Morgunblaðið - 27.02.1974, Síða 25

Morgunblaðið - 27.02.1974, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974 25 Loftur Júlíusson: íslenzka flotvarpan í Morgunblaðinu 9. febr. s.l. er heil opnugrein eftir blaðamann- inn Þ.Ö. með fyrirsögninni ,,ís- lendingar kunna ekki að notfæra sér flotvörpuna'*. Það er alltaf ánægjulegt þá sjaldan sem dag- blöðin koma með fréttir eða lýs- ingar af lífinu um borð i fiskiskip- um okkar úti á miðunum eða við land, og störfum sjómanna þar um borð. Grein þessi er prýdd skýrum og skemmtilegum myndum af ýms- um störfum mannskapsins um borð í viðkomandi skipi, sem er einn afmörgu, nýjuskuttogurum okkar. En aðalinntak greinarinn- ar er tilraun togarans við notkun flotvörpu, með sérfræðing Sim- rad-verksmiðjanna, Stefán Jóns- son, um borð, og skipið útbúið fullkomnustu Simrad-tækjum til að auðvelda notkun hennar í drætti. Reyndar tekur Valgarð Briem hrl. grein þessa til umtals i Morg- unbl. 14. þ.m. og kemur þar fram með mikilsvarðandi staðreyndir varðandi flotvörpuna, og varpar fram spurningunni: Hvað getur valdið því, að tslendingar, sem þannig voru brautryðjendur i notkun flotvörpu i apríl 1952, hafa gætt svo illa vöku sinnar, að aðrar þjóðir hafa tekið þar frum- kvæði, og við ekki haldið til jafns við þær um notkun afkastamestu veiðitækjanna. Hér er eitthvað að, sem þjóðarnauðsyn er að lag- færa. Lestur greinarinnar, sem er mjög athyglisverð, gefur mér til- efni til að koma á framfæri nokkr- um tímabærum athugasemdum og upplýsingum, með því að benda á eftirfarandi. Það voru einmitt íslenzkir tog- araskipstjórar og sjómenn, sem voru fyrstir allra þjóðar til að búa til og notfæra sér flotvörpu um borð i togurunum, og var þar fremstur í flokki Bjarni Ingimars- son skipstjóri á b/v Neptúnusi. Nýsköpunartogararnir tóku þetta allir upp hver af öðrum á Selvogs- bankanum með mjög miklum og góðum árangri, og án nokkurs sér- staks tæfcjaútbúnaðar annars en hins venjulega Huges-pennarita dýptarmælis, sem þá var í notkun í öllum nýsköpunartogurunum. í vörpuna veiddist aðalega þorsk- ur, ufsi og ýsa, fiskur, sem allur var í hrygningarástandi uppi i sjó. Það, sem kom þeim á sporið við að ná þeim góða árangri, sem náð- ist við veiðarnar, var hyggjuvit og útsiónarsemi skipstjóranna sjálfra, og hins góða mannskaps, sem þeir höfðu um borð. Geta má þess, að margir af þessum mönn- um eru enn á lífi á bezta aldri, sumir hverjir ennþá í skipstjóra- stöðum, aðrir komnir i land i ým- iss konar störf. Það væri verðugt verkefni fyrir blaðamann frá Morgunblaðinu að ræða t.d. við Bjarna Ingimarsson og fá ná- kvæmar upplýsingar um upphaf og reynslu okkar íslendinga af flotvörpuveiðunum frá þessum árum. Eins og ég gat hér um að fram- an, þá veiddist geysimikið magn af vertiðarþorski í þessar vörpur, eftir t.d. 10—30 mínútna tog fékkst allt upp i 20—30 tonn af ríga þorski, og eftir 8—10 klst. næturfiskirí var komið dekkfylli og legið í aðgerð fram eftir öllum degi. Margir skipstjórarnir létu út- búa sjálfir sínar flotvörpur um borð í togurunum á miðunum, en ekki af neinum netafagmönnum í landi. Flotvörpur þessar voru þannig útbúnar, að yfir- og undirnetið var það sama að möskvastærð og lögun, en án netavængja, 60—80 fet á lengd með 36—40 feta hlið- arstykkjum (á dýpt), sem smá mjókkuðu niður eftir belgnum og niður í poka. Neðri partur vörp- unnar var þyngdur niður með gúmífótreipum, en á höfuðlinu voru nokkrar flotkúlur. Efni vörpunnar var úr hampai og var mun þyngra í drætti en þau neta- efni, sem nu tíðkast. Hlerar voru þeir sömu og notaðir voru við botn vörpuna. Við veiðarnar voru vírar hafðir rúmlega tvöfalt lengri