Morgunblaðið - 27.02.1974, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1974
^ 22*0-22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
tr 21190 21188
14444 • 25555
F/M
IBÍLALEIGA car rental
BökhaldsaðstoÓ
meðtékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
LESIfl
------
^acruoxulljurwa- _ __
‘"■‘—aaearMW
DRCLECII
STAKSTEINAR
Þórarinn
hliðhollur
Konfúsíusi?
UM þessar mundir á Konfúsíus
f vök að verjast i Kína og reyna
þarlendir nú sem mest að hefta
pólitíska undirróðursstarfsemi
hans. Er langlundargeð vald-
hafanna í Peking einstakt í
þessum efnum, því að nú eru
nokkur árþúsund síðan
Konfúsíus hóf sína þokkaiðju
þar eystra. Þykir ýmsum, sem
ekki hafi verið seinna vænna,
að þessi GAMLI endurskoð-
unarsinni yrði tekinn föstum
tökum í eitt skipti fyrir öll og
komið í veg fyrir, að hann starti
starfsemi sinni víðar.
Þetta minnir á þá staðreynd,
að Þórarinn Þórarinsson rit-
stjóri Tímans á íslandi hefur
að undanförnu mjög haldið á
loft viðhorfum Þorgeirs Ljós-
vetningagoða til varnarmála og
viljað, að þjóðin fylgdi stefnu
hans í málinu. Það hefur löng-
um verið á allra vitorði, að
Þórarinn hefur verið ákaflega
víðsýnn stjórnmálamaður, en
þó kemst hann ekki me<S tær.
# Selfoss
S.l. fimmtudag var leikin 3.
umferð i úrslitakeppni í ,,tví-
menning“ hjá Bridgefélagi Sel-
foss. Að þessum þremur um-
ferðum loknum er staðan
þannig:
Kristmann Guðmundsson —
Sigurður Sighvatsson 514
Höskuldur Sigurgeirsson —
Sigurður S. Sigurðsson 471
Sigfús Þórðarson —
Vilhjálmur Þ. Pálsson 465
OddurEinarsson —
Haukur Baldvinsson 455
Halldór Magnússon —
Haraldur Gestsson 449
þar sem Mao hefur hælana, því
að Þórarinn dvelur ekki í nema
1000 ára fortíð við stefnumótun
sína meðan Mao er í óðaönn að
uppræta fólskuverk Konfúsfus-
ar.
Eitthvað hefur og slegið út í
fyrir Þórarni Þórarinssyni, því
að nú er hann tekinn til við að
ræða framúrstefnupólitík og
lætur I Tímanum sl. sunnudag
Þorgeir Ljósvetningagoða lönd
og leið og er kominn fram und-
ir síðustu aldamót í skrifum
sínum. Tekur hann þar fyrir
undirskriftasöfnunina VARIÐ
LAND og rekur viðhorf ýmissa
manna til hennar. Kallar hann
þar til og vitnar orðrétt í þá
Þórð Thoroddsen, Magnús
Stephensen, Guðlaug heitinn
Guðmundsson sýslumann og
Hallgrfm Sveinsson biskup.
Kemst ritstjórinn að þeirri
niðurstöðu, að þessir menn séu
allirámóti undirskriftasöfnun-
inni.Ekki verður reynt að deila
við þessa menn hér, en benda
má á, að Þórarinn virðist taka
þarna full mikið stökk frá Þor-
geiri. Og hvers eiga mætir
menn eins og Gissur jarl,
Snorri Sturluson og lyga Mörð-
Guðmundur Eiríksson —
Valgerður Þórðardóttir 447
Hannes Ingvarsson —
Gísli Þorleifsson 444
Símon Ingi Gunnarsson —
Már Ingólfsson 432
Páli Árnason —
Bjarni Sigurgeirsson 422
Þórður Sigurðsson —
Guðmundur Geir Ölafsson417
Tage R. Olesen —
Jónas Magnússon 414
Friðrik Larsen —
Grímur Sigurðsson 373
G unnar Skúlason —
Ólafur Þorvaldsson 323
Fimrr.tudaginn 28. febrúar
hefst firmakepprii, sem stendur
ur að gjalda? Hvers vegna leit-
ar ritstjórinn ekki álits þeirra?
Og hjólið snýst
Samningar þeir, sem nú hafa
verið undirritaðir af aðilum
vinnumarkaðarins, eru vafa-
laust mestu verðbólgusamning-
ar, sem gerðir hafa verið. Við-
urkennt er af öllum hlutaðeig-
andi, að kauphækkunin, sem
nú hefur verið samið um, muni
óhjákvæmilega fara beint út í
verðlagið. Um þetta atriði tjáðu
forustumenn í atvinnulífinu
sig, er Morgunblaðið ræddi við
þá um samningana.
Jón H. Bergs formaður
Vinnu veitendasam bandins
sagði, að vinnuveitendur hefðu
reynt að fá breytt vfsitölu-
grundvellinum, svo að hann
virkaði ekki svo verðbólgu-
hvetjandi, sem raun ber vitni.
