Morgunblaðið - 09.03.1974, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.03.1974, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1974 Á myndinni sjást stjórnendur hljómsveitarinnar ásamt einleikurum — t.v. Björn Ólafsson, Hlff Sigurjónsdóttir, Þorsteinn Hauksson og Gunnar Egilsson. Tónleikar hljómsveitar Tónlistarskólans í dag TÓNLISTARSKÓLINN í Reykja- vík efnir til tónleika í Háskóla- bíói í dag, laugardag, og hefjast þeir kl. 2.30. Hljómsveit Tón- listarskólans leikur, en stjórn- endur eru Björn Ólafsson og Gunnar Egilson. Einleikarar meS hljómsveitinni eru þau Hlíf — Þorskblokk Framhald af bls. 32 nokkrar vikur. Sagði hann, að heyrzt hefði, að fram hefðu farið sölur á lægra verði, en næsta sending Islendinga á Bandaríkja markað verður ekki fyrr en seint í þessum mánuði og því sagðist Guðjón ekki á þessari stundu geta sagt, hver íslenzkir seljendur teldu, að markaðurinn yrði. ,,Tals- verð óvissa er ríkjandi og menn hafa líka dálitið ólíkar skoðanir á þróun markaðarins," s'ágði Guðjón. Guðjón sagði, að nú væri mjög lítið af blokk til sölu á markaðin- um. Útflytjendur frá íslandi hefðu gert sér grein fyrir því nokkuð lengi, að stærsta spurn- ingin fyrir íslendinga væri, hvað gerðist í Japan og Kóreu. Fram- leiðslan á Alaska-ufsa í Kóreu væri á vegum Japana og mjög mismunandi spár um það, hvað liklegt væri að kæmi frá þessum löndum. 1 fyrra komu frá Japan um 60milljónirpunda af blokk og spá sumir því nú, að þetta magn geti meir en tvöfaldazt — geti farið upp í 130 ti! 150 milljónir punda á þessu ári. „Ef það verð- ur,’‘ sagði Guðjón, „þá er ekki nokkur minnsti vafi á því, að það hefur áhrif á blokkarverðið al- mennt, þar á meðal þorskblokk- ina og allan okkar fisk." Aðrir aðilar spá því, að um mjög litla aukningu verði að ræða, úr 60 milljónum punda í 70 til 80 milljónir, og enn aðrir spá því, að aukningin getí orðið 50% og verði rúmlega 100 milljónir punda. Sagði Guðjón, að íslenzkir söluað- ilar hefðu verið í sambandi við aðila í Japan og umboðsmenn í Bandaríkjunum og væri Iangt frá því, að mönnum bæri saman um horfurnar. Þetta verður að koma í ljós smám saman — sagði Guðjón — og auki þeir framboð sitt um 50 til 100%, má gera ráð fyrir því, að markaðurinn veikist. íslendingar selja nú um það bil 35—40 milljónir punda af þorsk- blokk á Bandaríkjamarkaði. Jap- anir urðu á árinu 1973 í fyrsta sinn stærsti seljandi blokkar á Bandaríkjamarkaði, en frá Kóreu kom litið á síðasta ári, en talið er, að frá Kóreu geti komið um 30 til 40 milljónir punda á þessu ári. Þaðan kornu á síðasta ári um 10 — Allt óákveðið Framhald af bls. 32 kvæma breytingar á seldum fatnaði — að afhenda hann kaup- anda fyrir helgi eða á föstudegi. Magnús E. Finnsson sagði, að hann teldi líklegt, að Sláturfélags- verzlanirnar yrðu framvegis lokaðar á laugardögum, þótt þær væru opnar í dag og yrði þetta þá síðasti laugardagurinn, sem SS- búðirnar hefðu opið. Sigurjónsdóttir á fiðlu og Þor- steinn Hauksson á pfanó. Á efnisskránni eru: Konsert í d-moll fyrir píanó eftir Bach, lítil sinfónía fyrir blásara eftir Gounod og konsert í d-dúr fyrír fiðlu og hljómsveit eftir Beethoven. milljónir punda af ufsablokk, en sú tala er innifalin í þeim 60 milljónum, sem frá Japan komu. „Óhætt