en dýpið, sem fiskitorfurnar stóðu á hverju sinni, og togað með hægari ferð en með botntrollinu (1 sjóm. minna). Þó var þetta breytilegt eftir sjólagi og veðurfari, með tog- ferð og vfranotkun. Nauðsynlegt yar að hafa mann til að fylgjast með vírunum í tog- blökkinni, en sá maður varð alltaf að hafa hönd á vírunum og fylgj- ast með og segja til um hvort toghlerarnir snertu botninn. Van- ur maður fann það strax. Einnig gat hann sagt til um þegar mikill fiskur var kominn í trollið, en þá drógust vírarnir saman i tog- blökkinni. Við trollspilið þurfi alltaf að standa maður, til að hifa og slaka út vírum eftir því á hvaða dýpi fisklóðningarnar stóðu á, en skipstjóri fylgdist með öllu í brúnni (dýptarmælislóðn- ingunum) og kallaði út sínar fyr- irskipanir til mannsins við spilið upp á að slaka eða hífa, en mikla nákvæmni þurfti að viðhafa hvað mikið af vfr var slakað út eða híft inn hverju sinni. Hægt var að draga vörpuna með þessum hætti alveg niður undir botn og hátt upp í sjó ef þvf var að skipta án þess að hún rifnaði. Notkun islenzku flotvörpunnar stóð yfir á árunum frá 1952 fram til 1958—60, og þá aðallega á Sel- vogsbanka yfir hrygningartímann marz—apríl, (sama tíma og á norsku fiskimiðunum), annan tíma ársins þýddi ekki að reyna við að taka fisk í flotvörpu hér við land, vegna þess hvað hann var dreifður og mikið á hreyfingu uppi um allan sjó. Menn verða að hafa i huga í hvaða ástandi fiskur er, sem veiddur er í flotvörpu. Fiskurinn á Selvogsbanka var í hrygningarástandi og stóð i þykk- um torfum án þess að hreyfa sig með sporðinn upp og hausinn nið- ur, þannig að mjög auðvelt var að komast að honum og ná honum í vörpuna með fyrrgreindum að- ferðum. En fiskurinn á Selvogs- banka fór hraðminnkandi á þess- um árum og endaði með, að ekki þótti borga sig að draga með flot- vörpu eftir öllum Selvogsbankan- um án nokkurs teljandi árangurs. Það má reyndar segja, að flot- varpan hafi átt sinn þátt í að drepa niður og eyðileggja þorsk- stofninn á Selvogsbanka. Síðan flotvarpan var tekin í notkun þar árið 1952 hefur ekki sézt þar nokkurt fiskimagn svo teljandi er, miðað við það, sem þar var á þessum árum. Það litla magn af fiski, sem þangað gengur til að gera sit(, gag'n er drepið af neta- bátum. Af íslenzku flotvörpunni er það að segja, að patentið var selt til Englands, og varpan framleidd af Coal & Salt í Grimsby, þar kaupi ég vörpuna fyrir norskt útgerðar- fyrirtæki árið 1955 og er það fyrsta flotvarpan, sem Norðmenn festa kaup á, en taka hana ekki i notkun mér vitandi fyrr en mörg- um árum seinna, þegar þeir voru komnir með sina skuttogara í gagnið. Hvernig Þjóðverjar komust yfir flotvörpuna islenzku veit ég ekki, en þeir byrja að nota hana með tilkomu sinna skuttogara eftir ár- ið 1962, og með þeirn tækjabún- aði, sem þessi skip höfðu upp á að bjóða, einbeita þeir sér með mikl- um tilraunum, og með mikilli leynd við að ná árangri, sem og þeim tókst, en athyglisvert er það, að Þjóðverjar hafa aðeins náð mjög góðum árangri við flot- vörpuveiðar á síldveiðum og karfaveiðum á þeim timum, og aðeins þegar fyrrgreindar fiskteg- undir eru í þykkum torfum og veiðanlegu ástandi. En hafa aldrei gefið upp neina veiði á þorski í flotvörpuna. Um Englendinga er það að segja, að þeir hafa lítið borið við að veiða fisk i flotvörpu, nema þá á allra siðustu árum að þeir gera tilraunir með að ná einhverjum árangri. Um veiðar Norðmanna með flotvörpu með góðum árangri i Hvitahafi að hausti til nóv. — des. skal ég ekkert segja um, en fróð- legt væri að vita hvort hér er um að ræða þorsk eða einhverjar aðr- ar fisktegundir. Staðreyndin er sú, að með