„Þvf miður horfir það svo —
jafnvel þótt kauphækkunin
hefði ekki orðið svo há sem hún
varð — að vísitalan ein eykur
útgjöldin mjög mikið. Nú bæt-
ist þessi kauphækkun við og
hefur einnig áhrif á kaup-
greiðsluvísitöluna." Eðvarð
Sigurðsson formaður samn-
yfir í þrjú spilakvöld. Öllum er
heimil þátttaka, en þetta er
jafnframt einmenningskeppni
félagsins.
xxxxx
# Keflavík
Lokið er meistarakeppni
Bridgefélags Keflavíkur og ná-
grennis í tvímenningi. Alls
tóku 22 pör þátt í keppninni,
sem var með Barometerfyrir-
komulagi. Framan af var
keppnin afar hörð og tvísýn, en
svo fór að lokum að kempurnar
Lárus Karlsson og Þórir Leifs-
son sigruðu með yfirburðum.
inganef ndar ASl svaraði spurn-
ingu um, hvort samningarnir
væru verðbólguhvetjandi svo:
„Ég reikna með því, að ekki
verði komizt hjá þvf, að þeir fái
þann dóm. Það er talið
óhjákvæmilegt, að hluti þeirra
fari út í verðlagið og sjálfsagt
verka þeir sem slíkir.“ Guð-
mundur H. Garðarsson: „Þessir
samningar bera öll einkenni
þess mikla verðbólguástands,
sem er í þjóðfélaginu.“
Er nokkur furða, þó að menn
velti nú fyrir sér til hvers var
barizt — til hvers þjóðarbúið
tapaði hundruðum milljóna
króna vegna stöðvunar á loðnu-
vertíð auk alls annars tjóns,
sem verkfallið hefur haft í för
með sér. Sannleikurinn er sá,
að hér er um algjöran skrípa-
leik að ræða. Samið er um 25%
kauphækkun, sem umsvifa-
laust mun hafa þau áhrif, að
verðlag hækkar að sama skapi.
Og undirleikur ríkisstjórnar-
innar er í sömu tóntegund. Hún
belgir út rfkisútgjöldin, svo
dæmi um hliðstæður er ekki að
finna. Og ennþá rær Ölafur for-
sætisráðherra bara í gráðið,
brosir og telur málin leyst.
Lokastaðan varð þessi:
stig.
Lárus og Þórir 254
Gunnar og Birgir 175
Jóhannes og Hjálmtýr 80
Gunnar og Skúli 76
Björgvin og Ingibergur 75
Alfreð og G uðmundur 72
Gunnar og Sigurbjörn 68
Einar cg Sumarliði 68
EinarogHelgi 64
Valur og Runólfur 35
Meðalskor var 0. Keppnis-
stjóri var Sigurður Steindórs-
son. Næsta keppni félagsins er
Meistarakeppni í sveitakeppni:
— A.G.R.
Róbert Arnfinns-
son til Líibeck
Sakir þess að Róbert Arn-
finnsson leikari er á förum til
Þýzkalands, eru nú aðeins eftir
örfáar sýningar á þeim leikrit-
Skemmtun FEF
fyrir börn
álaugardag
FJARÖFLUNARNEFND
Félags einstæðra foreldra
gengst fyrir barnaskemmtun i
Austurbæjarbiói 2. og 9. marz
n.k. og hefjast skemmtanirnar
báða laugardagana kl. 2. Allur
ágóði af þessum skemmtunum
rennur í húsbyggingarsjóð
FEF.
Meðal skemmtiatriða er dans-
sýning ungra nemenda úr skóla
Heiðars Ástvaldssonar, pop-
hljómsveitin „Berlin“ skemmt-
ir, nokkrar unglingsstúlkur
sýna jazzballett, sem þær hafa
samið, fimleikar eru á dagskrá,
samleikur barna á selló og
píanó, litill drengur les upp,
þrjár skessur koma í heimsókn
og barnakór, sem skipaður er
nokkrum börnum félaga FEF,
syngur. Ymislegt fleira verður
til skemmtunar. Hver aðgöngu-
miði giidir einnig sem happ-
drættismiði og eru margir góiðir
leikfangavinningar.
um í Þjóðleikhúsinu, þar sem
hann fer með burðarhlutverk.
Þessi leikrit éru Klukkustreng-
ir eftir Jökul Jakobsson og
Dansleikur eftir Odd Björns-
son, en fyrir hlutverk sín í báð-
um þessum leikritum hefur
Róbert sem kunnugt er hlotið
afburða dóma.
Klukkustrengir hafa verið
sýndir f allan vetur í Þjóðleik-
húsinu við mikla aðsókn, en
Dansleikur var sem kunnugt er
frumsýndur fyrir tæpum
nánuði og var þegar vitað, að
sýningar gætu ekki orðið mjög
margar vegna brottfarar
Róberts. Övfst er hvort og
hvenær tök eru á að hefja sýn-
ingar að nýju á þessum
athyglisverðu islenzku leikrit-
um, þar eð Róbert er ekki
væntanlegur heim aftur fyrr en
í sumar, en í báðum leikjunum
fer hann með mjög viðamikil
hlutverk eins og fyrr segir.
Róbert Arnfinnsson hefur að
þessu sinni verið boðið að fara
með hlutverk Teyvje í
Fiðlaranum á þakinu í Lúbeck,
en það hlutverk hefur hann fiiú
þegar hlotið mikla frægð fyrir í
Þýzkalandi. Honum hafa borizt
önnur tilboð frá Þýzkalandi, en
hins vegar kosið að starfa hér
heima fyrst og fremst. Hins
vegar féllst hann á að fara með
hlutverk sitt í Fiðlaranum i
Lubeck, enda er leikstjóri sýn-
ingarinnar þar gamall kunningi
fslenzkra leikhúsgesta, Karl
Vibach, sem jafnframt er leik-
hússtjóri í Lúbeck. Róbert verð-
ur í þriggja mánaða leyfi frá
Þjóðleikhúsinu að þessu sinni.
Myndin er af Róbert í hlut-
verkum sínum í Dansleik og
Klukkustrengjum. Síðustu sýn-
ingar á þessum leikritum verða
í þessari viku, þar sem Róbert
fer utan n.k. sunnudag. (Frá
Þjóðleikhúsinu).