Morgunblaðið - 22.01.1974, Side 28

Morgunblaðið - 22.01.1974, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1974. - an Doppa og á ferðalagl eftir Hugrúnu Þá myndi Dfli segja, að hún væri svo smáhvolpaleg. — Nei, ég held, að ég þori ekki að fara, sagði hún og lagði aftur annað augað. — Mikill ræfill getur þú verið, sagði Díli. Það verður aldrei neitt úr þér, ef þú þorir ekkert. Hvað hræðistu? — Allt, sagði Doppa, sérstaklega stóru útlendu hundana. — Þú þarft ekki að vera hrædd, þegar þú ert með mér, sagði Díli og belgdi sig allan út. Heldurðu að ég viti ekki, hvernig á að koma fram við útlendu slánana? Ég held að við þurfum þá ekki að koma nálægt þeim. Það eru til fleiri staðir í heiminum en þessi kaupstaður sem þú heimsóttir. — Þeir eru víst til víðar en þar, sagði Doppa. Þeir geta komið út úr klettum og hólum. Þeir eru víst göldróttir. — Þú skalt nú ekki koma mér til þess að trúa því, sagði Díli. Ef þú kemur ekki með mér fer ég einn. Doppa litla fór að skjálfa við tilhugsunina um að missa vininn sinn. — Ég get ekki sagt þér núna, hvort ég fer með þér, sagði hún. Það er nógur tíminn þegar nóttin er orðin dimm. — Ég gef þér frest til morguns, ef þú getur ekki sagt mér þá, hvort þú kemur með mér, fer ég til hans Sáms á Hóli. Hann væri áreiðanlega til með að sjá sig um í heiminum. Hann á enga móður, sem bannar honum að fara. — Við sjáum til á morgun, sagði Doppa. Hún gat ekki um annað hugsað en það, ef hún ætti aldrei að sjá Díla aftur, þá myndi hún gráta úr sér bæði augun. Ef hún færi með honum, gæti hún varað hann við hættunum, og kannski fengið hann til þess að snúa við heim aftur, þegar hann væri orðinn nógu þreyttur og leiður á lífinu. — Við sjáum til á morgun, sagði hún. Það er nógur tíminn. Næsta dag dró hún það sem lengst að hitta Díla. Hún hafði enga matarlyst, og var ósköp dauf í dálkinn. — Hvað gengur að þér? spurði mamma hennar. — Ekkert, sagði Doppa, ekkert, mér er bara svolítið illt f maganum. — Voff, voff, sagði mamma hennar. Það þýddi að hún kenndi í brjósti um hana. Þú ættir ekki að fara neitt út í dag, barnið mitt. Það er betra að vera inni í hlýju bólinu, þegar maginn er ekki í góðu lagi. Doppa fann, að það var alveg satt, eins og allt, sem mamma hennar sagði. En Díli beið eftir henni. Það var ósköp og skelfing leiðinlegt að geta ekki sagt mömmu eins og var, en það þorði hún ekki. Það myndi Díli ekki fyrirgefa henni, og þá-liti hún aldrei glaðan dag framar. Hún óskaði þess heitt og inríilega, að henni þætti ekki svona vænt um Díla, en það gagnaði ekkert. Henni þótti svo ósköp lifandi skelf- ing vænt um hann og gat ekki hugsað sér að skilja við hann. Nú skaltu lita Hérna eru tvær inyndir, sem þið getið litað. Hvernig væri að hafa sein l'Lesta liti, t.d. lita dll hlómin með sitthvoruin lit? oAJonni ogcTWanni eftir Jón Sveinsson Freysteinn Gunnarsson þýddi Og við spenntum greipar og þökkuðum guði af öllu hjarta fyrir hjálpina, sem nú var að nálgast. Þegar því var lokið, sagði ég: „Nú verðum við að taka á því, sem við eigum til, og róa í áttina til skipsins, annars getur það farið framhjá okkur. Þokan er svo dimm“. Við settum á okkur stefnuna, sem hljóðið kom úr, og ég reri í áttina, svo rösklega sem veikir kraftar leyfðu. Brátt sáum við svarta þústu, sem leið áfram lötur- hægt. „Þetta er eins og fjall“, sagði Manni. Það var stafn skipsins — og sýndist margfalt stærri í þokunni en hann var í raun og veru. Nú var um að gera að ná sambandi við skipsmenn- ina. Ég herti róðurinn af öllum mætti til þess að komast sem allra næst skipinu. „Manni“, kallaði ég. „Taktu fljótt flautuna mína, hún liggur aftur í, og blástu í hana eins og þú getur“. Manni fann flautuna og blés, en ég hrópaði há- stöfum: „Hjálp! Hjálp!“ Enginn sást á skipinu. „Það er þó undarlegt“, hugsaði ég, „að enginn skuli sjást á verði“. Allt í einu sá ég varðmanni bregða fyrir, en hann hvarf um leið aftur. Hann horfði í hina áttina, og um leið hurfum við honum, af því að við vorum komnir svo nærri skipinu. Þegar við nálguðumst það, þekktum við, að hér var komið franska herskipið La Pandore, sem við höfðum heimsótt daginn áður. ffk&lmofgufilKiffiítu — Húrra, unsfrú Ljónfríð- ur, aðcins þrjár villur... og svo hyrjinn við á næsta orði ... KOBZLÉ ^QRVLPR lko^tbr JRPPEZTQ /037- ^OOOJ. — Þér eigið bara að ncfna hvern einstakan bókstaf. ekki að reyna að lesa neitt úr þessu. I :'<

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.