Morgunblaðið - 27.02.1974, Page 15

Morgunblaðið - 27.02.1974, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974 15 Arásir ógna efnahagslífi S-V íetnams Orkukreppan kreppir hann ekki Mynd þessi var tekin á blaðamannafundi Nixons, forseta Bandarikjanna, sl. mánudag, er hann lýsti yfir, að hann væri vongóður um, að Bandaríkjamenn kæmust yfir orkukreppuna án þess að grípa þyrfti til skömmtunar á olíu og benzíni. Nixon er ákveðinn í að þrauka áfram Saigon. 26. febrúar. AP-NTB. SUÐUR-Víetnamar sendu í dag mörg hundruö manna liðsauka til Mekongóshólmasvæðisins þar sem hersveitir undir forystu kommúnista hafa tekið tvær stöðvar stjórnarhermanna og valdið miklu mannfalli í liði þeirra. Um 1.000 hermenn voru til varnar í stöðvunum en 144 féllu, særðust eðatýndust. Árásirnar voru gerðar þegar Nguyen Van Thieu forseti sat á fundi með yfirmönnum hersins og héraðshöfðingjum um endur- skipulagningu þjóðaröryggismála og þróunarmála með það fyrir augum að vinna meira land af Norður-Víetnömum og Viet Cong og tryggja framleiðsluaukningu ÞINGAÐ UM OLÍU Washington, 26. febrúar. NTB. OLIUSÉRFRÆÐINGAR 12 landa halda nýjan fund í Briissel 12. marz til undirbúnings alþjóðlegri orkumálaráðstefnu. Fundi þeirra i Washington lauk í nótt. Ráðstefnan verður sennilega haldin einhvern tíma í vor. Bandarískur talsmaður lét i ljós bjartsýni á að verulega mundi miða áfram til lausnar á orkumál- um á ráðstefnunni. FJÖLTEFLI SOVÉZKI stórmeistarínn Bron- stein tefldi fjöltefli við banka- menn s.l. laugardag. Hann tapaði aðeins einni skák, við Gunnar Gunnarsson, en gerði fimm jafn- tefli, við Guðmund Eiríksson, Helga Ölafsson, G uðjón J óhannes- son, Jóhann Örn Sigurjónsson og Stefán Karlsson. Þrjár stúlkur tóku þátt í þessu fjöltefli, og er meðfylgjandi mynd af einni þeirra, sem þarna er þungt hugsi og bíður eftir næsta leik Bron- steins. — Ljósm. Mbl: Hermann Stefánsson. til þess að rétta við fallvaltan efnahag landsins. Mánuðum saman hafa Suður- Vietnamar sagt frá árásum kommúnista á þjóðvegi, rikisjarð- ir og verzlanir á Mekongóshólma- svæðinu, er þjóni þeim tilgangi að vega að rótum efnahagskerfis landsmanna. FANGASKIPTI Jafnframt lauk í dag öðrum áfanga fangaskipta Suður-Víet- nama og Viet Cong er 200 borg- aralegir fangar voru fluttir flug- leiðis frá Saigon til aðalstöðva Viet Cong i Loc Ninh þar sem 99 herfangar voru lárnir lausir í staðinn. 211 FELLDIR Nokkrir fanganna, sem Viet Cong sleppti í dag, gátu ekki gengið hjálparlaust og aðra varð að bera á börum. Einn féll í yfir- lið. Þriðji og siðasti áfangi fanga- skiptanna hefst á morgun. 6. marz verður skipzt á 1400 föngum. Þá eiga deiluaðilar að hafa alls sleppt 4.000 föngum. I Kambódíu hafa stjórnarher- menn fellt 211 uppreisnarmenn síðastliðinn sólarhring og tekið 13 til fanga að sögn herstjórnarinnar í Phnim Penh. 11 stjórnarher- menn féllu en 24 særðust. Bardagarnir geisuðu við Dei Kraham við þjóðveginn milli höfuðborgarinnar og Takeo skammt fyrir sunnan hana og við flugvöllinn í Takeo. Fréttir frá vigstöðvunum herma, að stjórnarhermenn hafi hörfað eina mílu á þjóðvegi 31, en herstjórnin segir, að fallhlífaher- mönnum hafi orðið vel ágengt á austurbakka Mekongfljóts. Sovézkir vottar Jehóva dæmdir Moskvu, 26. febrúar. NTB. DÓMSTÖLL f Sóvétlýðveldinu Grúsíu hefur dæmt tvær konur og einn karlmann úr sértrúarflokk- unum Vottar Jehóva til langrar fangelsisvistar fyrir að halda bænafundi og fara með börn á fundina. Blaðið Zarja Vostoka segir, að karlmaðurinn hafði verið dæmd- ur í fimm ára fangelsi og konurn- ar i fjögurra og tveggja ára feng- elsi. Önnur konan var auk þess svipt foreldrarétti. Karlmaðurinn og konurnar höfðu farið með rúmlega 20 börn áýmsa trúarfundi. Blaðið segir, að börnin hafi ver- ið neydd til að taka þátt í leikriti með ,,Trúarlegu“ ívafi. Washington, 26. febr., NTB. AP: NIXON forseti lýsti yfir þvf í nótt, að ekki væri hægt að leiða sig fyrir rfkisrétt nema hann hefði framið glæp og hann gerði ekki ráð fyrir því, að hann yrði leiddur fyrir rétt. Hann tók skýrt fram, að hann ætlaði ekki að segja af sér áður en kjörtímabilið væri úti. Nixon sagði þetta á fyrsta blaðamanna- fundinum, sem