Morgunblaðið - 27.02.1974, Side 26

Morgunblaðið - 27.02.1974, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974 t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÓLAFÍAG. HAFLIÐADÓTTIR. Stórholti 43, lézt í Landspítalanum 26. febrúar. Sigriður Ólafsdóttir, Björn Óskarsson, Margrét Sigbjörnsdóttir, Guðmundur Óli Ólafsson og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞURÍOUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Stóra-Knarrarnesi, Vatnsleysuströnd, lézt að heimili dóttur sinnar, Heiðarbrún 9, Keflavik, mánudaginn 25. febrúar. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir okkar, LOVÍSA JÓNSDÓTTIR, Þingvallastræti 20, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri laugardaginn 24. febrúar s.l. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 5. marz n k kl. 13.30 Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað, en þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir María Jónsdóttir Ström, Jón Árni Jónsson, Mikael Jónsson, Kristján Jónsson, Tryggvi Jónsson. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNLAUGURMARKÚSSON, Munkaþverárstræti 12, Akureyri, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu, Akureyri, sunnudaginn 24. febrúar. Sigrún Gunnlaugsdóttir, Halla Gunnlaugsdóttir, Þráinn Jónsson, Kolbrún Gunnlaugsdóttir, jön B. Helgason, Anna Sverrisdóttir, Frank W. Shaw og barnabörn. Útför, GUNNÞÓRS BJARNASONAR, Bergstaðastræti 20, fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 28 febrúar kl. 1.30. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna, Börn hins látna. t Útför móðursystur minnar, MATTHILDAR SVEINSDÓTTUR, fer fram föstudaginn 1. marzkl. 2. e.h. frá Akraneskirkju. Sturlaugur H. Böðvarsson. t Hjartanlega þökkum við öllum, sem sýndu vinarhug við andlát og útför móður okkar, STEFANÍU ÓLAFSDÓTTUR, frá Hofi á Höfðaströnd. Margrét Björnsdóttir, Anna Björnsdóttir, Sigurlína Björnsdóttir, Sigurlaug Björnsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Andrés Björnsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, MATTHILDAR HALLDÓRSDÓTTUR, Garði. Sérstakar þakkir til Kvenfélags Nessóknar. Guðný Benediktsdóttir, Skarphéðinn Guðmundsson, Hólmfríður Benediktsdóttir, Guðjón Jónsson, Skafti Benediktsson, og barnabörn. Elsa Magnúsdóttir, Hólmfríður Péturs dóttir - Minning Fædd 17. desember 1889 Dáin 1. febrúar 1974 Hinn 1. febrúar s.l. andaðist á sjúkrahúsinu á Húsavík Hólm- fríður Pétursdóttir frá Gautlönd- um, síðar húsfreyja á Arnarvatni. Þegar ég heyrði andlátsfregninga rifjuðust upp ljúfar minningar, langaði mig því til að senda þess- ari gömlu vinkonu minni kveðju að leiðarlokum. A bernskuárum mínum heyrði ég oft getið um heimilið á Gaut- löndum í Mývatnssveit, þar bjó Pétur faðir Hólmfríðar. Faðir hans var Jón Sigurðsson alþm. S-Þingeyinga í nærri 30 ár. Möðir Péturs var Sólveig Jónsdóttir prests i Reykjahlíð Þorsteinsson- ar, eru ættir þær kunnari en frá þurfi að segja. Eftir fráfall Jóns á Gautlöndum leið ekki á löngu þar til Pétur sonur hans tók við sveitar- og sýsluvöldum þeim, er faðir hans hafði áður haft á hendi. Hann var þingmaður S-Þingeyinga í nær 30 ár frá 1894 til æviloka, en hann andaðist skömmu eftir áramót 1922. Pétur á Gautlöndum kom oft á heimili foreldra minna. Fað- ir minn og hann'voru góðir vinir og áttu mörg sameiginleg áhugamál, sem rædd voru af áhuga og bjart- sýni. Auðheyrt var á máli þeirra, að ný öld var að rísa, sem bjartar vonir voru tengdar við. Pétri var ávallt vel