Morgunblaðið - 22.12.1973, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1973
3
Miklar
annirí
fluginu
MIKLAR annir voru I gær í inn-
anlandsflugi Flugfélagsins og var
flogið þindarlaust frá því klukk-
an 05 um morguninn. Þá voru
farnar þrjár vöruflutningaferöir
til Akureyrar, en síðan var flogið
með farþega þangað klukkan
08.30. Þá voru ráðgerðar þrjár
ferðir í gærkvöldi til Akureyrar.
Yfirleitt voru aukaferðir farnar
til allra áætlunarstaða Flugfélags-
ins í gær og sérstaklega var mikið
að gera við vöruflutninga. Dagur-
inn var mesti annadagur jóla-
undirbúningsins hjáfélaginu, en
til tveggja staða gekk erfiðlega að
halda uppi ferðum vegna snjóa á
flugvöllunum. Var það til Þórs-
hafnar og Raufarhafnar. Tvær
ferðir voru farnar til Norðfjarðar.
Ekkert flug verður á aðfangadag
og jóladag.
I utanlandsflugi var einnig mik-
ið að gerð og voru farnir aukaferð
ir. Síðasta ferð til Evrópu fyrir
jólahátiðina verður á sunnudag
til Kaupmannahafnar og Osló.
Karlmanns-
hárkolla
í óskilum
HARKOLLA af karlmanni
fannst utan við húsið Skeif-
una 19 í gærmorgun. Inni f
kollunni stendur 1 — 9. Inni í
kollunni eru ennfremur
plástrar, sem augsýnilega
hafa ekki dugað til, og hún
dottið eða fokið af höfði eig-
andans. Hann getur vitjað
kollunnar á afgreiðslu
Morgunblaðsins, sem er til
húsa í Skeifunni 19. Hárkoll-
an ei brúnleit á lit.
Fuglafóður
kemur aftur
FORMAÐUR Sólskríkjusjóðsins
tjáði Mbl. í gær, að fuglafóður sé
gjörsamlega uppurið í verzlunum.
Er þar átt við svokallað Milokorn,
sem smáfuglum hefur verið gefið.
Sjóðurinn hefur nú látið kurla
maís og í gær var verið að dreifa
honum i verzlanir. Þvi getur fólk
nú aftur gefið smáfuglunum i
vetrarkuldanum.
Jólasöngur
við kertaljós
í KVÖLD, laugardaginn 22. des.,
gengst Félag guðfræðinema fyrir
jólavöku í Háteigskirkju og hefst
hún kl. 22.
Guðfræðinemar lesa úr Ritning-
unni, Háskólakórinn syngur und-
ir stjórn Ruth Magnússon, Jósef
Magnússon leikur einleik á flautu
og Martin Hunger leikur á orgel
verk eftir Lúbeck og Schneidt.
Leiðrétting
í minningargrein um Þorstein
trésmið Þorsteinsson i Morgun-
blaðinu hinn 20. þ.m. er dánarár
móður hans talið 1956, en hún
andaðist árið 1931.
Ég biðst afsökunar á þessari
misritun.
Asgeir L. Jónsson.
á/S^ TIZKUVERZLUIM UNGA FÓLKSINS
(gjp KARNABÆR
LÆKJARGÖTU 2 LAUGAVEGI 20A LAUGAVEGI 66