hefur verið haíd- inn í Hvíta húsinu í rúma fjóra mánuði. Forsetinn sagði, að hann mundi gera það, sem í hans valdi stæði, til þess að koma i veg fyrir, að staða forsetaembættisins veiktist. Um orkukreppuna sagði hann, að ástandið hefði lagazt og hann teldi, að efnahagslifið f Banda- rikjunum tæki fjörkipp þegar líða tæki á árið. Nixon lét í ljós aðdáun sína á rithöfundinum Alexander Solzh- enitsyn en sagði, að brottrekstur hans ætti ekki að verða til þess að Bandarikjamenn og Rússar hættu tilraunum sínum til þess að tryggja frið i heiminum. „Ef ég hefði talið, að Solzhenitsyn yrði hjálpað með því að slita samskipt- unum við Sovétrikin eða viðræð- unum um að draga úr spennu, hefði ég stigið slík skref,“ sagði hann. Á óvart kom, að Nixon skýrði frá þvi, að Watergate-rannsóknar maðurinn Leon Jaworski hefði beðið hann að standa fyrir máli sínu frammi fyrir rannsóknar- dómstól. Hins vegar kvaðst hann hafa hafnað kröfunni þar sem hann teldi hana stríða gegn stjórnarskránni. Forsetinn skýrði frá því, að hann hefði boðizt til að svara Washington, 26. febrúar. AP. HERBERT W. Kalmbach, fvrr- verandi einkalögfræðingur Nbc- ons forseta, hefur gert grein fyrir leynileguin framlögum, er námu sex milljónum dollara, til kosn- ingabaráttu Nixons 1970 og 1972 að sögn Washington Post. Peningarnir komu úr tveimur leynisjóðum samkvæmt áreiðan- legum heimildum Washington Posts. Annar sjóðurinn nam tæp- um tveimur milljónum dollara og var notaður í kosningabaráttunni 1972 til að kosta pólitíska mold- vörpustarfsemi að sögn Posts. , Kalmbach hefur játað sig sekan af tveimur ákærum um ólöglegar kosningabaráttuaðferðir. Önnur ákæran er á þá leið, að hann hafi brotið lög gegn spillingu og hin er á þá leið, að hann hafi boðið sendiherraembætti fyrir 100.000 dollara framlag til kosningabar- áttunnar. Hann á yfir höfði sér þriggja ára fangelsi og 11.000 dollara sekt. spurningum rannsöknardómstóls- ins skriflega eða hitta Jaworski einslega að máli. Síðastnefnda kostinum hefur rannsóknarmað- urinn hafnað. NLxon beindi varnarorðum til Araba. Hann sagði, aðBandaríkin mundi draga úr tilraunum til að koma á friði í Miðausturlöndum ef Arabar afléttu ekki olíubann- inu á Bandaríkin. Hann taldi, að stjörnin hefði möguleika á að ná tökum á verð- bólgunni siðar á árinu með því að Framhald á bls. 35 Gegn játningu hans og loforði um að bera vitni gegn öðrum var ákveðið að ekki yrði höfðað mál á hendur honum vegna yfirhylm- ingar í Watergate-málinu eða mála, sem varða framlög til kosn- ingabaráttunnar og kunna að koma upp síðar. Moldvörpustarfsemin, sem kostuð var með leynisjóðnum, var meðal annars pólitisk skemmdarverk lögfræðingsins Donald Segrettis og rannsókn lög- reglumannsins Anthony T. Uslasewicz á einkalifi stjórnmála- manna, að sögn Posts. Post segir ennfremur, að Kalm- bach sé fús til að bera því vitni, að H. R. Haldeman, yfirmaður starfs- mannahalds Hvíta hússins 1970, hafi skipulagt fjögurra milljón dollara fjársöfnun til baráttunnar fyrir þingkosningarnar 1970. Los Angeles Times herrnir, að Kalmbach hafi sagt upp starfi hjá lögfræðifyrirtæki sínu I Newport Beach í Kaliforniu. Gufuhvolf umlykur Merkúr, segir sovézkur sérfræðingur MOSKVU — Sovézkur stjörnu- sérfræðingur, próf. Nikolai A. Kozyrev, segir í viðtali við Moskvublaðíð Izvestia, að hann hafi fundið fyrstu ótvíræðu sönnunina fyrir því, að gufu- hvolf umljúki Merkúr. Samkvæmt rannsóknum hans er Merkúr umlukinn þunnum vetnishjúpi, er nær 375 milur út í geiminn. stjörnuna. Sérstök Ijósgreining Kazyr- evs leiddi í ljós, að hæð gufu- hvolfsins er mikil og þess vegna dró hann þá ályktun, að það væri aðallega úr léttum gastegundum. Próf. Nikolai A. Kozyrev starfar við Pulkovostjörnuat- hugunarstof una skammt frá Lenníngrad. Kozyrev gerði sérstaka könn- un á Merkúr á rannsóknarstofu sinni á Krím þegar reikistjarn- an fór að skyggja á sólu 10. nóvember, þannig að sólmyrkvi varð, en það gerðist á sjö ára fresti. Gufuhvolf Merkúrs braut sólargeislana þannig, að fjólu- blá og útfjólublá ljósrönd myndaðist umhverfis reiki- LOGFRÆÐINGUR NIXONS JÁTAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.