Morgunblaðið - 27.02.1974, Síða 1
36 SIÐUR
48. tbl. 61. árg. MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hófleg bjartsýni
um árangurinn af
för Kissingers
Heilsaði
upp á Heath
Hcnry Kissinger utanrfkisráðherra Bandarfkjanna snæddi hádegis-
verð með Edward Heath forsætisráðherra Bretlands f gær, er hann
kom við f London á leið til Damaskus. Myndin var tekin þegar
Kissinger kom í Downing Street 10. (Sjá fréttina hér til hliðar).
Kosið í Bretlandi á morgun:
Minnihlutastjórn og
kosið innan tíðar?
STÖÐUGT hitnar í kolum kosn-
ingabaráttunnar f Bretiandi,
enda skammur tfmi til stefnu fyr-
ir flokkana að vinna kjósendur til
fylgis. Jóhann Sigurðsson, frétta-
maður Morgunblaðsins í London,
Gull
snar-
hækkar
London, 26. febr., AP
GULL hækkaði mjög f verði á
gjaldeyrismörkuðum Evrópu í
dag. Fór það yfir 180 dali hver
únsa, en fyrir viku var hæsta verð
á gulli þar 150 dalir. Fjármála-
starfsemi var Iífieg víðast hvar f
dag og bar nokkuð á lækkun dals-
ins. Ýmsar skýringar voru gefnar
á þessum verðbreytingum en ekki
voru allir á eitt sáttir um orsak-
irnar.
Um það voru menn þó sammála,
að gullið hefði hækkað miklu örar
en sérfræðingar höfðu spáð. Fyrir
aðeins þremur mánuðum var gull-
verðið í London 90 dalir hver
únsa en í dag komst það hæst í
181 dal íLondon, 182 dali íZiirich
og 188.15 dali i París.
í janúar, þegar verðið var enn f
120 dölum og þótti ofurhátt, spáði
Nicholaas Diederichs fjármála-
ráðherra S-Afríku — en þaðan
koma 80% af því gulli, sem fram-
leitt er utan kommúnískra rikja
— að gullverð yrði komið upp i
Framhald á bls. 35
sagði f símtali við blaðið í gær, að
skoðanakannanir bentu enn til
sigurs Ihaldsflokksins og eftir
því, sem nær liði kosningunum og
betur kæmi fram í dagsljðsið
hversu magvfslega erfiðleika
verður við að fást í brezku efna-
hagslffi á næstunni, yrði sú skoð-
un sterkari, að nauðsyn bæri til
að fá sterka stjórn. Þó væri
Frjálslynda flokknum spáð mikl-
um. ávinningi og jafnvel oddaað-
stöðu í neðri málstofunni — og
færi svo mætti búast við minni-
hlutastjórn f Bretlandi og senni-
lega kosningum aftur áður en
langt um liði.
„Síðast i gærkveldi sagði kunnur
jafnaðarmaður hér i sjónvarpi að
hann óskaði þess frekar að fá
sterka íhaldsstjórn en veika með
stuðningi Frjálslynda flokksins,
sagði Jóhann Sigurðsson, en flest-
ar kannanir benda til þess að
mjótt verði á mununum milli
flokkanna og Frjálslyndir vinni
mjög á. Ástæðan er sú, að kjós-
endur hér eru orðnir þreyttir á
gömlu flokkunum og litlum
árangri þeirra í viðureigninni við
verðbólguna. Menn vilja gjarnan
sjá hvernig Frjálslyndir bregðist
við, þeir hafa ekki verið í stjórn í
langan aldur og menn hugsa sem
svo, að enda þótt þeir hafi
kannski enga reynslu i meðferð
þessara mála, geti ástandið hreint
ekki orðið verra en það er nú.
Hinsvegar er ómögulegt að spá
um, hvemig fólk hugsar á kjör-
dag, enn eru eftir tveir dagar og
margt eftir að segja.
