Morgunblaðið - 27.02.1974, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 27.02.1974, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974 11 Fréttabréf úr Axarfirði HINN 4. janúar hlánaði víðast hvar í Norður-Þingeyjarsýslu eft- ir að verið hafði tveggja mánaða óveðurskafli. Léttist þá brúnin á mörgum, enda höfðu menn fengið nóg af hriðunum. Opnuðust vegir fljótlega og samgöngur milli byggðarlaga komust í þokkalegt horf. Mun þjóðvegurinn hafa verið ruddur, þar sem þurfti, allt til Þórshafnar á Langanesi og var yfirleitt akfært í þessum mánuði bæði milli byggðarlaga og innan sveita. Kallast það gott. Þó voru Sléttuvegur til Raufarhafn- ar og Hálsavegur til Þórshafnar oft erfiðir. Tíðarfar var milt miðað við árs- tíma allan mánuðinn, snjölétt, en nokkuð umhleypingasamt og mikið um blota. Nokkru eftir miðjan mánuð fóru menn úr Öxarfirði á vélsleð- um austur i Búrfellsheiði, afrétt þeirra Öxfirðinga og Þirstilfirð- inga, að svipast eftir kindum, sem orðið hefðu eftir i haustleitum. Rákust þeir á hreindýrsspor í heiðinni og er það nýlunda. Hreindýr eru oft i Jökuidalsheiði og gætu flækzt þaðan norður i Búrfellsheiði, enda munu hafa sézt þar nokkrum sinnum hrein- dýraslóðir síðustu ár. — Fram á miðja síðustu öld voru hreindýr á flestum heiðum í N-Þingeyjar- sýslu austan Jökulsár og hafa oft fundizt þar gömul horn. Hinn 23. janúar sá margt fólk, sem var úti við í Kelduhverfi, undarlegar loftsjónir. Er það hald sumra, að hér hafi verið á ferð hrapandi loftsteinar ekki all- fjarri. Örlitið lifnaði yfir samkomu- haldi í sveitum hér, þegar tið skánaði, en allt þess háttar er þó með daufasta móti þennan vetur- inn. Karlmenn hittast stundum að spilum og tafli, en helztu skemmtanirnar, eins og hjónaböll og þorrablót, eru lítt komnar í gang. Lítið er einnig um félags vist, gömlu dansana og aðrar upp- lifgandi samkomur. Ekki er fólk hér um slóðir fylli- lega ánægt með það, hvernig heyrist í hljóðvarpi og sést í sjón- varpi. Truflanir eru tíðar í endur- varpsstöð hljóðvarps á Eiðum og illa heyrist víðast hvar í Skjaldar vík við Eyjafjörð. Sjónvarp sést oft sæmilega, en truflanir eru þó alltiðar og oftast raktar til endur- varpsstöðvarinnar á Gagnheiði eystra, með réttu eða röngu. Er- lendar stöðvar trufla stundum sjónvarpsmyndir hér, en ekki hefur það verið áberandiþað, sem af er vetri. Endurvarpsstöðvar útvarpsins austanlands eru yfirleitt ekki i háu áliti í Þingeyjarsýslu. Um miðja síðustu viku, þ. 6. febrúar harðnaði skyndilega á dalnum aftur og snerist til norð- lægrar áttar með snjókomu og frostkala. Fyrir helgina gerði slæmt norðanveður með skafbyl, drö nýjan snjó í skafla og varð illfært á Tjörnesi og ófært á Mel- rakkasléttu. Mánudaginn 11. þ.m. skall á norðaustan bleytuhríð, sem stóð á annan sólarhring, foraðsveður. Hlóðst bleytusnjór á loftlínur síma og rafmagns, svo að þær urðu digrar sem handleggur og létu víða undan. Strax á mánu- dagskvöld varð rafmagnslaust í öllum byggðum við Axarfjörð og líklega viðar á þessu svæði og stóð svo i tvo sólarhringa. Varð þá viða kalt í húsum og brennt var miklu af kertum. Fljótlega varð einnig símasambandslaust, fór bæði sveitasimi og landssími í mola. Munu staurar hafa brotnað eða línur sligazt á mörgum stöðum bæði hjá rafmagni og síma. Þegar veðrinu slotaði seint á miðviku- dag, kom m.a. i ljós, að yfir 40 símastaurar höfðu brotnað á stuttum kafla í Öxarfirði, margir í Sandinum og vafalaust víðar. Eru fregnir enn óljósar sökum sam- bandsleysis. Víða er komið mikið fannkyngi og mjög hefur skeflt að húsum. Þeir, sem eiga í önnur byggðarlög erindi, sem ekki verður frestað, verða að leigja snjóbíla, en það eru fokdýr farartæki. Séra Sigurvin. Enskunám (Englandi English Language Summer Schools og Southbourne School of English hafa mikla reynslu í að kenna útlendingum ensku. Skólarnir starfa allt árið í Borunemouth, en einnig verða sumarnám- skeið í júlí og ágúst í Brighton, London, Poole og Torquay. Nemendur dvelja á völdum enskum heimilum. Nánari upplýsingar veitir Kristján Sigtryggsson í síma 42558, alla virka daga, nema laugardaga, kl. 17.30—18.30. Radíóverzlun Afgreiðslumaður eða kona óskast I radíóverzlun. Tilboð merkt: „3300", óskast send á afgr. Mbl. fyrir 4. marz. Dregið hefur verið í happdrætti Landssambands slökkviliðsmanna Þessi númer hlutu vinning: 1. vinningur nr. 4976. Húsgögn. 