fagnað heima. Er mér minnisstæður hlátur hans og gleði, þegar því var að skipta. Pétur var mjög vinsæll i sinu hér- aði og naut óskoraðs trausts sýslu- búa. Þá heyrði ég oft getið barnanna á Gautlöndum, sem misstu móður sína, Þóru Jónsdóttur frá Græna- vatni, þegar yngsta barnið Þórleif fæddist. Bót var þó í máli, að litla stúlkan var tekin í fóstur á heim- ili sýslumannshjónanna á Húsa- vík, Steingrims föðurbróður hennar og frú Guðnýjar móður- systur hennar, sem reyndust henni ávallt sem beztu foreldrar, enda voru þau mestu sæmdar- hjön. En nærri má geta, að mikið áfall var það heimilinu á Gaut- löndum að missa svo mikilhæfa konu sem Þóra var. Snemma fór orð af þvi, hvað börnin á Gautlöndum þóttu bera af ungu fólki af gjörvileik, en þau voru fimm heima, Sólveig, Kristj- ana, Hólmfríður, Jón og Þuríður, sem dó á barnsaldri. A unga aldri þurftu systurnar að taka að sér bústjórn á heimilinu. Var til þess tekið, hve heimilisfólkið var sam- hent um að haldaöllu í horfinu og sýna heimilinu þá tryggð og rækt- arsemi, sem kostur var á. Gaut- landsheimilið hafði löngum verið menningarheimili. Kennari var fenginn til að kenna börnunum, þá var ekki komin á skölaskylda, og nutu þess börn og unglingar úr nágrenninu. Vinnufólkinu á bæn- um var einnig gefinn kostur á að njóta kennslunnar. Enginn mátti verða útundan. Jón Gauti, eini sonur þeirra Gautlandshjóna og Hólmfríður voru tvíburar, f. 17. des. 1899. Voru þau ávallt mjög samrýnd og margt var þeim sam- eiginlegt. Þau höfðu bæði hug á að menntast, vildu skyggnast yfir fjallið og sjá hvað „hinum megin býr“. Unglingaskóli var á Skútustöð- um veturinn 1903—1904. Kennari skólans var Sigurður Jónsson á Arnarvatni. Sóttu systkinin skól- ann og fengu byr undir vængi. Haustið 1906 fara þau í gagn- fræðaskólann á Akureyri, sem nú er menntaskólinn á Akureyri og setjast f 2. bekk. Þótti það vel af sér vikið, en þau voru bæði skörp tii náms. — Lítið var þá um að stúlkur færu í skóla, fyrir þeim voru viðast lokaðar dyr, t.d. var það hrein undantekning að stúlk- ur fengu að taka stúdentspróf. Veturinn 1907—1908 halda þau systkin kyrru fyrir heima á Gaut- löndum, en koma aftur í skólann haustið 1908. Þá var faðir minn nýlega tekinn við skólastjórn og kynntist ég þá Hölmfríði fyrst. Hún var í heimavist, bjó á suður- vistum með Ingibjörgu Bene- diktsdóttur skáldkonu. Mér varð undir eins starsýnt á heimasæt- una frá Gautlöndum, glæsileg var hún í peysufötunum sínum með fallega liðaða hárið undir skott- húfunni, björtu augun og glaða og hreina hláturinn. Og svo var margt annað, sem vakti eftirtekt. Ilún gat haldið snjallar ræður á skólafundum og við hátíðleg tæki- færi í vinahópi. Oft komu greinar eftir hana f „skólapiltinn“, er þóttu athyglisverðar og vel skrif- aðar. Lítið var þá um að konur rituðu í blöð eða héldu ræður á mannfundum, en Hólmfríður gat allt. Þá gleymi ég ekki, hve hlý og góð hún var við mig, krakkann 11 ára. Hún sótti mig oft og lofaði mér að sitja hjá sér á skólafund- um, eins og ég hefði vit að því sem þar gerðist. Sliku átti ég ekki að venjast. Fyrir þetta dáði ég hana og óskaði þess, að mér auðnaðist, er tímar liðu, að ná með tærnar þar sem hún hafði hælana. Börn eru oft hrifnæm, finna hvað að þeim snýr og gleyma ekki því, sem vel er gert. Vorið 1909 luku þau systkinin gagnfræða- prófi með ágætum vitnisburði. Var þeirra sárt saknað, er þau hurfu aftur heim f sveitina sina. En dálætið rénaði ekki þó að vík yrði milli vina og strjálir sam- fundir. Hólmfríður stóð mér á- vallt fyrir hugskotssjónum sem fyrirmynd íslenzkra kvenna. Þegar ég kynntist Hólmfríði var vor í lofti. Sjálfstæði íslands var þá efst í huga fólksins, jafnrétti kvenna og önnur réttinda- og framfaramál voru einnig til um- ræðu. Það þurfti víða að leggja góðu máli lið. „Áfram lengra ofar hærra“, var sungið í skólanum og skóla- kveðja sr. Matthíasar: „Margt er að læra ljúfu mennta- vinir en listin æðst er þó að verða menn ...