Morgunblaðið - 27.02.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974 3
Sanuiingamir undimtaðir í gær
Frá fundi I Iðju, félagi verksmiðjufólks, I Lindarbæ I gær, þar sem samningarnir voru samþykktir
Ljósmyndir Öl. K. M.
SAMNINGSAÐILAR i kjaradeil-
unni, sem staðið hefur f fjóra
mánuði, undirrituðu I gærkveldi
samninga, sem gilda til tveggja
ára. Eins og fram kom f Mbl. f
gær, er vegið meðaltal kaup-
hækkana á samningstímanum um
25%, en vegið meðaltal þeirra
hækkana, sem strax koma til
framkvæmda er um 18%. Laun,
sem eru undir 35.000 krónum
miðað við núgildandi kaupgjalds-
vfsitölu, 149,89, hækka um 8%
strax og 1.200 krónur, að auki, en
laun, sem eru hærri en 35.000
krónur, hækka öll um 4.000 krón-
ur. Þá hækka laun um 3% 1.
desember 1974 og aftur um 3%
hinn 1. júní 1975.
Sem dæmi um launataxta
verkamanna- og kvenna má t.d.
taka fiskvinnu, sem nú er í 5.
flokki, en var áður í 2. flokki. Þar
verða launin nú 195.50 krónur á
klukkustund, en voru fyrir samn-
inga 169.50 krónur. Þegar nýja
vísitalan hefur verið reiknuð inn í
kaupið, fær þetta fólk 207.60
krónur í dagvinnu, i eftirvinnu
290,60 krónur og nætur- og helgi
dagavinnu 373,70 krónur á
klukkustund. Vikukaup þessa
fólks verður8.304.— krónur.
Við hafnarvinnu, sem áður var
greidd samkvæmt 4. flokki, en
verður nú samkvæmt 5. flokki,
gilda sömu tölur og áður var
greint frá, jafnframt um vinnu í
frystiklefum og vinnu við stjórn
lyftara. Hlutfallsleg hækkun
launa í fiskvinnu er þó mest, þar
sem þar er um mesta flokkatil-
færslu að ræða.
• STÓRAUKIN
UTGJÖLD IÐNAÐARINS
Morgunblaðið spurði nokkra að-
ila i gær um samningana. Gunnar
J. Friðriksson, formaður Félags
íslenzkra iðnrekenda sagði: „Ég
er ánægður með að samninga-
gerðinni skuli vera lokið, en hins
vegar er ég ekki ánægður með
þau geysilega auknu útgjöld, sem
þeim fylgja. Þetta verður mjög
erfitt fyrir mörg iðnfyritæki, þar
sem mjög litið hefur verið um
yfirborganir í verksmiðjuiðnaðin-
um og hækkanirnar koma því
fram sem bein kauphækkun og
útgjaldaaukning. Sum fyrirtæki
geta að nokkru leyti mætt þessu
með því að hækka verð á vöru og
þjónustu, en mörg hafa engin tök
á því, fyrst og fremst þau, sem
flytja vörurnar út og i öðru lagi
þau, sem eiga í samkeppni við
innflutta iðnaðarvöru. Þessir
samningar eru tvímælalaust verð-
bólguhvetjandi, þar sem vísitalan
leikur enn lausum hala að undan-
skildu áfengi og tóbaki, þannig að
ég efast um, að raunveruleg
kjarabót verði neitt í líkingu við
það, sem samið hefur verið um.
Hvað iðnaðinn snertir erum við
ánægðir yfir því, að tekið hefur
verið tillit til ábendinga okkar um
það, að væntanleg söluskatts-
hækkun myndi gera meir en að
engu fyrirhugaða tollalækkun og
það hefur verið leyst með því að
fella tolla alveg niður á vélum —
þannig að þessi væntanlega sölu-
skattshækkun kemur ekki til með
að hafa áhrif á þessa hlið fjárfest-
ingarkostnaðarins hjá iðnfyrir-
tækjum. Hins vegar er ég ekki
ánægður yfirþví að hækkun áætl-
aðs launaskatts og hækkun sölu-
skatts kemur vissulega til með að
hækka rekstrarkostnað iðnfyrir-
tækja, en lausn á því máli fæst
sennilega ekki fyrr en virðisauka-
skattur hefur verið innleiddur, en
það er orðið mjög aðkallandi."
