Morgunblaðið - 27.02.1974, Síða 24

Morgunblaðið - 27.02.1974, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974 Framhald af bls. 21 grafa undan lýðræðislegri upp byggingu þjóðlífsins. Leggur for- sætisráðherrann áherzlu á, að þessar kosningar séu hinar mikil- vægustu frá lokum heimsstyrjald- arinnar síðari og telur einsýnt, að Verkamannaflokkurinn, sem að undanförnu hefur stefnt æ meira til vinstri, muni leiða þjóðina beina leið til glötunar, komist hann til valda. Leiðtogi Verkamannaflokksins, Harold Wilson, fellst ekki aldeilis á slik sjónarmið, enda þeirrar skoðunar að Heath og Ihalds- flokkurinn séu á góðri leið með að gera slíkt hið sama. Hann heldur því fram, að Heath hafi notað verkfall kolanámaverkamanna sem átyllu til skyndikosninga vegna þess, að hann hafi ekki haft neina stjórn á landsmálunum — og svo spili hann á strengi and- kommúnisma til þess að breiða yfir eigið ráðleysi. Enda þótt Heath hafi farið út í kosningaslaginn vegna átakanna við verkalýðsfélögin, einskorðast baráttan ekki við þau, heldur spila þar inn fleiri þættir efna- hagsmálanna, launamálin, oh'u- verðhækkanirnar, olíuframleiðsl- an í Norðursjó, sívaxandi verð- bólgan, atvinnuleysið, húsnæðis- málin og aðild Bretlands að EBE. Wilson tók þá stefnu í upphafi að leggja áherzlu á efnahagsmálin í heild, en halda ekki uppi bein- um vörnum fyrir afstöðu róttæk- ustu verkalýðsleiðtoganna. Hann hélt því fram, að aldrei hefði þurft til verkfallsins að koma, Heath væri einungis að vinna sér fimm ár til viðbótar á valdastóli í stað u.þb. átján mánaða, sem hann hefði átt eftir til loka kjör- tímabils; síðan mundi hann — ef Ihaldsflokkurinn færi með sigur af hólmi — gera sömu samning- ana við námaverkamenn og unnt hefði verið að gera I janúar sl. Hefur Wilson Iagt áherzlu á að Heath muni ekki komast upp með að einskorða kosningabaráttuna við launadeilurnar einar og Heath aftur fyrir sitt leyti sagt, að Wilson muni ekki komast upp með að beina athygli kjósenda frá þessu grundvallarmáli. Óviðráðanleg verðbólga? Reynist fréttin um reiknings- skekkjuna á rökum reist, er lík- legt að þetta þras stjórmálaleið- toganna missi að nokkru leyti marks. Á hinn bóginn eru deilur þeirra um efnahagsmálin sigild- ar, því flokkarnir eru í grund- vallaratriðum á öndverðum meiði. I kosningunum árið 1970 átti það stóran þátt í sigri thalds- flokksins hversu erfiðlega stjórn Harolds Wilsons hafði gengið í viðureign sinni við verðbólguna. Heath taldi þá ekkert því til fyrir- stöðu að Ihaldsflokknum yrði bet- ur ágengt í þeim efnum. Nú hefur reynslan sýnt, að stjórn hans var engu færari hinni fyrri um að halda aftur af verðbólugþróun- inni, þvert á móti hefur hún verið miklu meiri í hennar tíð. Heath hefur að vísu þær málsbætur, að verð á hráefnum hefur hækkað gífurlega á heimsmarkaði á þessu tímabili, svo mjög raunar, að þrír fjórðu hlutar verðbólgunnar eru taldir stafa af þeim sökum. Engu að síður þykir mörgum stjórnin ekki hafa ráðið við verðbólgu- hvatana innanlands og að ráðstaf- anir hennar í þá átt hafi bæði verið of síðbúnar og misjafnlega til tekizt um framkvæmd þeirra. Samkvæmt