Morgunblaðið - 27.02.1974, Page 2

Morgunblaðið - 27.02.1974, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974 Vegaskemmdir af völdum vatnselgs NOKKRAR vegaskemmdir hafa orðið á þjóðvegum víða um land af völdum regn- og leysingavatns, sem hefur skorið vegi í sundur og grafið undan köntunum. Skemmdirnar hafa þó hvergi orð- ið verulega miklar og vegir eru víðast hvar færir, þrátt fyrir þetta, en aka verður með gætni. Víða er talsverður vatnselgur við vegi og rennur sums staðar yfir þá, þannig að smábílar komast þar ekki um, en heldur virðist vera að draga úr flaumnum vfðast hvar. Talsverður vatnsflaumur rann við og yfir vegi í uppsveitum Árnessýslu og í Borgarfirði og í gær var ófært fyrir smábíla við Hvítárbrú í Borgarfirði. Skörð höfðu komið í vegi m.a. í Mela- sveit, á Borgarfjarðarbraut hjá Hesti, á Ölafsvíkurvegi vestan við Hítará og á veginum á Skógar- strönd, en unnið var að viðgerð- um og talið að þeim myndi ljúka í gærkvöldi eða í dag, samkvæmt upplýsingum vegaeftirlits Vega- gerðarinnar í gær. Færð var annars sæmileg nema á norðausturhluta landsins, þar var víðast ófært, og fjallvegir á Vestfjörðum og Austfjörðum voru nær allir lokaðir. Öshlíðar- vegur milli ísafjarðar og Bol- ungarvíkur var lokaður vegna snjóflóða. Framhald á bls. 35 - * Guðmundur afla- hæsta loðnuskipið Sveinn Einarsson þjóðleikhússt jóri, Vigdís Finnbogadóttir leikhússtjóri og Klemenz Jónsson formað- ur Félags fslenzkra leikara. Málverkið bak við þau er af Arndfsi Björnsdóttur leikkonu f hlutverki kerlingarinnar með sálina hans Jóns sfns. Ljósmynd Mbl. Br. H. Leikhúsin hrinda leiklistar- skóla af stokkunum VIKUAFLI loðnuskipanna frá 17. til 23. febr. var samtals 65.988 lestir og var heildaraflinn frá ver- tíðarbyrjun því orðinn 307.193 lestir á laugardagskvöldið. Sam- kvæmt skýrslum Fiskifélags Is- lands var vitað um 135 skip, sem þá höfðu fengið einhvern afla, en af þeim höfðu 92 skip fengið 1.000 lestir eða meira. A sama tíma f fyrra var heildaraflinn samtals 162.630 lestir og þá hafði 81 skip fengið einhvern afla. Aflahæsta skipið sl. laugardags- Tillagan umboðið til Solzhenitsyns bíður á þingi MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til Péturs Sigurðssonar, alþingis- manns og spurði hann, hvenær vænta mætti að umræður yrðu á Alþingi um þingsályktunartillög- una, sem hann og Sverrir Her- mannsson hafa borið fram, um að sovézka rithöfundinum Alexand- er Sdzhenitsyn verði boðið að setjast að hér á landi. Pétur sagð- ist í fyrradag hafa óskað eftir því við forseta Sameinaðs alþingis, Eystein Jónsson, að tillagan yrði tekin fyrir á fundi Sameinaðs þings, í gær, en Eysteinn hefði sagt, að það væri ekki hægt þar sem svo mörg önnur mál væru á undah. Næsti fundur sameinaðs þings verður á morgun og verður í styttra lagi og ef tillagan verður ekki á dagskrá þá, verður hún ekki rædd fyrr en í næstu viku, að sögn Péturs. kvöld var Guðmundur RE 29, skipstjóri Hrólfur Gunnarsson, með samtals 10.143 lestir. Börkur NK með 9.592 lestir, Eldborg GK með 7.733 lestir, Gísli Árni RE með 7.307 lestir, Ásgeir RE með 6.067 lestir og Hilmir SU með 6.021 lest. Hæstu löndunarhafnir voru: Vestmannaeyjar 48.985 lestir, Seyðisfjörður 31.218, Neskaup- staður 28.255, Grindavík 19.161, Reykjavík 17.432, Eskifjörður 17.260, Akranes 15.100, Höfn Hornafirði 14.707, Þorlákshöfn 14.153, Vopnafjörður 13.959, Keflavik 12.224, Reyðarfjörður 11,293. Alls hafði loðnu verið landað á 25 höfnum. BÓKSALAFÉLAG Islands opnar í dag 14. bókamarkað félagsins, en bókamarkaðurinn hefur verið árlegur viðburður s.l. 13 ár. Að þessu sinni er bókamarkaðurinn til húsa í Skeifunni 15, í 600 fer- metra húsnæði, en 4000 bókatitla getur að finna að þessu sinni á markaðnum. Við opnun bókamarkaðarins í gær sagði Örlygur Hálfdánarson formaður Bóksalafélagsins, að aldrei hefði verið svo vel búið að bókamarkaðnum eins og að þessu sínni. Kaupendur gætu nú skoðað allar bækurnar í rúmgóðu hús- næði, enda væri þetta langstærsta LEIKFÉLAG Reykjavfkur og Þjóðleikhúsið hafa nú ákveðið að hrinda af stað leiklistarskóla 1 sameiningu þar til komið verður á fót föstum rfkisleiklistarskóla, en miðað er við, að sá skóli, sem leikhúsin ásamt Félagi fslenzkra leikara eru að setja af stað, geti orðið vfsir að rfkisskóla. Leiklistarskólamál