Morgunblaðið - 27.02.1974, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1974
35
Þeir, sem áttu leið um Suðurlandsveg I gær, sáu nýtt stórfljót á leið sinni, skammt ofan við
Lækjarbotna. Regn- og leysingavatn hafði safnazt saman og ruddist niður brekkurnar og
sameinaðist að iokum Hólmsá. — Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
Stúlka fót-
brotnaði
13 ÁRA stúlka fótbrotnaði, er hún
varð fyrir bifreið á Hverfisgötu,
skammt austan við Ingólfsstræti,
um kl. 14 í gær. Um stundu síðar
varð sjö ára drengur fyrir bifreið
á Miklubraut, vestan Rauðar-
árstígs, og hlaut hann áverka á
höfði, sem þó reyndust ekki aivar-
legs eðlis og fékk hann að fara
heim, eftir að gert hafði verið að
sárum hans á slysadeildinni.
— Fryst loðna
Framhald af bls. 36
ur gert samninga við báða aðil-
ana.
Sólarhringsafköst þeirra frysti-
. úsa, sem frysta loðnu á vegum
SH, hafa mest verið um 750 lestir,
sólarhringsafköst frystihúsa SÍS
um 230—40 lestir og sólarhrings-
afköst frystihúsa, sem frysta á
vegum Isl. umboðssölunnar, hafa
mest verið um 150 lestir á sólar-
hring, þannig að heildarafköstin
hjá öllum frystihúsunum hafa
verið, þegar bezt lét, yfir 1100
lestir á sólarhring. Verðmæti þess
magns er rúmar 60 milljónir kr.
— Vegaskemmdir
Framhald af bls. 2
Leiðin „sunnan jökla“, sem svo
hefur verið nefnd, var lokuð í
gær, þar sem bráðabirgðavegur-
inn yfir Skeiðarársand hafði skor-
izt í sundur austan við Gýgju og
eins ruddur kafli austan Skeiðar-
ár og vegurinn um Suðursveit við
Borgarhöfn.
I gærmorgun olli steinn, sem
oltið hafði niður á veginn í Hval-
firði, vegfarendum nokkrum
erfiðleikum, þar til einn vegfar-
andi tók sig til og velti steininum
út af veginum.
— Gengisfelling
Framhald af bls. 36
ari samningsgerð eru mjög um-
deild,“ sagði Hermann ennfrem-
ur. „Sjálfur er ég þeirrar skoðun-
ar, að nærvera Björns Jónssonar,
sem er forseti ASI í fríi, sé mjög
eðlileg og auðvitað átti ríkis-
stjórnin þátt í svokölluðu sátta-
boði. Hins vegar er ég mjög and-
vígur þeim samþykktum, sem hér
voru afgreiddar í sambandi við
skattalagafrumvarpið, þótt ég
geri mér ljóst, að verkalýðshreyf-
ingin hafi þurft að fá fram tekju-
skattsbreytingar. Tillögurnar í
húsnæðismálum eru mjög mark-
verðar og mikilvægt spor.
Niðurstaða mín er því sú, að
samningagerð hljóti f framtíðinni
að eiga að vera óháð ríkisvaldinu
— frjálsir samningar. Ég verð að
segja, að ég er talsvert kvíðinn
yfir því loforði, sem gefið hefur
verið um að kauphækkanirnar
fari út í verðlagið, en ég treysti
því, að ríkisstjórnin standi við
gefin fyrirheit i stjórnarsáttmál-
anum um að fella ekki gengi
krónunnar. Að lokum vil ég að-
eins óska launþegum og þjóðinni
allri til hamingju með þessa ný-
gerðu samninga, sem ég vona, að
öllum verði til góðs,“ sagði Her-
mann Guðmundsson að lokum.
— Söluskatts-
ákvæðið
Framhald af bls. 36
sonar lýst yfir því, að þeir myndu
greiða atkvæði gegn framan-
greindu ákvæði, þótt þeir styddu
frumvarpið að öðru leyti.
Þar með var ljóst, að ríkis-
stjórnin hafði ekki meiri hluta í
neðri deild til að fá ákvæðiðsam-
þykkt og lét hún frumvarpið því
ekki koma til atkvæðagreiðslu í
deildinni þá. Tók hún þann kost
að fresta afgreiðslu tollskrárinn-
ar í heild, þrátt fyrir nauðsyn
þess fyrir iðnaðinn í landinu að fá
lækkaða tolla af vélum og hráefni
um áramót. Stafaði sú nauðsyn af
því, að um áramótin komu til
framkvæmda tollalækkanir á inn-
fluttum iðnaðarvörum vegna
Efta-aðildar og viðskiptasamn-
inga við EBE.
