Morgunblaðið - 27.02.1974, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974
Geir Hailgrímsson í umræðum utan dagskrár:
Taka ber áskorun helmings
kjósenda alvarlega
UMR KDUK urðu á Alþingi í gær
utan dagskrár í sameinuðu þingi
um undirskriftasöfnunina Varið
land. Kvöddu þingmenn Alþvðu-
bandalagsins sér hljóðs og sökuðu
forstöðumenn undirskriftasöfn-
unarinnar um að standa fyrir
„víðlækum persðnunjósnum."
Fóru þeir fram á það við forsætis-
ráðherra, að hann óskaði eftir því
við forstöðumenn undirskrifta-
söfnunarinnar, að þeir afhentu
sér þau gögn, sem notuð hefðu
verið til tölvuvinnslu undir-
skriftarlistanna. Kvaðst ráðherra
ekki geta orðið við því, þar sem
engar reglur hönnuðu mönnum
að hafa slík gögn undir höndum.
Talsmenn Sjálfstæðisfiokksins
bentu á þá taugaveiklun, sem
umræður Alþýðubandalags-
mannanna bæru vott um. Stafaði
hún augljóslega af því, að þeir
væru svo hræddir við hinar glæsi-
legu undirtektir, sem undir-
skriftasöfnunin hefði fengið.
Væri hugarástand þeirra þannig,
að þeir sökuðu menn um persónu-
njósnir fyrir að hafa þessi gögn
undir höndum, gögn, sem hvort
sem er færu inn í skjalasafn rfkis-
ins, hverjum til skoðunar, sem
vildi.
Ragnar Amalds (Ab) hóf
umræðurnar og sagði, að verið
væri að tölvuskrá pólitískar
skoðanir manna. Hér væri um að
ræða „tröllauknar persónunjósnir
af versta tagi“. Væri nauðsynlegt,
að eyðileggja tölvugögnin. Spurði
hann forsætisráðherra, hvort
hann vildi stuðla að því, að tölvu-
gögnin yrðu afhent sér jafnhliða
Og undirskriftarlistamir yrðu af-
hentir.
Ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra sagði, að ekki væri í
íslenzkum lögum nein almenn
ákvæði um þetta efni. Hefði hann
því ekki vald til að krefjast þess
að fá gögnin afhent. Almennt
væri meðferð á slikum undir-
skriftasöfnunum hið athyglis-
verðasta mál, sem hefði gefið
mönnum tilefni til íhugana
erlendis, svo sem á Norðurlönd-
um. Sjálfsagt væri fyrir okkur að
fylgjast með því, sem þar færi
fram og fhuga, hvort ekki ætti að
setja löggjöf um efnið.
Þá sagði ráðherrann, að enginn
væri kominn til með að segja, að
þeir, sem undir hefðu skrifað,
vildu að það væri varðveitt, svo að
t.d. eftir 10 ár yrði hægt að sjá,
hverjirhefðu skrifað undir.
Jónas Arnason (Ab) sagðist
vilja vekja athygli á öðru máli
náskyldu. Öryggis- og
rannsóknarskóli norska hersins
kenndi nemendum sinum þau
fræði, að samtök íslenzkra náms-
manna f Noregi væru hættuleg
öryggi Noregs. Hefði þetta komið
fram i fréttum útvarpsins fyrir
skömmu. Þessu ætti utanríkisráð-
herra að mótmæla við Norðmenn.
Þá sagði þingmaðurinn, að án
efa héldi Nato skrá yfir 5. her-
deildina á íslandi, þ.e. þá menn á
íslandi, sem ekki væru Nato
þóknanlegir.
Geir Hallgrímsson (S) sagði
bersýnilegt, að þingmenn Alþýðu-
bandalagsins væru nú gjörsam-
lega farnir á taugum vegna hins
glæsilega árangurs undirskrifta-
söfnunarinnar um varið land. Þar
hefði nærfellt helmingur
kjósenda i landinu lýst yfir skoð-
un sinni ámálinu.
í sjónvarpsþætti ekki alls fyrir
löngu hefði Ragnar Arnalds getið
um undirskriftasöfnun, sem
skoðanabræður hans hefðu staðið
fyrir, fyrir nokkrum árum. Hefði
hann sagt, að 20000 hefðu skrifað
undir þann lista. Nær sanni væru
þó sennilega fréttir um 2-3000
undirskriftir, enda hefði listanum
aldrei verið skilað, eins og þeir,
sem á hann rituðu, hefðu ætlazt
til.
