Morgunblaðið - 27.02.1974, Page 33

Morgunblaðið - 27.02.1974, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1974 33 ROSE- ANNA FRAMHALDSSAGA EFTIR MAJ SJÖWALL OG PER WAHLÖÖ JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR ÞÝDDI S 8. fundur j skiptanefndar i i 42 spara yður ýmiss konar þras síðar meir. — Hvað er það sem þér viljið vita. Hvað viljið þér eiginlega að ég segi? — Þið voruð saman? Hún kinkaði kolli. / — Hvenær byrjaði það? I fyrsta skipti, sem þér komuð heim til hans? — Nei, nei. .. kannski í fjórða eða fimmta skipti. Fimmta skipti held ég. — Ogþið voruð oftar saman? Hún leit vandræðalega á hann. — Oft? — Ekki mjög oft, held ég. — En í hvert skipti, sem þér komuð heim til hans? — Nei, nei, alls ekki. — Hvað höfðust þið þá að, þeg- arþið voruð saman kvöld ? — Ja, allt mögulegt, við borðuð- um góðan mat, spjölluðum saman, horfðum á sjónvarp, skoðuðum fiskana hans. — Fiskana hans? — Hann á stórt fiskabúr. Martin dró andann djúpt. — Gerði hann yður hamingju- sama? - Ég.. . — Eg bið yður að reyna að svara. — Þetta. . . þetta eru svo skrítn- ar spurningar. Já, égheld að hann hafi gert það. — Var hann ruddalegur við yð- ur? — Ég skil ekki, hvað þér eigið við. — Eg meina þegar þið voruð saman. Sló hann yður? — Nei, nei. — Gerði hann yður aldrei neitt mein? — Nei. — Aldrei? — Nei, aldrei nokkurn tima. Af hverju spyrjið þér um það. — Töluðuð þið um að gifta ykk- ur og fara að búa? — Nei. — Hvers vegna ekki? — Hann minntist aldrei á neitt svoleiðis. — Voru þér ekkert hræddar um að verða ófrískar? — Jú, í aðra röndina. En við reyndum að gæta okkar. Martin leit á hana. Hún var ekki aðeins rjóð í andliti, heldur sá hann svitaperlur við hársvörð- inn og hann gat sér til um að hún væri þvöl um allan kroppinn. Hann gerði eina tilraun enn. — Ilvernig var hann sem karl- maður? Kynferðislega meina ég. Hún var alveg rugluð. Hún hreyfði höfuðið til og frá. Loks sagði hún: — Hann var ágætur. — Hvað meinið þér með ágæt- ur? — Hann. .. ég meina, ég held hann hefi verið mjög þurfi fyrir að honum væri sýnd blíða. Og ég.. . og mér leið þannig líka. — Elskuðuð þér hann? — Það held ég. — Fullnægði hann yður? — Ég veit það ekki. — Hvers vegna hættuð þið að vera saman ? — Ég veit það ekki.. . það bara rann svona út í sandinn eins og af sjálfu sér. — Það er eitt enn, sem ég verð að biðja yður um að svara. Þegar þið höfðuð mök saman, varþað þá alltaf hann, sem hafði frumkvæð- ið? — Ja,.. . hvað á ég eiginlega að segja. .. ég held það, en ætli það sé ekki oftast þannig. Og ég var alltaf fús til að vera með honum. — Hvað haldið þér að þið hafið oft verið þannig saman allan tím- ann, þessi tvö ár? — í fimm skipti, hvísli hún. Martin hélt áfram að horfa á hana. Hann hefði átt að spyrja hana hvort Bengtsson hefði verið fyrsti maðurinn, sem hún hafði líkamleg mök við. .. og það var ótal margt annað sem hann þurfti að spyrja um. — Verið þér sælar, sagði hann og reis upp. — Afsakið þessar spurningar mfnar. Hann lokaði sjálfur dyrunum á eftir sér. Það síðasta, sem hann heyrði hana muldra var: — Afsakið, en ég er svo feim- in... Martin gekk fram og aftur um brautarpallinn meðan hann beið eftir lestinni. Hann hafði hend- urnar í vösum og hafði eins og skroppið saman í öxlunum. Nú vissi hann loksins, hvað hann ætlaði að gera. 25. kafli Hammar teiknaði litla mynd á þerripappírinn, meðan hann hlustaði. Það var góðs viti. Svo sagði hann: — Og hvar ætlarðu að finna konuna? — Við hljótum að geta fengið einhverja innan lögreglunnar. — Þá er víst bezt að þú athugir slikt sjálfur. Tíu mínútum