Morgunblaðið - 22.12.1973, Side 18

Morgunblaðið - 22.12.1973, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 22. DESEMBER 1973 hf. Árvakur, Reykjavtk. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10-100 Aðalstræti 6, simi 22-4-80. Áskriftargjald 360,00 krá mánuði innanlands. I lausasölu 22, 00 kr. eintakið Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Agglýsingar KRISTIN TRÚ er, að hver beri ábyrgð á j öðrum. Á ég að gæta bróð- ur míns? er spurning á einu fyrsta blaði Biblíunn- ar og henni sjálfsvarað. Berið hver annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists, segir postulinn. Það verður að gera þá kröfu til manna, sem vilja teljast ásatrúar, að þeir geri grein fyrir því, hvað | það er í þekktum grund- vallarviðhorfum hins forna ásatrúnaðar, sem þeir að- hyllast og vilja láta virða sem raunverulega trúar- sannfæringu. Ég nefni að- eins i því sambandi mann- helgina, svo og fleirkvæni. Af því sem þegar er sagt, er ljóst, að ég tel mig verða að mæla gegn því, að um- rætt félag fái staðfestingu sem sjálfstæður söfnuður.“ þeim verður ekki tekið mið í þeim efnum á vorum dög- um. Kristur nægir, þó að hann hafi hvorki nægt Hitler, Stalín né áhangend- um þeirra. Orð Krists eru leiðarljós sem öllum ætti að duga. Það er því skylda vor og hugsjón að slá skjaldborg um þau, jafn- framt því sem þau eiga sér kraft allri orku meiri. Borgaraflokkarnir í Dan- mörku hafa nú mátt súpa seyðið af undanslætti við Kristsafneitara og klám- kúltúr svonefndan. Borg- araleg öfl á íslandi og aðrir lýðræðissinnar mættu hafa það í huga. Fólkið er orðið langþreytt á öngþveiti og upplausn — og nú seinast treysti enginn sér nema danska ríkið til að styrkja klámmyndargerð um Krist. Slíkt hefnir sín. Nú fer í hönd hátíð kristinna manna og um víða veröld hljómar boð- skapurinn um frið og kær- leika. Kristnir menn vilja vera umburðarlyndir, en öllu eru þó takmörk sett. Hér á landi hefur verið stofnaður söfnuður ásatrú- armanna. Sigurbjörn Einarsson biskup hefur hér í blaðinu birt greinar- gerð, er hann sendi dóms- og kirkjumálaráðuneytinu varðandi félag þetta. 1 upp- hafi segir hann: ,,Ég vil fyrst taka það fram, sem sjálfsagt er, að þeir menn, sem hafa stofn- að þetta félag, eiga að njóta þeirra réttinda til skoðana- og trúfrelsis, sem stjórnar- skrá ríkisins vill tryggja öllum landsþegnum. Hafa þeir og hagnýtt sér þau réttindi með því að stofna með sér félag sitt, auk þess sem hver einstakur hefur óumdeilanlegan rétt til persónulegra skoðana í trúarefnum sem öðrum og frelsi til að tjá þær og túlka, meðan aðferð hans og háttsemi í því sambandi rekst ekki á almenn lög, gott siðferði og allsherjar- reglu.“ Og síðar í greinargerð sinni segir biskup: ,,í þessu sambandi sker það úr, að það er næsta óljóst, hver þau meginatr- iði eru, sem talizt geti trúarleg sannfæring þess- ara s.n. ásatrúarmanna. Um helgirit er ekki að ræða, aðeins er þess getið í þeirri ófullkomnu greinar- gerð, sem umsókninni fylg- ir, að höfð sé hliðsjón af Snorra Eddu og öðrum helgiritum (ótilgreindum) um það helzta inntak þess síðar, að einstaklingurinn beri ábyrgð á sjálfum sér. Af þessu mætti draga ýms- ar ályktanir, eins og af öðru, sem er óljóst orðað og getur búið yfir hinum margvfslegustu hugmynd- um. Ekki vil