Tölvuvinnsla listanna hjá
Vörðu landi væru einungis til að
yfirfara þá og ganga úr skugga
um, að enginn hefði skriíað
tvisvar undir og að allir hefðu náð
tilskildum aldri.
Kvaðst Geir að lokum vilja
undirstrika, að Alþingi bæri að
taka mið af þeim skýra vilja, sem
í hinum vel heppnuðu undir-
skriftum kæmi fram.
Svava Jakobsdóttir (Ab) kvaðst
vilja spyrja forstöðumenn undir-
skriftasöfnunarinnar í hvaða
tölvu listarnir hefðu verið unnir.
Ef það væri í tölvu Háskólans,
væri gott að vita, hvort yfirmenn
skólans samþykktu, að sú tölva
væri notuð til að gera pólitíska
skrá yfir þegna þjóðfélagsins. Þá
spurði hún einnig, hvaðan fé
hefði komið til tölvuvinnslunnar,
sem kostaði 400 þúsund kr.
Ragnar Arnalds kvaðst bara
vilja beina því til forsætisráð-
Lög um 1% söluskatt til
Viðlagasjóðs afgreidd
í GÆR var afgreitt með hraði
frumvarp um breytingu á lögum
um neyðarráðstafanir vegna jarð-
elda á Heimaey. Pór frumvarpið í
gær í gegnum 2 umræður í neðri
deild og allar þrjár í þeirri efri. í
lögunum felst, að 1% viðlaga-
sjóðsgjald á söluskattstofn verður
framlengt f eitt ár og rennur til
Viðlagasjóðs.
Af nefndarmönnum fjárhags-
og viðskiptanefndar neðri deildar
tóku til máls Viðhjálmur
Hjálmarsson (F) og Matthías Á.
Mathiesen (S) og kom fram hjá
Hjúkrunarlög afgreidd
1 GÆR var afgreidd sem lög frá
Alþingi frumvarp til hjúkrunar-
laga, sem flutt var af ríkisstjórn-
inni.
ar lítilsháttar breytingar á frum-
varpi ríkisstjórnarinnar, eins og
það var upphaflega lagt fram.
þeim, að algjör samstaða hafði
verið um málið.
Þá tók einnig til máls Guðlaug-
ur Gislason (S) og rakti nokkuð
sögu eldgossins í Vestmannaeyj-
um. Kvaðst hann vilja þakka sam-
stöðu þingmanna í málinu og lýsti
þeiri von sinni, að Vestmannaeyj-
ar yrðu áfram sú styrka stoð í
atvinnulífi landsmanna, sem þær
hefðu verið fram að þessu.
í efri deild tóku til máls um
málið Ólafur Jóhannesson forsæt-
isráðherra og Geir Hallgrimsson
(S). Var þar einnig lýst yfir sam-
stöðu um afgreiðslu málsins.
Einnig stóð til að afgreiða með
sama hætti frumvarp um 1% álag
á söluskattstofn til að leggja í sjóð
til jöfnunar aðstöðu vegna olíu-
verðs. Nefnd hafði ekki unnizt
tími til að ganga frá nefndaráliti
og var því máli frestað þar til í
dag.
herra, að hann færi þess vinsam-
lega á leit við forstöðumennina,
að þeir afhentu tölvugögnin um
leið og listana.
Ragnhildur Helgadóttir (S)
sagði, að hér gerðu þingmenn sig
seka um að bera borgara utan
þingsins mjög þungum sökum.
Þeir brygðust ókvæða við,
einungis vegna þess, að gerð hefði
verið skrá yfir þátttakendur í
undirskriftasöfnuninni og óttuð-
ust, að skráin yrði afhent ein-
hverjum öðrum i annarlegum til-
gangi.
Tölvuvinnslan væri einungis
gerð til hagræðis. Svo auðveldara
væri að ganga úr skugga um, að
undirskriftalistinn væri réttur.
Hér væri einungis um samvizku-
samleg vinnubrögðað ræða.
Halldór Blöndal (S) sagði, að
Jónas Árnason hefði haldið því
fram, að i skólum norska rfkisins
væri kennt, að íslendingar í
Noregi væru hættulegir öryggi
landsins. Kvaðst hann vilja spyrja
forsætisráðherra, hvort kvartanir
hefðu komið um þetta frá Norð-
mönnum.
