Morgunblaðið - 09.03.1974, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1974
Lánveitingar Húsnæðismála-
stofnunarinnar 73:
Samtals um
1,4 milljarðar
til 2512 íbúða
STARFSKMI Húsnæðismála-
stofnunar ríkisins var meiri að
vöxtum á árinu 1973 en nokkru
sinni áður. Lánveitingar hennar
námu hærri upphæð en nokkru
sinni fyrr til smíði og kaupa á
fleiri ibúðum en áður hefur verið.
Einnig var unnið áfram með
margvíslegum öðrum hætti að
framförum i húsnæðismálum, að
því er segir í fréttatilkynningu
frá Húsnæðismálastofnuninni.
Veitt iánsfé stofnunarinnar á
árinu nam samtals 1394,2 milljón-
um króna, til greiðslu komu sam-
tals 1401.44 millj. kr. og eru þar
innifaldar eftirstöðvar frá fyrri
árum. Til samanburðar-má- geta
þess, að á árinu 1972 nam veitt
lánsfé 1183,8 millj. króna, á árinu
1971 nant það 972,4 míllj. kr. til
srníði og kaupa á 1604 íbúðum og
á árinu 1970 nam veitt lánsfé úr
Byggingasjóði ríkisins 570.8 millj.
kr. til smíði 1106 íbúða.
A árinu 1973 voru veitt íbúðar-
lán að fjárhæð 1302,46 millj. kr.
úr Byggingasjóði ríkisins og af
hinu sérstaka framlagi rikisins —
til smíði og kaupa á 2512 íbúðum.
Af þessu fé og ógreiddum lánveit-
ingum frá fyrri árum komu
1331,24 millj. króna til útborgun-
ar á árinu 1973. Lánsfjármagnið
skiptist þannig:
E-lán — til smíði nýrra íbúða,
voru veitt til 2208 íbúða og námu
samtals 1245.26 millj. kr.
G-lán, til kaupa á gömlum íbúð-
um, námu samtals 56.95 millj.
króna, veitt til kaupa á 303 íbúð-
um. Þar til viðbótar komu til
greiðslu á árinu G-lán samtals að
fjárhæð 21.15 millj. króna, er
veitt voru á árinu 1972, og nemur
Framhald á bls. 18
Líknarpeningur
þjóðhátíðarársins
LOKIÐ er sláttu fyrstu pening-
anna, sem gefnir eru út til að
minnast 11 hundruð ára afmælis
íslandsbyggðar. Er það líklega
eini peningurinn, sem verður að
öllu leyti unninn hér á landi, þ.e.
hannaður, grafinn í stál og press-
aður.
Bárður Jóhannesson er eins og
áður hefur komið fram útgefandi
þessa minnispenings. Hann hefur
hannað hann og grafið í mótin, en
Gull- og silfursmiðjan Erna press-
aði. Allir eru peningarnir númer-
aðir.
Þann 28. febrúar voru mótin
(stanzarnir) eyðilögð hjá notarius
publícus, en það er góð trygging
fyrir þá, sem peningana eiga.
Við spurðum Bárð, hvernig sala
peninganna gengi, og kvaðst hann
vera mjög ánægður með undir-
tektirnar, sem útgáfan fengi.
Gullið seldíst strax upp, og þá má
geta þess, að pantanir hafa borizt
erlendis frá og var ekki hægt að
sinna þeim öllum. Upplag silfur-
peninganna er 400 og eru þeir
langt komnir með að seljast. Af
koparpeningunum, sem eru 1000
stk., er nokkuð óselt. Rétt er að
leiðrétta missögn í grein Magna
R. Magnússonar i Morgunblaðinu
sunnud. 24. febr., þar sem segir,
að gullpeningarnir séu 30, en
rétta talan er 100 stk.
Þórarinn Jóns-
son tónskáld látinn
ÞÓRARINN Jónsson tónskáld
lézt í Reykjavík í fvrradag, 73ja
ára að aldrei.
Þórarinn fæddist í Mjóafirði og
voru foreldrar hans Jón Jakobs-
son útgerðarmaður og kona hans,
Margrét Þdrðardóttir. Á unglings-
árum stundaði hann sjóróðra, en
hóf tönlistarnám í Reykjavík
1922 hjá Þörarni Guðmundssyni,
Páli ísólfssyni og Ernst Schacht.
