Alþýðublaðið - 31.08.1958, Síða 1
XXXIX. árg. Sunnudaeui 31. ágúst 1958 196. tbl.
KLUKKAN
Einhuga von landsmanna, að þeifa
örlagaríka spor fakisí giffusamlega,
segir utanríkisráðherra
V TÓLF MÍLNA fiskveiðiland
lielgin kemur til framkvæmda
á miftnætti í nótt ,eins og und-
irbúið og tilkynnt hefxir verið,
sagði Guðmundur í. Guð-
mundsson, utanrikisráðherra,
í viðtali við Alþýðublaðið í
gær. hainieð stígur þjóðin
stærsta skref sitt í máli, sem
varðar afkomu hennar um
langa framtíð, og það er ein-
huga von allra laridsmanna,
að þetta örlagaríka skret' tak-
ist giftusamlega, fyrirbvggi
eyoingu fisldstofnanna og
bæti afkomu þjóðarinnar, —
hélt ráffiherrann áfrarn.
Samkvæmt ákvörðun i’íkis-
stjórnarinnar hefur verið
unnið að því að kynna mál-
stað Islendinga á erlendum
vettvangi og vinna viðurkenn
ingu annarra þjóða á tólf
mí-lna fiskve iðil a nd h e 1 gi n n i,
sagði ráðherrann ennfremur.
Landhelgisannái!
Þar eð ýmsar þjóðir hafa lýst
yfir, að þær viðurkenndu sér-
stöðu Islands í fiskveiðimál-
um, en viðurkenndu ekki ein
hliða útfærslu fiskveiðitak-
marka í 12 mílur og hefði aðr-
ar tillögur um lausn málsins,
hafa fslendingar óskao að fá
að vita, hverjar þær.tillögur
væru. í því sambandi hafa
ýmsar hugmyndir komiö fram
— sem hafa þó ekki falið í
sér lausn, sem íslendingar
gætu sætt sig við, og hefur
þeim því verið hafnaS.
Utanríkisráðherra sagðí að
lokum, að haldið mundi á-
fram að vinna að því að afla
viðurkenningar á 12 rnilna
fiskveiðitakmörkunum. Verð-
ur að1 sj'áilfsögðu revnt að
beina málinu á þann farvcg,
að ekki komi tij árekstra eða
erfiðleika.
★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ \k ★ ★ ★ ★ ★
★
*
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
★ ★★★★★★★★★ k ★
ÞETTA ER OKKAR HEFÐ!
Stúlkan á myndunum heitir Hulda Ósk Jónsdóttir, á
heima á Marargötu 5 og er 15 ára. Við tókum hana frá
blautfiski vestur í Bæjarútgerð •— tókum hana eins
og hún stóð — og skutumst með hana í heimsókn í
Hrafnistu, sem er dvalarheimili aldraðra sjómanna. Á
heimleið var komið við á Faxagarði þar sem togararn-
ir voru að landa karfa. — Gömlu mennirnir eru vist-
menn á dvalar'heimilinu. Þeiir heita Þorbiörn Eggerts-
son og Ingvar ísleifsson. Þorbiörn er 76 ára og Ingvar
67 ára; samanlagður, aldur þeirra er næírri helmingi
hærri en Huldu og piitanna, sem hún hitti á bryggj-
unni. Þorbiörn er ættaður úr Húnavatnssýslu, stundaði
sjó í 24 ár, en settist í helgaft stein i Hrafnistu fyrir
um það bil 10 árum. Ingvar er vestan af Snæfellsnesi og
sótti sjóinn á Breiðafirði í 40 ár. Hann kom á vistheim-
ilið í fyrra. Af Huldu Ósk er það að segja, að hún hef-
ur unnið í fiski á sumrin síðari hún var tíu ár-a, hefur
núna tæpar 14 krónur á tímann og skilar tíu stunda
vinnudegi. Hún Iauk unglingaprófi í G-agnfræðaskóla .
vesturbæjar í vor og hyggst halda áfram námi.
★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★★★★★★★★ ★★★★.★★ Liósm. Alþýðublaðsins.