Morgunblaðið - 22.01.1974, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.01.1974, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1974. jr Agústa Júníusdótt- ir—Minningarorð Fædd 1«. ágúst 1899. I)áin 6. október 1973. Agústa var fædd á Syðra-Seli við Stokkseyri, dóttir Sigríðar Jónsdóttur frá Grímsfjósum á Stokkseyri og Júníusar Pálssonar sem fæddur var á Syðra-Seli og var bóndi þar til æviloka. Einnig var hann sýslunefndarmaður og formaður á Stokkseyri. . Börn þeirra urðu átta, og var Agústa sjöunda í röðinni. Háíf- systir þeirra var Margrét rjóma- bústýra á Baugstöðum, öllum að góðu kunn fyrir dugnað og greið- vikni. Með systkinahöpnum ólst einnig upp Guðbjörg Jónsdóttir frá Stokkseyri, er ung missti móð- ur sína. Féll hún vel inn i fjöl- skylduna, ágætlega greind og glaðleg. Börnin föru öll fljótt að hjálpa til, því að engar voru búvélar á þeim tíma, og urðu bæði ungir og gamlir að leggja hönd á plóginn. Það er friðsælt á Syðra-Seli. Fjölbreyttur gróður og sérstak- lega fjölbreytt fuglalíf. Víðsýni er til allra átta og fagur fjallahring- ur í fjarlægð. Lyngheiði er rétt við bæinn með margbrotnum gróðri. Einnig er þar vatn rétt hjá með smávegis veiðí. Oft voru þar svanir á sundi. Hollt er að alast upp i svona umhverfi, enda fá þeir, sem við það alast upp, oft mikla ást á náttúrunni. Það var oft skemmtilejgt hjá börnunum, bæði við leik og störf. Þegar börnin komust upp, fóru þau flest að heiman, ýmist til náms eða starfa. Páll sem var frækinn glímu- maður, fór á sjóinn. Hann drukknaði á þilskipinu Valtý árið 1920. Hann átti Þórdísi Eyjólfs- dóttur frá Stokkseyri, og fæddist einkasonur þeirra eftir að Páll dó. Það var samkomulag um, að hann færi að Syðra-Seli til afa og ömmu. Agústa, sem þá var rúm- lega tvítug, var hans önnur móðir. Þórdís móðir hans varð vökukona á Franska spítalanum. Þar vann einnig Sigríður Júníusdóttir mág- kona Þördísar. Sigriður Iærði hjúkrun í Danmörku. Seinna fór Sigriður til Danmerkur og vann á Bispebjærg-spítala. Þar dó hún árið 1927. Þórdís, sem nú er 75 ára, átti eftir að leggja sína líkn- arhönd við margan sjúkrabeð. Bjarni og Ágústa stóðu aðallega fyrir búskapnum, þegar heilsa foreldranna för að bila. Þuríður, sem eftir var heima, var mjög heilsuveil frá æskuárum. Jón fór á Stýrimannaskólann og þá alfar- inn. Guðbjörg og Sigríður yngri fóru til Reykjavíkur. Öll héldu þau tryggð við æskuheimilið eftir að þau fóru. Nokkru eftir ferm- ingu fór Páll Júníus Pálsson til móður sinnai iReykjavíkog settist á skólaliekk. Er hann nú vel þekktur rafvirkjameistari í Reykjavík. Það voru sterk bönd milli hans og Agústu, enda varð hann fljótt eftirlæti hennar og afa og ömmu. Var Agústa svo mjög mikið á heimili hans og Kristjönu Stefánsdóttur, seinna í líf inu. Árið 1938 kemur lítil stúlka að Seli. Var það Sigrún Júnía Ein- arsdóttir, dóttír Sigríðar yngri, systur Ágústu. Tók Ágústa miklu ástfóstri við hana. Var Sigrún um tima að Seli. Síðan fór hún til móður sinnar, sem var gift í Vest- mannaeyjum. Sigrún býr nú á Egilsstöðum og er gift Ástráði Magnússyni húsasmiðameistara. Árið 1930 var allt byggt upp á Syðra-Seli, vandað fbúðarhús og útihús. Árið 1932 tók Júníus banameinið og hjúkraði Ágústa honum heima, þangað til yfir