er að fullyrða," sagði Guðjón B. Ólafsson, „að nú ríkir mjög mikil óvissa um blokkar- verðið og byggist það fyrst og fremst á þessum mjög svo mis- munandí spám." Þá ber að geta þess, að vertíðin í Noregí hefur verið slök og er almennt reiknað með því, að framboð frá Noregi, Danmörku, Færeyjum, Græn- landi, Islandi og Kanada verði ekki meira en á síðasta ári til Bandaríkjanna. Eru það því Jap- anir, sem ráða úrslitum um mark- aðinn. — Dreifing Framhald af bls. 10 þjónustunni, og sé litið á mál þetta í heild, þá eru misræmið og misvöxturinn tvímælalaust orðin mun meiri í síðast nefnda tilfell- inu heldur en í sjúkrahúsa- þjónustunni. Það er því höfuð- verkefnið í heilbrigðisþjónust- unni íslenzku að hefja nú þegar aðgerðir til að samræma þar, sem samræmis er mest þörf. Þannig værí rétt forgangsröðun verkefna í þessu sambandi og þá fyrst, þegar fyrir liggur vönduð stefnu- mótun varðandi þá áherzlu, sem þjóðfélagið ætlar að leggja á hvern um sig af þrem höfuðþátt- um hei Ibrigðisþjónustunnar, er hægt að byrja að gera sér að gagni hugmyndir um sjúkrarúmaþörf- ina. Göngudeildir eins og lagt er til i bréfinu er einn möguleiki af mörgum, sem til greina koma. S.G.J. FÉLAGAR í björgunarsveitum Slysavarnafélags Islands munu í dag og á morgun ganga í hús og bjóða fólki til sölu happdrættis- miða f landshappdrætti Slysa- varnafélagsins, en ágóða af happ- drættinu á að verja til endur- nýjunar tækjakosts félagsins, svo sem til þess að standa undir rekstri þess. Einkunnarorð happ- drættisins eru: „Við þörfnumst þin, þú okkar! — Styrkið slysa- varna- og björgunarstarf S.V.F. Þau 45 ár eða rúmlega það, sem Slysavarnafélagið hefur starfað hefur það bjargað á sjöunda þúsund mannslifum, þar af um 2 — Golanhæðir Framhald af bls. 1 beitt hafi verið skriðdrekaliði, fallbyssum og eldflaugum. Urðu aðalátökin við E1 Mari. í fréttum frá Jerúsalem í kvöld segir, að Sýrlendingar hafi haft í hyggju áhlaup á Golanhæðir fyrr i þessari viku, til að freista þess að ná aftur þeim svæðum, sem Israelar tóku í októberstríðirju. Þegar Golda Meir skýrði frá átökunum við Sýrlendinga i sjón- varpi í kvöld var til þess tekið, að hún virtist róleg og í hinu bezta jafnvægi, þrátt fyrir erfiðleika hennar undanfarna vikur við að mynda ríkisstjórn. — Bretland Framhald af bls. 1 fram á fundi brezka verðlagsráðs- ins. Verkfallsvörzlu við brezku kolanámurnar var hætt i dag og mun vinna hefjast í þeim á ný eftir helgina. Vmsir framámenn innan samtaka kolanámamanna hafa þó lagt á það áherzlu, að sam komulagið við ríkisstjórnina sé aðeins til bráðabirgða. Binda margir vonir við, að ástandið á brezkum vinnumarkaði komist nú í sæmilegt horf að nýju, þegar aftur verður tekin upp fimm daga vinnuvika. í AP-fréttum segir, að búizt sé við, að verðhækkanir verði á ýmsum nauðsynjavörum eftir helgi, meðal annars muni egg, ostur, smjör o.fl. matvörur hækka til að koma á jöfnuði. Þá hefur brezka Efnahagsstofnunin reiknað út, að viðskiptajöfnuður Breta á þessu ári muni verða óhagstæður um 7,4 milljarða dollara og ekki kæmiá óvart, þótt um 600 þúsund manns yrðu atvinnulausir í árslok. Þeir svart- sýnustu hafa nefnt, að 1 milljón manna gæti þá verið atvtinnulaus og viðskiptajöfnuðurinn muni vera óhagstæður um 