Morgunblaðið - 12.02.1974, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.02.1974, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1974 13 Plasttunimr jafngóðar fyrir grásleppuhrogn RANNSÖKNASTOFNUN fisk- iðnaðarins gerði á sl. vori tilráun- ir með vélvinnslu og söltun grá- sleppuhrogna. 1 niðurlagi skýrslu sinnar um tilraunirnar segir Björn Dagbjartsson: „Þessar tilraunir eru að vísu tæplega nægilegar til að skera óyggjandi úr um þau atriði, sem prófuð voru. Fleiri en ein tunna af hverjum tilraunaflokki hefði verið æskileg til þess að útiloka villandi niðurstöður, sem stafa kunna af tilviljunum eða mistök- um. Þö virðist mega draga af þeim nokkrar ályktanir. Plasttunnur virðast henta alveg eins vel og trétunnurnar til geymslu saltaðra grásleppu- hrogna, a.m.k. i stuttan tíma (3. mán.). Getur þetta orðið til mikils hagræðis og sparnaðar fyrir þá framleiðendur, sem sjálfir vinna kavíar úr hrognunum, þar sem plasttunnurnar má nota ár eftir ár og leki ápækli er útilokaður. Söltun með 16% salti og 0,2% benzóati virðist ekki hafa mikla kosti fram yfir söltun með 12% salti og sama benzóatmagni. Notkun marningsvéla til að- skilnaðar hrogna frá himnum virðist möguleg án þess að það komi fram á gæðum fullunninnar vöru. Þö að þessar tilraunir gefi ekki einhlitar niðurstöður í þessu efni, þá notaði a.m.k. einn hrogna- verkandi marningsvél til skilj- unar á a.m.k. 300 hrognatunnum vorið 1973. Kaupendur þeirra hrogna hafa ekki séð neina ástæðu til að kvarta. Þvegin hrogn reyndust ekki eins vel og vonast hafði verið til. Tæknilega eru engin sérstök vandkvæði á þessu og hristisiuna má nota til að ná vatninu af hrognunum, hvernig sem þvottur- inn væri framkvæmdur. Hins veg ar er hristisian tæplega nothæf til að sía hrogn, sem ekki hafa verið þvegin, vegna samloðunar hrogn- anna. Gerlafjöldinn minnkar við þvottinn, en mengunin, sem fram kom í þvegnu hrognunum eftir söltun, gerði niðurstöður tilraun- arinnar vafasamar. Auk þess myndast meiri pækill á hrognum sem hafa verið þvegin og getur það komið fram sem undirvigt við sölu. JttorpmMaMb DllGLVSincnR <áL*—224B0 Félagslíf Q Hamar 597421 27 =r3 I.O.O.F. Rb 1 = 12321 28'/2 — N.K. □ EDDA 59741227 = 7 K.F.U.K. Reykjavik Kristniboðsfundur i kvöld kl. 20 30 Gunnar Sigurjónsson segir nýjar fréttir af kristniboðsakrinum, og sýnir myndir. Einsöngur. Gjöfum til kristniboðsins veitt móttaka. Stjórnin. Sálarrannsóknarfélag íslands heldur fund I Norræna húsinu, þriðjudaginn 12. febr. n.k. kl. 8 30 e.h. (20 30) Erindi flytur séra Jakob Jónsson, dr. theol: Samband trúar og sálarrannsókna. Hljómlist verður á undan og eftir. Allir velkomnir á meðan húsrými leyfir. Stjórnin. Ha ndavinnukvöldin eru á miðvikudögum kl. 8. e.h. að Farfuglaheimilinu Laufásvegi 41. Kennd er leðurvinna og smelti. Nánari uppl. I síma 24950 á mið- vikudögum milli kl. 8—10 e.h. Farfuglar. Húsmæðrafélag Reykjavikur. Fundur verður I félagsheimilinu að Baldursgötu 9, miðvikudaginn 13. febrúar kl 8 30. Sýnikennsla verður I blómaræktun án moldar. Kaffi og fleira. Stjórnin. vetrarútsaia Mikil verðlækkun. Einnig ný sending af pelsum og aðskornum pelskápum. Kápu- og dömubúðin, Laugavegi 46. Þvottavél — Vinda Vil kaupa fyrir þvottahús þvottavél (belgstærð ca 50x85 cm) og vindu, sem tekur ca 1 0 — 15 kíló. Upplýsingar í síma 3 1 380. Mlðslöðvarketill notaður, ca. 1 6 ferm. til sölu á góðu verði. Símar 32500 og 32749. Aðalfundur Aðalfundur Bandalags íslenzkra farfugla og Farfugladeildar Reykja- víkur verður haldinn að Farfugla- heimilinu, Laufásvegi 21, fimmtu- daginn 14. febrúar og hefst kl. 8,30. Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn. Stjórnirnar. Kvennadeild Flugbjörgunarsveit- arinnar. Aðalfundur verður haldinn í Félagsheimilinu 13. febrúar kl. 8.30 stundvíslega. Mætum allar Stjórnin. KvenfélaglÖ Hrlngurinn 70 ára ÁRSHÁTÍÐ félagsins verður haldin að Hótel Borg föstudaginn 15. þ.m. og hefst með borðhaldi kl. 1 9. Aðgöngumiðar seldir að Ásvallagötu 1, þriðjudag og miðvikudag n.k. kl. 1 4—1 9 (sími 1 4080). Félagskonur mætið vel og takið með ykkur gesti. NÝTT NÝTT NÝTT RBURN 3 0DDA AFL KERTID Sem hefur þótt ómiss- andi í flugvélahreyfla vegna öryggis. Bensín sparnaður. Margföld ending Aukin orka Umboð H.H.CIaessen h/f Skólavörðustíg 12 sími 22755 SINCLAIR vasareiknivélin, sem gerir allt nema kosta mikla peninga. FJÖLHÆF: Logarithmar Veldisfall Hornaföll Rætur Summa margfelda Margliður Hyberbólur Vextir Vaxtavextir Ofl. ofl Verð aðeins kr:6-760-- með rafhlöðum Fyrir þá, sem vilja læra alla möguleika vélarinnar höfum við sérstaka sýnikennslu kl. 4 — 5 daglega að Sætúni 8. Verið velkomin. HELZTU EIGINLEIKAR: Leiðréttir siðustu tölu Fljótandi komma Algebru-logic gefur möguleika á keðju útreikningi. 4 reikniaðferðir ( + , — x, +) og konstant á hverri þeirra. Konstant og algebrulogic gera mögulega flókna útreikninga. Sýnir 8 stafi, en gefur útkomu allt að 1 6 stöfum. Skýrir og bjartir stafir. Vinnur vikum saman á 4 stk. U 1 6 rafhlöðum. Ofl ofl. heimilistæki sf Sætúni 8, — sími 1 5655 ...... Hún er komin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.