1 gær, þegar frumvarpið kom til
2. umræðu, lýsti Vilhjálmur
Hjálmarsson formaður fjárhags-
og viðskiptanefndar neðri deildar
því, að nefndin flytti einróma til-
lögu um niðurfellingu bráða-
birgðaákvæðisins. Sagði hann, að
fyrir dyrum stæði að leggja fyrir
þingið tillögur um stórfelldari
hækkanir á söluskatti og myndi
þetta mál koma þá til athugunar.
Var frumvarpinu vísað til efri
deildar, eftir að framangreind
breyting hafði verið gerð á þvi í
neðri deild auk nokkurra fleiri,
Sandger&i Höfum til sölu einbýlishús á tveimur hæðum, 95 fm hvor i hæð. Bílskúr. 7
í húsinu eru tvær íbúðir. j Mjög góð eign. 1 ] . /
HÚSEIGNIR ÆUTJSUNOIl O. ClflD SÍMIM444 &. 3I%Iv
sem nefndin hafði gert tillögu
um. Breytingartillögur við frum-
varpið frá einstökum þingmönn-
um voru felldar.
Fer frumvarpið nú til einnar
umræðu í efri deild og verður að
lögum ef það er samþykkt óbreytt
þar.
— Nixon
Framhald af bls. 15
auka birgðir af eldsneyti og mat-
vælum.
Nixon sagði, að hann og Leonid
Brezhnev flokksleiðtogi hefðu
orðið ásáttir um að halda áfram
því starfi að draga úr spennu
þrátt fyrir ólík þjóðfélagskerfi
landa þeirra. „Viljum við hverfa
aftur til þeirra ára þegar Banda-
ríkin og Sovétríkin hótuðu hvort
öðru og hættu á kjamorkustríð.
Eða viljum við halda áfram að
draga úr spennu . ..“ spurði hann.
— Upphaf
Framhald af bls. 16
til vill helzti árangur hans sá að
skýra línurnar í samskiptum
Vesturveldanna; viðræðurnar
leiddu í ljós, að ríki V-Evrópu,
önnur en Frakkar, vilja við-
halda náinni samvinnu við
Bandaríkin. Sú er m.a. ályktun
bandaríska blaðsins „Wash-
ington Post“, sem skrifaði, að
fundurinn hefði markað
upphaf endurnýjunar Atlants-
hafsbandalagsins undir forystu
Bandarikjanna — að vísu án
samvinnu Frakka — en með
tengslum við Japani", eins og
þar var komizt að orði. Jafn-
framt tengdi blaðið niðurstöðu
fundarins hugmyndum þeim,
er Henri Kissinger setti fram
fyrir tæpu ári um nýjan Atl-
antshafssáttmála, og sagði hana
stórt skref i þá átt; öryggismál
og efnahagsmál hlytu að vera
nátengd orkumálunum og óhjá-
kvæmilegt að leysa þau í sam-
einingu, — i þeim efnum urðu
rikin að sigla saman á báti,
Síðan sagði Washington Post:
.Jlvort Frakkar kjósa að koma
um borð síðar eða hvort þeim
stendur það til boða, er mál,
sem varðar fyrst og fremst
þeirra eigin hagsmuni.“
— mbj.
— Leiklistarskóli
Framhald af bls. 2
koma þá einnig aðrir til greina en
þeir, sem hafa sótt námskeiðið.
Reiknað er með, að 12 komist þá í
skólann, sem verður þriggja ára
fullur skóli.
A blaðamannafundi með Sveini
Einarssyni þjóðleikhússtjóra,
Vigdlsi Finnbogadóttur leikhús-
stjóra og Klemenzi Jónssyni for-
manni Félags íslenzkra leikara,
kom það fram, að reiknað er með
að ríkið geti yfirtekið rekstur
skólans eins fljótt og auðið er, en
þetta framtak leikhúsanna og FlL
er fyrst og fremst til þess að brúa
það bil, sem fyrirsjáanlegt er að
myndast I aldurshóp leikara ef
ekkert verður að gert. Kom það
fram, að mjög erfitt er oft á tíðum
að manna leikrit með fjölda ungs
fólks. Þá kom það einnig fram, að
svo til á hverjum degi er hringt til
leikhúsanna utan af landsbyggð-
inni og beðið um leikara til að
taka að sér leikstjórn, þannig að
eftirspurnin eftir sérmenntuðu
fólki og áhuginn fyrir leiklist úti
á landinu er einnig mjög mikill.
