Morgunblaðið - 22.12.1973, Side 34

Morgunblaðið - 22.12.1973, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1973 I IWmiHÍIIIII MORGUAIBLABSIIUS Mót sex liða og tveir landsleikir Þórir Magnússon I baráttu f siöasta leiknum, gegn gestgjöfunum Luther-háskólanum. 3 síðustu leikir USA-ferðarinnar EINS og fram hefur komið í frétt- um kemur handaríska handknatt- leikslandsliðið hingað til lands á milli jóla og nýárs. Mun liðið taka þátt í sex liða handknattleiksmóti í Hafnarfirði og auk þess leika hér tvo landsleiki. Liðin, sem taka þátt í þessu móti, verða, auk bandaríska lands liðsins, unglingalandsliðið, FH, Haukar og tvö Reykjavíkurfélag- anna, sennilega Valur og Fram. Mótið hefst 29. desember, klukk- an 13, og daginn eftir verður mót- ALÞJÓÐA handknattleikssam- handið og skipulagsnefnd heims- meistarakeppninnar í A-Þýzka- landi hefur nú ákveðið, á hvaða stöðum riðlakeppnin fer fram. Mun fslenzka liðið, sem leikur í a-riðli ásamt V-Þýzkalandi, Tékkó slóvakíu og Danmörku, leika leiki sína í Karl-Marx-Stadt, Gera og Erfurt. Kiðlakeppni fer fram 28. febrúar til 10. marz, en Pele upp á sitt bezta 130 ÞUSUND manns f.vlgdust með leik hrasilfska landsliðsins frá því árið 1970 gegn úrvalsliði erlendra leikmanna. Leikurinn var styrktarleikur fyrir eina af brasilfsku hetjunum, Garrincha, en hann varð á hætta knatt- spyrnuiðkunum vegna heilsu sinnar. Garrincha lék þó fyrstu 30 mínútur leiksins og er hann yfir- gaf leikvanginn klöppuðu áhorf- endur honum óspart lof í lófa. Garrincha fær allan ágóða af leiknum, um 20 milljónir ís- lenzkra króna. Leiknum lauk með sigri Brasilíumannanna, Brindisi skoraði að visu fyrsta mark leiks- ins fyrir gestina, en Pele jafnaði skömmu siðar með snilldarlegu marki. Marki, sem var af sömu gerð og hans beztu á gullaldar- árunum, og Pele lék þennan leik svo sannarlega eins og þegar hann var upp á sitt bezta. Sigur- markið skoraði Luis^ Pereira og leiknum lauk 2:1. inu haldið áfram á sama tíma, á gamlársdag byrjar keppnin klukkan 12 á hádegi. Annan i nýári verður leikið frá klukkan 20, og síðustu leikir mótsins hefj- ast klukkan 20 þriðja janúar. Þó að landslið Islands taki ekki þátt í þessu móti, vantar þátttökuliðin ekki meistaratitla, Haukar eru Reykjanesmeistarar, FH ísiands- meistarar utanhúss, Valur ís- landsmeistari innanhúss og Fram Reykjavíkurmeistari, það skal þó tekið fram, að ekki er víst, að tvö síðan tekur keppnin um einstök sæti við. B.-riðill. skipaður Rúmeníu. Svíþjóð, Póllandi og Spáni, leikur í Schwerin, VVismar og Rostock. Gestgjafar A-Þýzkalands leika í c-riðli ásamt Sovétmönnum, Bandarfkjamönnum og sigurveg- aranum f Asíuriðlinum — Japan eða Israel, og fara leikir riðilsins fram í A-Berlín og Brand- enburg. D-riðilinn, Júgóslavfa, Ungverjaland. Búlgarfa og Alsír, leikur í Halle, Dessau og Magde- burg. tsland hefur ekki áður leikið á þessum stöðum og því er lítið vitað um, hvernig aðstaðan er á þessum stöðum. Erfurt er ísuður- hluta landsins, gömul borg og sögufræg. Karl-Marx-Stadt er fjórða stærsta borg A-Þýzkalands með rúmlega 350 þúsund fbúa. Fyrstu leikir þriðju deildar FYRSTU leikirnir í íslandsmóti þriðju deildar í handknattleik fóru fram í íþróttahúsinu í Hafn- arfirði um siðustu