Morgunblaðið - 22.12.1973, Síða 36

Morgunblaðið - 22.12.1973, Síða 36
SÍMAR: 26060 OG 260 66 AÆTLUNARSTAÐIR LKRANES. =LATEYRI. HÓLMAVÍK, GJÖGUR. STYKK.ISHÓLMUR, UF. SIGLUFJÓRÐUR. BLONDUÓS. HVAMMSTANGI. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1973 UNGUR BONDI VERÐUR ÚTI í SKAGAFIRÐI Mælifelli, 21. desember — SA HÖRMULEGI atburður gerS- ist í norðanofsaveðrinu, sem gekk hér yfir 18. til 19. desember, að Hrólfur Guðmundsson, bóndi á Lýtingsstöðum í Tungusveit, varð úti á leið milli Lýtingsstaða og Breiðar, þar sem unnusta hans og sonur eiga heima. Var ekki undr- azt um hann fyrr en í gær síðdeg- is, er von var á honum heim aftur. A Breið var ekki búizt við honum f slíku veðri og þvf engin eftir- grennslan. Fjöldi heimamanna og menn úr björgunarsveitum frá Varmahlíð og Sauðárkróki hófu leit í gær- kvöldi, en skilyrði voru slæm, skafrenningur og náttmyrkur. I morgun var aftur farið að Ieita þegar í birtingu, og fannst lík Hrólfs í skurðbakka neðan við svonefnda Miðaftanshóla í landi Stekkjarholts á hádegi. Kvöldið sem Hrólfur ætlaði að Breið var hörkufrost og aðdynj- andi sterkviðri. Alitið er, að hann hafi fallið í skurðinn og hlotið höfuðhögg. Hrólfur bjó á Lýtingsstöðum á móti foreldrum sínum og bróður. Hann var 25 ára og lætur eftir sig unnustu og eitt barn á fyrsta ári. Síra Agúst. Konurnar hafa af- stýrt skömmtun ASTANDIÐ í rafmagnsmálum á orkuveitusvæði Landsvirkjunar var enn mjög alvarlegt í gær og var yfirvofandi orkuskortur og skömmtun. Krapstíflan, sem var f Þjórsá við Búrfell, brast í fyrra- dag og gerðu menn sér vonir um að ástandið myndi batna, en áin stiflaðist aftur skömmu síðar. t gær var 15 stiga gaddur við Búr- fell og ástandið slæmt. Eirfkur Briem, framkvæmda- stjóri Landsvirkjunar sagði í við- tali við Mbl. í gær, að rafmagns- skömmtun væri alltaf á næstu grösum, en tekizt hefði að koma í veg fyrir skömmtun og sagði hann það vera vegna þess, hve húsmæð- ur hefðu brugðizt vel við áskorun Landsvirkjunar um að spara raf- magn. „Við þökkum konunum fyrir að ekki hefur þurft að spara rafmagn,“ sagði Eiríkur. Hann sagði ennfremur, að ef til skömmtunar yrði að grípa, yrði reynt að hafa hana eíns hóflega og frekast er kostur. Yrði sú Fimm bílar í árekstri MJÖG harður árekstur varð á gatnamótum Bolholts og Lauga- vegar f gærdag um klukkan 16,30. Rússnesk sendiráðsbifreið kom niður Bolholtið og ætlaði vestur Laugaveg. Er hún kom að gatna- mótunum var samfelld röð bíla á hægri akrein Laugavegar, vegna ljósa á gatnamótum Laugavegar og Kringlumýrarbrautar. Skyndi- lega myndaðist glufa í hina sam- felldu röð og notaði ökumaður Volga-bílsins þá tækifærið og smeygði sér á milli. En sendiráðsstarfsmaðurinn gáði ekki að sér, því að á vinstri akrein kom bíll, sem Volgan skall á. Sá bíll kastaðist til og skall framan á Toyota-bíl, sem beið þess að komast af Laugavegi í vinstri beygju inn í Bolholtið. Toyotann kastaðist á Moskwiteh og Moskwitchinn á Sunbeam-bíl, en þeir stóðu í röð aftan við Toyotuna. I Toyotunni var ungur maður með systur sinni ungri, sem handleggsbrotnaði, en maðurinn hlaut skrámur. I Mosk- witshinum var roskinn maður, sem fluttur var til rannsóknar á slysadeildina. þrautalending nauðsynleg, bjóst hann ekki við stífum skömmtun- SÍS kaupir olíu frá Rússum SAMBAND fslenzkra samvinnu- félaga undirritaði hinn 14. desember sfðastliðinn