síðar, sagði Kol- berg. — Hvar ætlarðu að grafa upp kvenmann? — Ert það þú eða ég, sem hef eytt átján árum með því að sitja uppi á borðum hjá öðru fólki? — Það er ekki hægt að taka hverja sem er. — Enginn þekkir starfsliðið jafnvel og þú. — Jæja, ég get svo sem skoðað mig uin . .. — Einmitt . ... Melander virtist gersneyddur áhuga á málinu. An þess að taka út úr sér pípuna sagði hann: — Vebeke Amdal á heima í Toldbodgade og er fimmtíu og níu ára gömul ekkja. Hún minntist þess ekki að hafa séð Roseönnu McGraw nema á myndinni, sem hún tók sjálf á Riddarholmen. Karin Larsson fór af bátnum í Rotterdam. Lögreglan segir, að hún sé ekki þar í borginni, svo að sennilega hefur hún skráð sig á annað skip undir fölsku nafni. — Utlend skip, áreiðanlega, sagði Kolberg. — Hún hefur gert það áður. Það geta liðið ár, þang- að til við höfum upp á henni. Og þá segir hún sjálfsagt ekki neitt heldur. Hefur Kafka svarað? — Ekki enn. Martin fór niður á næstu hæð og hringdi til Motala. — Já, sagði Ahlberg rólega. — Það er sjálfsagt eina leiðin. En hvaða stúlku færðu í þetta? — Eg vonast til að fá einhverja, sem starfar innan lögreglunnar. Hefur þú einhverja i huga? — J á, en þú gætir ekki notast við hana. Martin lagði símtólið á. Síminn hringdi. Það var frá stöðinni i Klara. — Við fórum í öllu eftir fyrir- mælum þínum. — Og hvað? — Hann virðist öruggur með sig, en það er enginn vafi á því, að hann ér á verði. Hann er óttasleg- inn, snýr sér oft við og nemur oft staðar. Það verður erfitt að fylgj- ast með honum héðan i frá án þess að hann taki eftirþví. — Gæti hann hafa þekkt ei'n- . hvern ykkar? — Nei, við vorum þrir og við eltum hann ekki. Auk þess erum við sérfræðingar i að láta fólk ekki þekkja okkur. Er það meira sem við getum gert? — Ekki i bili. Ntesta samtal kom frá Adolf Frederikshverfinu. — Þetta er Ilansons. Ég fyldist með honum bæði í morgun og eins þegar hann kom heim. — Iívernig verkaði hann á þig? — Ilann var rólegur, en ég hafði á tilfinningunni að hann væri á verði. — Ilann hefur ekki tekið eftir neinu? — Það getur alls ekki verið. í morgun fylgdist ég með honum úr bílnum óg í kvöld var svo margt um manninn á götunum. Eina skiptið sem ég kom í námunda við hann var við blaðaturninn á St. Erikstrogi. — Hvað keypti hann? — Blöð? — Iívaða blöð? — Heilan bunka. Öll morgun- blöðin og bæði síðdegisblöðin. Melander barði varlega að dvr- um. — Eg held ég fari núna. Er nokkuð sérstakt. Ég þarf að fara og kaupa jólagjafir, sagði hann. Martin kinkaði kolli og hugsaði með sér að hann ætti sjálfur eftir að kaupa allar jólagjafir. Hann fór seint heim, en samt var manngrúi á öllum götum. Jólaösin byrjaði fyrr en venju- lega, enda höfðu verzlanir opið frameftir. Við morgunkaffið næsta dag sagði kona hans: — Áttu frí milli jóla og nýjárs? Hann mundi ekki hverju hann svaraði og hann var hálfutan við sig allan daginn, þangað til Kol- berg kom þjótandi inn, þegar klukkan var að ganga fimm þann dag og sagði: — Eg held ég hafi fundið stúlk- una. — Er hún hjá okkur? — Já, hún vinnur á stöðinni i Bergsgötu. Hún ketnur hingað klukkan hálf tíu í fyrramálið. Ef hún samþykkir að taka þátt í þessu ætlar Hammar að leggja blessun sina yfir fyrirtækið. handritanna Skiptanefnd handritanna í Árnasafni og Konunglega bóka- safninu í Kaupmannahöfn hélt 8. fund sinn dagana 13.