10,9 milljarða dollara. Stál- og raforkuiðnaðarver Breta kaupa um 70% af brezkum kolum og er búizt við allt að 30% hækkun á kostnaðarverði á næst- unni. — Olíubannið Framhald af bls. 1 lýst þvi yfir, að enginn fótur sé fyrir fregnum um, að sú ákvörðun að halda fundinn i Tripoli muni frekar leiða til þess að tafir verði á afnámi bannsins. Hann sagði, að ráðherrarnir færu til fundarins með opnum huga og myndu taka þær ákvarðanir, sem Arabaþjóð- unum kæmu bezt. Ekki eru rnenn á einu máli um líkurnar á því, að olíubanninu verði aflétt á næstunni. Banda- rikjastjórn hefur að undanförnu pressað olíuframleiðsluríkin tölu- vert og Nixon forseti hefur látið að því liggja, að ef banninu verði ekki aflétt fljótlega, kunni Banda- ríkin að grípa til gagnráðstafana. þúsund sjómönnum úr strönduðum skipum. Hafa þessir sjómenn verið dregnir á land i björgunarstól, en fjársöfnunin beinist einmitt að endurnýjun á línubyssum og öðrum útbúnaði. S.V.F.Í. á gífurlega mikið undir því, að fólk sýni gjafmildi, þar sem stuðningur ríkisvaldsins við félagið hefur hlutfallslega minnkað á undanförnum árum. Það eru því vinsamleg tilmæli slysavarnafélagsmanns, að almenningur bregðist vel við, er björgunarsveitarmenn i dag og á morgun leita til hans um fjárhagsstuðning. Enginn veit, hvenær hann sjálfur þarnast — 1,4 millj. kr. Framhald af bls. 2 því heildargreiðsla G-lána á árinu 1973 samtals 78.1 millj. króna. C-lán, veitt af hinu sérstaka framlagi rikisstjóðs til smíði í stað heilsuspillandi húsnæðis, sem lagt er niður, nam 0.25 milljónum króna. Lánið var veitt einu sveitarfélagi tilsmiði einnar ibúð- ar. Þessi lán námu því samtals 1324,04 milljónum króna. Auk þess voru á árinu 15 fram- kvæmdaaðilum í byggingar- iðnaðinum veitt framkvæmdalán (rekstrarlán) úr Byggingasjóði rikisins til smíði 603 ibúða — að fjárhæð alls 202.36 millj. króna. Á árinu var einnig slíkum lánum að fjárhæð kr. 224.97 millj. breytt i föst lán (E-lán), og er hér aðal- lega um framkvæmdalán frá fyrri árum að ræða. Lán þessi eru sem kunnugt er veitt með þeim skil- yrðum, að íbúðirnar séu seldar fullgerðar á verði, sem húsnæðis- málastjórn samþykkir. Síðan segir í fréttatilkynning- unni: „Byggingasjóður verkamanna greiddi á árinu 1973 lán samtals að fjárhæð 69.95 millj. kr. til smíði 159 íbúða í verkamanna- bústöðum á 13 stöðum í Iandinu. Á árinu hófust framkvæmdir við smíði 60 íbúða í 5 byggðarlögum i landinu. Til samanburðar má geta þess, að á árinu 1972 hófust fram- kvæmdir við smíði 85 íbúða á 7 stöðum í landinu/ á árinu 1971 hófust framkvæmdir við smiði 18 íbúða á 2 stöðum. Á síðasta ári lauk formlega smíði 12 ibúða í 1 byggðarlagi í landinu, en mun fleíri íbúðir voru teknar í notkun. Á árinu 1973 komu til afhend- ingar 205 nýjar 2ja og 3ja her- bergja íbúðir úr IV og V. áfanga Framkvæmdanefndar bygginga- áætlunar. Auk þess var ráðstað nokkrum eldri FB-íbúðum, sem komu til endursölu. Stefnt mun að því að ljúka á þessu ári og fyrri hluta hins næsta byggingu 314 ibúða og er þá byggingaráætlun þessari lokið. Teiknistofa stofnunarinnar seldi á árinu 1973 teikningar af samtals 490 íbúðum, og er það meiri fjöldi en nokkru sinni áður. Þá vann stofnunin einnig áfram að margvíslegum öðrum verkefn- um til eflingar