2. vinningur nr. 1 001. Flugfar. 3. vinningur nr. 1 322. Trygging. Athugið óskum eftir lóð undir einbýlis- eða raðhús á stór-Reykja- víkursvæðinu. Má vera á byrjunarstigi. Uppl. í sima 86273 eftirkl. 4. HÁTÚN Fallegt einbýlishús á tveimur hæðum um 1 60 ferm til sölu. Á jarðhæð er hjónaherb., 2 barnaherb., baðherb., þvottahús, geymsluro.fi. Á efri hæð eru 2 saml. stofur, setustofa, fallega innréttað eldhús, wc. o.fl. Svalir, fallegur, ræktaður garður. Eign í mjög góðu ástandi Jón Einar Jakobsson, Aðalstræti 9 — sími 17215. HEILSURJEKTIN HEBA, AUÐBREKKU 53. Konur athugiö Nýjir tfmar í leikfimi hefjast 4. marz. Sturtur, sauna, Ijós og nudd. Innritun i slma 42360. Hefjum aftur 30. daga megrunarkúr 7. marz. Megrunarleikfimi alla daga vikunnar nema sunnu- daga og góður matarkúr. Ströng viktun. Nudd einu sinni í viku er innifalið f verðinu og að 30 dögum loknum mun sú kona, sem bezt hefur staðið sig fá verðlaun kjól eftir eigin vali, einnig mun snyrtisér- fræðingur ráðleggja konunum um andlitssnyrtingu. Innritun isíma 38157. Styrkir til framhaldsnáms iðnaðarmanna erlendis. Menntamálaráðuneytið veitir styrki til iðnaðarmanna, sem stunda framhaldsnám erlendis, eftir því sem fé er veitt í þessu skyni í fjárlögum ár hvert Styrkir verða fyrst og fremst veittir þeim, sem ekki eiga kost á styrkjum eða námslánum úr lánasjóði íslenzkra námsmanna eða öðrum sam- bærilegum styrkjum og/eða lánum. Heimilt er þó, ef sérstaklegá stendur á, að veita viðbótarstyrki til þeirra, er stunda viðurkennt tækninám. er fé er fyrir hendi. Styrkir eru eingöngu veittir til náms erlendis, sem ekki er unnt að stunda hér á landi. Skal námið stundað við viðurkennda fræðslustofn- un og eigi standa skemur en tvo mánuði, nema um sé að ræða námsferð, sem ráðúneytið telur hafa sérstaka þýðingu. Styrkir greiðast ekki fyrr en skilað hefur verið vottorði frá viðkomandi fræðslustofnun um, að nám sé hafið. Umsóknum um styrki þessa skal korhið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 30. mars n.k. Umsóknareyðublöð fást f ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 20. febrúar 1 974. BflSKUDAcs- ~]f4(ERKJASALA —' trossiK Á ðSKUDAGINN ER HINN ÁRLEGI MERKJASÖLUDAGUR RAUÐA KROSSINS. MERKI VERÐA AFHENT Á NEÐANTÖLDUM ÚTSÖLUSTÖÐUM FRÁ KL. 9.30. - ÐÖRNIN FÁ 10% SÖLULAUN OG ÞAU SÖLUHÆSTU FÁ SÉRSTÖK VZRÐLAUN. VESTURBÆR: Skrifstofa R. K. í. Öldugötu 4 Efnalaug Vesturbæjar, Vesturgötu 53 Melaskólinn, v/Furumel Skjólakjör, Sörlaskjóli 42 Skerjaver, Einarsnesi 36 Verzlunin Perlon, Dunhaga 20 austurbær: Fatabúðin Skólavörðustíg 21 Verzlunin Barmahlíð 8 Björgunartækni, Frakkastíg 7. íFriðrik Brekkan Silli og Valdi, Háteigsvegi 2 Sunnukjör, Skaftahlíð Hlíðaskóli, Hamrahlíð 8612 Dagheimilið Lyngás, Safamýri 5 Austurbæjarskólinn Verzl. Skúlaskeið, Skúlagötu 54 SMÁÍBÚÐA- OG FOSSVOGSHVERFI Fossvogsskóli Breiðagerðisskóli Álftamýraskóli Verzlunin Faldur, Háaleitisbr. 68 LAUGARNESHVERFI: Laugarnes-apótek Kirkjuteig 21 Laugalækjarskóli v/Sundlaugaveg KLEPPSHOLT. VOGAR OG HEIMAR: Langholtsskóli Vogaskóli Þvottahúsið Fönn, Langholtsv. 113 árbær: Árbæjarskóli Rofabæ 7 breiðholt: Breiðholtsskóli, Arnarbakka 1 Fellaskóli — Breiðholti III SELTJARNARNES: Mýra rhúsaskóli Kópavogur: KÓPAVOGUR Kársnesskóli, Skólagerði Kópavogsskóli, Digranesvegi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.