lauk. Hann vildi fá að deyja heima, og hann vissi, að hann átti góða dóttur, sem myndi gera allt fyrir hann, sem í hennar valdi stæði. Árið 1944 dó móðir Ágústu eftir langvarandi veikindi og hjúkraði Ágústa henni með mik- illi nærfærni, þar til yfir lauk. Þannig var hún búin að reynast foreldrum sinum frábær dóttir til hinztu stundar. Nokkru seinna veikist Þuriður systir hennar af berklum og fer á Vífilstaði og Bjarni nokkru seinna. Var þá Ágústa alein eftir. En alltaf var skylduræknin hin sama, og hún gat ekki hugsað sér annað en að reyna að viðhalda búskapnum, svo að Þuríður og Bjarni hefðu eitthvert heimili, ef þeim batnaði. Hélt hún öllu í horfinu og lagði fram alla sína krafta svo ekki þyrfti að fækka skepnunum. Tókst það með dálít- illi hjálp nágrannanna og allt bjargaðist vel. Bjarni kom heim eftir rúm tvö ár, en Þuríður fór að vinna á Vífilstöðum. Ekki hafði Bjarni svo sterka heilsu, að hann treysti sér til að búa áfram. Voru þá skepnurnar seldar og ættaróðalið kvatt. Ágústa var þá 51 árs og fór til Reykjavíkur í atvinnuleit. Tókst það bæði fljótt og vel. Bjarni var mest á Efra-Seli hjá þeim ágætu hjönum Sigurlfnu og Ingólfi, sem reyndust honum framúrskarandi vel. Hann gat ekki hugsað sér að yfirgefa átt- hagana. Bjarni lézt árið 1967. Ágústa fór fyrst til fóstursystur sinnar, Guðbjargar, en ávallt var mjög kært með þeim, og manns hennar, Gisla Guðmunds- sonar frá Þjóðólfshaga. Fyrst var spurt um kirkjuna, og gekk Ágústa í Fríkifkjuna og kvenfélágið. Þar var Guðbjörg, og ræktu þær báðar kirkju sína og kvenfélag framúrskarandi vel. Á fundi í haust stóðu kvenfélags- konur upp á fundi og þökkuðum látnum félaga. Ágústa fékk litla íbúð og vann á saumastofu Gefjunar. Nú fannst henni, að hún ætti svo margar frístundir, að hún gekk í Ferðafélag Islands og fékk nú langþráða ósk uppfyllta, að ferðast og skoða landið. Fór hún flestar ferðir með því um allt landið í mörg ár og dvaldist stund- um nokkra daga á fegurstu stöð- um landsins. Gleði hennar og hrifning var svo einlæg, enda sá hún jafnframt gjafarann allra góðra hluta í náttúrunni, sem er líka önnur Guðs bók. Gaman var að heimsækja Ágústu og taka hana með í bíl- ferð, andinn var svo léttur og frjáls. Árið 1965 giftist Ágústa eftirlif- andi eiginmanní sínum, Jóni Magnússyni kaupmanni, þekktum myndarmanni. Þau stofnuðu sér hlýlegt og fallegt heimili, sem mörgum þótti gott að heimsækja. Þau voru hamingjusöm og unnu Fædd 16. ágúst 1888 Dáin 26. desember 1973. Magga frænka dáin. Ég er ekki enn búin að átta mig á því að hún sé ekki heima með litla frænda sinn á hnjánum, að hjálpa mömmu eða gera annað sem þurfti, þvi aldrei var sitið iðju- laust. Magga átti heimili hjá foreldr- um minum alla tíð og var óvenju- kært með þeim systkinum pabba og henni og man ég aldrei eftir að þeim hafi farið styggðaryrði á -millaþó var hvortugt skaplaust. Sérstaka umhyggju sýndi hún mömmu eftir að hún var farin að heilsu og þurfti meiri hjálp. Magga var með afbrigðum barngóð ekki einasta við okkur systkinin, bæði við eigin verzlun. Börn Jóns reyndust Ágústu sérstaklega vel og kunnu vel að meta hana. Fyrir nokkrum árum keyptu þau ágæta íbúð á Selfossi og áttu þar rólega daga. Þar er fallegt og sá til æskustöðvanna. Undu