Morgunblaðið - 12.02.1974, Page 25
fólk í
fréttum
Útvarp Reykjavík
ÞRIÐJUDAGUR
12. febrúar
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kL 7.20. Fréttir kl.
7.30,8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kL 7.55.
Morgunstund bamanna kl 8.45: Vil-
borg Dagbjartsdóttir heldur áfram að
lesa söguna „Börn eru bezta fólk*‘eftir
Stefán Jónsson (7).
Morgunleikfimi kl. 9.45. Tilkynningar
kL 9.30.
Þingfréttir kL 9.45. Létt lög á milli
. atriða
Ég man þá tíð kl. 10.25: Tryggvi
Tryggvason sér um þátt með frásögum
og tónlist frá liðnum árum.
Tónleikar kL 11.25: Sinfóniuhljóm-
sveitin í Chicago leikur „Amerísk
trúarljóð“ eftir Morton Gould. /
Swingle-kórinn syngur svitu úr óper-
unni „Porgy og Bess“ eftir George Ger-
shwin.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.00 Eftir hádegið Jón B. Gunnlaugsson
leikur létt lög og spjallar við hlustend-
ur.
14.30 Síðdegissagan: „Dyr standa opnar“
eftir Jökul Jakobsson Höfundur les.
(10).
15.00 Miðdegistónleikar: íslenzk tónlist
a ForleikureftirKarl O. Runólfssonað
leikritinu „Fjalla-Eyvindi". Sinfónfu-
hljómsveit íslands leikur; Páll P. Páls-
son stj.
b. Sex vikivakar eftir Karl O. Runólfs-
son. Sinfóniuhljómsveit íslands leikur;
Bohdan Wodiczko stj.
c Lög eftir Sigurð Þórðarson, Helga
Helgason og Björg\’in Guðmundsson.
Li ljukórinn syngur; Jón Asgeirsson stj.
d. Lög eftir Sigfús Einarsson, Pál
ísólfsson, Árna Thorsteinsson, Markús
Á skjánum
ÞRIÐJUD IGl R
12. febrúar 1974
20.00 Fréttir
20.2 5 Vc ðu r og aug lýsi nga r
20.30 Skák
Stuttur, bandarískur skákþáttur.
Þýðandiog þulur Jón Thor Haraldsson.
20.40 Valdata fl
Breskur framhaklsn\vnda flokku r.
Annarhluti.
1. þáttur. .Esérgjöf tilgjalda
Þýðandi Jón O. Edwald.
Valdataflið er hér sem fvrr tefll af
stjórnarmönnum í stóru verktakafyrir-
tæk i og veiti r ýmsum bet ur.
Aðiilhlutverkin leika Patrick Wymark.
Kristjánsson og Eyþór Stefánss. Pétur
Þorvaldsson sellóleikari og Ölafur
Vign ir Albertsson píanóleikari flytja
16.00 Fréttir. Ti lkynningar. 16.15 Veður-
fregnir.
16.25 Popphornið
17.10 Tónlistartfmi barnanna Ólafur
Þórðarson sér um þáttinn.
17.30 Framburðarkennsla I frönsku
17.40 Tónleikar. Ti lkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55
Tilkynni ngar.
19.00 Veðurspá
Fréttaspegill
19.15 Vamarmálin
Tvö stutt erindi flytja:
Kristján Friðriksson iðnrekandi og
Þorsteinn Vilhjálmsson eðlisfræðing-
ur.
19.45 Bamið og samfélagið
Margrét Margeirsdótó r og Pálína Jóns-
dóttir sjá um þáttinn
20.00 Lög unga f ólksins
Ragnheiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
21.00 „Frá þeim, sem ekki hafa mun
tekið verða“
Smásaga eftir Geir Kristjánsson. Hjalti
Rögnvaldsson leikari les.
21.30 Á hvftum reitum og svörtum
Guðmundur Amlaugsson flytur skák-
þátt.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Lestur Passfusálma (2).
22.25 Kvöldsagan: „Skáld písl arvættis-
ins" eftir Sverri Kristjánsson
Höfundur byrjar lestur ásöguþætti um
Hallgrím Pétursson.
22.45 Harmonikulög
Charles Magnante Ieikur.