• LAUNALIÐURINN
MIKILVÆGASTUR
Runólfur Pétursson, formaður
Iðju, félags verksmiðjufólks,
sagði, að hann væri ánægður með
samningana, ef unnt yrði að koma
í veg fyrir að kauphækkunin færi
öll út í verðlagið. Launaliðurinn
væri mikilvægasti þáttur
samninganna og þar hækkuðu
iægstu laun um tæplega 5 þúsund
krónur. Runólfur sagði, að sér
fyndust samningarnir hafa tekið
alltof langan tíma þess vegna
væri raunverulegur samningstími
þessara kjarasamninga ekki
aðeins 2 ár heldur hálft þriðja ár.
Margar mikilvægar sérkröfur
náðust fram í Iðjusamningunum,
breytingar á orlofi, hækkun
vaktaprósentu á tvískiptum vökt-
um og ýmsar aðrar lagfæringar.
Sagðist Runólfur og vera mjög
ánægður með skattalaga-
breytingarnar aðrar en sölu-
skattshækkunina, enda hafi hann
greitt atkvæði gegn skattalaga-
breytingunum i 30mannanefnd-
inni vegna hennar. Húsnæðis-
málatillögurnar væru gagnlegar,
þótt svo hann væri andvígur þvf,
að iðnaðurinn bæri launaskatt.
Þar ætti iðnaður að sitja við sama
borð og sjávarútvegur og land-
búnaður, sem undanþegnir væru
launaskatti.
• GENGISFALL
ÓHJAKVÆMILEGT
Arni Benediktsson hjá Sam-
bandi fslenzkra samvinnufélaga
sagði:
„Með þessum samningum er
verið að semja um aukna verð-
bólgu og gengisfall. Um það
blandast engum hugur. Sem
betur fer höfum við mjög slæma
reynslu af gengisfellingum i stór-
um stökkum og ég held, að menn
hafi komizt að þeirri niðurstöðu,
að það væri réttara að jafna metin
nokkurn veginn eftir þvi sem
þurfa þykir og verður það öllum
fyrir beztu. Gengið hlýtur að falla
smátt og smátt, þannig að það
verði eins rétt skráð og hægt er á
hverjum tima.
Viðhorf. manna til gengis
breytinga hafa breytzt gífur
lega. Það þótti glæpur fyrix
nokkrum áratugum að fella geng-
ið, en nú líta menn meir á gengis-
breytingar sem hagstjörnartæki.
Ég sé ekki betur en þetta sé hið
eina hagstjörnartæki sem eftir er.
Ég tók sjálfur ekki svo mikinn
þátt i þessari samningagerð. Þar
éru aðrir menn, sem borið hafa
hitann og þungann. Þeir hafa
unnið mjög gott starf, enda eru
þeir mjög þreyttir og sér á mönn-
um. Það er ekki rétt, að ekki hafi
verið mikið unnið í þessum samn-
ingum — vinnan hefur kannski
komið á of fáa menn, en starfið
hefur verið gífurlegt. Á síðast-
liðnu ári var útflutningsiðnaður-
inn farinn mjög að kvarta. Þeir fá
engar verðhækkanir út á þessa
samninga, svo að það hlýtur að
liggja í hlutarins eðli, að hann
verði illa staddur á næstunni. Við
verðlagningu í sjávarútveginum
var gert ráð fyrir því um áramót,
að við værum rétt um strikið.
Augljóst er, að hlutur sjómanna
verður að hækka frá 1. júní, þegar
fiskverð verður hækkað næst og
er þá orðið ljóst, að á vantar tugi
prósenta tilþess að rekstur í sjáv-
arútvegi standi undir sér með ó-
breyttu gengi.“
Verzlunarmenn fá
vinnuviku
Guðmundur II. Garðarsson þakkar formanni VSl, Jóni H. Bergs,
samningsgerð við undirritun samninga I gær.
5 daga
KJARASAMNINGAR verzlunar-
fólks og viðsemjenda þeirra voru
undirritaðir I Loftleiðahótelinu í
gærmorgun og urðu verzlunar-
menn fyrstir þeirra, sem staðið
hafa I samningum undanfarnar
vikur, til þess að undirrita og
ganga frá samningum. Unnið var
að vélritun samningsins í alla
fyrrinótt og I gærmorgun höfðu
verið prentuð 2.500 eintök af
samningnum, svo að unnt yrði að
senda hann út til viðkomandi að-
ila. Byrjunarlaun í 1. flokki A hjá
verzlunarmönnum voru áður en
til samninga var gengið 26.683, en
verða nú 31.077 krónur og er hér
um 16,5% hækkun strax. Það,
sem mest er um vert, að dómi
fjölmargra verzlunarmanna, er,
að nú samdist um 5 daga vinnu-
viku, þ.e.a.s., að laugardagurinn
telst framvegis sem helgur dagur.
