Morgunblaðið - 27.02.1974, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.02.1974, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974 23 Sr. Jón Thorarensen; Prestskosningar Vilja þingmenn, a3 fólkið hætti að kjósa þá? Vilja þeir, að botninn sé settur upp á lýðræðinu, þeir látnir fara heim til sin, hver og einn og aðrir stjórnarhættir taki við? Segja má, að svona spurningar séu móðgandi gagnvart þingmönnum, svo fjarri sanni eru þær. Er ekki allur hinn vestræni heimur að mótmæla þvi þessa dagana, mót- mæla þeirri frelsisskerðingu, að fólk megi ekki hafa frjálsar skoðanir og leggja sinn skerf til þjóðmála, hver eftir sínum smekk og vilja? Því furðulegra er það á þessum dögum, að frumvarp það um afnám prestskosninga skuli sjást nú á Alþingi, — frumvarp, sem stefnir að því að taka kosninga- réttinn af fólkinu í landinu, — í lýðræðislandi nú á 20. öldinni. Er þetta vondur draumur eða hvað? Nei, þetta er raunveruleiki í þing- inu við Austurvöll. Svo mikið traust er borið enn tilþingmanna, að vonandi er, að að þeir bjargi þessu á réttan hátt. Rétt er, að sumir héraðsfundir munu hafa samþykkt meðmæli með afnámi prestskosninga, svo og sjálft kirkjuþingið. En kirkjuþingið er kosið að hálfu af prestum og að hálfu af sóknarnefndum og safnaðarfulltrúum, sem venju- lega eru kosnir með sárafáum atkvæðum safnaðarmanna, en ekki safnaðarfólkinu almennt. Þess vegna er kirkjuþingið alls ekki spegilmynd af því, sem þjóðin vill. Hin íslenzka kirkja er fyrst og fremst þjóðin sjálf, enda þótt prestarnir og kirkju- þingið sé lítill hluti hennar. Hinn þögli meirihluti hvers safnaðar er kjarninn í hverju kirkjufélagi, sem alltaf er vakandi í trúar- legum efnum og hinn dýrmæti höfuðstykur þess prests, sem fólkinu líkar við. Þjóðin hefur reynzt andvíg því, að völdin safnist á fáar hendur. Það er lika í samræmi við íslenzkan anda og alla lýðræðislega hugsun. Það er eðliiegt, að fólkið fái að kjósa prestana. Þeir hafa um aldaraðir haft þá sérstöðu fram yfir aðra eimbættismenn, að þeir hafa mest tekið þátt í daglegum kjörum þjóðarinnar, verið þjónar fólksins og reynt eftir þvi, sem þeir hafa getað, að vera vinir í gleði og sorg. Þess vegna vill hver og einn kjósa prest, sem honum eða henni líkar bezt við. Prestskosningar eru ieiðin- legar, það skal játað, og munu þar flestir þrestar þekkja súrt og sætt. En almennar kosningar eru hin óhjákvæmilega afleiðing lýð- ræðisins. Þetta mega þingmenn hafa fjórða hvert ár, og ekki hefur borið á þvi, að þeir hafi kvartað. Prestar þurfa að jafnaði ekki mjög oft að standa í kosn- ingum, og þeir, sem oftast gera það, slá þó varla þingmennina út í þeirri glimu. Hvaða lausn er betri en að almenningur fái að ráða þessu? Sú leið hefur ekki ennþá fundizt. Allar nýjar leiðir, sem hafa komið til tals f þessum efnum, eru að flestra dómi verri og tilþess eins, að fólkið fái ekki að ráða, heldur að þvi verði skammtað allt að ofan, og þá sér maður hilla undir það framtíðartakmark einræðis- af la á endanum, að sú stund renni loksins upp, að fólkinu verði skammtað, hvernig það eigi að hugsa. Það v^eri ekki amalegt! Ef til dæmis sú fáránlega hug- mynd kæmi fram, að söfnuðir fengju rétt til að kalla prest, með vissum skilyrðum, en kjósa ekki, sbr. framlagt frumvarp um þetta, 6. gr., þá væri það aðeins til þess að útiloka meiri hluta hvers safn- aðar frá því að ráða nokkru um þetta mál. Ogþvi meira, sem þetta yrði fært frá safnaðarfólkinu al- mennt til einstakra manna, þvi meir væri verið að færa