kaup- samning um 10 þúsund lestir af gasolfu auk ýmissa matvara frá Samvinnusambandi Sovétríkj- anna. Samningurinn var undir- ritaður í Moskvu. Samvinnusam- band Sovétríkjanna kaupir á móti frá SÍS 20 þúsund ullarpeysur og 10 þúsund ullarteppi að verðmæti tæplega 20 milljónir króna. Gert var og samkomulag um frekari sölu iðnaðarvara til jafns við and- virði olfufarmsins. Viðræður fóru fram við V/O „Raznoexport" um hin hefð- bundnu viðskipti á ullarvörum fyrir árið 1974. Lýstu Rússar yfir vilja sínum að halda áfram þess- um viðskiptum og verður viðræðunum haldið áfram eftir hátíðarnar. Af hálfu SlS tóku þátt í viðræðunum Harry Frederiksen framkvæmdastjóri, Andrés Þor- varðsson viðskiptafulltrúi og Hjörtur Eiríksson verksmiðju- stjóri. I dag er skemmstur sólargangur og nú horfum við gegn hækkandi sól — nýju ári, og menn strengja þess gjarnan heit, að verða betri menn. Ljósmyndari Mbl. Ól.K.M. tók þessa skemmtilegu mynd f gær. Lúðvík löðrungar Framsókn: Guðmundur Hjartarson bankastjóri Seðlabankans 1 GÆRDAG sló Lúðvfk Jóseps- son bankamálaráðherra tvær flugur í einu höggi, löðrungaði forystumenn Framsóknarflokks- ins og beitti valdníðslu til þess að skipa Guðmund Hjartarson flokksbróður sinn bankastjóra Seðlabankans, enda þótt banka- ráðið hefði með fjórum atkvæð- um gegn einu mælt með Jóhann- esi Elfassyni bankastjóra Útvegs- bankans f þetta starf. Eins og Morgunblaðið hefur skýrt frá, hafa mikil átök verið innan stjórnarflokkanna vegna bankastjóramála síðustu vikur. Svanbjörn Frímannsson lætur af störfum sem bankastjóri Seðla- bankans um áramót. Framsóknar- flokkurinn hefur lagt rfka áherzlu á, að Jóhannes Elíasson yrði skipaður í þetta starf og hef- ur það verið alveg sérstakt áhuga- mál Ölafs Jóhannessonar forsæt- isráðherra. Lúðvík Jósepsson bankamála- ráðherra hefur hins vegar gert ítrekaðar tilraunir til að koma flokksbróður sfnum, Guðmundi Matthías A. Mathiesen og Geir Hallgrímsson; Olíukaup frá Norðmönnum? FRAM er komið á Alþingi þingsá- lyktunartillaga frá þeim Matthf- asi\A. Mathiesen og Geir Hall- grfmssyni um könnun á olíukaup- um. Gerir tillagan ráð fyrir, að Alþingi feli rfkisstjórninni að kanna nú þegar, með hvaða hætti tryggja megi sem best kaup á nægjanlegum olfuafurðum til langs tfma. I þessu skyni verði sérstaklega kannaðir möguleikar á olíukaupum hjá Norðmönnum frá hinum nýfundnu olfulindum í Norðursjó. I greinargerð með tillögunni segir m.a., að með tilliti til á- stands orkumála i heiminum, sé brýn nauðsyn á að kanna nú þeg- ar, hvernig tryggja megi íslend- ingum olíuaðföng í framtíðinni. íslendingar kaupi flestallar oliu- afurðir frá Sovétríkjunum, en þeir samningar renni út 1975. Ennfremur segir í greinargerð- inni: „Það er skoðun flutnings- manna, að heppilegt sé að dreifa meira áhættunni við olíuinnkaup, jafnframt þvi sem ekki er vitað, hve mikinn áhuga Sovétríkin hafa á að selja okkur olíuafurðir í jafnríkum mæli og hingað til. Auk þess er mun styttra að flytja olíuna frá Norðursjónum en frá Rússlandi, og gæti það haft í för með sé nokkurn sparnað og aukið öryggi." Guðmundur Hjartarson. Hjartarsyni, í bankastjórastöðu, en allar tilraunir hans til þess að koma honum í Búnaðarbankann hafa mistekizt. Þegar að því kom, að bankastjórastaða losnaði í Seðlabankanum, bauðst Lúðvík Framhald á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.