Þá væri fróðlegt að vita, hvern-
ig stæði á þeirri rógsherferð, sem
Alþýðubandalagsmenn stæðu nú
fyrir á hendur frændum okkar
Norðmönnum. Væri það hálf
undarleg starfsemi og ógeðfelld
íslenzku þjóðinni.
Að lokum kvaðst þingmaðurinn
vilja spyrja þá Alþýðubandalags-
menn, hvar undirskriftalistarnir
væru, sem skrifað hefði verið
undir fyrir nokkrum árum gegn
her í landi. Hvers vegna gerðu
þeir ekki grein fyrir því hér, frek-
ar en að vera að fárast yfir undir-
skriftasöfnun Varins lands. Stað-
reynd væri, að þessir listar hefðu
ekki verið afhentir þeim, sem
undirskrifendum hefði verið
lofað.
Lúðvík Jósepsson sjávarútvegs-
ráðherra kvaðst aldrei hafa svert
Norðmenn. Þá sagði ráðherrann,
að nú væri verið að vinna upp
úr undirskriftalistum Varins
lands með þeim hætti, sem varð-
aði við lög I öðrum löndum. Hér
væri verið að reyna að stuðla að
persónunjósnum.
Jónas Arnason kvaðst vera
sannfærður um, að Sjálfstæðis-
flokkurinn mundi nota upplýsing-
ar úr listunum í næstu kosning-
um. Halldór Blöndal hefði spurt,
hvemig á því stæði, að þeir
Alþýðubandalagsmenn rægðu
Norðmenn Það væru íslenzkir
námsmenn í Noregi, sem væru
rægðir. „Er aldrei hægt að standa
beinn?“ spurði þingmaðurinn.
Oddur Ólafsson:
Hækkuð verði húsnæðislán til eldri íbúða
og endurbóta á húsnæði öryrkja
í athugasemdum með frum-
varpinu sagði:
Frumvarp það, sem hér er lagt
fram er niðurstaða endurskoðun-
ar á eldri hjúkrunarlögum, sem
unnið var að í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu á s.l.
sumri.
Aðalástæðan fyrir endurskoðun
þessari var sú, að í eldri lög var
talið vanta ákvæði um sérnám í
hjúkrun og viðurkenningu á því.
Hjúkrunarkonur og hjúkrunar-
menn hafa stundað sérnám í
hjúkrun erlendis og í einstaka
greinum í sjúkrahúsum hér á
landi. Þörf er á reglum um þetta
nám, svo að endurskoða megi það
og samræma. Akveðnar lágmarks-
kröfur þarf að gera varðandi
námsefni og námstíma.
Að námi loknu yrði veitt viður-
kenning i formi löggildingar til
starfa.
í meðförum þingsins voru gerð-
Oddur Ólafsson (S) hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp um
breytingu á lögum um Húsnæðis-
málastofnun rfkisins. Leggur
hann til, að 4. máisgr. A-liðar 8.
gr. laganna orðist svo:
Húsnæðismálastjórn er heimilt
að verja allt að 120 miiljónum
króna árlega til lánveitinga til
kaupenda eldri fbúða og til end-
urbóta á eigin húsnæði öryrkja.
Ráðherra setur með reglugerð
ákvæði um úthlutun, lánstíma og
tryggingar slikra lána, að fengn-
um tillögum húsnæðismálastjórn-
ar.
ígreinargerð segir:
Með breytingu á lögum um Hús-
næðismálastofnun ríkisins í maí
1970 var tekin upp sú nýbreytni
að veita lán til kaupa á eldri íbúð-
um. í þessu skyni var stjórn Hús-
næðismálastofnunarinnar heimil-
að að verja allt að 50 millj. kr.
árlega. Árið 1972 var heimildin
hækkuð upp í 80 mill. kr. árlega,
en bætt við heimild til þess að
veita lán til endurbóta á eigin
húsnæði öryrkja.
Þessi viðbót á starfsemi Hús-
næðismálastofnunarinnar, þ.e.
lánin til kaupa á eldri íbúðum og
lánin til endurbóta á eigin hús-
næði öryrkja, hefur mælst mjög
vel fyrir og komið mörgum að
haldi. Hins vegar hefur verðlag á
eldri ibúðum svo og kostnaður við
endurbætur á húsnæði öryrkja
hækkað svo stórkostlega, síðan
þessar lagabreytingar voru gerð-
ar, að nauðsynlegt er að hækka
heildarupphæð lánanna.
