Morgunblaðið - 12.02.1974, Page 22

Morgunblaðið - 12.02.1974, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRtJAR 1974 Sigurður Kristján Guðmundsson -Mmning Fæddur 30.8. 1915. Dáinn 1.2. 1974. Æskuvinur minn, Sigurður Kristján Guðmundsson, var fædd- ur á fæðingardegi móður sinnar, Daðeyjar Guðmundsdóttur á Fossum í Skutulsfirði. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónatans- son bóndi á Fossum í Skutulsfirði frá Engidal og kona hans áður nefnd, Daðey Guðmundsdóttir. Foreldrar Sigurðar áttu alls 14 börn og komust 12 af þeim til þroska. Sigurður var frumburður foreldra sinna. Hann ólst upp hjá móðurafa sínum, Guðmundi Bjarna Árnasyni sjálfseignar- bónda á Fossum en síðar á Kirkju- bæ í Skutulsfirði. Miklu ástfóstri tók afinn við þennan Ijóshærða, ljúflynda dreng og áttu þeir sam- leið meðan báðir lifðu. Ég kynntist Sigurði þegar hann var aðeins 10 ára gamall og þrem- ur árum yngri en ég. Urðum við brátt miklir mátar. Snemma bar á hagleik hans og mun hann hafa verið um fermingu þegar hann smíðaði sér byssu og ýmsa aðra vandgerða gripi. Hann hafði snemma mikið ímyndunarafl og lagði því á margt gjörva hönd. Haustið 1929 gengum við báðir í Skátafélagið Einherja á ísafirði, t Maðurinn minn, faðir, sonurokkarog bróðir ÞORVARÐURJÓNSSON, Asparfelli 4. lézt að Borgarsjúkrahúsinu 8 þ.m. Inga Herdls Harðardóttir, Jón Þorvarðarson Vilborg Jóna Guðmundsdóttir Jón Þorvarðarson og systkini. t Faðir minn, tengdafaðir og afi MARINÓ JÓNSSON sem andaðist 6 febrúar s I verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 13. febrúarkl. 1..30. Örn Marinósson Ragnheiður Þorgeirsdóttir Soffía Arnardóttir Öm Marinó Arnarson Þór Arnarson. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma KATRÍN SVALA GUÐMUNDSDÓTTIR, Meistaravöllum 35, lézt í Borgarsjúkrahúsinu 9 febrúar. Jóhanna Sveinsdóttir Hörður B. Bjarnason Ásiaug Þórarinsdóttir systkini og barnabörn. t JÓHANN E. ELÍASSON, póstmaður. Njálsgötu 98, Reykjavík, sem lézt 3 febrúar s.l verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 1 3. febrúar kl. 3. e.h, Blóm og kransar vinsamlega afbeðin, en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Margrét Elíasdóttir, Jón Júl. Þorsteinsson, Louise Steindal, Haukur Björnsson. t Útför eiginmanns míns og föður KONRÁÐS BECK, sem lést sunnudaginn 3 þ m fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudag- inn 13. þ m kl. 13.30 Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Sigríður Beck og Þórólfur Kristjén Beck. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát tengdamóður, ömmu langömmu og systur og útför móður okkar. INGIBJARGAR TEITSDÓTTUR. Sólveig Búadóttir Inga Hrefna Búadóttir Alfreð Búason Hrefna Jónsdóttir Ásgerður Búadóttir Björn Th. Björnsson Bendt Bendtsen Ingveldur Teitsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. sem þá var nýstofnað. Kynntist hann þar góðum félagsanda og siðgæði á háu stigi. Yms atvik urðu þess valdandi, að skamma hríð var hann þar starfandi, en þó eins og ávallt síðar, góð fyrir- mynd annarra og traustur í mann- gerð. Leiðir okkar skildust snemma vegna sífelldrar leitar að lífsframfæri á erfiðum tímum kreppu og athafnaleysis. Ungur að árum valdi hann sér lífsförunaut, unga stúlku á ísa- firði, Guðrúnu Ebbu Jörundsdótt- ur Ebenesarssonar, ættaða úr Jökulfjörðum í Norður-Isa- fjarðarsýslu. Kona Jörundar var Sigríður Arnadóttir ættuð frá Læk í Aðalvík. Sigurður og Guðrún eignuðust 9 börn, þar af lifa 8: Sigurður Jörundur framreiðsl- um. i R., kvæntur Kristínu Maríu Sigþórsdóttur úr R., Gunnar Kristján húsasmiður í Kópavogi, kvæntur Bjarndísi Rúnu Júlíus- dóttur úr R., Guðmundur Friðrik pipulagningamaður í Svíþjóð, t Fóstursystir mín HELGA LÁRUSDÓTTIR Bergstaðastræti 68 andaðist að Heilsuverndarstöð- inni að kvöldi 10. febrúar s.l. Fyrir hönd aðstandenda Gyða Ingólfsdóttir. Öskar pípulagningamaður f R., kvæntur Guðrúnu Magnúsdóttur úr R., Jón byggingaverkamaður í Hf., kvæntur Jóhönnu Hannes- dóttur úr Hf., Ingibjörg Þórdís, gift Guðbirni Þórðarsyni verka- manni í Sviþjóð., Sigríður, ógift