Ihaldsflokkurinn hefur skýrt
hinn mikla greiðsluhalla við út-
lönd, sem sagt var frá í fréttum í
gær, með hinum miklu verð-
hækkunum m.a. sem orðið hafa á
sama tima eða svipuðum á öllum
helztu hráefnum, sem Bretar
flytja inn, þar á meðal olíu.
Varðandi verðbólguna benda
thaldsmenn á, að þrátt fyrir
miklar verðhækkanir sé kostnað-
ur lífsnauðsynja i Bretlandi tölu-
lega lægri en víðast annars staðar
í Evrópu. Meðaltalshækkanir lifs-
nauðsynja hér á sl. ári eru á
bilinu 12—16%, sem er geysimik-
ið og meira en Bretar hafa
kynnzt.“
Framhald á bls. 35
Damaskus, London,
26. febr. AP-NTB.
HENRY Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandarfkjanna, er væntan-
legur til Damaskus í kvöld f
fjórðu ferð sinni til Austurlanda
nær tii að reyna að koma á friði
milli tsraels og Araba. A leið
sinni frá Bandarfkjunum kom
hann við f London, þar sem hann
átti tveggja klukkustunda fund
með Sir Alec Douglas Home utan-
rfkisráðherra Bretlands og
Carrington lávarði orkumálaráð-
herra og snæddi sfðan hádegis-
verð með Edward Heath forsætis-
ráðherra.
Búizt er við, að Kissinger fari til
Israels a.m.k. tvisvar sinnum í
þessu ferðalagi og á fimmtudag á
hann að hitta Anwar Sadat for-
seta Egyptalands í Kario en þá er
jafnvel gert ráð fyrir, að tekið
verði upp formlegt stjórnmála-
samband milli Egyptalands og
Bandaríkjanna.
Þær viðræður, sem fram hafa
farið til undirbúnings þessari
ferð Kissingers, eru sagðar hafa
leitt það óyggjandi í ljós, að
friðarsamningar milli landanna
fyrir botni Miðjarðarhafs standi
og falli með aðskilnaði herja
ísraels og Sýrlands i Golanhæð-
um. Kissinger lét í ljós bjartsýni
um árangur af ferð sinni, er hann
ræddi stuttlega við fréttamenn í
London, en haft er eftir diplo-
matískum heimildum, að það
megi teljast kraftaverk, ef för
hans til Damaskus ber skjótan
árangur — líklega megi telja, að
hann eigi erfitt samningastarf
Komizt hjá
kosningum
Stokkhólmi, 26. febrúar,
NTB.
KOSNINGAR verða ekki haldn-
ar að sinni i Sviþjóð þar sem
stjórnmálaflokkarnir hafa samið
um málamiðlunarlausn í deilun-
um um virðisaukaskattinn. Hann
verður lækkaður um 3% í 5VL
fyrir höndum, og raunar megi
hann vel við una, takist honum að
fá Sýrlendinga og Israela til að
setjast að sama borði og byrja að
tala um aðskilnað herjanna.
Kissinger var að því spurður í
London, hvort hann gerði ráð fyr-
ir að Sýrlendingar afhentu hon-
um lista yfir þá 80 ísraelsku
fanga, sem saknað er. Hann svar-
aði spurningunni ekki beint en
kvaðst gera sér ljóst, að þessi listi
væri þungur i metunum.
Bitizt um út-
gáfurétt að bók
Solzhenitsyns
Ösló, 26. febr. NTB
SOVEZKI rithöfundurinn Alex-
ander Solzhenitsyn hélt frá Ósló í
morgun árla með járnhrautarlest
til Zúrich f Sviss eftir þriggja
daga dvöl f Noregi. Eftir veru
hans þar er enn jafn óljóst hvar
hann sezt að til frambúðar. Búizt
er við, að fjölskylda hans komi til
Sviss innan tíðar og að þau ákveði
þá hvar þau setjist að.