kirkjuna frá fólkinu og gera hana fremur að stofnun bara fyrir prestana. Ef svipta ætti fólkið kosninga- rétti sínum, þá virðist ekki vera um aðra leið að ræða en að kirkju- málaráðherra, hver sem er á hverjum tíma, hafi veitingar- valdið. Kirkjumálaráðherrar kom og fara. Þeir eru bæði hægri menn og vinstri. Þeir sitja lengi eða skammt. Það heyrir til undan- tekninga innan kirkjunnar, ef deilur hafa risið vegna embættis- veitinga þeirra. Ef kosningarétturinn verður tekinn af fólkinu í landinu, þá er um leið sjálfsagt að taka kosn- ingaréttinn af prestum tilþess að kjósa biskup, — láta sömu regluna ráða í einu og öllu innan kirkjunnar, — láta kirkjumála- ráðherrann hafa valdið tilþess að skipa biskup. En aldrei mun ég senda þá kveðju fyrrverandi sóknar- börnum mínum austan fjalis og vestan, að nú leggi ég til að lokum, að þau verði svipt kosn- ingarétti. Jón Thorarensen. Bolli Gústavsson í Laufási: SOS — SOS — Neyðarástand af völd- um óveðurs, hógværðar og hirðuleysis ÞAÐ er litils metin dyggð í þjóð- félagi okkar að sýna hógværð og lítillæti. Víst er, að þótt við Is- lendingar mættum oft gæta betur þeirrar dyggðar, þegar við erum að hæla okkur af dugnaði og framfarahug fámennrar þjóðar á mörkum hins byggilega heims.þá verðum viðdreifbýlingaraðreyna að hrista af okkur slengið, þegar málum er svo komið, að lífsnauð- synleg þjónusta við hinar dreifðu byggðir er vanrækt í þeim mæli, að það væri blekking einber að kalla það hógværð að taka þvílíkri meðferð þegjandi og hljóðalaust. Því er ekki hægt að taka með þögn og þolinmæði, er byggðarlög verða að biða vikum saman eftir símasambandi, sem rofnaði, þeg- ar veður gerðust válynd og norð- lenzk stórhríð fór hamförum. Svo langt er síðan því veðri slotaði, að dögum saman hefur hækkandi sól yljað hjörtum þeirra, sem vorið þrá við Eyjafjörð, án þess að lið sveitir Landssímans láti til skar — Minning Hólmfríður Framhald af bls. 26 Kristjana mjög dáð af nemendum sinum, enda mikilhæf drengskap- arkona. Hólmfriður átti sæti i skóla- nefnd húsmæðraskólans að Laug- um frá byrjun og til æviloka. Kristjana var mótfallin því að skólar þessir væru fjölmennir. Stærð þeirra vildi hún miða við meðalstór heimili, eins og þau voru til sveita. Hún taldi, að erfitt væri að ná til allra i fjölmennri sveit, enda stendur m.a. í upp- kasti að fyrstu reglugerð hús- mæðraskólanna þetta: Skólarnir eiga að bera blæ gömlu íslenzku sveitaheimilanna, þar á að kenna þjóðlega matargerð, íslenzkan heimílisiðnað, sögu íslands og is- lenzkar bókmenntir o.s.frv. Laugaskóli varð strax mjög vin- sæll. P’yrstu árin var það gert að inntökuskilyrði, að væntanlegir nemendur yrðu að vinna árlangt á heimilum í S-Þingeyjarsýslu. En ar skríða i alvöru Reynsla okk ar íbúanna á austurströnd Eyja- fjarðar utanverðri er sú af þjón- ustu Landssímans, að ekki verður lengur þagað af hógværðarsökum, sú þögn væri af einberum dofa og sinnuleysþ Það eina, sem ekki bregzt í rekstri þessa ríkis- fyrirtækis hér um slóðir, er, að reikningar munu berast reglulega til simnotenda og afnotagjöld hafa ekki verið lækkuð, þótt lang- varandi bilanir hafi komið í veg fyrir eðlilega notkun símans. Ég býst við, að íbúar Grýtubakka- hrepps séu ekki einir um , þennan leiða vanda, enda hefur það kom- ið fram í fjölmiðlum, að víða kvarta menn yfir slæmu símasam- bandi. Þegar þetta er ritað, er liðinn nær hálfur mánuður síðan simasamand rofnaði og ekkert hefur verið gert til lagfæringa. A sama tíma hafa Rafmagsnveitur ríkisins