til- komu skuttogaranna og alls tækjabúnaður þeirra, sem fleygir óðum fram á við, þá hafa viðkom- andi þjóðir náð athyglisverðum árangri með notkun hinnar is- lenzku flotvörpu, á sama tímabili sem okkar togaraútgerð féll niður í djúpa lægð, sem næstum gekk að henni dauðri, og er það ein aðalá- stæðan fyrir því, að við, sem upp- hófum þennan veiðiskap með okkar nýju togurum uppúr stríðs- árunum, sitjum nú aftast á mer- inni eins og Stefán Jónsson bend- ir réttilega á. En hverjum er um að kenna? Það er eins og við lærum aldrei neitt af reynslunni. Eftir stríðsárin eru keyptir 50 ný- sköpunartogarar á einu bretti, síðan liða ein 23 ár án þess svo teljandi sé, að keyptur er einn einasti togari, þá er farið af stað aftur og einir 50 skuttogarar keyptir á sama hátt. Hvað gerist svo næst? Endurtekur sagan sig aftur, eða eigum við að vera skyn- samir og halda i horfinu og fylgj- ast með þróuninni á eðlilegan hátt. Það tekur sinn tíma að þjálfa upp mannskap og nýja veiðitækni á stóran skipaflota, með nýtizku tækjaútbúnaði, sem við íslendingar vorum allsendis ekki undirbúnir að taka á móti, en við eigum færustu fiskimenn, sem fljótir eru að tileinka sér nýjungarnar, og þeir eiga eftir að komast upp á lag með að nota flotvörpuna með ekki siðri ár angri en við hér á árunum, og komast skrefi framfyrir viðkom- andi þjóðir í veiðiskap. Það er mín trú. 4.2.1974. Loftur Júlíusson Kvisthaga 18. Gísli Ag. Gunnlaugsson skrifar frá Bretlandi: Skyndilegur vöxtur Frjálslynda flokksins Norwich, 19.2. 1974. í þann mund sem flestir voru hættir að búast við nýjum þing- kosningum hér í Bretlandi í bráð, boðaði Edward Heath til þeirra hinn 28. febrúar á þingi fyrr í þessum mánuði. Upphaf- lega var ráð fyrir gert að Heath mundi boða til nýrra kosninga í byrjun febrúar. Kom þar hvort tveggja tíl, að almennt var talið að vinnudeila námaverka- manna yrði ekki leyst fyrr en að afstöðnum þingkosningum og jafnframt hitt að staða Heaths og íhaldsflokksins var talin nokkuð trygg um þær mundir eða í lok janúar. Öllum á óvart greip Heath ekki til kosninga þá, heldur kaus að bíða og sjá hver framvinda mála yrði. Eftir þetta gerðist vinnudeila námaverkamanna flóknari og erfiðari úrlausnar. Boðað var til allsherjarverk- falls þeirra og þótti sýnt, að verkfallið gæti hvort tveggja orðið langvinnt og haft enn frekari lömunaráhrif á brezkan iðnað en þegar var orðið. Og upp úr þessu greip Heath til þess ráðs, eins og áður sagði, að kveðja til nýrra þingkosninga hinn 28. febrúar næstkomandi. Kosningabaráttan fór geyst af stað, enda ekki nema um þrjár vikur til kjördags. Dag- skrártími sjónvarps var þegar færður í fyrra horf, eftir að hafa verið styttur verulega af völdum orkuskorts síðan í desember. Framboðsfundir hafa verið tíðir og fjölsóttir í flestum kjördæmum og þá hafa dagblöðin varið umtalsverðu rúmi til pólitiskra skrifa. Ekki verður heldur gengið framhjá þætti hljóðvarps og sjónvarps í kosningabaráttunni. Sérstakir dagskrárliðir hafa verið teknir upp f sjónvarpi helgaðir kosn- ingabaráttunni, annars vegar í formi fyrirspurnaþátta og á hinn bóginn i formi útsendinga af hálfu þingflokkanna. Þá hafa fréttatimar þessara fjöl- miðla mjög borið svip af fram- gangi kosningabaráttunnar og úrdrættir birtir úr ræðum og atburðum helztu framboðs- funda. Fram til þessa hefur kosn- ingabaráttan einkum snúizt um efnahags- og verðlagsmál. Þessi málaflokkur hefur verið stjórn íhaldsflokksins æði þungur í skauti allt frá upphafi yfir- standandi kjörtímabils og stjórnin átt í höggi við sívax- andi verðbólgu og gengisfali pundsins á alþjóðamarkaði. Þessir erfiðleikar hafa síðan