Morgunblaðið - 27.02.1974, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 27.02.1974, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974 1H Gísll, Elríkur og Helgl s eftir inglblörgu Jðnsdöttur „Namm, namm,“ sagði Eiríkur, því að hann var sannkallað átvagl og þótti einstaklega gott að borða sætindi og kökur. „Finnst ‘þér súkkulaðitertan ekki Hverju var breytt Hér er nokkurt próf á skarpskyggni þína. Neðri myndinni sem hér fylgir hefur í 7 atriðum verið breytt frá þeirri efri, þó að þær í fljótu bragði líti eins út. Getururðu fundið einhverjar eða allar breytingarnar? Þetta er nokkuð erfitt, en reyndu samt. •ddn gijBA isianjgp ja jnuunjaA juuuu) BJ/íg (i 1!!ub)JB nttBippo jasuisj.íp gnjpn (9 isiAnjgo jipuaq sueij jnSuijisjA (£ uiSoq ja suBJEjuiiaS iSuiunq e SuojssjaujjoT (j; suisjEjuiiaS bHijs i BJiaij idajcJ nuia ja gE<| (g 11!» gn>l fiinus fiuaA guaA Jnjaq nuuBjuiiaS e uiBfsjBH (Z bujios giA gBgiui BJjæq ja uuunjjouqiAjao (j :usnBi falleg, Eiríkur?,, spurði Gísli. Eiríkur samsinnti því áfergjulega. „Ég get bakað súkkulagðiköku, sem er miklu fall- egri en þessi kaka,“sagði Gísli. „Heldurðu það virkilega?“ spurði Eiríkur undr- andi. „Hefur þú nokkru sinni bakað súkkulaðiköku, Gísli minn?“ „Nei,“ sagði Gísli eilítið hikandi, „en ég hef setið við borðið og hjálpað mömmu að baka kökur. Ég veit alveg hvernig hún fer að því. Hún les um það í bók.“ „Við skulum hlaupa,“ sagði Eiríkur. „Við skulum hlaupa alla leiðina heim og þar bakar þú köku, Gísli minn.“ Eirfkur leit nefnilega mjög mikið upp til Gísla. Hann var stóri bróðir og einstaklega laginn við að finna upp á einhverju, sem ekki var enn búið að banna. Gísli og Eiríkur gættu sín ekki á bílunum f þetta skipti. Þeir þutu yfir götuna og litu hvorki til hægri né vinstri. Þeir hlupu alla leið upp á fjórðu hæð og fóru ekki úr stígvélunum niðri eins og þeir höfðu lofað mömmu. Það var slóð af mold og óhreinindum upp allan stigann. Allar sextíu og sex tröppurnar. Það var því ekki að undra, þótt konurnar í húsinu styngju saman nefjum um óþrafnaðinn í drengjunum. Gísli og Eiríkur þutu á stígvélunum inn í eldhús. Þá fyrst áttaði Eiríkur sig. „Við fórum ekki úr stígvélunum, Gísli minn,“ sagði Eiríkur. „Það er áreiðanlega mold í stiganum.“ „Taktu gólfklútinn og þurrkaðu upp sletturnar," sagði Gísli. „Hvað ætlar þú að gera á meðan?“ spurði Eiríkur meðan hann sótti gólfklútinn sem var í háa skápnum bak við hurðina. „Finna kökubókina,“ sagði Gísli og taka til efnið í kökuna.“ Þá fór Eiríkur orðalaust niður öll þrepin sextíu og sex og gerði sitt bezta til að breiða enn meira úr óhreinindunum undir því yfirskini að hann væri að þurrka þau upp. Hann fór svo upp með tuskuna og henti henni í hreina fötuna. Tuskan var öll moldug og óhrein, en Eiríkur hirti ekkert um það. „Berðu stígvélin mín fram,“ skipaði Gísli og Eirík- ur gerði það. „Ertu búinn að finna kökubókina?“ sagði hann, þegar hann kom aftur inn í eldhúsið. „Já, hérna er hún.“ Og nú settust drengirnir báðir við boi'ðið og flettu kökubókinni. £Nonni ogcyVlanni eftir Jón Sveinsson Freysteinn Gunnarsson þýddi Maðurinn var nú kominn yfir lyngvöxnu dældina. Þá tók við túnið, sem var gríðarstórt og lá allt í kring- um bæinn. Þegar hann kom að túngarðinum, nam hann staðar og litaðist um eftir götuslóða. Túnið var loðið, og vildi hann ekki troða það. Hann fann undir eins götuna, sem lá framhjá fjár- húsunum, og nú kom hann rakleiðis til okkar. „Eg held, að ég vilji nú samt heldur fara inn“, hvíslaði Manni. En ég lagði höndina á öxlina á honum, hallaði hon- tim að mér og sagði: „Vertu rólegur, Manni, hann gerir okkur ekkert“. Og svo biðum við eftir manninum. Hann var unglegur að sjá. 1 vinstri hendi hafði hann stóra vatnastöng — líklega kom hann alla leið ofan af jöklum — og byssu hafði hann um öxl. Þegar hann kom til okkar, nam hann staðar, horfði hvasst á okkur og rétti okkur síðan höndina. „Sælir, drengir“. „Sælir“. „Eru foreldrar ykkar heima “ „Hún mamma er heima“. „En faðir ykkar?“ „Hann er ekki heima“. „Hvar er hann?“ Ég benti á stóra steinhúsið fyrir sunnan bæinn og sagði: „Hann er þarna heima í „Friðriksgáfu“ hjá amt- manninum“. „Hvað heitið þið?“ „Nonni og Manni“. „Og hvor er Nonni og hvor Manni?“ spurði hann og brosti við. ffk&tnoígunkoffinu — Gætuð þér ekki gefið mér upplýsingar um það, hvað ég á að segja við manninn minn, þegar ég kem heim??? — Mamma sendi mig hingað, svo að þér leiddist ekki ... towira Læknirinn er önnum kafinn frú — af hverju hringduð þér ekki og pöntuðuð tíma???

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.