ég leggja þá merkingu í þessi ummæli um helzta inntak þessa sið- ar, að um sé að ræða þá fornu einstaklingshyggju, að hver skyldi leita réttar sfns á hendur annarra eftir því sem hann hafði megin til. En langsótt er það ekki að álykta, að orðum þess- um sé stefnt gegn því sið- gæðisviðhorfi, sem er grundvallaratriði í kristn- um dómi og hefur mótað félagslöggjöf vora, en það Á það má benda orðum biskups til stuðnings, að undirstaða fslenzks þjóð- félags er kristin trú, þó að ýmsar heiðnar bókmenntir fornar og gamall arfur hafi haft áhrif á menningu vora, enda helgar sem slík- ar, en ekki sem trúarrit. Af En ekki ættu kristnir menn að hafa áhyggjur af Kristi. Hann einn hefur verið ósigrandi þau tvö þúsund ár, sem liðin eru frá fæðingu hans. Minnug þess höldum við enn heilög jól — og fögnum fæðingu hans. Barnið í jötunni er öllum tízkustefnum yfir- sterkara. Orð biskups eru ekki að- eins umhugsunarverð, heldur einnig tímabær. Megi kristni eflast í landi voru. „Kína, sem ég elska svo heitt...,, Eftir C. L. Sulzberger Samskipti Bandaríkjanna og Alþýðulýðveldisins Kína byggjast á rökvísi og ást. Ástin er Bandaríkjanienn, en rökvís- in Kinverja. Þegar þetta er haft í huga liggur nærri að minnast sonnettu skáldkonunnar Ednu St. Vineent Millay, sem hefst á þessum orðum: „Kína, sem ég elska svo heitt er ekki fjær mér en hönd min. Ástin auðveldar mér þó ekki að De Gaulle, fyrrum Frakklands- forseti. Hann og Vahya Kahn voru milligöngumenn milli Kínverja og Nixons f upphafi. Vahya Kahn, fyrrverandi for- seti Pakistan. skilja rök springandi sprengju- kúlu“. Hin byltingarkennda rök- hyggja, sem knúði kínverska ráðamenn til þess að taka upp vingjarniegri samskipti við Bandaríkjamenn, á rætur sínar að rekja til deilu Kínverja og Sovétmannanna. Mao formaður og Chou En-lai forsætisráð- herra sáu, hve heimskulegt það var, að etja af kappi við tvö óvinveitt stórveldi í einu. Þeir ákváðu því að reyna að bæta samskiptin við Bandaríkin vegna þess, að það var hættu- minna heldur en að reyna að sættast við Sovétríkin. Ekki skyldu menn þó skilja afstöðu kínverskra ráðamanna sem svo, að þeir hafi sætt sig við bandariska auðvaldsstefnu. Þeir berjast hatrammri baráttu gegn hverskyns valdajafnvægi og gleðjast yfir samkeppni Sovétríkjanna og Bandaríkj- anna, — þ.e.a.s. á meðan Bandaríkin verða ekki undir í samkeppninni. Chou En-lai for- sætisráðherra Kína er afar hreinskilinn maður og hann heldur því hiklaust fram, að Bandaríkin og Sovétríkin keppi um heimsyfirráð. Hann óttast þó Bandarikin minna og segir: „Heimsvalda- stefna Bandaríkjanna hefur verið á undanhaldi síðan hún beið ósigur i árásarstriðinu gegn Kóreu. Bandaríkjamenn hafa nú viðurkennt ósigur sinn opinberlega. Þeir gátu ekki haldið áfram stríðsrekstrinum í Víetnam." MILLIGÖNGUMENN Bandaríkjamenn drógu ýmsa lærdóma af styrjöldinni í Víet- nam og þegar þeim gekk hvað verst þar, varð opinbert, að Kínverjar höfðu komið sér upp birgðum kjarnorkuvopna. Þetta varð til þess, að hafnar voru diplómatískar viðræður, á jafn- réttisgrundvelli, ef svo má að orði. kveða. Og þess vegna skildu Kinverjar skilaboð Nix- on forseta rétt. Árið 1969 kom Nixon á fram- færi óskum um bætt samskipti rikjanna og lét stöðva eftirlits- ferðir bandarískra herskipa um Formósusund. Viðræður