S.l. 5—6 ár hefur Félag ís-
lenzkra leikara margsinnis sent
bréf til ráðamanna og ráðuneytis
með -áskorun um að koma á fót
föstum ríkisleiklistarskóla, en án
árangurs. Nú er búið að ákveða að
hrinda framkvæmdinni af stað
með það fyrir augum að ríkið
komi sem fyrst inn í myndina.
Þriggja mánaða námskeiðið, sem
hefst 8. marz, verður með því fyr-
irkomulagi að kennsla hefst kl.
5,15 slðdegis.
— Solzhenitsyn
Framhald af bls. 1
hvernig kvikmyndastjórinn Casp-
ar Vrede hefði leyst ýmis vanda-
mál kvikmyndunarinnar og
kvaðst jafnframt mjög ánægður
með tónlistina, en hún er eftir
norska tónskáldið Arne Nord-
heim.
Kapphlaup brezkra, franskra og
bandarískra útgefenda um út-
gáfurétt á síðustu bók Solzhenits-
yns, Archipelago Gulag, hefur nú
farið fyrir dómstóla I London.
Hefur brezkti útgefandinn Alec
Flegon fengið frest til nk. þriðju-
dags til að sanna, að hann hafi
farið að lögum, er hann prentaði
og gaf út bókina á rússnesku. Lög-
fræðingar útgefandanna, sem
keypt hafa réttinn til að gefa bók-
ina út á frönsku og ensku, halda
því fram, að Flegon hafi náð I
bókina með því að taka ljósrit af
rússnesku útgáfunni I París. I yf-
irlýsingu frá Solzhenitsyn, sem
lesin var upp fyrir réttinum I dag,
gerði hann ljóst, að hann væri
fyllilega samþykkur þeim samn-
ingum, sem lögfræðingur hans í
Sviss, dr. Fritz Heeb, hefði gert
við vestræna útgefendur.
— Bretland
Framhald af bls. 1
Aðspurður um áhrif þeirrar
fregnar, sem birtist I sl. viku, að
reikningsskekkja hefði fundizt I
útreikningum á launum náma-
verkamanna, sagði Jóhann
Sigurðsson, að þau hefðu verið
skammvinn. Fyrst hefði þessu
verið slegið mjög upp en síðan á
það bent, að niðurstöður slíkra
útreikninga færu nokkuð eftir
þeirri formúlu, sem þeir byggðust
á og þvl hefði þetta reiknings-
skekkjumál koðnað niður að
mestu og runnið út I sandinn.
Stöðugt væri hinsvegar unnið að
samningsviðræðum við náma-
verkamenn, enda þótt kosninga-
baráttan geysaði af fullum krafti.
Aðspurður um stöðu Enoehs
Powells, sem síðast á mánudag
Itrekaði áskorun á stuðnings-
menn sína um að fylgja Verka-
mannaflokknum I kosningunum,
ef það mætti verða til að forða
Bretlandi frá varanlegri aðild að
EBE, sagði Jóhann, að hann væri
talinn hafa framið pólitiskt sjálfs-
morð með þessari afstöðu, a.m.k.
ætti hann vart möguleika á að fá
nokkur völd innan íhaldsflokks-
ins eftir þetta. „Margir eru þeirr-
ar skoðunar, að þetta geti jafnvel
orðið Verkamannaflokknum til
hnekkis," sagði Jóhann, „íhalds-
blaðið „Daily Telegraph'* gerir
mikið úr því I dag, að það hljóti að
vera aumt ástand í búðum
Wilsons úr þvi hann kjósi stuðn-
ing ofstækismanns á borð við
Powell. Sjálfur litur Powell svo á
að hann sé að fórna sér fyrir
málstaðinn."
„Fari kosningarnar svo, að
hvorugur stóru flokkanna nái
meirihluta á þingi er liklegast tal-
ið, að mynduð verði minnihluta
stjórn og hugsanlegt að þá verði
ekki langt I næstu kosningar."