helgi. Stjarnan vann Víði með 26 mörkum gegn 16 og höfðu Stjörnumenn alltaf undirtökin í leiknum. Leikur Aft- eldingar og IA var hins vegar með öðrum blæ. Eftir að Aftur- elding hafði komizt í 4:1, skoruðu Skagamenn 11 mörk í röð og höfðu yfir i hálfleik, 12:5. Síðari hálfleikurinn var hins vegar einka eign Afuteldingar og liðið vann seinni hálfleikinn 15:8, þannig að liðin skildu jöfn 20:20. síðastnefndu liðin taki þátt í mót- inu. Þess má geta, að Geir Hall- steinsson mun að öllum líkindum leika með FH-ingum í þessu móti og örugglega í fyrri landsleikn- um. Landsleikirnir við Bandaríkja- mennina fara fram dagana 28. desember og 4. janúar, sá fyrri i Hafnarfirði og sá síðari í Iþrótta- höllinni í Laugardal. Ættu leik- irnir við Bandarfkjamennina að verða landsliðinu góð æfing, þó að mótstaðan verði ef til vill ekki mikil. Þess betra tækifæri ætti að vera til að lagfæra ýmsa van- kanta, sem greinilega komu fram hjá liðinu í alþjóðamótínu í A- Þýzkalandi á dögunum. Þá kemur Geir Hallsteinsson að nýju inn í liðið gegn Bandaríkjamönnunum og fær hann því nokkra samæf- ingu með liðinu. Færeyingar fóru þess á leit við stjórn HSl fyrir nokkru, að lands- leikur færi fram á milli íslands og Færeyja á milli jóla og nýárs. Þessari ósk gat HSÍ ekki orðið við, þar sem landsleikirnir við Bandaríkjamennina voru þegar ákveðnir. Ólíklegt er, að Færey- ingarnir geti tekið þátt í sex liða mótinu, þar sem þeir þyrftu þá að dvelja hér frá því 28. desember til 4. janúar; yrði það sennilega bæði of timafrekt og kostnaðarsamt fyrir þá. EINS og frá hefur verið skýrt er íslenzka körfuknattleiksliðið ný- lega komið heim úr keppnisferð tii Bandaríkjanna, þar sem það lék alls 13 leiki við háskólalið. Hér á eftir fer frásögn Kristins Jörundssonar af þremur síðustu leikjum liðsins. Leikið við Hamlin-skólann. Þréttandi leikurinn í ferðinni var gegn Hamlin-háskólanum í St. Paul í Minnesota. Hamlin-skólinn byrjaði leikinn vel og komst í 12:0 eftir 4 mínútu, eftir það tók íslenzka liðið við sér, hélt í við Bandaríkjamennina og staðan í hálfleik var 39:29 Hamlin i vil. 1 upphafi síðari hálfleiksins var Hamlin óstöðvandi og liðið komst 24 stig yfir. A lokamínútunum tókst islenzka liðinu að minnka muninn niður í 11 stig og lokatöl- ur urðu 76:65. Stigahæstir urðu þeir Birgir Guðbjörnsson, með 19 stig, og Þórir Magnússon, með 15 stig. Ekki er vafi á því, að ef leikurinn hefði staðið 5 minútum lengur hefði íslenzka liðið sigrað. Um 20 Islendingar horfðu á leik- inn, en allt kom fyrir ekki. Leikið við Macalester- skólann. Næst síðasti leikurinn vargegn Macalester-skólanum í St. Paul. Eins og oftast áður í ferðinni byrjaði íslenzka liðið fyrri hálf- leikinn vel og leiddi leikinn fram- an af, en Malcalester seig fram úr og staðan i hléi var 48:38. I seinni hálfleiknum \ ar allur vindur úr islenzka liðinu og virtist sem um hreina uppgjöf væri að ræða. Malcalester skoraði hverja körfuna á fætur annarri, íslenzka liðið skoraðí aðeins 19 stig allan siðari hálfleikínn. Leiknum lauk 88:57. Stigahæstir voru Þórir með 16 og Stefán Bjarkason 8. Sömu íslendingarnir fylgust með þessum leik og gegnHamlin, en urðu því niiður fyrir vonbrigð- um. Leikmenn íslenzka liðsins bjuggu á heimilum i borginni