—18. febrú- ar 1974. Fundurinn var haldinn í Reykjavík og fundarstjóri var Magnús Már Lárusson prófessor. Auk hans sátu fundinn af íslands hálfu Jónas Kristjánsson prófess- or og sem varamaður Olafur Halldórsson cand. mag., en hann var jafnframt fundarritari. Full- trúar Dana voru Chr. Westergard- Nielsen prófessor og dr. Ole Widding orðabókarri tstjóri. Yfirgripsmiklu starfi nefndar- innar að tillögum um skiptingu handritanna var haldið áfram með sama hætti og á fyrri fund- um. Að þessu sinni var tekin ákvörðun um tiltekin handrit í Árnasafni, einkum frá siðari tím- um. Auk þess var rætt ftarlega um þau stjórnarmið, sem skyldu ráða við skiptingu ýtnissa annarra handrita, einkum lærdómsrita frá sfðari tímum. F'yrú'hugað er að halda næsta fund i Danmörku i maí 1974. VEL-VAKAIMOI Velvakandi svarar i sima 10-100 kl. 1 0.30 — 1 1 30. frá mánudegi til föstudags. 0 Til athugunar fyrir alþingis- menn, lækna og presta Sigrún Þ. Hörgdal skrifar, og hefur sjálf sett sér fyrirsögnina: „Það mun nú vera flestum ljóst, að vinsölu á veitingahúsum á alveg að leggja niður. Þvi ber Alþingi að afnema þá óheilla- starfsemi með lögum. Nýlega birtu dagblöðin tölur um áfengissölu á sl. ári. Upphæð- in var 2 milljarðar og 56 milljónir króna. Á mann er neyzlan 2,88 lítrar af áfengi. Þetta eru þó vill- andi tölur, þar sem stór hluti landsmanna drekkur ekki áfengi eða aðeins sem litlu nemur. Þetta er því stórkostlegt magn af eitri, sem tiltölulega fáir neyta, og stærsti hluti þeirra er ungt fólk. Hvað segið þið, læknar, um þessa eiturneyzlu? Þið vitið manna bezt, að alkóhól er stór- skaðlegt fyrir líkama og sál. Er ekki kominn tími til að stemma stigu við áfengisflóðinu inn i landið? Af ykkur er hjálpar að vænta í þessu efni. # Ný stefna í áfengismálum nauðsynleg Eða hvað segja prestarnir? Eru þeir nógu vel vakandi í þessum málum? Alþingismenn, læknar og prest- ar, takið höndum saman um að forða þjóðinni frá þessu voða böli, sem þjáir hana. Ástandið er orðið algjörlega óþolandi. Hér duga ekki aðeins orð — það þarf alveg nýja stefnu i þessum málum. 1 stjórn áfengismálanna þarf nýja menn, sem vilja auðga þjóða sina að manndómi, heilbrigði og viti. Sjónarmið fjárgræðginnar er bú- ið að sýna sig. Mörg dýrmæt mannslif hafa verið eyðilögð og vínið hefur svipt marga gæfu og valdið beizkum tárum. Miðum ekki áfengisneyzlu þjóð- arinnar við það, sem gerist með stórþjóðum. Hér hjá okkar litlu þjóð eiga engin áfengisvandamál að vera til, en í þessum efnurn stefnir allt í ógæfuátt. Ölvun við akstur fer ört vaxandi, og afleið- ingin er svo m.a. slys og stór- skemmdir. Sama er að segja um eyðileggingu heimila. En mest er þó ógæfa barnanna, sem eru framtíð landsins. Menn hafa vænzt þess, að þið alþingismenn gerðuð eitthvað til bóta í þessum efnum. T.d. það að stórminnka innflutning áfengis, þvi að það verður að gerast og það strax. í þessum málum dugar engin smáúrlausn, því að fleiri og fleiri leggjast í ofdrykkju. Sterk vín eiga ekki að vera til í landinu. Berjumst gegn eiturlyfjaneyzlu og gleymum ekki, að áfengi er eiturlyf líka. Með þökk fyrir birtinguna. Sigrún Þ. Ilörgdal, Skarðshlíð 17, Akureyri.“ # Svar við fyrirspurn Jóhanna Kristjónsdóttir skrif- ar: „I sambandi við fyrirspurn frá Önnu Þóru Stefánsdóttur i sunnu- dagsblaði um það, hvar hún geti greitt framlag, sem hana fýsir að gefa í húsbyggingarsjóð FEF, skal tekið fram, að félagið hefur reikning 49600 í Búnaðarbankan- um. Sömuleiðis má hafa samband við skrifstofu Félags einstæðra foreldra í Traðarkotssundi 6, og er þar tekið á móti framlögum. Að lokum vil ég ekki láta hjá líða að þakka Önnu Þóru Stefáns- dóttur ljúft og elskulegt bréf og ánægjulegan áhuga, sem vonandi er, að sem flestir sýni.