unnið sleitulaust að við- gerðum á raf línum á sömu slóðum og i dag var straumi hleypt á þann þrátt fyrir það komust færri að en vildu í skólann, langir biðlistar lágu fyrir. Svipaða sögu mátti segja um hina húsmæðraskólana, en þar voru inntökuskilyrði ekki eins ströng. — Á síðustu árum hafa orðið miklar breytingar. H úsmæðraskólarnir eru ekki eins vel sóttir, hefur mörgum orðið það sár vonbrigði. En hvað veld- ur? Minnzt var 50 ára afmælis Gagnfræðaskólans á Akureyri vorið 1930. Margir nemendur skólans fjölmenntu þá til mann- fagnaðar á Akureyri og Möðru- völlum. Var mikill mannfjöldi á báðum stöðum. Þá hitti ég Hólm- fríði og urðu miklir fagnaðar- fundir. Einna minnisstæðust er mér þó morgunstundin í stóra tjaldinu í skólaportinu. Þar var mikil gleði, söngur og ræðuhöld. Hólmfríður sté i ræðustólinn og hélt snjalla ræðu, minntist hún skólaveru sinnar og þó einkum látinna kennara. Þessi vor- morgunn verður mér ógleyman- legur. — Aftur skildu leiðir og ég sá Hólmfríði aðeins með höppum hluta hreppsins, sem verst varð úti í óveðrinu. Hafa rafveitumenn unnið þar af miklum dugnaði og verður þvi öllum skútum um ólestur í þeim herbúðum sleppt að þessu sinni. Það er sennilegt, að rafmagnið verði talið mikil- vægara en síminn vegna þess fjöl- þætta gagns, sem við höfum af þvi. En víst er, að i dreifðum byggðum getur oft verið um líf eða dauða að tefla, að unnt sé að ná sambandi við landssimastöð, lækni, slysavarnafélag eða flug björgunarsveit. Með hálfum huga minnist ég á þá þjónustu, sem reiknað er með að prestur veiti. Hér í Laufásprestakalli getur hvort eð er enginn rætt trúnaðar- mál við sóknarprestinn í síma, vegna þess að öll sveitin getur hæglega legið á hleri og hlustað. Það er t.d. ekki unnt að hringja til prests og biðja hann að tilkynna slys eða dauðsfall af þessum sök- um, hvað þá að nokkrum dytti í hug að minnast á heimiliserjur og glöppum, en alltaf var ánægju- legt að hitta haria. Eins og nærri má geta, hlutu margir að renna hýru auga til heimasætunnar á Gautlöndum. Giftist Hólmfríður i júlímánuði 1918 Sigurði Jónssyni skáldi á Arnarvatni. Hann var þá ekkju- maður með 6 börn. Kona hans Málfríður Sigurðardóttir féll frá 1916, þá var elzta barnið 13 ára, en þaðyngsta áfyrsta ári. — Frétti ég, að þau Hölmfríður og Sigurð- ur hefðu gift sig í Reykjavík og síðan riðið heim norður Sprengi- sand. Þótti mér það gleðifrétt og Hólmfríði samboðið að þeysa á gæðingum norður yfir öræfin. Heima á Arnarvatni beið Hólm- fríðar mikið starf og vandasamt, en hún sigrað öll ljón, er urðu á vegi hennar. Hún tók það ráð eins og Hildur góða stjúpa, að lita á stjúpbörn sín eins og þau væru hennai' eigin börn. Og þannig tókst henni að ná hylli þeirra. Sjálf eignaðist Hólmfríður 5 börn, svo hjá henni ólust upp 11 börn á Arnarvatni. Allir, sem til þekktu, voru á við hann i sveitarsima, en þær eru sem betur fer næsta fátíðar I hin- um dreifðari byggðum. Þetta var nú reyndar innskot, en mál, sem gera mætti betri skil. Umdæmisstjóri Landssimans á Norðurlandi austanverðu tjáði mér, er ég innti hann eftir við- gerðum á sima eftir hið mikla óveður, er gekk hér yfir á dögun- um, að það væru tvö svæði i um- dæmi hans, þar sem óhjákvæmi- legt væri að leggja jarðstreng i stað stauralagna. Er annað þess- ara svæða Grýtubakkahreppur, sérstaklaga sunnan frá Fnjóská norður til Greinivíkur, þ.e. eftir Höfðahverfi. Hitt svæðið er Melrakkaslétta. Hefði reynsla undanfarandi ára leitt f ljós, að mjög erfitt og kostnaðarsamt væri að