og sumir hjá þessu íslen^ka fólki, 'en það voru fyrstu íslendingarnir, sem leikmennirnir hittu frá því í upphafi ferðarínnar. LeikiðviðLutherháskólann Siðasti leikurinn var við gest- gjafana í Luther-háskólanum í Decorad, Iowa. Móttökur þar voru slikar, að öllum liðsmönnum fannst sem þeir væru komnir heim. Fyrri hálfleikurinn var frekar daufurog lítið sást af skemmtileg- um leik. Luther lék af öryggiog seig fram smám saman, í hálfleik var staðan 53:33. Fyrstu 10 mínút- ur seinni hálfleiks sýndi islenzka liðið, hvað í því býr, var það gjör- samlega óstöðvandi og minnkaði muninn niður í 6 stig, 71:65. Þennan tíma léku sömu fimm leikmennirnir, þeir Hilmar Viktorsson, Kristinn Jörundsson, Þórir Magnússon Jóhannes Magnússon og Birgir Guðbjörns- son. Varnarleikur liðsins var mjög góður og 1-2-2- svæðisvörn kom Luther mjög á óvart, en þeir notuðu allan tímann sína fimm beztu menn. Er beztu menn ís- lenzka liðsins fóru að tínast af velli með fimm villur tók Luther- liðið öll völd og sigraði með 103 stigum gegn 77. Stigahæstir voru Kristinn og Þórir með 20 stig og Jóhannes með 13 stig. Beztu leikmenn ís- lenzka liðsins voru þeir fimm, sem komu inn á í byrjun sfðari hálfleiks, þó sérstaklega Þórir Magnússon, sem var hreint frá- bær, bæði í sókn og vörn. Þó að margir væru ánægðir með þennan leik, var þó Kent Finan- ger, maðurinn, sem skipulagði ferð okkar, ánægðastur allra. Sagði hann eftir leikinn, að ís- lenzka liðið hefði komið honum mjög á óvart; megintilgangur þessarar ferðar hefði verið að kynna okkur bandarískan körfu knattleik, þannig að við mættum öðlast reynslu og væri greinilegt, að þessu markmiði væri náð. • • Oldungaráð athugar mál- efni ensku knattspyrnunnar TÍU manna „akademía“ fjallar nú um málefni ensku knatt- spyrnunnar, og hvað gera skuli, til þess að hún fái uppreisn æru eftir þá skelli, sem hún hefur orðið fyrir að undanförnu — fyrst jafntefli við Pólverja í undankeppni heimsmeistara- kcppninnar í knattspyrnu og þar með útilokun frá loka- keppninni í Vestur-Þýzkalandi, og síðan tap gegn Itölum á Wembley, en þar höfðu Eng- lendingar aðeins einu sinni áð- ur tapað landsleik, gegn Ung- verjum 1953. Nefndin var skip- uð af FA — Knattspyrnusam- bandi Englands, og á hún að gefa sambandinu fyrstu skýrslu slna í janúar n.k. og síðan vinna áframhaldandi að rannsókn málsins. Mikla athygli vekur aldur þeirra, sem í nefnd þessari eru, en þarna er um sannkallað öldungaráð að ræða. Hefur það verið gagnrýnt í Englandi, að yngri menn skyldu ekki valdir í nefnd þessa, þar sem margir óttast, að öldungarnir verði í senn þröngsýnir og gamaldags 1 viðhorfum sínum og niðurstöð- um. Þeir, sem eigasæti í nefnd- inni, eru eftirtaldir og er aldur þeirra í sviga: Harry Wilson Keys (78 ára), Ernest Kangley (60 ára), sir Harold Thompson (65 ára), sir Andrew Stephen (67 ára), Nor- man Hillier (65 ára), Sam Bolt- on (79 ára), George Arbor (74 ára), Ike Robinson (82 ára), Vernon Stokes (71 árs) og Ted Croker (48 ára). Nefndin hefur þegar tekið til starfa, en hefur ekkert viljað gefa upp um, hvernig störfum hennar er háttað, né heldur að hverju rannsóknin muni fyrst og fremst beinast. Leikstaðir HM ákveðnir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.