framförum í bygg- ingariðnaðinum og hefur þeirra flestra verið getið í almennum fréttum á árínu. Skylt er að taka fram, að eigi hefði tekizt jafnvel til og raun ber vitni um lánveitingar úr Bygg- ingasjóði ríkisins á árinu 1973 ef eigi hefði komið til sérstök og mikilvæg fyrirgreiðsla Seðla- banka íslands fyrir tilstilli félags- málaráðherra. Var þar um bráða- birgðaráðstöfun að ræða, sem að- eins stendur skamman tfma. 1 því sambandi má það koma fram, að fjárhagur Byggingasjóðs rikisins verður mjög þröngur á þessu ári ef ekki kemur til stórfelld lang- tíma-lausn til eflingar hag hans.“ aðstoðar Slysavarnafélagsins, sem aldrei hefur horft í kostnaðar- hliðina, hafi það átt þess kost að veita aðstoð eða hjálp. Þá skal mönnum bent á að félagar í Björgunarsveitinni Ingólfi svara í Kvöldvaka í Dómkirkjunni I LOK Æskulýðs- og fórnarviku kirkjunnar verður haldin kvöld- vaka i Dómkirkjunni n.k. sunnu- dag 10. marz. Slik samkoma hefur undan- farin ár verið haldin að kvöldi árlegs Æskulýðsdags þjóðkirkj- unnar, ætíð við fjölmenni. Á kvöldvökunni verður fjöl- breytt dagskrá i umsjá ungs fólks. M.a. mun æskulýðskór flytja söngbálkinn „EÞlÓPÍA" eftir séra Hauk Agústsson; höfundur sér um undirleik. Fjallað verður um ástandið í Konsó og sýndar litskuggamyndir. Þá verður dag- skrá með kristilegri poptónlist. Kvöldvakan hefst kl. 10 — kl. 22, á sunnudagskvöld i Dómkirkj- unni; i lok vökunnar verður tekið við framlögum til hjálpar vegna hungursneyðarinnar í Konsó. — Krabbameins- félagið Framhald af bls. 3 stjórnartíð Bjarna að sjá um fræðsluútgáfu og fræðslufundi um land allt, auk fjáröflunar. Gunnlaugur Snædal dr. med. hefur verið formaður félagsins síðan árið 1966. Kom glöggt fram, er hann las starfsskýrslu félagsins fyrir árið 1973 á aðal- fundi þess í síðastliðnum mán- uði, að störfin aukast stöðugt og almenningur stvrkir félagið í starfi með því að kaupa miða í happdrættum þess, sem haldin eru tvisvar sinnum á ári, auk þess sem því berast gjafir og áheit. Sfðar verður nánar sagt frá því í blöðum, er fram kom um félagsstörfin í seinustu árs- skýrslu formanns. Stjórn félagsins tók þá ákvörðun að minnast þessa merka afmælis með því að boða til fundar fyrir almenning í Norræna húsinu að kveldi afmælisdagsins og kvnna þar hin ýmsu störf félagsins í máli og myndum. Núverandi stjórn félagsins skipa þau dr. Gunnlaugur Snædal, sem er formaður, Alda Halldórsdóttir hjúkrunarkona ritari, Tómas Arni Jónasson læknir er gjaldkeri og með- stjórnendur eru: Baldvin Tryggvason forstjóri, Guð- mundur S. Jónsson eðlisfræð- ingur, Páll Gislason yfirlæknir og Jón Oddgeir Jónsson fram- kvæmdastjóri. A afmælisfundinum i gær flutti ávörp, auk formanns félagsins, dr. Gunnlaugs Snæ- dal, þeir Magnús Kjartansson heilbrigðisráðherra, Ólafur Ólafsson landlæknir, Jón Sigurðsson borgarlæknir og prófessor ólafur Bjarnason for- maður Krabbameinsfélags ís- lands. síma 20360 í dag og á morgun milli klukkan 13 og 19 og takaþar á móti happdrættismiðapönt- unum. Verða miðarnir síðan sendir heim til viðkomandi, óski hann þess. Við þörfnumst þín - þú okkar! íSSfgwiÐ ÞÖRFNUMST ÞÍN ÞÚ OKKAR! STYRKIÐ SLYSAVARNA- x OB BJÖRGUN6RSTARF KAUPIÐ MIÐA! rt \irí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.