Þórarinn hélt síðan til Berlínar
árið 1924 til framhaldsnáms. Að
námi loknu settist hann að i
Berlín, þar sem hann helgaði sig
tónsmíðum að mestu, en stundaði
þar jafnframt tónfræðikennslu.
Tónverk hans voru futt víða í
Þýzkalandi og eriendis, einkum í
Bandarík junum.
Þórarinn fluttist heim til is-
lands árið 1950 og kenndi hér
hljómfræði við Söngskóla þjóð-
kirkjunnar 1953—'58, var organ-
leikari Öháða safnaðarins
1953—‘58 og tönlistargagnrýn-
andi við Alþýðublaðið 1952—'57.
Auk tónsmíða lagði Þórarinn
stund á stjörnufræði og stærð-
fræði. Hann var nefndarfuiltrúi
Tónskáldafélags íslands og í
stjörn STEFs frá 1956. Hann var
kjörinn heiðursfélagi Tónskálda-
félagsins 1961.
Mikill fjöldi tónverka og laga
liggur eftir Þórarin, en hann tap-
aði þö miklu af eigín tónverkum
af völdum stríðsins í Þýzkalandi.
Eftirlifandi kona Þórarins
Jónssonar er Ingíbjörg Jónsdótt-
ir.
Umræðufundur
um varnarmál
SUNNUDAGINN 10. mars 1974
gengst stúdentaráð Háskóla Is-
lands fyrir almennum fundi i
Súlnasal Hötel Sögu um her-
stöðvar- og varnarmál íslands.
Frummælendur verða þeir Ein-
ar Agústsson utanríkisráðherra,
Geir Hallgrimsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, og Magnús
Kjartansson iðnaðarráðherra. Þá
verður og boðið sérstaklega ýms-
um félagasamtökum og einstakl-
ingum, en að öðru leyti erfundur-
inn öllum opinn og öllum heimil
þátttaka í umræðum.
Enginn læknir í
Reykhólahéraði
Ur Reykhólasveit, 8. marz.
AUSTUR-Barðstrendingar hafa
ekki orðið varir við neinn héraðs
lækni í Reykhölalæknishéraði
eins og landlæknir hefur skýrt
frá i fjölmiðlum, en ekki er unnt
að þjóna héraðinu úröðrum lækn-
ishéruðum. — Sveinn.
Birgir ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri er nú í opinberri
heimsókn í Osló i boði Oslóar-
borgar ásamt 5 borgarfull-
trúum öðrum. Þessa mvnd tók
Ijósmyndari Morgunblaðsins,
Sigurgeir Jónasson, í Osló í
gær, þegar borgarfulltrúarnir
fóru í skoðunarferð um borg-
ina. Á myndinni eru m.a.
Sonja Bachmann kona borgar-
stjöra, Birgir ísleifur og
Brynjúlfur Bull forseti
borgarstjórnar Osló.
Eyjamenn skruppu til
Oslóar og keyptu hús
EINS og sagt var frá í Morgun-
blaðinu sl.sunnudag föru nokkrir
Vestmannaeyingar til Oslóar sl.
sunnudag til þess að skoða tilbúin
hús með það fyrir augum að
kaupa þau og fá þau sett upp í
Eyjum sem fyrst. Þremenn-
ingarnir, sem föru, komu aftur
heim í gær og höfðu þeir þá keypt
sitt húsið hver. Verður hægt að
fl.vtjast inn í þau í júní—júlí, en
hvert hús er um 200 ferm. með
vinnuherbergjum og bílskúrum.
