Alþýðublaðið - 11.08.1920, Qupperneq 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Afgreidsla
blaðsins er í Alþýðuhúsinu við
lagólfsstræti og Hverfisgötu.
8íml 988.
Auglýsingum sé skilað þangað
cða í Gutenberg í síðasta lagi kl.
ZO, þann dag, sem þær eiga að
koma í blaðið.
Þegnvinna,
Borgararnir vinna ókeypis
fyrir bæinn.
Þegnvinnu hafa Siglfirðingar
verið að inna af hendi undanfarið.
Eftir uppástungu frá lögreglustjóra
fór rafijósanefnd kaupstaðarins
þess á leit við borgarana, að þeir
flyttu sand, sem nota þyrfti til
aðgerðar á vatnsþró rafstöðvar-
innar í Hvanneyrarskál, endur-
gjaldslaust þangað upp ettir.
Brugðust menn vel við þessari
málaleitun og mátti sjá fjölda
fólks, karla og konur, kvöld eftir
kvöld, á ferðinni upp í Hvann-
eyrarskál, alt með sandpoka á
bakinu. Safnaðist nægur sandur
til aðgerðarinnar á þennan hátt.
Síðar á að setja þak á vatnsþróna,
og þarf því að koma efni í það
uppeftir, og er búist við að flutn-
ingi þess verði hagað á líkan hátt.
Það stendur sjaldan á samhjálp
fólksins, sé um sameiginleg áhuga-
mál fj'óldans að ræða. (V.m.)
Um daginn og vepn,
Samsæti héldu nokkrir Alþýðu-
flokksmenn í gær, Borgbjerg rit-
stjóra og frú hans. Samsætið var
haldið hjá Rosenberg, og var hið
ánægjulegasta.
Síldarafli er nú ágætur norðan
lands. Til dæmis um það, hve
mikið berst að af síld á Siglufirði,
var í íyrradag tunnan boðin á
3 kr., heldur en að fleygja henni.
Sbjöldnr á að fara til Borgar-
ness á föstudagsmorguninn, kemur
við á Akranesi.
Lögjafnaðarnefodin hefir nú
Iokið störfum sínum. Fara dönsku
nefndarmennirnir heimleiðis i dag
á Fálkanum, sem flytur þá til
Bergen.
Geir og Sfeúli Fógeti, komu
í morgun frá Englandi hlaðnir
kolum.
Es. Magnhild kom í morgun
með kol til Landsverzlunarinnar.
Áldan, skonnorta, kom í morg-
un með timburfarm frá Noregi.
Meiðsli. Um helgina féll sand-
bakki ofan á fætur Þórhallar
Sæmundssonar stud. jur., sem var
að vinna við húsagerðina við
Elliðaár, og meiddi hann allmikið.
Hann liggur nú rúmfastur.
Hætta á ferðnm. Sjómenn eru
mintir á það, að setja vel á sig
áuglýsingu Vitamálastjórnarinnar
um tundurduflahættuna fyrir Aust-
urlandi. Einnig ættu þeir að hafa
það hugfast, að vel geta duflin
verið komin víðar, hér umhverfis
land. Verði einhverjir varir við
dufl, er mjög áríðandi að gera
stjórnarráðinu tafarlaust viðvart.
Jarðaríör Pálma Pálmasonar
fór fram í fyrradag. Hannvar hinn
öruggasti flokksmaður vor og hinn
bezti drengur í hvívetna.
€rlenð símskeyti.
Khöfn, 9. ágúst,
Undirritun tyrknesku friðarsamn-
inganna hefir enn verið slegið á
frest.
Fréttastofa Letta tilkynnir að
baltiski fundurinn sem ráðgerður
hafði verið hafi verið settur í Riga
á föstudaginn.
Khöfn, 10. ágúst.
Símað frá París, að Grikkir og
ítalir hafi komið sér saman. Læt-
ur Ítalía af hendi Dodecanisku
eyjarnar nema Rhodos, þar sem
fram á að fara þjóðaratkvæða-
greiðsla eftir 15 ár.
Friðurinn við Búlgaríu var und-
irskrifaður í gær.
lítlenðar jréttir.
Sbortur á höðlmu.
Þýzka blaðið Berliner Neue
Zeitung segir frá því að nú sé
svo mikill skortur á böðlum í
Þýzkalandi að morðingi nokkur
að nafni Screppel hafi ekki enn
orðið tekinn af Hfi. Morðingi þessi
hafði það til saka unnið að hann
hafði myrt 11 ára gamalt stúlku-
barn, etið nokkuð af líkama henn-
ar sjálfur en selt afganginn sem
kindakjöt. Þetta hryililega ódæðí
drýgði hann í Rodack í Thiiring-
en í fyrra. Böðlarnir í Halle og
Miinchen hafa verið kvaddir tii
að lífláta hann en skorast undan.
Þetta mun eifct hið hryllilegasta •
grimdarverk, sem sögur fara af
nú á síðstunni.
Púðursprenging í Bukarest.
Nýlega sprungu í loft upp 10
járnbrautarvagnar hlaðnir púðri, á
járnbrautarstöðinni í Bukarest í
Rúmeníu.
Yínbann í Bazilíu.
Öflug barátta hefir nýlega verið
hafin til að koma á vínbanni í-
Brazilíu.
Merkur vísindamaður látinn.
Alexander Supan prófessor er
nýlátinn í Þýzkalandi. Hann var
formaður landafræðisstofnunarinn-
ar í Breslau.
Bolsivíkabanki í London.
Verzlunarnefndin rússneska hefir
stoínað banka í London, sem
nefndur er „Banki verzlunarnefnd-
arinnar". Búist er við því, að
Krasin verði forstjórinn. Sagt er
að 2 milj. pund sterling í rúss-
nesku gulli séu komnar til London.
Verkfall meðal olíuverkamanna
í Mexico.
Tíu þúsund verkamenn við
olíunámurnar í Tampico (í Mexico)
hafa hafið verkfall og krafist 7$°l°
kauphækkunar.
Notre Dame.
í Frakklandi hefir nýlega verið
ákveðið að allar vegalengdir þ*f
skuli mældar út frá Frúarkirkjunní
f París (Notre Dame). Er í þv‘
skyni verið að breyta öllutn
merkjavörðum og vegamerkjum^