Ekki var sérlega margt um
manninn á járnbrautarstöðinni i
Ösló þegar Solzhenitsyn fórþaðan
um áttaleytið. Vinir hans, Per Eg-
il Hegge og Viktor Sparre, sáu til
þess, að hann fengi meiri frið en
hann hefur fengið frá því hann
kom frá Sovétríkjunum fyrir
tveimur vikum.
Solzhenitsyn hefur verið mikið
á ferðinni þessa daga í Noregi,
fylgzt með öllu af miklum áhuga
og punktað niður hjá sér það, sem
honum hefur verið sagt. I gær-
kveldi sá hann norsk-brezku kvik-
myndina, sem gerð var eftir bók
hans „Dagur í lífi Ivans Deniso-
vich“ og virtist mjög ánægður.
Hann lét I ljós gleði sina yfir því,
Framhald á bls. 35
EÞIOPIA: HERTOKU ASMARA
TIL ÁRÉTTINGAR LAUNAKRÖFUM
Addis Abeba, 26. febr.
AP — NTB
UPPREISNARSVEIT úr her
Eþíópfu hefur tekið völdin f
borginni Asmara, að því er
fregnir í höfuðborginni Addis
Abeba herma. Asmara er önnur
stærsta borg landsins, með um
200 þúsund fbúa en um tvær
milljónir manna búa f hérað-
inu Eritreu, sem borgin til-
heyrir og þar er miðstöð frelsis-
hreyfingar múhameðstrúar-
manna, sem aldrei hafa viður-
kennt yfirráð Ilaile Selassie
keisara. Ekki er þó talið, að
valdataka hermannanna sé af
pólitfskum rótum, heldur vilji
þeir þar með leggja áherzlu á
kröfur sfnar um betri kjör.
Samkvæmt fregnum frá höf-
uðborginni hafði keisarinn
ekki meiri áhyggjur af ástand-
inu f Asmara f dag, en svo, að
hann hélt kampavfnsveizlu fyr-
ir kínverska sendinefnd, sem
þar er f heimsókn f tilefni þess,
að ár er liðið frá því beinar
flugsamgöngur voru teknar
upp milli Addis Abeba og Pek-
ing. Keisarinn mun raunar
hafa lofað hermönnum kaup-
hækkun fyrir nokkru og aftur f
útvarpsræðu, er hann hélt f
gær, en hermönnum þykir
standa á efndum.
Samkvæmt fréttum frá Asm-
ara hefur flugvellinum þar ver-
ið lokað, svo og öllum leiðum út
úr borginni, hermenn hafa og
tekið sfmstöð, banka og aðrar
mikilvægar byggingar. Opin-
berar skrifstofur eru lokaðar
en verzlanir sagðar opnar. Ekki
hefur frétzt um átök eða skot-
hríð, en sagt er, að yfirmenn
hersins þar séu í haldi, þar á
meðal hershöfðinginn Seyoum
Gedle, yfirmaður annarrar
deildar hers Eþfópiu.
Stjórn landsins er sögð eiga
við margháttaða erfiðleika að
etja um þessar mundir f innan-
landsmálum, einkum vegna sf-
hækkandi verðlags á matvæl-
um, en verð á hrísgrjónum,
mjöli og brauði hefur fjórfald-
azt á sfðustu þremur mánuðum.
Kom til blóðugra óeirða f Addis
Abeba fyrir nokkru og voru
hersveitir þá kallaðar til borg-
arinnar til að halda þar uppi
reglu. Að sögn talsmanns
handarfska utanrfkisráðuneyt-
isins er ekki talið Ifklegt, að
Selassie keisari eigi uppreisn
eða byltingu á hættu, en vanda-
mál hans séu þó mörg og þurfi
skjótra aðgerða við.
Nokkur hundruð Bandarfkja-
manna eru búsettir f Asmara,
starfandi við geimferðaeftir-
litsstöðina þar.