í maí 1970 var vfsitala bygging-
arkostnaðar 439 stig og í maí 1972
603 stig. Nú er byggingarvísitalan
orðin 913 stig og hefur því hækk-
að um 108% frá því í maí 1970 og
51.4 % frá því í maí 1972. Af þessu
uiá marka að síst er ofgert
að hækka svo fjárveitingu
til lána út á gömul hús og til
endurbóta á eigin húsnæði ör-
yrkja sem hér er gert. Verður það
að teljast lágmarkskrafa, að fjár-
magn tilþessara sérstöku lána sé
jafnmikið að notagildi nú og það
var, þegar ákvæðin um þau voru
tekin inn í lögin um Húsnæðis-
málastofnun ríkisins.
Halldór Blöndal sagði, aðJónas
hefði ekki staðið beinn, þegar
hann líkti Guðmundi Daníels-
syni við Solzhenitsyn á Alþirigi á
dögunum.
Lúðvík hefði hvað eftir annað
sagt í umræðum á þinginu fyrir
skömmu, að Norðmenn hefðu gert
sig seka um afskipti af innanríkis-
málum Islendinga. Ef það væri
ekki að sverta Norðmenn, að
halda því áfram, að ketint væri i
norskum skólum, að íslenzk ung-
menni væru hættuleg öryggi
Noregs, vissi hann ekki hvað væri
að sverta þá. Þá benti þingmaður-
inn á, að Jónas Árnason hefði í
engu svarað spurningu sinni um
undirskriftalistana gegn her í
landi.
Geir Hallgrímsson sagði fjar-
stæðu að vera að tala um persónu-
njósnir. Verið væri með þessu að
halda þvi fram, að menn mættu
ekki tjá skoðanir sinarmeð undir-
skriftum. Þessar undirskriftir
myndu verða afhentar og kæmu
til með að liggja frammi. Ljóst
væri, að Alþýðubandalagsmenn
hefðu um það f jölskrúðugar hug-
myndir, hvernig nota mætti und-
irskriftir sem þessar til óhagræðis
fyrir undirskrifendur. Þvi myndi
hann í sporum forgöngumanna
fara þess á leit, að fá listana aftur
í hendur eftir afhendingu.
Geir sagði, að ekki væri á
hverjum degi, sem helmingur
kjósenda sendu Alþingi og ríkis-
stjórn áskorun. Því bæri að taka
áskorunina alvarlega. Þeir, sem
hefðu skrifað undir, hefðu þá
skoðun á öryggismálunum, sem
þar kæmi fram, og þeir væru ekki
hræddir við að standa við orð sín.
Sigurður Magnússon (Ab)
sagði, að forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins gerðu ekki
greinarmun á undirskriftasöfn-
unum og persónunjósnum af
versta tagi.
Matthfas Á. Matthiesen (S)
kvað þann glæsilega árangur, sem
náðst hefði með undirskriftasöfn-
uninni, ná hámarki sínu við þess-
ar um ræður. Alþýðubandalags-
menn kynnu ekki að dylja von-
brigði sín, og staðfesti það hinn
góða árangur.
Vera mætti, að þeir, sem að
undirskriftasöfnuninni stæðu
hefðu hugleitt að afhenda tölvu-
gögnin. Um það vissu þeir einir.
Hitt væri þýðingarmeira, að menn
gerðu sér grein fyrir, að þau gögn,
sem í Iestrarsal Alþingis kæmu,
yrðu send i skjalasafn ríkisins,
hverjum sem vildi til aflestrar.
Að lokum sagði þingmaðurinn,
að það væri gott, að þessar um-
ræður hefðu farið fram, því þá
væri þjóðinni gert ljóst, hver
taugaveiklun réði nú rfkjum í
herbúðum Alþýðubandalagsins.
Garðar Sigurðsson (Ab) sagði
Jónas Árnason ekki hafa líktGuð-
mundi Daníelssyni við Solzhen-
itsyn, heldur hefði hann sagt, að
ísíendingar mættu þakka fyrir, að
Ingólfur Jónsson réði einungis
einu blaði áSelfossi.