upplýsingum brezkra blaða hækkaði smásölu- verð í Bretlandi á timabílinu júní 1970-des. 1973 að meðaltali um 34,5%, en verðlag matvæla einna um rúmlega 50%. Að því er blaðið „Guardian" segir, héldu launa- hækkanir nokkurn veginn í við verðhækkanirnar, námu um 50% á tímabilinu. Á sama tíma varð rúmlega helmingshækkun á verði nýrra íbúðarhúsa. Mestar hafa verðhækkanir ver- ið á sl. ári, eða um 20% á matvæl- um. Á síðasta hálfu öðru ári hafa hráefni hækkað upp úr öllu valdi, hveiti t.d. um 155%, kopar um 132% og ull um 150%. Aðild Breta að EBE er sögð hafa haft lítil áhrif á verðið til þessa, en á hinn bóginn hefur komið æ frek- ar í ljós, að spákaupmenn hafa átt sinn þátt í að hraða verðbólguþró- uninni. Stefna Heaths hefur verið að takmarka launa- og verðhækkanir við ákveðin mörk í samræmi við heildarstefnu sína í efnahagsmál- unum, sem komið var á í nokkrum áföngum. Verkamannaflokkurinn vill beita niðurgreiðslum í mjög auknum mæli til að halda verð- lagi nauðsynja í skefjum og Frjálslyndi flokkurinn leggur alla áherzlu á öflugt verðlagseftirlit ásamt sérstökum verðbólguskatti, er leggja skuli á þá, sem gerist sekir um óeðlilegar hækkanir og aðrar verðbólguhvetjandi aðgerð- ir. Að venju hefur Verkamanna- flokkurinn á stefnuskrá sinni áform um þjóðnytingu i ýmsum greinum; að þessu sinni t.d. í skipa- og flugvélaiðnaðinum, lyfjaframleiðslu og flutninga- starfsemi ýmiss konar, svo ekki sé gleymt olíu og gaslindunum í Norðursjó, Norðursjávarolían hefur orðið æ meira hitamál í kosningabaráttunni eftir því sem á hana hefur liðið og eitt helzta grundvallar deiluatriði flokk- anna, er varða hin andstæðu hag- kerfi sósialisma og kapítalisma. Heath telur þjóðnýtingu olíulind- anna í Norðursjó stórhættulega, þar sem hún muni valda meiri háttar töfum á framleiðslunni sem er ógnar kostnaðarsöm, en við þeim töfum megi Bretar alls ekki eins og ástandið sé nú í orkumálum heimsins. EBE aðildog Enoch Powell. Með veigameiri málum í þessum kosningum er aðild Bretlands að Efnahagsbandalagi Evrópu, sem er geysilega umdeild þar í landi. Wilson hefur marglýst því yfir, að hann muni aldrei sætta sig við þau kjör, sem stjórn Heaths samdi um við EBE; þvi muni Verkamannaflokkurinn beita sér fyrir endurskoðun samningsins komist hann i stjóraraðstöðu. Það vakti feikna athygli og reiði innan Verkamannaflokksins á dögun- um, þegar utanríkisráðherra V- Þýzkalands lýsti því yfir, að samn- ingur Breta við EBE væri i fullu gildi, þó að ný stjórn tæki við. Þessi ummæli sagði Wilson að væru íhlutun í brezk innanríkis- mál og gerði sér úr þeim þann mat, er hann mátti. Deilurnar um aðild að EBE hafa þó haft enn meiri áhrif inn- an Ihaldsflokksins, því þar til- kynnti hægrisinninn kunni, Enoch Powell, að hann mundi ekki fara 1 framboð fyrir íhalds- flokkinn undir forystu Heaths og átti hann þó kosningu vísa. Byggði Powell afstöðu sína aðal- lega á EBE aðildinni, sem hann er ákaflega andvígur. Framan af hvatti Powell stuðningsmenn sína til að sitja heima á kjördegi en í síðustu viku gekk hann feti fram- ar og tók að hvetja til stuðnings við Verkamannaflokkinn. Powell er talinn