hafa verið í mestra ólestri undanfarin ár, en skóli LR hætti 1969 og skóli Þjóð- leikhússins hefur ekki tekið nemendur s.l. eitt og hálft ár. Nokkuð hefur þó verið um það, að einstaka leikarar tækju nemend- bókabúð, sem opnuð hefði verið á landinu. — Hvað er bókamarkað- ur?, sagði Örlygur, jú, bóka- markaður er síðasti áfangi hverr- ar bókar áður en hún kemst til lesendans. Á þessum bókamark- aði er mikið um eldri bækur, en að sjálfsögðu eru bækur síðustu ára mest áberandi. Elzta bókin, sem fáanleg er á bókamarkaðn- um, er Skýrsla um handritasafn Jlins íslenzka bókmenntafélags", en þessi bók er prentuð árið 1869. Þá er fáanleg bókin Þjóðhátíðin 1874, en það er sjálfsagt bók, sem marga fýsir til að eignast á þessu þjóðhátíðarári. Bóksalafélagið hefur einnig ur f einkakennslu í leiklistarfræð- um. Mikil barátta hefur verið fyrir því hjá leikhúsfólki sl. ár að koma upp föstum leiklistarskóla og urjgt fólk tók sig sem kunnugt er saman og stofnaði skóla, sem gengur undir nafninu SÁL, sam- band áhugaleikara. Starfar sá skóli nú á öðru ári og eru 12 nemendur 1 hvorum árgangi og hefur fólkið í skólanum sýnt mikinn áhuga og dugnað. 1 ár var veitt á fjárlögum 1,5 millj. kr. til leiklistarskólamála og mun SÁL fá hluta af því fé en nýi verið með bókamarkaði úti á landi, eins og t.d. á Selfossi. Markaðurinn þar gekk ekki of vel, því það kom i ljós, að fólk fór alveg eins til Reykjavíkur ef það vildi ná sér í bók á bókamarkaðin- um. Það þarf vart að taka fram, að allar bækur, sem eru á markaðin- um, eru seldar á mjög niðursettu verði. Bókamarkaðurinn verður opinn alla daga frá kl. 9—6, á þriðjudögum og föstudögum er þó opið til kl. 10, til kl. 16 á laugar- dögum og á sunnudaginn frá kl. 3—6. Bókamarkaðurinn verður opinn út alla næstu viku. leiklistarskólinn fær þar einnig fé. Reiknað er með, að nýi leik- listarskólinn taki til starfa 8. marz n.k. og verður þá efnt til þriggja mánaða námskeiðs fyrir 25 nemendur. Verður skólinn til húsa í Iðnó í steinbyggingu milli Iðnó og gamla Iðnskólans, en þessi húsakostur kallast Kálfur- inn. Reiknað er með námskeiðinu fyrir fólk á aldrinum 17—24 ára. Síðan verður einhvers konar úrtaka í sjálfan skólann í haust og Framhald á bls. 35 Vatnsborð Lagarfljóts Stjórn Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi boðar til almenns fundar um fyrirhugaða vatnsmiðlun í Lagarfljóti vegna Lagarfossvirkjunar. Nokkur óvissa hefur ríkt um vatnsborðs- hæð í Lagarf ljóti vegna einstakra virkjunaráfanga og verður á fundinum reynt að varpa ljósi á þau mál og hugsanleg umhverfis- áhrif. Fundurinn verður haldinn í Valaskjálf á Egilsstöðum fimmtudaginn 28. febrúar og hefst kl. 16:00. Sérstaklega eru boðaðar til fundarins sveitar- stjórnir hlutaðeigandi hreppa. Á fundinn koma fulltrúar iðnaðar- ráðuneytisins, Náttúruverndar- ráðs, Orkustofnunar og Rafmagnsveitna ríkisins og flytja framsöguerindi og svara fyrir- spurnum. 4000 titlar á bókamarkaði Framboðslisti Sjálfstæðisfiokksins á Húsavík Jóhann Kr. Jónsson Jón Armann Arnason Ingvar Þórarinsson Hörður Þórhallsson Haraldur Jóhannesson Katrfn Eymundsdóttir VEGNA alvarlegra mistaka við birtingu á framboðslista sjálf- stæðismanna á Húsavfk f Morg- unblaðinu í gær, er listinn birt- ur hér aftur og viðkomandi beðnir afsökunar á mistökun- um. Listinn er þannig skipað- ur. Framboðslisti Sjálfstæðis- flokksins við bæjarstjórnar- kosningarnar á Húsavfk var ákveðinn samhljóða á fundi Sjálfstæðisfélags Húsavfkur sl. sunnudag 17. febrúar. Fram- boðslistinn er þannig skipaður: 1. Jóhann Kr. Jónsson fram- kvæmdastjóri 2. Jón Ármann Árnason hús- gagnasmfðameistari 3. Ingvar Þórarinsson bóksali 4. Hörður Þórhallsson út- gerðarm aður 5. Haraldur Jóhannesson mjólkurfræðingur 6. Katrín Eymundsdóttir hús- freyja 7. Guðmundur A. Hólmgeirs- son útgerðarmaður 8. Haukur Akason rafvirkja meistari 9. Reynir Jónasson kaupmaður 10. Dórothea Guðlaugsdóttir húsfreyja 11. Sigurður Rögnvaldsson vél- stjóri 12. Þórhallur Aðalsteinsson verkstjóri 13. Brynjar Halldórsson sjó- maður 14. Þröstur Brynjólfsson lög- reglumaður 15. Björn Sigurðssson bifreiða- stjóri 16. Arni Gunnar Sigurjónsson húsasmiður 17. Garðar Þórðarson bifreiða- stjóri 18. Karl Pálsson útgerðarmað- ur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.