Morgunblaðið - 22.12.1973, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1973
7
Arf-
takar olíunnar
DR. HENRY Kissinger
utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna hefur hvatt Evrópu
til að sameinast Bandaríkj-
unum og Japan í skipan
orkurapnsóknarnefndar til
að vinna að lausn orku-
kreppunnar i heiminum. En
hvatning hans, sem fram
kom i ræðu er hann flutti
nýlega í London, er fram
borin á sama tima og meiri
sundrung ríkir innan
Evrópuríkjanna varðandi
orkumálin en nokkurn tíma
fyrr. Þrátt fyrir skuldbind-
ingar Efnahagsbandalags-
ins um að leggja fram sam-
eiginlega stefnuskrá varð-
andi orkumálin fyrir lok
þessa árs, hefur ekkert
hans trúlega fengið betri
hljómgrunn. Orkuskortur-
inn hefur gert Evrópubúum
það enn Ijósara en Banda-
ríkjamönnum hve háður
heimurinn er orðinn einum
orkugjafa, og hve erfitt er
að treysta þeirri upp-
sprettu.
Hvað tekur við af olí-
unni? Frá upphafi olíu-
kreppunnar hefur þessi
spurning orðið æ brýnni.
Til þessa hefur ekkert svar
fengizt við henni, en
bersýnilegt er, að mikla
áherzlu verður að leggja á
rannsóknir á nýjum orku-
gjöfum, sem gert gætu
heiminn minna háðan olí-
unni.
Eftir
Nigel Hawkes
veginum og tjörusandi. í
öllum þremur ríkjunum er
unnið að því að finna nýjar
leiðir til þess að vinna
þessa olíu á ódýran og
skjótan hátt, en við mörg
vandamál er að glima.
Bjartsýnustu áætlan-
ir sérfræðinga reikna
með að árið 1985
verði Bandarikin fær um
að anna 10% eftir-
spurnarinnar innanlands
með olíu, sem unnin er á
þennan hátt. En jafnvel
þessi takmarkaði árangur
krefst uppbyggingar nýs
Jólainnkaup í London við gasljós.
gengið enn i samkomulags-
átt á því sviði svo séð verði.
Hins vegar hefur sölubann
Araba varpað Ijósi á mikinn
ágreining i Evrópu um það
hvernig leysa beri vandann.
Óliklegt er, að hvatning
Kissingers leiði til mikillar
samstöðu, sérstaklega þar
sem hvorki Frakkland né
Bretland hafa mikinn
áhuga á því um þessar
mundir að vera bendluð um
of við stefnu Bandaríkjanna
varðandi deilurnar í Mið-
Austurlöndum. Bæði lönd-
in eru að reyna að draga úr
áhrifum aðgerða Araba
með einkasamningum, og
Arabar hafa lýst bæði lönd-
in „vinsamleg lönd", sem
ekki ættu að þurfa að verða
jafn illa úti og önnur lönd
vegna olíubannsins.
Ef Kissinger hefði valið
þann kostinn að hvetja til
samvinnu um að leita nýs
orkugjafa, sem gæti leyst
olíuna af hólmi, hefðu orð
Nixon forseti hefur sízt
dregið úr þveim vanda, sem
að steðjar, og hefur í
hyggju að verja 10.000
milljónum dollara á næstu
fimm árum til að „leysa"
hann. En orkusérfræðingar
telja fullyrðingu hans um
að Bandaríkin verði orðin
öðrum óháð varðandi orku-
gjafa árið 1980 lélega
fyndni. Eins og aðrir, sem
ekki hafa næga tækniþekk-
ingu, hefur Nixon algjör-
lega vanmetið bæði erfið-
leikana og tímann, sem það
tekur að koma á algjörri
byltingu á þessu sviði.
Hér fer á eftir listi yfir
þær helztu orkulindir, sem
til greina kemur að nýttar
verði.
