Morgunblaðið - 27.02.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974
7
UR
HRINGH9U
AIVINNUUFSINS
Eftir Ingva
Hrafn Jónsson
Jónas
Halldórsson
að nudda einn
gestanna.
„Þaí 1 ^ f $ i • befi ir sýr á* • it sig, að 1 1*55
porl m var iyrir nenai
Spjallað við Jónas Halldórsson á 15 ára afmæli
Gufubaðstofunnar á Kvisthaga 29
f okkar nútima þjóðfélagi. þar
sem hraðinn á öllu eykst jafnt og
þétt og streitan, sem honum fylg-
ir, er mikil nauðsyn fyrir manninn
að geta fundið sér eitthvert at-
hvarf, þar sem hann getur hvílzt
um stund. varpað frá sér áhyggj-
unum og látið sér líða vel.
Þó að kannski megi nefna ýmis
dæmi um leiðir til afslöppunar þá
er það liklega vinsælast hjá stór-
um hópi manna viða um lönd að
fara reglulega á gufubaðstofu.
Gufubaðstofur eru, þó að undar-
legt megi teljast, tiltölulega nýjar
af nálinni hér á landi og má til
marks um það nefna, að sú, sem
lengst hefur starfað hér, átti 15
ára afmæli nú í þessum mánuði.
Er það gufubaðstofa sundkappans
kunna, Jónasar Halldórssonar, að
Kvisthaga 29. Af þvi tilefni hittum
við Jónas stuttlega að máli og
spjölluðum við hann. Sá, er þetta
ritar, hefur um 8 ára skeið sótt
stofuna vikulega og gæti ekki
hugsað sér að byrja nýja vinnu-
viku án þess að hafa sótt mikla og
góða endurnæringu til Jónasar og
aðstoðarmanns hans, Guðjóns
Ólafssonar. Svo mun einnig um
flesta þá, sem byrja að sækja
gufuböð og nudd, því að yfirleitt
eru það sömu mennirnir, sem
maður hrttir á hverjum tima, þótt
auðvitað slæðist alltaf einn og
einn nýr inn í hópinn. Þannig er
gufubaðstofan eins og litið heimili
enda margir okkar orðnir ansi
heimaríkir.
Við spurðum Jónas fyrst hvað
hefði ráðið þvi, að hann ákvað að
opna stofuna?
— Ég lærði nudd úti i Banda-
rikjunum eftir að hafa lokið
iþróttakennaranámi. Einkum mið-
aði námið að því að læra að nudda
iþróttamenn. Nú 1958 för ég að
hugsa um, að gaman gæti verið að
opna nuddstofu fyrir almenning.
en þá var engin slik starfandi, þó
að gufubað væri að visu hjá Jóni
Þorsteinssyni og hjá lögreglunni.
Ég var ekkert að nota kjallarann í
húsi minu, svo að ég ákvað að
reyna þetta.
— Hvernig voru viðtökurnar?
— Þær voru ágætar. Þessi
nýjung mæltist vel fyrir og margir
af þeim mönnum, sem komu fyrst
til min, eru fastagestir enn þann
dag i dag.
— Eru sértimar fyrir kvenfólk?
— Ekki lengur, við vorum með
nokkra tíma vikulega fyrir konur
fyrstu 1 2 árin, sem konan min sá
um, en siðan fór hún að kenna og
þá varð þetta svo erfitt, að við
lögðum þá niður. Það var lika
erfitt að þurfa að reka menn út á
mínútunni, til að konurnar kæm-
ust að. Það þarf helzt alveg að-
skildar stofur fyrir konur og karta.
— Eftir hverju sækjast menn
helzt i gufubaðstofu?
— Fyrst og fremst til að hvila
sig og slappa af. Sumir koma bara
til að fara i gufu, aðrir fá sér nudd,
Ijós og hita, sem við bjóðum einn-
ig upp á. Þeir, sem byrja á þvi að
koma, koma yfirleitt einu sinni i
viku. Þeir finna það, þegar þeir
eru orðnir þreyttir, að þeir slappa
bezt af með því að nota gufubaðið
skynsamlega. Það er með gufubað
eins og flest annað, að það verður
að nota eftir ákveðnum reglum til
þess að ná árangrinum.
— Hvað er þér efst i huga þegar
þú litur yfir þessi 15 ár?