Tuttugu og fjórir aðilar, bæði
frá launþegum og atvinnurekend-
um undirrituðu samning verzlun-
armanna í 11 eintökum í gæi-
morgun. Jafnframt voru undirriv-
aðar fjórar yfirlýsingar vegm
kjarasamninganna í sama eir
takafjölda, þannig að samtals
voru skrifaðir 1320 undirskriftir,
enda tók undirskriftin um þrjá
stundarfjórðunga.
Þær yfirlýsingar, sem fylgdu
samningum verzlunarfólks, voru
m.a., að nefnd þeirri, sem unnið
hefur að endurskoðun reglugerð-
ar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
yrði falið að gera athugun á
möguleikum ábreytinguá skipan
stjórnar lifeyrissjóðsins með það
fyrir augum, að aðild launþega að
henni verði jöfn aðild vinnuveit-
enda, ennfremur var ákveðið að
skipa nefnd til að athuga mögu-
leika á að breyta fyrirkomulagi á
greiðslu Iauna í veikindaforföll-
um, svo að tryggt verði að verzl-
unar- og skrifstofufólk búi eigi
við lakari kjör en félagsfólk al-
mennra stéttarfélaga. Þá var
einnig ákveðið að taka til endur-
skoðunar innheimtu félagsgjalda,
orlofsheimilssjóðsgjald og félags-
heimilissjóðsgjald — jafnframt
sem samkomulag varð um að end-
urskoða starfsheiti verzlun- og
skrifstofufólks og röðun þeirra í
launaf lokka.
í hinum nýja samningi segir
m.a. um afgreiðslutima smásölu-
verzlana og annarra sölustaða:
„Virka daga skal þeim lokað
eigi síðar en kl. 18:00 frá mánu-
degi til fimmtudags, en kl. 22:00 á
föstudögum. A laugardögum ska!
þeim lokað kl. 12:00 á hádegi
nema 10 laugardaga yfir sumar-
mánuðina, frá 20. júní til ágúst-
loka, er verzlunum lokað allan
laugardaginn.
í desember er afgreiðslutími á
laugardögum til kl. 18.00 hinn
fyrsta og annan, og til kl. 22:00
hinn þriðja. Á Þorláksmessu er
heimilt að halda sölubúðum opn-
um til kl. 23:00, en aðfangadag
jóla og gamlársdag til kl. 12:00, en
miðvikudag í dymbilviku til kl.
22:00. Fyrsta afgreiðsludag eftir
jól skal afgreiðslutími hefjast kl.
10:00. Ákvæði þessi um lokunar-
tima gilda á félagssvæði V.R.
• VERZLUNARMENN
HALDA SÍNUM HLUT
Morgunblaðið ræddi i gær við
Björn Þórhallsson. formann
Landssambands islenzkra verzl-
unarmanna. Hann sagði: „Ég er
eftir atvikum ánægður með sam-
komulagið. Hið mikilvægasta frá
minum bæjardýrum séð er að nú
fæst staðfest 5 daga vinnuvika og
er henni lokið klukkan 17 á föstu-
dögum. Með þessum kjarasamn-
ingum tel ég skrifstofu- og verzl-
unarfólk fyllilega halda sínum
hlut miðað við aðrar stéttir þjóð-
félagsins. Eg tel, að ekki verði
staðið að samningum aftur með
sama hætti og nú. Samningar
hafa fyrir það fyrsta tekið alltof
langan tíma og i öðru lagi verður
samningagerðin óheyrilega flók-
in, þegar allir aðilar innan ASÍ
semja i einu, sem nú hefur verið
gert.“
• UNDIRSKRIFT BUNDIN
FORSENDU UM BÆTUR
Árni Gestsson, formaður Félags
islenzkra stórkaupmanna sagði,
er samningar höfðu verið undir-
ritaðir: „Ég er ánægður yfir því,
að þessari samningsgerð skuli
vera lokið. Eg vona, að það, sem
um samdist, sé kjarabót fyrir
verzlunarfólk, en þvi miður held
ég, að hún verði ekki raunhæf,
þegar fram i sækir. Undirskrift
okkar er bundin þeirri forsendu,
að hækkunin fáist bætt til sam-
ræmist við þann kostnaðarauka,
sem kjarasamningarnir hafa í för
með sér.“
• 5DAGA VINNUVIKA
MIKILVÆGUST
Böðvar Pétursson, samninga-
nefndarmaður V.R. sagði: „Að
mörgu leyti er ég ánægður með
þann samning, sem við höfum nú
undirritað. Mesta atriði hans er,
að nú fæst viðurkenning á 5 daga
Framhald á bls. 35
Frá undirritun kjarasamninga verzlunarmanna í gærmorgun.