heima, Jens, ókvæntur, í skóla, einnig heima, Guðmundur Bjarni dó ungbarn. Barnabörn Sigurðar og konu hansGuðrúnar eru orðin 16. Það liðu nokkrir áratugir svo að ég hitti ekki Sigurð, æskuvin minn, en þegar fundum okkar bar saman aftur, varð ég þess fljót- lega var, að hann var enn sami trausti og hugljúfi drengurinn. Lengi býr að fyrstu gerð, segir máltækið og átti það vel við um Sigurð Guðmundsson. Hann var alls staðar eftirsóttur til starfa vegna hagleiks síns og yfirburða starfsvilja. Ég held varla, að hann hafi nokkurn tímann látið sjálfan sig sitja í fyrirrúmi fyrir öðrum, hvorki í fjölskyldunni né í sam- skiptum sínum við aðra menn. Hann vann sér oft inn góðan pen- ing með dugnaði sinum og starfs- gleði, en hann var óðara búinn að ráðstafa fé sinu fyrir heimilið eða til kaupa á smíðatækjum fyrir bílaverkstæði sitt. Hann rak um skeið viðgerða- verkstæði fyrir bíla í R og ófáir munu þeir hafa verið, sem nutu hans högu handa við bílinn sinn. Hann var allmörg síðustu árin, sem hann lifði, starfsmaður hjá strætisvagnastöð Kópavogs og ók þá strætisvögnum kaupstaðarins. Þolinmæði hans og ró var gott veganesti á þeim leiðum. Hann var mjög fær ökumaður sem og allir bræður hans. Hann kenndi mörgum á bíl og var ökukennari ágætur. Lengst ævinnar starfaði hann við smíðar og eru til margir gripir eftir hann, sem bera vott um handlag hans og vandvirkni. Eg hef engan mann þekkt, sem ég bar meiri virðingu fyrir en honum, hugljúfa æskuvininum, drenglynda, greinda og hinum sanna mannvini. Hann hélt ávallt ró sinni og karlmennsku, og að síðustu, þegar hann var á leið til vinnu sinnar, veiktist og sneri heim til sin, kvartaði hann ekki en sagðist ætla að hvíla sig um stund, en var örendur eftir fáar mínútur. Hin siðasta stund hans var einnig aðalsmerki hans, hógværð og lát- laus framkoma, hvernig sem hög- um var háttað. Daðey móðir hans er enn á lifi og má hún nú syrgja sjötta barn sitt auk þess sem hún hefur lengi verið ekkja. Henni og Guðrúnu Ebbu, ekkju Sigurðar, svo og öll- um börnum hans og barnabörn- um, flyt ég mínar samúðarkveðj- ur og bið þau að minnast þess i sorg sinni, að hér er kvaddur af- bragðsgöður drengur, sem með lífi sínu gaf sínum eftirkomend- um svo ogöðrum, erhann þekktu, gott fordæmi um heilbrigt dreng- skaparlif. Þess minnast böm hans, að hann var góður, umhyggjusamur faðir og elskaður af þeim öllum. Hið sama er að segja um Guðrúnu ekkju hans, að hún minnist hans sem hins ágæta manns og umhyggjusams heimilisföður. Heimili þeirra hjóna var ávallt opið, ekki aðeins börnum þeirra uppkomnum, en einnig systkin- úm Sigurðar. Var þar ávallt opið hús vinum og venzlamönnum. Áttu þau hjón bæði jafnan til hjartahlýju og góðvild handa þeim, er þess þurftu. Stór barna- hópur og þá oft stopular tekjur höfðu engin áhrif á gestrisni þeirra hjóna. Samhent og heil í hverju máli fylgdust þau að unz dauðinn skildi þau að. Fagurt mannlíf i stórri fjölskyldu fylgdi þeim jafnan. Blessuð sé minning míns æsku- vinar. Guð blessi sál hans. G uðm und ur G uð ni Guðmundsson. t Faðir okkar, GfSLI GUÐBJARTSSON, Sunnuvegi 1 5, andaðist að Hrafnistu aðfaranótt 10. febrúar. Fyrir hönd vandamanna Þórey Glsladóttir Kristján Gíslason. t SIGURLAUG DANÍELSDÓTTIR frá Hreðavatni andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 8 þm. Jarðarförin auglýst síðar. Vandamenn. t Eiginkona mín, móðir okkar og amma, SVAVA JÓNSDÓTTIR, Auðbrekku 23, Kópavogi, andaðist að morgni 9. febr. sl Jarðarför auglýst síðar Bjarni Þ. Bjarnason, Jón H. Bjarnason, Lárus Bjarnason, Svava Bjarnadóttir, Bjarni Þ. Bjarnason jr., Ragnhildur Bjarnadóttir. Ágústa Harðardóttir. t SÓLVEIG GUÐMUNDSOÓTTIR, Hjaltabakka 8, lézt í Landspltalanum 10. febrúar. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi EINAR BALDVIN GUÐMUNDSSON, Hæstaréttarlögmaður verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 1 4 febrúar kl. 3 Kristfn Ingvarsdóttir, Unnur Óskarsdóttir, Axel Einarsson, Jóhanna Jórunn Tbors, Ólafur B. Thors, Kristln Klara Einarsdóttir, Árni Indriðason og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.