halda þessum línum við vegna ísingar, hvassviðra og snjóalaga. Er skammt síðan, eða um það bil tvö ár, að skipt var um linu hér i sveit vegna bilana, er urðu í ofsa- veðri. Hins vegar var farið mjög sama máli um það, að Hólmfríður stæði frábærlega vel i stöðu sinni. Hún var engin meðalmanneskja heldur stórbrotin og heilsteypt sómakona. Eftir 30 ára hjónaband missti Ilólmfríður mann sinn, hafði hann átt við vanheilsu að stíða síðustu árin. Börn Sigurðar og Hólmfríðar eru: Þóra, húsfreyja á Arnar- vatni, maður hennar er Jón Kristjánsson bóndi s.st., Arn- heiður, magister í ísl. fræðum, býr í Rvk., Jón vegaverkstjóri á Húsavik, kona hans er Gerður Kristjánsdóttir frá Svartárkoti, Málfríður húsfreyja á Jaðri i Reykjadal, hennar maður er Haraldur Jönasson bóndi s.st., Eysteinn bóndi að Arnarvatni, hans kona er Halldóra Jónsdóttir frá Grýtu i Eyjafirði. En stjúpbörn Hólmfriðar eru: Ragna, kona Hreins Sigtryggs sonai' bónda á Egilsstöðum í Flóa, Freydis, kona Geirs Kristjánsson- ar bónda á Álftagerði í Mj^vatns- sveit, Heiður. kona Sigtryggs Jónassonar vélgæzl umanns á Húsavfk, Arnljótur bóndi að sparlega með nýja staura. Ég tel það allt of mikla hógværð af okk- ur, ibúum þessa sveitarfélags, ef við unum þvi enn, að einungis verði tjaslað saman þeim linuslitrum, sem nú liggja á tvist og bast i hörðum sköflum víðs vegar um Höfðahverfi og þeim sfðan tyllt á ónýta staura. Við hljótum að krefjast þess, að það verði einungsi gert til bráðabirgð- ar, en þegar verði úr þvi bætt, er snjóa leysir.með varanlegum frá gangi. Þá verði strengur lagður i jörðu og fyrirhugaður, sjálfvirkur sími komi á hvern bæ eins og þegar er á Greinivík. — Jafn- framt mætti viðbragðsflýtir þeirra þunnskipuðu liðsveita, er Landssíminn hefur á sínum snær- um á þessum slóðum, verða meiri en verið hefur til þessa og víst veitti ekki af varliði í neyðartil fellum. Þessi greinarstúfur er raunar aðeins hluti af mun lengri hug- leiðingu um rafmagns-, síma-, lækna- og siðast en ekki sízt vegamál, sem er hér í smiðum. En mér sýndist ekki rétt að draga það að senda þetta flaustursskrif til birtingar, tilþess að vekja athygli á því, að hér ríkir neyðarástand vegna trassaskapar einhverra og ekki sizt til þess að benda yfir- stjórn simamála á þá staðreynd, að hún verður að kynna sér betur aðstæður og hag þeirrar stofnun ar fjarri höfuðborginni. Við sjá- um ekkert eftir fémunum til greiðslu fyrir góða þjónustu, en hér er hún léleg, já, til skammar fyrir framfarasinnaða þjóð i ár- löngu hátíðarskapi. Laufási 19.2’74. Amarvatni, kona hans er Vilborg Friðjónsdóttir frá Bjarnarstöð- um, Huld ekkja Páls Kristjáns- sonar bókhaldara hjá Húsavíkur- bæ, Sverrir húsasmiður á Akureyri, kona hans er Inga Björnsdóttir læknir s.st. Hólmfriður bjó áfram á Arnar- vatní eftir að hún missti mann sinn, en brá fljótlega búi, enda tóku börn hennar þar við. Hefur hún síðan dvalið til skiptis hjá börnum sínum. Börnum og barna- börnum hefur verið það mikill fengur að hafa hana hjá sér. Stórhríð geisaði i Mývatnssveit er gerði alla vegi ófæra þegar átti að jarðsetja Hólmfriði að Skútu- stöðum 9. þ.m. Fresta varð jarðar- förinni þar til hriðinni slotaði. Birti upp um miðja vikuna og var þá jarðsett i glaða sólskini. Átti það vel við því Hólmfríður hafði verið sólskinsbarn. Fjölmenni var við jarðarförina. Kveð ég svo Hólmfríði með beztu þökkum fyrir allt gott, sem hún veitti mér og minu fólki. í Guðs friði. llulda A. Stefánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.