— Það eru þeir ágætu menn,
sem ég hef kynnzt gegnum stof-
una. Margir þeirra eru mjög góðir
og tryggir vinir minir jafnt af eldri
sem yngri kynslóðinni. Nú, svo
eru það iþróttamennirnir, sem
margir koma hingað til að hvila
sig og undirbúa sig fyrir keppni og
koma þá oft margir saman i hóp á
kvöldin og eru þá út af fyrir sig.
Þessu hefði ég ekki viljað missa
af. Nú svo er það auðvitað ánægj-
an yfir að hafa verið fyrstur á stað
með svona þjóðþrifafyrirtæki (og
nú hlær Jónas), þvi að fjöldi þeirra
stofa, sem fylgdi í kjölfarið, sýndi,
að það var þörf fyrir slíkar stofur
hér á landi.
Glatt á hjalla hjá nokkrum fastagestum í
gufubaðklefanum.
LOFTPRESSA Óska eftir að kaupa eða leigja Ipftpressu, 600 cu.ft Tilboð óskast sead afgr Mbl fyrir 6. marz. merkt: ,.3302". HAFNARFJÖRÐUR 22ja ára einhleyp stúlka (læknarit- ari) óskar að taka á leigu litla ibúð eða herb með eldunaraðstöðu Allt kemur til greina. Upplýsingar i sima 50363.
MAZDA818 Sport Coupé til sölu. Uppl. i sima 51 526 eftir kl. 6 2JA HERBERGJAÍBÚÐ á 1. hæð til leigu. Tilb. sendist ' afgr. Mbl. fyrir föstudag merkt: „1 10—3301"
MANNELDISFRÆÐI — SÝNIKENNSLA. Ný námskeið hefjast I næstu viku. Uppl. i sima 86347. Kristrún Jóhannesdóttir, B.Sc. IBÚÐ ÓSKAST 5 herb. góð íbúð óskast til leigu i Vesturbæ Góð umgengni og reglusemi. Tilboðum óskast skilað á afgr. Mbl. fyrir mánudag merkt: „3299"
BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. Nóatún 27, simi 25891. VILLEKKI EINHVER góðhjartaður lána 4 barna móður kr. 200.000.00 i 2 ár? Tilboð óskast send á afgr. Mbl. fyrir mánudag. merkt: 3236 Algjörri þagmælsku heitið
CHEVROLET VEGA G.T. árg. 1 972 (sportmodel) rauð- ur 52 5 þús., nýinnfluttur. Uppl. í síma 13285 —34376. RÁOSKONA ÓSKAST að Þórustöðum í Ölfusi. Simi 99—1 174.
IE5IÐ DflGIECH MOHAIR-GARN Saba garnið er svissnesk gæða- vara og er einnig ódýrt Verzl. Hof Þingholtsstræti 1.
VERZLUN
Til sölu er nýlenduverzlun í vesturborginni.
Ragnar Tómasson hdl.
Austurstæti 1 7,
sími 26666
SUMARSKÖLI
FVRIR
KENNARA
í RANDARÍKJUNUM
Eins og undanfarin ár verður sumarskóli fyrir kennara frá
Norðurlöndum i Luther College í lowa í fjórar vikur og
hefst 29. júní. Alls hafa fjörutíu íslenzkir kennarar sótt
sumarskóla þennan á undanförnu níu árum.
í skólanum er leitast við að gefa kennurum innsýn í hina
fjölbreyttu menningu og lífshætti Bandaríkjanna. Fjallað
er um amerískt þjóðfélag á breiðum grundvelli, jafnt kosti
þess sem lesti. Fyrirlestrar eru haldnir um skólamál,
stjórnmál, trúmál, vandamál minnihlutahópa, og margt
fleira.
Þátttakendur hafa verið kennarar allt frá fyrstu bekkjum
barnaskóla upp í háskóla. Þá geta kennaranemar einnig
sótt um þátttöku. Þátttakendur dvelja í heimavistum
skólans á meðan á námskeiðinu stendur og farið er í
ferðir um nágrennið. Kostnaður við þátttöku er 375
dollarar, sem innifelur fæði, húsnæði, kennslu og ferðir
um nágrennið. Ferðirtil og frá Decorah, lowa eru þarfyrir
utan. Á undanförnum árum hafa nokkrir styrkir verið
veittirtil þátttakenda.
Þeir sem hafa hug á þátttöku i sumarskólanum geta
fengið frekari upplýsingar með því að skrifa til íslenzk-
ameríska félagsins í pósthólf 7051, eða hringja til ritara
félagsins í síma 40563. Umsóknarfrestur er til 12.marz.
ÍSLENZK-AMERÍSKA FÉLAGIÐ
Pósthólf 7051