þau sér í alla staði vel þar. Jón vargóður heimilisfaðir og sá um, að allt væri til, enda gest- kvæmt. Ágústa var sönn húsmóðir og hafði alltaf hlaðin borð handa gestum sínum. Þau voru bæði kirkjurækin og létu sig aldrei vanta, þegar messað var á Selfossi. Guðstrúin átti æðsta sæti i hjörtum þeirra beggja. Oft skruppu þau til Reykjavík- ur til að vera við hátíðleg tæki- færi hjá börnum Jóns og frændfölki hennar. Þann 5. október i haust komu þau til Reykjavíkur til að vera við giftingu barnabarns Jóns. Ágústa skrapp á Elliheimil- ið Grund að morgni 6. októbers að heimsækja Þuriði systur sina, hress og heilbrigð. Þegar hún var koinin þaðan á strætisvagnastöð- ina, hneig hún niður og var þegar örend. Þeir eru altilbúnir að fara, sem hafa hennar hugarfar. Fær því að heyra af vörum meistarans: „Gott þú góði og trúi þjónn, gakk inn til fagnaðar herra þíns." Bið ég eiginmanni hennar, systrum og öðrum vinum Guðs blessunar. Mágkona. börn okkar og barnabörn heldur og öll börn. Hún hafði alltaf tíma til að sinna þeim, óg þó að þau væru fyrirferðarmikil, kom það aldrei í ljós, ef Magga var nálæg. Hún hafði sérstakt lag á að náþvf bezta fram og gat látið þau hlíða án margra orða. Ilún var í Vest- mannaeyjum á vetrum í áratugi og þá marga vetur á sömu heimil- um og var einlæg vinátta með því fólki og henni alla tíð síðan, enda trygglynd og mjög vel verki farin. Þrjár systur átti hún í Eyjum og er Sigrún nú ein á lífi. Hún dvelst i Hveragerði eftir flóttan úr Eyj- um í fyrravetur. Magga hélt mikla tryggð við fæðíngarsveit sína Eyjafjöllin og þar var hún lögð til hinztu hvíldar 3. þ.m. Hafi hún hjartans þökk fyrir allt. Sigrfður Guðjónsdóttir. t Faðir okkar, ÁRNI EINARSSON, klæðskerameistari, Bergstaðastræti 78, andaðist að heimili sínu 1 9. janúar Börnin. t Faðir minn oq tengdafaðir GUÐNI JÓNSSON, Faxabraut 2 A, Keflavík, andaðist í Sjúkrahúsi Keflavikur 1 9 þ.m Elísabet Guðnadóttir, Grétar Ellertsson. t EDITH DAUDISTEL, Laugavegi 55 andaðist á Landspítalanum, laugardaginri 1 9. janúar Fyrir hönd fjarstaddra ættingja t Útför DAGFINNS SVEINBJÖRNSSONAR fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 23 janúar kl. 1 2.30 Blóm vinsamlega afþökkuð Margrét Gunnarsdóttir. Magnea Halldórsdóttir. t Eiginkona min, SVANBORG SIGURÐARDÓTTIR, Stigahlíð 32, andaðist á Landspítalanum þann 1 8 þ m t Jarðarför ÁGÚSTU ERLINGSDÓTTUR, Túngötu 9, Húsavík, fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag kl 2 Hallgrímur Pétursson. Jón P. Jónsson, Porsteinn Jónsson. t Útför móður okkar og tengdamóður EVLALÍU ÓLAFSDÓTTUR, Njálsgötu 56 sem andaðist 15. janúar, fer fram frá Dómkirkjunrii fimmtudagmn 24 janúar kl 1 3.30 Blóm eru vinsamlegast afbeðin, en bent á líknarstofn- anir Ingibjorg Björnsdóttir Lárus H. Eggertsson Ólöf J. Björnsdóttir Agnar Einarsson Friðþjófur Björnsson IngibjörgJ. Marelsdóttir t Hjartkæri eiginmaður minn og faðir okkar, GESTURJÓHANNSSON, Selbrekku 14, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju, miðvikudaginn 23 jan. kl. 1 3 30 Pálina Ákadóttir, Jónína Gestsdóttir, Jón Heiðar Gestsson, Þuriður Gestsdóttir, Áki Brynjar Gestsson. Pálína Ósk Bragadóttir. Margrét Einarsdóttir Berjanesi — Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.