kín- verskra og bandarískra emb- ættismanna hófust á ný, eftir að hafa legið niðri um stund, bandarískum þegnum var aftur leyft að ferðast til Kína og við skipti á milli ríkjanna voru auð- velduð. Einnig sendi Nixon kin- verskum ráðamönnum orðsend ingar og hafði þar sem milli- göngumenn þá de Gaulle Frakklandsforseta og Yahya Kahn forseta Pakistan. Og árangurinn lét ekki á sér standa. Henry Kissinger fór i leynilega heimsókn til Kina. í desember 1970 sagði Maó for- maður við Edgar Snow: „Ef Sovétrikin duga ekki til, mun ég byggja vonir mínar á banda- risku þjóðinni." í fyrstu benti ýmislegt til þess, að Kínverjar hyggðust reyna að fá stjórnarandstæð- inga í Bandaríkjunum til þess að hafa milligöngu um bætt samskipti rikjanna. Fulltrúi stjórnarandstæðinga, öldunga- deildarþingmaðurinn Mike Mansfield, hafði þá látið í ljós ósk um að fara i heimsókn til Kína. Mansfield frestaði hins vegar förinni og kinverskir valdhafar komust að þeirri nið- urstöðu, að hyggilegra myndi að hafa beint samband við rikisstjórn Nixons, jafnvel þótt hún færi með völd í umboði „einokunarsinna". GOTTSAMBAND Hve hyggileg þessi ákvörðun var, kom bezt í ljós af hinu mjög góða sambandi, sem þeir Henry Kissinger og Cho En-lai höfðu með sér. Forsætisráð- herrann átti fund með blaða- mönnum skömmu eftir heim- sókn Kissingers til Peking og sagði þá: „Þarna er á ferðinni maður, sem skilur okkar heim jafnvel og sinn eigin.“ Við er- lendan sendiherra sagði Chou: „Það er hægt að ræða málin við Kissinger.'1 Þegar hinn nýi utanrikisráðherra Bandaríkj- anna fer aftur til Peking nú á næstunni má hann vænta þess, að mjög vel verði tekið á móti honum. (Aths. Mbl: Þessari Peking- ferð Kissingers er nýlokið). Kínverjar hafa löngum þótt heldur hlédrægir, en nú er svo komið, að jafnvel hinn almenni borgari í Kína notar hvert tæki- færi til þess að lýsa vináttu sinni í garð Bandaríkjamanna. Nú er því haldið á loft, að Bandaríkjamenn hafi aldrei hagnýtt sér hið bága ástand kínverska ríkisins á 19. öld til þess að ná yfirráðum yfir kín- versku landsvæði eins og Evrópumenn gerðu. Þvert á móti hafi Bandaríkjamenn not- að skaðabæturnar, sem þeir fengu fyrir tjón, sem þeir urðu fyrir í boxarauppreisninni, til þess að koma á fót mennta- stofnunum og senda til landsins trúboða, sem elskuðu Kína, hvorki meira né minna. Bandarískum ferðamönnum er alls staðar mjög vel tekið og sýknt og heilagt er verið að vara þá við þeirri hættu, sem stafi af hernaðarstefnu Sovét- ríkjanna. Eru Bandaríkjamenn þá gjarnan beðnir um að halda vöku sinni og jafna ágreinings- málin við V-Evrópuríkin, þó ekki væri nema til þess að koma í veg fyrir upplausn og sundurlyndi þar í álfu. Enginn minnist lengur á Bandaríkin sem pappirstígirsdýr, en allir óttast, að þau verði það. ÞÍÐA Það ríkir sem sagt þiða í sam- skiptum Kína og Bandaríkj- anna, en áður en samband land- anna getur orðið hreint vináttu- samband, eins og það, sem rikir á milli Kína Frakklands, þarf að komast að samkomulagi um Formósu, kalla heim þá banda- ríska hermenn og embættis- menn, sem enn starfa á eyj- unni. Kínverjar lita Formósu sömu augum og Frakkar litu Alsass — Lorraine fyrir heims- Framhald á bls. 29. iNVu» llorkeímc Eftir L. SILK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.