið 1. deild. ÚRSLIT: Víkingur — Ilaukar 28- 22 (14-5) LIÐ VÍKINGS: Sigurgeir Sigurðsson 2, Guðjón Magnússon 2. Jón Sigurðsson 2, Einar Magnússon 4, Skarphéðinn Óskarsson 2, Sigfús Guðmundsson 1, Páll Björgvinsson 1, Ólafur Friðriksson 1, Magnús Sigurðsson 1, Rósmundur Jónsson 1. Stefán Halldórsson | 2, Viggó Sigurðsson 1. LIÐ HAUKA: Ómar Karlsson 1, Sturla HaraJdsson 1, Svavar Geirsson 1, Sigurður Jóakimsson 1, Ólafur Ólafsson 1, Stefán Jónsson 3, Hörður Sigmarsson 3, Guðmundur Haraldsson 1, Frosti Sæmundsson 1, Gunnar Einarsson 1, Þórir Gíslason 1, Arnór Guðmundsson 1. Arnar Guðlaugsson stingur sér inn á línuna í leik Fram og IR. en hrotið var á honum og dæmt vítakast. Gangur leiksins: >Ifn. VfkinKur Haukar 2. 0:1 Hörður (v) 2. :j. Jón 2:1 4. Fjnar 3:1 (>. JÓll 4:1 1 :í. Kinar (v) 5:1 15. Ólafur 0:1 1(>. Kinar 7:1 17. 7:2 Ölafur (v) 18. Strfán 8:2 21. Strfán 0:2 23. Ölafur 10:2 25. Páll 11:2 2(>. 14:3 Ölafur 27. 11:4 Frosti 28. Páll 12:4 2í). 12:5 Stcfán 3«. (>uójóii 13:5 30. Stefán Hálfleikur: 14:5 32. 14:0 Stofán 34. 14:7 Arnór 34. Kinar 34. 1 •>. < 15:8 Hörður 35. Jón 10:8 3«. 10:0 Ólafur (v) 38. 10:10 Stcfán 40. (.uójón 17:10 40. (iuðjón 18:10 41. (iuðjón 18:11 Hörður 41. 10:11 42. Kinar 10:12 Hörður 43. 10:13 Hörður (v) 40. 10:14 Hörður (v) 48. 1 0:15 Hörður 40. 20:15 50. (iuójón 21:15 51. Stofán 21:lðiö 52. Stcfán 53. Kinar 22:10 53. 22:17 Ólafur (v) 55. Kinar(v) 23:17 55. 23:18 50. Kinar 24:18 50. 24:10 Stcfán 57. Kinar (v) 25:10 5 7. Skarphóðinn 20:10 58. 20:20 Ilörður 50. Vijítfó 27:20 50. 27:21 Stcfán 00. Skarphóðinn 28:21 00. 28:22 (iuðmundur Miirk L’íkings: Einar Magnús- son 10, Guðjón Magniisson 4. Stefán Halldórsson 4. Jón Sig- urðsson 3. Páll Björgvinsson 2. Ólafur Friðriksson 2. Skarphéð- inn Óskarsson 2, Viggó Sigurðs- son 1. Mörk Hauka: Ilörður Sigmars- son 8. Stefán Jönsson 7. Ólafur Ólafsson 4, Arnór Guðmundsson 1, Frosti Sæntundsson 1. Guð- mundur Ilaraldsson 1. Brottvísanir af velli: Páll Björgvinsson, Víking, í 2 mfn. og 5 mín.. Ólafur Friðriksson, Vfk- ing. í 2 mín.. Magntis Sigurðsson. Víking, í 2 mfn.. Einar MagnUs- son. Víking. í 2 ntfn., Stefán Hall- dórsson, Vfking. i 2 mín.. og Stefán Jónsson. Haukum. í 2 mfn. Misheppnuð títaköst: Ilörður Sigmarsson skaut yfir úr vfti á 5. mfn. og íþverslá á 16. mfn. Ólafur Ólafsson skaut framhjá á 12. mín. og Einar Magnússon átti vítakast f þverslá á 7. mfn. Dómarar: Haukur Þorvaldsson og Jón Friðsteinsson. Þeir dæmdu þokkalega. ,stj|. Guðjón Magnússon, 1 Skemmtilegi ¥ IR og Fram lauk með j; GlFURLEG spenna var á loka- mfnútunum í leik ÍR og Fram í 1. deildar keppni íslandsmótsins í handknattleik í Laugardalshöll- inni á sunnudagskvöld. Þegar að- eins 10 mínútur voru til leiksloka hafði Fram eitt mark yfir, en á lokamfnútunum tókst ÍR að jafna og komast einu marki yfir. A síð- ustu mínútu leiksins tókst lands- liðsmanninum Sigurbergi Sig- steinssyni að jafna fvrir lið sitt, eftir baráttu við Geir Thorsteins- son, ÍR-markvörð lít í öðru horn- inu. Þetta