Jarðvegsbundin olía.
j Bandaríkjunum, Kan-
aba og Venezuela má
finna gífurlegt magn af
olíu, sem bundin er i jarð-
námuiðnaðar, sem jafnast á
við alla námuvinnslu i
Bandaríkjunum i dag. Og
árangurinn kemur um
heiminum aðlitlum notum,
því öll olían fer á innan-
landsmarkaðí Bandarikjun-
um.
Hugsanlegt er að nýjar
vinnsluaðferðir finnist, en
til þess þarf ítarlegar rann-
sóknir og mikið fjármagn.
Kjarnorka.
Undanfarin 25 ár hefur
þvi mjög verið haldið á loft,
að unnt væri að framleiða
rafmagn á ódýran hátt með
kjarnorku. Milljörðum doll-
ara hefur verið varið i þessu
skyni, en það er fyrst nú að
kjarnorka er orðin jafnoki
eldiviðar sem orkugjafi í
Bandaríkjunum. Sýnir
þetta vel hve langan tima
það tekur að koma á tækni-
breytingum.
Nú er hins vegar kominn
Framhald á bls. 33
ÓSKA EFTIR AÐ KAUPA Saab station árg '70 — '71 Upplýsingar í síma 99-3219 GAMALT TEPPI ÓSKAST þarf að vera minnst 5x4 m má vera stærra Uppl í s 42662
JÓLATRÉ ÍBÚÐ ÓSKAST
Fá jólatré falleg. Ung kona með 1 barn óskar eftir
fást í dag og á morgun. 2ja herb. íbúð helzt frá áramótum.
Sáldfrítt greni og silkifura sízt mun slaka á borgun Jólatréssalan, Drápuhlið 1 Vinsamlegast hringið í s 22658
HAFNARFJÖRÐUR OG
NÁGRENNI TIL SOLU
Nýreykt sauðahangikjöt Nauta- glæný loftpressa með öllu tilheyr-
buff 495 — kr. kg Hakk 295 — andi til bilamálunar Upplýsingar í
kr. kg Úrbeinað hangikjöt 495 kr síma 52546 milli kl 7 og 8, eða
k9 Kjötkjallarinn, Vesturbraut 12 1 sima 40403
HAFNARFJÖRDUR OG N A- JÓLAGJÖFIN, SEM GLEÐUR
GRENNI
Fyrsta flokks niðursoðnir ávextir, Hjá okkur fá:ð þið einstakt úrval af
ódýrir Tekex, 6 pakkar á 198 kr. Rúllupylsur 275 kr. stk Dilkaham- handavinnu fyrir eldri konur Hannyrðabúðin,
borgarlæri með spekki, 495 kr. kg Kjötkjallarinn, Vesturbraut 12. Linnetsstíg 6, Hafnarfirði. simi 51314 VERZLIÐ í HAFNARFIRÐI Notið tímann vel
GOBELIN BOÐDÚKARNIR, Úrval af handavinnu i' jólapakka
sem fengust í Litlaskógi fást nú í 4 Góð þjónusta í rúmgóðri verzlun.
litum að Nökkvavogi 54 Simi Næg bílastæði. Hannyrðabúðin,
34391 Linnetsstíg 6, Hafnarfirði, sími 51314
Ný sending
Vetrarkápur, kuldafóðraðar kápur og úlpur,
pelsar, loðhúfur og treflar.
Kápur- og Dömubúðin
Laugavegi 46.
vOLVO-eigendur
athugid!
Varahlutaverzlun vor verður lokuð frá 27. desember —
7. janúar vegna vörutalningar.
VELTIR h.f.
KANN TÖKIN ATÆKNINNI
Kraftmesta ryksugan hér á landi! Handhæg og
auðveld í meðförum. Tekur það sem henni er
ætlað. VERÐIÐ?? Lægra en þér haldið.
PHILIPS
Bezt að auglýsa í
Morgunblaðinu