Þremenníngarnir, sem föru,
Gísli Guðlaugsson, Guðni
Hermansen og Sigurgeir Jónas-
son, völdu hús af gerðinni Sun-
house. Byggjast þau upp á
ákveðnum einingum, sem hægt er
að setja saman á mjög margvís-
legan hátt. Þessi tegund húsa er
mjög nýstárleg og ólík því, sem
venja er á íslandi. Hver eining er
4x1,20 m og með því að raða
saman einingum er hægt að hafa
lengdina eins og hver vill og með
því .að opna á milli eininga er
hægt að hafa breiddina 4m, 8m,
eða 12m o.s.frv. Hvolfþak er á
hverri einingu, og eru 2,80 m upp
í loft. Veggirnir eru gerðír úr
timbri, ísskápaeinangrun og
gifsi, en hvolfþökin úr ís-
skápaeinangrun og trefjaplasti.
Verð á ferm. i hverju húsi upp-
komnu er um 30 þús. kr., en SUN-
HOUSE sér um að steypa plötuna
og koma upp húsinu, þannig að
eigendurnir fá það afhent með
lyklinum í skránni.
Þeir, sem hafa keypt þessi hús,
misstu húsin sín í gosinu, eða þau
hafa verið dæmd ónýt. Allir áttu
þeir nýleg hús, um 240 ferm
hvert. Það er gott dæmi um þær
bætur, sem Eyjabúar hafa fengið
vegna tjóna á húsum sínum, að
þeir fá allir um 3 — 4 millj. kr.
fyrir þessi liðlega' 200 ferm. hús
sín, en verða nú að greiða 6 millj.
kr. fyrir mínni hús. Þanníg er
tjónið í reynd og mismunurinn á
þeim, sem misstu allt sitt, og
þe;: -r-' sluppu við skaðann.
Sérstaklega bitnar þetta þó á öllu
eldra fólki, því að það hefur
hreinlega ekki aðstöðu til að
koma aftur undir sig fótunum.
SUNHOUSE hús hafa verið
byggð bæði í Suður- og Norður-
Noregi, Þýzkalandi, Bretlandí, á
Svalbarða og iiðrum stöðum, þar
sem allt að 40 stiga frost er, en
þau hafa einnig verið byggð í Ind-
landi og fleiri heitum löndum.
Umboðsmaður SUNHOUSE á ís-
landi, Ágúst H. Elíasson tækni-
fræðingur, var með í ferðinni, en
á þessum 5 dögum, sem ferðin
tók, teiknaði arkitekt SUN-
HOUSE hús hvers og eins í sam-
ræmi við óskir þeirra félaga, en
húsin munu standa hlið við hlið í
Vestmannaeyjum.
Þá munu margir Vestmanna-
eyingar hafa i huga að kanna
möguleika á að kaupa slík hús, en
þeir hafa beðið eftir niðurstöðum
þeirra félaga. SUNHOUSE hús er
hægt að fá í hvaða fermetrastærð
sem er, en það tekur 4 menn 10
daga að setja upp 200 fm hús eftir
að platan hefur verið steypt.
Húsum þeirra félaga fylgja allar
innréttingar, teppi, arinn o.fl., en
þeir félagar ráðgera að setja upp
sameiginlega saunabaðstofu fyrir
húsin í framtíðinni.
Þeir félagar, sem keyptu húsin,
eru allir búsettir i Eyjum, i leigu-
húsnæði og missa það á næstu
mánuðum. Þannig er ástatt um
hundruð Eyjaskeggja, sem vilja
umfram allt búa áfram f Vest-
mannaeyjum. í stuttu samtali við
blm. Mbl. sögðu þeir félagar, að
ekki hefði lengur verið unnt að
búa við þessa óvissu um samastað
og því hefðu þeir orðið að láta til
skarar skrfða, þótt erfitt muni
reynast að ná endum saman fjár-
hagslega.
Að öllum líkindum verða
SUNHOUSE húsin fyrstu íbúðar-
húsin, sem rísa fullgerð í Eyjum
eftir gos, en eins og sagt hefur
verið frá i fréttum munu lítil
bráðabirgðahús verða sett þar
upp fyrir vorið, ef áætlun stenzt.
Þessi mynd sýnir hiuta af húsi eins og Vestmannaeyingarnir
keyptu í Osló. Á myndinni sjást þrjár einingar, en hús þeirra félaga
eru byggð upp á 5 einingum og eru talsvert miklu stærri en húsið á
myndinni, sem þó er ekki alveg fullfrágengið. Ljósmynd Mbl.
Sigurgeir i Eyjum.