jöfnunarmark Fram var næsta ódýrt, en sanngjarnt var þó að liðið næði að jafna, þar sem það hafði verið öllu sterkari í leiknum. Þessi leikur var annars einn skemmtilegasti leikurinn það sem af er íslandsmótinu í ár, og jafnframt bezt leikni. Greinilegt var, þegar í upphafi leiks, að um mikla baráttu yrði að ræða í þessum leik. Stigin voru mjög mikilvæg fyrir báða aðila, ekki sízt IR-inga, en tap í þriðja leiknum í röð hefði þýtt, að mögu- leikar til að vera með í toppbar- áttunni vour takmarkaðir. Og bæði liðin náðu að sýna sitt bezta í leiknum, sérstaklega í vörninni, þar sem hver einasti maður var vel hre.vfanlegur og á verði. Þrátt fyrir árvekni í varnaraðgerðum og nokkra hörku var aldrei leikið gróft, og aðeins einum leikmanni var vísað af velli í þessum mikla baráttuleik. ÍR-liðið hefur tekið miklum stakkaskiptum frá sínum fyrsta leik í mótinu, sem var gegn FII, en þá virkaði liðið ntjög dauft og sundurlaust. I leik sínum gegn Val stóðu ÍR-ingar sig til muna betur, og í leiknum á sunnudags- kvöldið gekk liðið lengst af eins og vel smurð vél, þar sem öll hjól voru virk. Sterkasta hjólið í sam- stæðunni var þó ÁgUst Svavars- son, sem sýndi flestar sínarbeztu hliðar, bæði i vörn og sókn, og skoraði hann rösklega helming marka ÍR, eða 8 talsins. Ágúst er greinilega í hörkugóðu formi þessa dagana, og verðskuldar að fá tækifæri með íslenzka landslið- inu i leik þessgegn Svíum í næstu viku, þ.e. 29. nóvember n.k. En þaðer líka athyglisvert hvað félagar Ágústs í ÍR-liðinu gera mikið til þess að hjálpa honum til að komast í skotstöðu. Með slíkri hjálp verður Ágúst helmingi hættulegri en ella og þar með einnig mikilvægari fyrir lið sitt. IR-ingar tóku það til bragðs í varnarleik sínum að taka Axel Axelsson úr umferð þegar í upp- hafi leiks. Gaf þetta ágæta raun hjá þeim, því þótt Axel slvppi af og til úr gæzlunni og skoraði, þá mátti segja, að með þessari varnarleikaðferð væri annar hættulegasti maður Fram, Björgvin Björgvansson, einnig tekinn úr umferð. Axel og Björgvin vinna jafnan mjög mikið saman i Framliðinu, og þegar Axel er tekinn úr umferð, verður Björgvin aðeins skuggi afsjálfum sér. Þegar andstæðingar Fram beita þessum varnaraðgerðum, verða sóknaraðgerðir Fram ekki eins atkvæðamiklar og ella, og hlýtur það að verða aðalverkefni þjálfara Fram, Sigurðar Einars- sonar, að finna svar við slíkum v a r n a ra ðge r ð u m. R e y nd a r re.vndu Framarar stundum að „blokkera" manninn, sem gætti Axels, og bar það stundum árangur. En yfir höfuð var sóknarleikur Fram ekki ndgu öruggur, og of oft missti liðið knöttinn f.vrir hálfgerðan klaufa- skap. Vörn Fram var hins vegar mjög skemmtileg í þessum leik og á henna gífurlega míkil hreyfing. LIÐÍR: Geir Thorsteinsson 1, Elíasson 2, Ólafur Tómasson 1, Svavarsson 4, Hörður Amason Vilhjáhnur Sigurgeirsson3, Jens 2. LIÐ FRAM: Guðjón Erlendsson son 3, Andrés Bridde 2, Guði Björgvinsson 2, Stefán Þórðarso Arnar Guðlaugsson 3, Hannes Le

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.