Alþýðublaðið - 11.08.1920, Page 1
Alþýðublaðið
Greíið tit af Alþýðuflokknum.
1920
Midvikudaginn 11. ágúst.
181. tölubl.
Stríðshættan liðin hjá?
Khöfn, 10. ágúst.
Frá London er símað að bandamenn tilkynni opinberlega að
]>eir séu á eitt sáttir um að styðja Pólland með góðum hernaðarráðum
'°g hergögnum, og ef til vill með hernaðarráðstöfunum á sjó, en ekki
með þvf að veita þeim liðstyrk á landi.
Frá Berlín er símað að Bolsivíkar hafi slitið beinum járnbrautar-
samgöngum milli Danzig og Varsjá.
Frá Varsjá er símað að stjórnin sé ekki farin úr bænum.
Enska stórblaðið Daily Expres álítur að hættan á því að banda-
*nenn fari í stríð við Rússa sé hjá liðin, svo framarlega sem Rússar
ábyrgist sjálfstæði Póllands.
Landsverzlun,
Eftir Verkamanninum.
Nú þegar Landsverzlunin er bú-
in að starfa í nokkur ár, er ekki
úr vegi að Iítá yfir starfið og at-
huga hvort hyggilegra sé að leggja
Landsverzlunina niður með öllu,
eða láta hana halda áfram að
tneiru eða minna leyti.
Þegar byrjað var á Landsverzl-
úninni 1914 hófu kaupsýslumenn
f Reykjavík og út um land miklar
æsingar gegn þessum alþjóðar
bjargráðum. Þessar æsingar kaup-
sýslumanna mögnuðust svo með
ári hverju, samhliða því sem Lands-
verzlunin óx og þroskaðist, þang-
nð til erfiði og æsingur var sýni-
íega orðið árangurslaust. Framan
af leit tíðum út fyrir að háreistin
ogFglamrið í andstæðingum Lands-
verzlunar ætlaði að ríða henni að
fullu, meðan hún var á því bernsku-
skeiði að innkaup hvíldu á lands-
stjórninni sjálfri og úthlutun innan-
lands á sýslumönnum og bæjarfó-
getum. Það fyrirkomulag var bæði
á veikum grundvelli bygt, enda
feynt af alefii að grafa undan því
máttarstoðirnar. Þau bjargráð sem
Landsverzlunin veitti alþýðunni,
voru í augum vöruprangaranna
hrifsuð bráð frá þeirra eigin munni.
^eir töldu sig hafa óskorinn rétt
«1 þess að nota sér neyðina eins
uppboðshaldarar á lífsnauðsynj-
uot fólksins. Vörur voru lokaðar
inni þar til verðið var orðið tvö-
falt eða þrefalt við það sem verið
hafði. Eitt pund af tóbaki var selt
fyrir 20 sauðarhöfuð og hnefastór
sykurmoli var Iátinn sem náðar-
brauð, ef keypt var önnur vara
fyrir tugi og hundruð króna, sem
kaupmanninum var útföl.
Eftir að reynslan var búin að
sýna það ótvírætt, að kaupsýslu-
menn vantaði bæði viljann og
máttinn til þess að sjá landinu
fyrir nauðsynlegum varningi, fóru
stóryrði þeirra að verða áhrifa-
minni til hnekkis Landsverzluninni.
En þó hefir máttleysi þessara
glamurmanna aldrei verið eins ber-
sýnilegt eins og nú síðan verzlun-
in var gefin frjáls. Athafnaleysi og
dugleysi kaupsýslumanna í því að
útvega landinu nauðsynjavöru er
svo bersýnilegt að ekki verður um
það deilt. Einkasala eða einkainn-
flutningur landsverzlunar er ekki
Iengur til á nokkurri vöru. Kaup-
sýslumönnum stendur því viðskifta-
heimurinn opinn og hefir staðið
það í meira en hálft ár, svo gera
má ráð fyrir að einhver alvarleg
bót til batnaðar hafi orðið á þessu
síðasta hálfa ári, sem verzlunar-
þekking og framkvæmdaafl kaup-
sýslumanna landsins hefir verið
óbundið af hálfu Landsverzlunar.
En þeir, sem í einfeldni sinni
trúðu skruminu úr andstæðingum
hennar, hafa orðið fyrir miklum
vonbrigðum. Samanburðurinn er
auðsær. Landsverzlunin heldur
áfram að flytja inn sömu vörur og
hún hafði einkarétt til innflutnings
á á stríðsárunum. Hún tekur þátt
í samkepninni, og hvarvetna verð-
ur hún ofaná í viðskiftunum við
andstæðingana. Svo ramt kveður
að þessu, að sumar vörutegandir,
sem heildsalar bjóða þeim sem
eitthvað fást við verzlun, eru að
verði langt fyrir ofan það, sem
Landsverzlunin selur sömu vöru
samtímis.
Nokkur dæmi mætti nefna:
Fyrir mánuði síðan var rúgmjöl
boðið af einni elztu og stærstu
heildsölunni í Reykjavík á 70 kr.
tunnan, og það látið fylgja með,
að ekki fengist innflutningsleyfi
frá Danmörku á rúgmjöli. A sama
tíma flutti Landsverzlunin rúgmjöl
frá Danmörku og seldi á 60 kr.
tunnuna. Strausykur hefir verið
boðinn af heildsölum í Reykjavík
á 3,90 kg. Á samu tíma selur
Landsverzlun hann á 2,20 kg-
Munurinn kr. 1,70 á einu kg.
Hveiti hefir verið boðið af heild-
sölum fyrir hærra verð en það er
selt út í smásölu hér, raeð því að
taka það hjá Landsverzlun.' Með
aðrar vörutegundir, sem Lands-
verzlunin hefir, verður samanburð-
urinn lfkur þessu. Verðið hjá
Landsverzlun sumstaðar langt fyr-
ir neðan það sem kaupsýslumenn
bjóða. (Frh.)
Mexikanar láta undan síga.
Þess var getið í Alþýðublaðinu
um daginn, er steinolían í Mexico
var til umræðu, að hin nýja stjóm
Mexico myndi leiðitamari ame-
rískum auðmönnum en sú er áður
sat. Hefir það nú að nokkru
komið á daginn. Mexikanska
hermálaráðuneytið hefir skipað að
láta breyta öllum mexikönskum
herskipum í Mexicoflóanum, í
kaupskip þegar í stað.