23.00 Ahljóðbergi
Raddir og reynsia — Leikarinn Peter
Ustinov segirfráog hermireftir mönn-
um á vegferð sinni viða um heim.
Björn Th. Björnsson listfræðingur ser
um þáttinn.
23.30 Fréttirí stuttu máli. Dagskrárlok.
Clifford Evans, Peter Barkworth.
Rosmary Leach og Barbara Murray.
21.30 Heimshom
Fréttaskýringaþáttur um eiiend
máléfm.
Umsjónarmaður Sonja Diego.
Managua
Bresk fréttamynd frá Managua. höfuð-
borg Nicaragua. og ástandið þar nú.
þi'gar eitt ár er liðið frá jarðskjál'ftan-
um mi kla. sem lagði boi-gina í rúst
Þýðandiog þulur Óskar Ingimarsson.
Jóga til heilsubótar
Bandariskur mvndaflokkur með
kennslu i jógaæfingum.
Þýðandiog þulur.Jón (). Edwald.
Dagskrárlok.
félk f
fíölmiélum
Bretland — Úkranía
— Amazon
— olíukreppan
I kvöld kl. 21.30 er Heims-
horn á dagskrá sjónvarpsins.
Þá fjallar Sonja Diego um
ástandið í Bretlandi, þar sem
verulega er nú tekið að hitna i
kolunum. Þegar þetta er skrif-
að virðist allsherjarverkfall
óumflýjanlegt, og geysihörð
kosningabarátta er í vændum,
þannig að af nógu er að taka.
Þá ræðir Björn Bjarnason
um Úkrafnu og afstöðu lands-
ins til þjóðarheildarinnar, en
þjóðernisvitund Úkraínu-
manna hefur longum verið
sjálfstæðari en annarra þjóða
Sovétrikjanna.
Haraldur Ölafsson ræðir um
Brasilíu. M.a. verður sagt frá
lifi Indíána þar og áhrifum sið-
menningarinnar á þá, en einnig
fjallað um lífið á Amazonsvæð-
unum. Landið, sem Amazon-
fljótið rennur um, hefur geysi-
mikil áhrif á loftslag og veður-
far á jörðinni allri, og hafa
menn haft áhyggjur stórar af
röskun umhverfis þar, t.d.
vegna skógarhöggs, sem getur
haft ófyrirsjáanlegar afleiðing-
ar.
Loks talar Arni Bergmann
um olíumálin og það, hvort oliu-
kreppan sé raunveruleg, eða
e.t.v. að einhverju leyti tilbun-
ingur þeirra, sem eiga hags-
muna að gæta.
Passíusálmarnir
og Skáld píslar-
vættisins
í gærkvöldi hófst lestur
Passíusálma, en sá lestur hefur
verið árviss viðburður i út-
varpsdagskránni um margra
áraskeið. Það, sem einkum vek-
ur athygli að þessu sinni, er
það, að nú les kona sálmana í
fyrsta skipti. í sjálfu sér er það
ekki svo merkilegt, að kona
skuli lesa sálmana, heldur það,
að annað eins hefur ekki gerzt
fyrr.
Lesarinn er Valbjörg Krist-
mundsdóttir á Akranesi. Sálm-
arnir verða lesnir á hverju
kvöldi níu vikna föstunnar, sem
nú ér hafin, — eins og verið
hefur.
Þá er vert að vekja athygli á
lestri nýrrar kvöldsögu, sem
hefst í kvöld. Sagan heitir
„Skáld píslarvættisins“. Hún
fjallar um Hallgrím Pétursson,
og lesari er höfundurinn, Sverr-
ir Kristjánsson. Sagan verður
lesin að loknum lestri Passiu-
sálmanna, sem er vel viðeig-
andi — samhengisins vegna.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1974
NÝJASTA AFÞREYING
PARÍSARBÚA
Ef þú ert á förum til Paris-
ar, skaltu ekki láta þér
bregða þótt þú rekist á
Georges Pompidou viða á
götum úti og jafnvel á hin-
Um ólíklegustu stöðum einn
og sama daginn. Það er ekk-
ert óeðlilegt við það, jafnvel
þótt forsetinn sé alls ekki
staddur i borginni, þvi að
nýjasta uppátæki borgarbúa
er einmitt að klæða sig út
eins og forsetinn.
