Morgunblaðið - 27.02.1974, Síða 29

Morgunblaðið - 27.02.1974, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974 29 fclk í fréttum Sjónvarpsmynd um Irving-hjónin Þýzkir sjónvarpsmenn láta sér ekki allt fyrir brjósti orenna. NU eru þeir búnir að gera sjónvarpsmynd um mál bandariska rithöfundarins Clif- ford Irving, en hann falsaði ævisögu um dularfulla milljarðamæringinn Howard Hughes og seldi bókaútgáfu- fyrirtæki bókina fyrir offjár. Og Þjóðverjarnir hafa kapp- kostað að taka sjónvarps- myndina á réttum stöðum, til að gefa henni aukið gildi. Á meðan Clifford sat í fangelsi i Bandaríkjunum og Edith kona hans sat í fangelsi í Sviss, lögðu þýzku sjónvarpsmennirnir und- ir sig hús þeirra hjóna á spönsku eynni Ibiza og kvik- mynduðú af krafti. Mótmæli Irvings gegn þessu höfðu engin áhrif á Þjóðverjana, en þó tókst Irving með aðstoð vina sinna að koma í veg fyrir, að synir hans tveir væru látnir leika sjálfa sig í myndinni. En framleiðandi myndarinnar lét þá bara börnin sin sjá um þá hlið málanna. Með hlutverk Cliffords fór Horst Frank og í hlutverki Edith var Judith Winter. Ná- grannar Irving-hjónanna á Ibiza voru samstarfsfúsir við Þjóðverjana og léku sjálfa sig endurgjaldslaust. Á efri myndunum sjást annars vegar Irving-hjónin með synina tvo og hins vegar þýzku leikararnir í húsinu á Ibiza. Fyrir neðan til vinstri er mynd, sem tekin var af Edith Irving á tröppum hússins, í miðjunni mynd af Judith hinni þýzku á nákvæmlega sama stað og til hægri er mynd af börnum fram- leiðandans, sem fara með hlut- verk í myndinni. Leikarinn í bankabransanum Bandaríski kvikmyndaleik- arinn Burt Reynolds hefur lagt talsvert af gróða sínum að und- anförnu í hlutabréf í banka i Kansas. Hefur hann mikinn áhuga á uppgangi bankans og hefur heitið því að bjóða öllum þeim út að borða, sem leggja yfir 300 þús. kr. í einu inn i bankann. Til hamingju með afmælið Georges Carpentier, franskur hnefaleikakappi, sem tók heimsmeistaratitilinn i þunga- vigt af bandaríska hnefaleik- aranum Jack Dempsey árið 1921, hélt nýlega upp á 80 ára afmæli sitt í Paris. Dýrlingurinn í vanda? Roger Moore, öðru nafni Dýr- lingurinn, Lord Sinclair eða James Bond, er nýbúinn að leika í annarri James Bond- mynd, sem heitir einfaldlega Gull. Myndin var tekin í Suður- Afríku. Bretland hefur á marg- víslegan hátt beitt S-Afríku þvingunum til að reyna að fá Matargestur á lögreglustöðinni Frá því var skýrt í brezku blaði fyrir nokkru, að Poppy, hundur Paul McCartneys fyrr- verandi Bítils, væri orðinn fastagestur i mat á lögreglu- stöðinni í St. Johns Wood-hverf inu í London, þar sem Paul býr, þegar hann er ekki á búgarð- inum sinum í Skotlandi. Poppy var fyrir nokkru færð- ur til stöðvarinnar eftir að hafa fundizt á flakki í hverfinu. Þar var honum gefin steikt lifur og skál af vatni, þar til Paul birtist og lýsti þvi yfir, að þetta væri hundurinn sinn. Poppy hefur þó ekki gleymt gestrisninni hjá löggunni og lítur nú inn á stöð- inni, þegar hann langar i eitt- hvað að borða. ------♦ ♦♦•----- Þorði ekki að leika í kvikmynd Franski rokksöngvarinn Johnny Halliday kom skömmu eftir áramót til Hollywood til að Ieika eitt af aðalhlutverkunum í nýrri kvikmynd. Tveimur dögum síðar hélt hann aftur heim á leið og var hættur kvik- myndaleiknum. Er