“ # Hólaskóli — Hólahverfisskóli Ingimar Benediktsson hringdi, og vildi hann hreyfa athugasemd- um við nafngift hins nýja skóla f Breiðholti — Hólaskóla, sem kall- aður hefur verið. Ingimar er á móti þessu nafni, og telur að hinn eini og sanni Hólaskóli geti verið að Hólum i Hjaltadal. Hann segist ekkert vilja frá Skagfirðingum taka, og því megi til dæmis nefna hinn nýja skóla i Breiðholti Hóla- hverfisskóla, en það sé engu óþjálla nafn i munni en til dæmis Breiðagerðisskóli. % Sjöstelpur Þá er hér fyrirspurn frá Önnu Soffíu Karlsdóttur. Hún spyr hvenær farið verði að sýna leikritið Sjö stelpur i Þjóð- leikhúsinu að nýju. Sýningum hafi verið hætt fyrr i vetur og það sagt vera vegna veikinda eins leikarans. Sagt hafi verið, að sýn- ingar hæfust aftur eftir áramót, og nú sé hinn fyrrum sjúki leikari löngu kominn á ról um borgina. # Týndir kettir Mikið er um það, að kattaeig- endur komi að máli við okkur hér á Morgunblaðinu og biðji fyrir orðsendingar um hvarf kattanna. Algengt er þá, að kettirnir séu með hálsólar og jafnvel bjöllur hangandi í ólunum. Nú vill svo til, að margsinnis hefur eigendum katta verið bent á nauðsyn þess að merkja kettina, en svo virðist sem þetta atriði vefjist fyrir fólki. Benda má á það, að lítil aukafyrir- höfn er að því að setja litla plötu með t.d. símanúmeri eigandans á hálsólina. — Skákmenn verða . . . Framhald af bls. 10 þeir munu koma með eiginkonur sinar með. Ef að verður þá koma Bretarnir I maf og verða senni- lega tefidar 5 umferðir. Þá eru ávallt einhver mót á döfinni hjá okkur og meðal þeirra nýjunga, sem við höfum tekið upp er skák- keppni framhaldsskólanna sem fyrst var haldin 1970. Sigurveg- arar í þeirri keppni öðlast rétt til að taka þátt í Norðurlandamóti framhaldsskóla í skák, og tóku íslendingar þátt í því í fyrsta skipti í fyrra. Það var sigursveit Hamrahliðarskólans og árangur- inn varð frábær því þessi sveit sigraði á mótinu með yfirburðum. Svo er fjöldinn allur af ýmsum smærri mótum, sem jafnan kosta nokkra vinnu, en stærsta málið, sem er framundan hjá okkur er stækkun felagsheimilisins. Til viðbótar þvi húsrými, sem við höfum, er i bígerð að stækka húsið nokkuð. Hugmyndin er að byggja 300 fermetra viðbót við húsið á tveimur hæðum, en af þeim húsakynnum verður hlutur TR og Sí um 180 fermetrar. Talið er að alls þurfi TR og S.í. að útvega rúmar 7 milljónir kr. til þessa og er þá miðað við núver- andi byggingavísitölu. Þá er á döfinni að sameina báðar hæðirnar i núverandi félags- heimili, en þar eiga að koma skrif- stofur og aðstaða fyrir bóka- og minjasafn. En Taflfélagið á orðið mikið af gömlum munum, sem hafa safnast saman gegnum árin. Þegar breytingunum verður lokið er ætlunin að koma upp les- og rannsóknarstofu fyrir skák- menn, þar verða á bóðstólum helztu skákrit erlend, sem skák- menn eiga að fá aðgang að. Einnig hefur komið til umræðu, að T.R. gefi út blað. Vitað er að ráða þarf fastan starfsmann að félags- heimilinu og gott væri að sá maður gæti einnig séð um útgáfu slíks rits.“ „Hvað vilt þú segja um okkar yngri skákmenn, Hólmsteinn, sem vakið hafa athygli á s.l. ári." „Mitt álit er það, að nú sé að koma upp mjög góð sveit yngri manna, sem verða komnir á heimsmælikvarða eftir nokkur ár. í því sambandi er hægt að nefna menn eins og Kristján Guðmunds- son, Sævar Bjarnason, Ótnar Jónsson og Helga Ölafsson, sem er núverandi hraðskáksmeistari Reykjavíkur. En það þarf að halda þessum ungu mönnum við efnið og þess vegna stefnum við að þvi, að koma á sumarmótum með fullum umhugsunartíma, þvi menn þurfa að vera i fullri æfingu árið um kring, ef þeir eiga að ná árangri.“ Þ.Ö.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.