gera þetta með það í huga að reyna að ná forystu i Ihaldsflokknum, fari hann hall- oka í kosningunum nú. Komist flokkurinn í stjórnarandstöðu að þeim loknum, má búast við hörð- um átökum um forystu hans og framtíðarstefnu. Svipað er talið, að verði uppi á teningnum innan Verkamanna- flokksins, bíði hann umtalsverðan ósigur. Þar hafa róttæk öfl gerzt æ umsvifa- og áhrifameiri á und- anförnum árum og þykir mörgum hógværari jafnaðarmönnum sem Wilson hafi gerzt þeim full und- anlátssamur. Fram hefur og kom- ið I fréttum, að kosninga- og blaðamannafundir Wilsons hafi verið heldur bragðlitlir og gæti það með öðru ef áfram heldur stuðlað að því, að hann neyddist til að víkja úr forystu. Þess er þó að gæa, að innan Verkamanna- flokksins takast á mjög andstæð sjónarmið og Wilson hefur þótt öðrum færari um að halda flokkn- um saman. Hvað gerist innan flokkanna, ef hvorugur nær meirihluta og Frjálslyndi flokkurinn fær sterka oddaaðstöðu, treysta menn sér ekki um að spá. Leiðtogi hans, Jeremy Thorpe, hefur sagzt ófus að ganga til samstarfs við stóru flokkana, en eftir er að sjá hvað hann gerir andspænis stjórnar- kreppu. Hvernig sem sú stjórn verður skipuð, er við tekur í Bretlandi á næstu vikum, er það eitt Ijóst, að hún fær ærin viðfangsefni við að glíma og má hafa sig alla við, ef takast á að rífa brezku þjóðina upp úr þeim eymdardal sem hún hefur verið í að undanförnu. —mbj. Bátar til sölu 1 2 tonna, byggður 1971. 42 tonna, byggður 1 946. 60 tonna, byggður 1 957. HUSEIGNIR ^■&SKIP VELRJSUNOM SiMI »444 dHK Háseti Einn háseta vantar á góðan 80 rúm- lesta netabát frá Snæfellsnesi. Upplýsingar í síma 83058 eða 25250, Reykjavík. Háseti Háseta vantar á m/s Hraunsvík til netaveiða. Góð kjör fyrir vanan mann. Upplýsingar í síma 92-8239 eða 92- 8334, Grindavík. Matsvein og háseta vantar á netabát frá Eyrarbakka, sem er að hefja róðra. Upplýsingar í síma 99-3133. Starfsstúlkur óskast í Heilsuhæli NLFÍ Hvera- gerði nú þegar. Upplýsingar hjá ráðskonunni kl. 9 til 12 og 17 til 18 sími 99-4201. Ungur Samvinnuskólamaður, sem hefur fjögurra ára reynslu í skrifstofustörfum m.a. toll- og bankaviðskipti, verðútreikningur, bók- hald, skrifstofustörf frystihúsa, og önnur almenn skrifstofustörf, óskar eftir atvinnu hvar sem er á landinu, tilboð um launakjör sendist til Morgunblaðs- ins merkt 1005—5191 fyrir 10. marz. Oskum aÓ ráÓa konu til ræstingarstarfa., Brauðbær, veitingahús, Þórsgötu 1. Símar 25640 og 25090. Oskum aÓ ráBa stúlku til eldhússtarfa. Uppl. á staðnum. Kráin, veitingahús, við Hlemmtorg. Sími 24631. Verkamenn óskast Aðalbraut hf., Sími 81700 Vanan stýrimann og háseta vantar á netabát. Uppl. í síma 20028. Fjósamaóur Bændaskólinn á Hvanneyri óskar að ráða vanan fjósamann nú þegar. Upplýsingar gefur bústjóri. Bændaskólinn á Hvanneyri. Ræstingarkona óskast Uppl. í dag miðvikudaginn 27./3. á tannlæknastofunni Kleifarvegi 6 kl. 5.30—6. Hallur Hallsson, tannlæknir. AfgreiÓslumaÓur óskast Starfssvið: Sala og útskrift á bygg- ingarvörum. Upplýsingar veittar á skrifstofunni, Súðarvog 3, Húsasmiðjan h/f.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.