undanfarna mánuði ágerst til muna, þar sem þeir hafa flétt- ast inn i hið ótrygga atvinnu- ástand, sem hefur mótast af verkföllum i ýmsum þýðingar- meiri framleiðslu- og flútninga- greinum. Orkuskortur, stytt vinnuvika og verðhækkanir á innfluttu hráefni, allt hefur þetta lagst á eitt við að gera efnahags- og stjórnmálalegt ástand hér í Bretlandi næsta ótryggt. Af eðlilegum ástæðum hafa þessi mál því mótað alla pólitíska umræðu kosningabar- áttunnar. Heath hefur af and- stæðingum sínum og þá einkum Harold Wilson leiðtoga Verka- mannaflokksins, varið harðlega gagnrýndur fyrir stefnu stjórnarinnar i þessum málum. Vissulega má segja að stjórn efnahagsmála hafi í þessari stjórnartið íhaldsflokksins ekki verið eins styrk og sannfærandi og vera skyldi. En hinu má ekki gleyma, að verulegar verð- hækkanir hafa átt sér stað i ýmsum meiriháttar innflutn- ingsgreinum og jafnframt liggja rætur þessa efnahags- vanda að nokkru leyti í efna- hagsstefnu undangenginna ára, bæði i og fyrir valdatíð Wilsons sjálfs. En hver eru líklegustu úrslit þingkosninganna? Um það er erfitt að spá. Viðbrögð Heaths við innanlandsvanda síðustu mánaða voru í upphafi mjög gagnrýnd, en hafa síðan reynst vera rétt og timabær. Af þessum sökum hefur staða hans og íhaldsflokksins batnað til muna. Hins vegar hefur fylgis- flutningur milli flokka ætið verið mjögör og umtalsverður í brezkum stjórnmálum, og nú þegar mikil spenna er rikjandi á flestum sviðum brezks þjóð- lifs, getur þessi þáttur haft úr- slitaáhrif, ekki sízt þegar tillit er til þess tekið, að skoðana- kannanir sýna verulega dag- lega fyigissveiflu. Þó hafa allar skoðanakannanir sem fram- kvæmdar hafa verið frá upphafi kosningbaráttunnar sýnt fremur nauma forustu íhaldsflokksins yfir Verka- mannaflokknum. Þess ber þó að gæta, að Verkamannaflokkn- um hefur jafnan gengið betur að tjónka við verkalýðsfélögin en íhaldsflokknum, og getur þetta orðið honum til fram- dráttar nú, þannig að kjós- endur greiði honum atkvæði sitt í von um tryggara atvinnu- ástand. En það sem þó öllu öðru fremur er athyglisvert við þær skoðanakannanir, sem birtar hafa verið, er hin mikla fylgis- aukning Frjálslynda flokksins. Frjálslyndi flokkurinn hefur eftir fyrri heimsstyrjöldina verið næsta áhrifalitið afl i brezkum stjórnmálum. Blóma- skeið hans var 19. öldin og þá einkum það timabil hennar er hann laut forustu Gladstone, einhvers litríkasta stjórnmála- manns Breta fyrr og síðar. Nú síðustu ár hefur flokkurinn svo sem vaknað af löngum dvala og er skemmst að minnast sigra hans og fylgisaukningar i auka- kosningunum i haust. Það er einkum skelegg forusta og per- sónufylgi leiðtoga flokksins, Jeremy Thrope, sem hefur valdið þessum skyndilega vexti hans. Thrope hefur staðið sig frábærlega i kosningabarátt- unni og sýna skoðanakannanir jafna og markvissa fylgisaukn- ingu flokksins. Þrátt fyrir að Frjálslyndi flokkurinn sé á eng- an hátt líklegur til stjórnarsetu að sinni, getur þessi öri vöxtur hans engu að siður ráðið úr- slitum kosninganna. Undan- farna daga virðist hann einkum hafa dregið fylgi frá Verka- mannaflokknum og haldi svo áfram eykur hann mjög á líkur þess að íhaldsflokkurinn haldi velli. Þó verður að hafa i huga, að enn eru níu dagar unz brezk- ir kjósendur ganga að kjörborð- inu og kosningabaráttan enn í hámarki. Og þrátt fyrir að nú líti út fyrir sigur íhaldsflokks- ins getur næsta vikaskipt sköp- um og með tilliti til hinnar geig- vænlega öru og óræðu fylgis- sveiflu brezkra stjórnmála, er vafalaust enn allt of snemmt að spá með nokkurri nákvæmni um kosningaúrslitin. I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.