Maðurinn, sem stendur að
baki þessu uppátæki, heitir
Pierrot la Farceur. Hann
hefur látið framleiða plast-
grimur í stórum upplögum,
sem eru sláandi líkar andliti
forsetans og selur þær á ein-
um flóamarkaði borgar-
innar. Viðskiptin eru sögð
ganga mjög vel og svo virðist
sem fólk sé æst i að líkjast
forsetanum, sem eftir öllum
sólarmerkjum að dæma
kann vel að taka grininu.
Alla vega hefur engin til-
raun verið gerð til að skrúfa
fyrir starfsemi Pierrot la
Farceur.
aðeins, að ég skyldi fara aftur
að syngja.“
Callas sagði ennfremur, að
hún hefði ekki tekið það nærri
sér, þegar Onassis kvæntist
Jacqueline Kennedy. ,,Ég vil að
hann sé hamingjusamur með
hverjum sem er.“
Og hvað hana sjálfa varðaði
og sönginn, viðurkenndi hún,
að hún hefði „týnt nokkru af
hæfileika minum til að ná
háum tónum og líka af æsku-
fullum leikþrótti mínum“. Um
ástir hennar. „Ég átti bæði
eiginmann og elskhuga. En nú?
Það getur verið, að ég fæli karl-
menn frá mér með mínum
sterka persónuleika. Ég er líka
allt of önnum kafin."
TVÆR ÍSLENZKAR KRUNURAKA
KÓNGINN
Þessi mynd var tekin I London á dögunum, er tvær íslenzkar
stúlkur, Björg Árnadóttir (til vinstri) og Inga Bjarnason, krúnu-
raka brezka leikarann Nigel Watson vegna titilhlutverks hans í
leikritinu „Ríkharður þriðji“, sem frumsýnt var á dögunum i Arts
Theatre-leikhúsinu í Great Newport Street í London. Björg og Inga
fara einnig með hlutverk í leikritinu, sem flutt er af leikfélaginu
Triple Action Theatre sem liður í Fringe Theatre Festivalleiklistar-
hátíðinni, en hátíðin sú er eitt af mörgum atriðum, sem laða eiga að
ferðamenn og skemmta þeim í London í febrúarmánuði.
CALLAS UM
CALLAS
Maria Callas, sópransöngkon-
an heimsfræga, er komin á stjá
aftur og farin að halda hljóm-
leika, eins og kunnugt er af
fréttum. Og hún er líka farin að
tala opinskátt um sjálfa sig á
ný. „Hvað er rangt við það, að
ég tók saman við Onassis?“
svaraði hún spurningu með
spurningu i blaðaviðtali fyrir
skömmu. „Við vorum mjög
hamingjusöm saman og ég
hefði ekki viljað missa af einni
mínútu þess tíma, sem við
eyddum í sameiningu, þótt ég
sjái eftir því að hafa hætt að
syngja um þetta leyti. Hann
yfirgaf mig ekki. Við ákváðum
DÖNSUM t ALLA
NÓTT
Eftir að hafa drattazt um
dansgólfið i 64 klukkustundir
samfleytt sigruðu þau Dee
Lopez og Skip Ciccarelli mara-
þonkeppnina í dansi, sem hald-
in var í borginni Methuen í
Massachussetts í Bandarikj-
unum fyrir skömmu. Og út-
haldið þökkuðu þau þvi, að þau
hafa stundað yoga sér til
heilsubótar — eins og margir
stressaðir tslendingar hafa gert
eftir sjónvarpskennslunni í
vetur. — „Þetta var bezta hug-
leiðsla, sem við höfum komizt í
um ævina,“ sögðu þau Dee og
Skip að afrekinu unni. Þó má
segja, að þetta maraþon þeirra
komist ekki nálægt afreki, sem
Callum L. de Villier og Vonnie
Kuchinski unnu á kreppuárun-
um i Bandaríkjunum, þegar
þau settu heimsmet í slíku
dansúthaldi. Þau stigu sem sé
dans í 3780 klukkustundir sam-
fleytt — eða ffá 28. desember
1932 til 3. júní 1933. Tæpast
hefur fótaburðurinn verið orð-
inn fallegur undir lokin.