Samkvæmt NTB fréttum i
kvöld hefur Heath lýstþví yfir, að
stjórnarsamvinna við Frjálslynda
komi ekki til greina og Jeremy
Thorpe leiðtogi þeirra hefur lýst
þvi yfir, að ekki komi til greina að
ganga til stjórnarsamvinnu við
hina flokkana undir forystu
Heaths eða Wilsons. Hann útilok-
ar ekki stjórnarsamvinnu við þá
undir forystu annarra manna og
hefur sagt hugsanlegt að styðja
minnihlutastjórn annars hvors
með vissum skilyrðum.
— Gull
Framhald af bls. 1
150 dali i lok þess árs, 1974, en af
tíðindum i dag er Ijóst, að sú
þróun hefur tekið miklu skemmri
tima.
Venjulegast nemur verðhækk-
un águlli aðeins nokkrum sentum
á dag en mesta hækkun í dag nam
13 dölum.
Meðal skýringa á þessari miklu
eftirspurn eftir gulli var sú, að
fjármálamenn væru svartsýnir á
framtíð pappírsgjaldmiðla, sökum
hinnar miklu verðbólgu, er flest
lönd heims eiga við að stríða.
Sömuleiðis hafi þeir af því
áhyggjur hversu treglega gengur
að setja nýjar reglur um alþjóða-
gjaldeyriskerfið. Loks voru uppi
getgátur um, að Arabaríkin not-
uðu olíuhagnað sinn tilgullkaupa
i stað þess að veita honum aftur
inn á fjárfestingarmarkaði Vest-
urlanda. Heimildir AP i Zúrich
visuðu slikum getgátum á bug.
— Verzlunar-
menn
Framhald af bls. 3
vinnuviku fyrir verzlunar- og
skrifstofufólk. Við höfum stefnt
að því, að fá þetta atriði viður-
kennt í talsverðan tíma og þessi
kjarabót er varanlegri en mörg
þau ákvæði um upphæðir, sem
ávallt eru breytanlegar. I verk-
falli verzlunarfólks sýndi það sig i
fyrsta skipti, að þessi stétt manna
er mjög áhrifamikil og áhrifa-
máttur VR kom nú greinilega i
Ijós. Hafi einhver verið I vafa um
hver hann væri, þarf hann ekki
að vera það lengur. Ég býst við, að
viðhorf margra til verzlunarstétt-
arinnar hafi breytzt mikið til
batnaðar við þetta verkfall."
• MINNKANDI ÞJÓNUSTA?
Gunnar Snorrason, formaður
Kaupmannasamtaka íslands
sagði:
„Ég er ánægður með, að erfið
samningagerð er afstaðin. Sýnt
er, að kjarasamningarnir fela í
sér miklar hækkanir og mörg sér-
mál hafa verið lagfærð. Það er
óhjákvæmilegt annað en að tekið
verði tillit til þessara hækkana í
álagningarmálum og það er þegar
yfirlýst af rikisstjórninni, að
hækkunirt verði bætt verzluninni
að fullu.
Þá ber að geta þess, að nokkrar
sérkröfur hafa verið lagfærðar og
ber þar hæst, að laugardagurinn
hefur verið gerður að helgidegi,
dagvinnu lýkurkl,18á föstudegi
og sé laugardagurinn unninn,
greiðist hann á helgidagakaupi.
Ég býst við því, að þessi tírtii vérði
mörgum kaupmönnum það dýr,
að eitthvað komi það niður á þjón-
ustunni við neytendur, þar sem
þetta atriði fæst ekki bætt af
verðlagsyfirvöldum."
Þá má geta þess, að þar sem
verkfall verzlunarfólks hefur nú
staðið í rúma viku, fá þeir nú
greiád fyrir febrúarmánuð 76,5%
af launum sínum eins ogþau voru
áður. Þar dregst tæplega fjórð-
ungur launa frá fyrir verkfallið.
r
— Ur Holtum
Framhald af bls. 22
Öneitanlega er nú lengri dagur
tekinn að setja svip sinn á til-
veruna, og þótt enn sé drjúgur
spölur til sumars, er þó tekið að
færast meira líf i ýmsa hluti. T.d.
er nokkurt framboð á bújörðum,
en eftirspurnin þó líkast til öllu
meiri. Það bendir þó til þess, að
enn um sinn haldist einhverjar
hræður i sveitum. — M.G.