“ Skólasöngvarnir kváðu við á göngum skólans og fóru sem eldur um ungar sálir. Hólmfriður var vakandi fyrir því, sem var að gerast með þjóð- inni og fús til liðsinnis. Hún var frjálslynd í skoðunum, laus við að vera dómhörð, vildi vera sann- gjörn en þó raunsæ. Glaðlynd var hún að eðlisfari og flutti mé sér kátínu og gleði. Hún var félags- lynd og tók snemma virkan þátt í félagslífi sveitarinnar, var styrk stoð ungmennafélagsins og síðan stofnaði hún samtök kvenna inn- an sýslunnar. Hún trúði því fast- lega, að konur gætu lyft grettis- taki, stæðu þær saman. Vorið 1914 var hún einna fremst í flokki, er Samband norð- lenzkra kvenna var stofnað á Akureyri með Halldóru Bjarna- dóttur i fararbroddi. Sat hún marga sambandsfundi sem full- trúi þingeyskra kvenna. Þótti hún ávallt málsnjöll og tillögugóð, var hennar saknað, ef hún kom ekki til fundar. I mörg ár var hún kjörin á þing Kvenfélagasam- bands Islands og hvarvetna lét hún mikið til sín taka. Kvennasamtökin beittu sér mikið fyrir menntun kvenna og þá einkum fyrir aukinni hús- mæðrafræðslu. Konum var Ijóst, er fólki tók að fækka á heimilum, að eitthvað yrði að gera til að styðja heimilin í baráttunni við þær breytingar, er urðu á lifnað- arháttum þjóðarinnar. Aður var flest numið í heimahúsum, nú risu skólar víðs vegar á landinu, öllum var þar frjáls aðgangur. Verkleg kennsla var þó viða höfð útundan. Kvenfólkið undi því illa og tók mál heimilanna á sína stefnuskrá. Heimilunum var þó ætlað að sjá um uppeldi þjóðar- innar að mestu leyti. Þau áttu að kenna og viðhalda heilbrigðum lifnaðarháttum og standa vörð um íslenzkan menningararf. Á Norðurlöndum höfðu hús- mæðraskólar starfað í áratugi við góðan orðstir. Var ekki einnig þörf fyrir þá hér? Konurnar trúðu því og beittu kvennasam- tökin sér fyrir því að svipaðir skólar yrðu stofnaðir hér á landi í von um að frá þeim streymdi sú lífsorka, er gerði húsfreyjum framtíðarinnar kleift að standast erfiðleika daglegs lífs. Heimilin voru máttarstoðir þjóðarinnar, að þeim þurfti að hlynna eftir mætti. Samband þingeyskra kvenna varð einna fyrst til að setja á stofn húsmæðraskóla að Laugum i Reykjadal. Kristjana Pétursdótt- ir, systir Hólmfríðar, var fyrsta forstöðukona skólans. Stýrði hún skólanum með miklum glæsibrag meðan lif entist, en hún dó langt fyrir aldur fram, árið 1946. Var Framhald á bls. 23. t Útför ÞÓRUNNAR GUÐBRANDSDÓTTUR, fer fram frá Dómkirkjunni i Reykjavík, fimmtudaginn 28 febrúar kl. 1 30. F.h. systkina, frændfólks og vina. Ólöf Steingrímsdóttir. t Þökkum inmlega auðsýnda samúð og vináttu við andlát oq útför SIGURRÓSAR BÖÐVARSDÓTTUR, Óðinsgötu 5. Jósefina Björgvinsdóttir, Hermann Björgvinsson, Hulda Björgvinsdóttir, Marteinn Björgvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Björgvin Hermannsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, BRYNHILDAR BJÖRGVINSDÓTTUR, Óðinsgötu 3. Ása Björk Snorradóttir, Kristinn Aadnegaard, Auður Snorradóttir, Tómas Ragnarsson, barnabörn og systkini.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.