ástæðan sögð sú, að hann hafi verið hræddur um að hljóta slæmar viðtökur sem leikari og þar með missa takið á áhangendum sinum á tónlistarsviðinu. stjórnina par ofan at Kynþátta- aðskilnaðarstefnu sinni og er því ekki víst, að Bretum falli vel í geð, að Bond-myndin skuli hafa verið gerð þar. Kann svo að fara, að Roger lendi I vand- ræðum vegna þessa — en sjálf- sagt getur hann bjargað sér út úr þeim eins og öðrum vand- ræðum, sem hann hefur lent i á leikaraferli sinum. Myndin var tekin, er hann kom til Lundúna-flugvallar með fjöl- skyldu sinni, frú Luisu og börn- unum Christian (fjögurra mán- aða, Debru (10 ára) og Geoffrey (sjö ára). Ber ekki á öðru en að þau séu öll hin ánægðustu með lífið. Útvarp Reykjavlk $ MIÐVIKUDAGUR 27. febrúar 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kL 7.20. Fréttir kl. 7.30,8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kL 7.56. Morgunstund barnanna kL 8.45: Guð- rún Svava Svavarsdóttir les miðhluta sögunnar „Vinanna" eftir Kerstin Matz. Morgunleikfimi kl. 9.20. Tilkynningar kL 9.30. Þingfréttir kL 9.20. Tilkynningar kl. 9.30 Þingfréjtirkl. 9.45. Léttlög á milli liða. Úr játningum Agústinusar kirkjuföð- ur kL 10.25: Séra Bolli Gústafsson les þýðingu Sigurbjörns Einarssonar biskups (13). Kirkjutónlist kL 10.40. Morguntónleikar kL 11.00: Agnes Marcel Cordes, Paul Kuén, kór vestur- þýzka útvarpsins og Si nfóniuhljóm- sveit útvarpsins í Köln flytja „Carmina Burana" eftir Carl Orf£ Stjórnandi: Wolfgang Sawallisch. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn- ingar.Tónleikar. 13.30 Meðsfnulagi Svavar Gests kynnir lög af hljómplöt- um. 14.30 Sfðdegissagan: „Platero og ég*‘ eft- irJuan Ramón Jimenez Olga Guðrún Ámadóttir og Erlingur Gíslason leikari flytja þýðingu Guð- bergsBergssonar (5). 15.00 Miðdegistónleikar: Felicja Blumental og SinfŒiíuhljóm- sveitiní Vín leika Pianókonsertí a-moll op. 17 eftir Paderewski; Helmut Froschauer stj. Fílharmóniusveitin í Los Angeles leikur „Feste Romane", hljónsveitar- svitu eftir Respighi; Zubin Metha stj. 16.00 Fréttir. Tilkynni ngar. 16.15 Veður- fregnir. ÆT A skjánum MIÐYIKUDAGUR 27. febrúar 1974 18.00 Oiaplin Stutt gainanmynd með Charles Chaplin 18.05 Skippf Astralskur myndaflokkur fvrir l)örn og unglinga. Þýðand i Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.30 Gluggar Breskur fræðslumynda flokkur. týðandi og þulur Gylfi Gröndal. 18.55 Gftarskólinn Gftarkennsla fyrir byrjendur. 4. þáttur. Kennari Eyþór Þorláksson. 19.20 III é i 20.00 Fréttir 20.25 Veðurog auglýsingar 20.30 Yestmannaeyjaþát tur Li s tafólk f rá Eyj u m Ie i ku r og svngu r I ét t lög. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 21.00 Nýjasta tækni og vísindi Orka úr jörðu og sólu Ymsjönarmaður Örnólfur Thorlaeius. 1 21.30 Meðeðamóti Umræða i sjónvarpssal um bmttför eða dvöl herliðs á Islandi. Umræðunni stýrir Magnús Bjamfreðs- son, en þátttakendur. auk hans. verða átta talsins. fjórir tilnefndir af félögum 16.20 Popphomið 17.10 Utvarpssaga barnanna: ,Jói í ævin- týraleit“ eftir Kristján Jónsson Höfundur les (6). 17.30 Framburðarkennsla f spænsku 17.40 Tónleikar. 18.00 Ibúðin, — veröld mishátt frá jörðu Þáttur í umsjá arkitektanna Sigurðar Harðarsonar, Magnúsar Skúlasonar og HrafnsHallgrímssonar. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregni r. Dagskrá kvöldsins 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Orðaforði Ölafur Hannibalsson stjórnar umræðu- þæt ti. 20.00 Kvöldvaka a. Ei nsöngur Sigurður Skagfield syngur islenzk lög; FritzWeisshappel leikur á pianó. b. Hjá Austur-Skaftfe llingum Þórður Tómasson safnvörður i Skógum f ly tur annan hluta ferðaþát tar sins. c. Ljóð eftir Erlu skáldkonu Guðbjörg Vigfúsdóttirles. d. Æviminningar Eirfks Guðlaugs- sonar Baldur Pálmason les fyrsta hluta frá- sögu húnvetnsks erfiðismanns. e Um fslenzka þjóðhætti Árni Björnsson cand.mag. talar. f. Kórsöngur Alþýðukórinn syngur; dr. Hallgrímur Helgason stj. 21.30 Útvarpssagan: „Tristan og lsól“ eftir Joseph Bediér Ei naról. Sveinsson prófessor þýddi. Kristin Anna Þórarinsdóttir leikkona les (10). 22.00 Fréttír 22.15 Veðurfregnir Lestur Passfusálma (15) 22.25 Kvöldsagan: „Vögguvísa*4 eftir ElfasMar Höfundur les (2). 22.45 Djassþáttur i umsjá Jóns Múla Árnasonar. 23.30 Fréttirí stuttu máli. Dagskrárlok. * áhugamanna um vestiæna samvinnu. og fj(Vir af samtökum heiMöðvaand- stæðinga. (Bcin útscnding) 23.00 Dagskrárlok. FÖSTUDAtiUR 1. mars 1974 20.00 Frcttir 20.25 Vcður og auglýsingar 20.30 Að Ilciðargarði Bandariskur kúrckamyndaflokkur. Tfðindalaust í Tucson Þvðandi Kristmann Eiðsson. 21.25 I^mdshorn Fréttaskýringaþáttur um innlcnd mál- cfni Umsjönannaður Eiður Guðnason. 22.05 .Jlárið** í ís racl Brcsk mynd. tekin i Ísracl. þcgar rokk- sönglcikurinn „Hárið" var settur þar á svið. Fylgst cr mcð æfingum og rætt við leikamna og ffilk á förnum vcgi. Þýðandiog þulur Oskar Ingimarsson. 22.35 Dagskrárlok félK f • fjclmiélmn Leikið á sög Byggingalist og teskeiðar eða félagsfræði Kl. 18.00 er þáttur þriggja arkitekta á dagskrá — tbúðin — veröld mishátt frá jörðu. Þættir um byggingalist hafaverið á dagskrá reglulega í vetur, og þótti mörgum tími til kominn, að þessi mikla bygg- ingaþjóð ætti kost að almennri fræðslu um þetta efni. Hins vegar hefur virzt svo sem fræðslan hafi orðið þjóðfélags- leg fremur en „praktísk", en það var kannski tilgangurinn frá upphafi. Hins vegar væri þá betur viðeigandi, að félagsfræð- ingar og sálfræðingar væru fengnir til að taka að sér þessa fræðslu. Því miður verður það að segjast um leið, að arkitektar þeir, sem sjá um þennan þátt, eru ákaflega illa að sér i ís- lenzku, og væri mikil þörf á því, að góður íslenzkumaður væri fenginn til að lesa textann yfir áður en hann er lesinn upp í útvarpi. I kvöld kl. 20.30 Verður í sjón- varpinu þáttur frá Vestmanna- eyjum, og er sviðið bryggja í Eyjum. Þar hittast 15—20 Vest- mannaeyingar og taka lagið. M.a. koma fram þeir Júiíus Snorrason, sem leikur á sitt 45 ára gamla dragspil, Sigurður Sigurjónsson skipstjóri og Ing- ólfur Theódórsson netagerðar- meistari. Sigurður ætlar m.á. að leika Ave Maria á sög, auk þess sem hann leikur á eldspítna- stokk. Ingólfur spilar á teskeið- ar. Þetta eru nokkuð óvenjuleg hijóðfæri, en þeim Eyjamönn- um eru flestir vegir færir, eins og raunar flestir munu vita. Arni Johnsen, sem einnig kemur fram í þættinum, tjáði okkur, að einnig kæmi fram dixieland-hljómsveit frá Vest- mannaeyjum, auk þess sem þeir Halldór Ingi og Páll Stein- grímsson skemmta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.