Morgunblaðið - 09.03.1974, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1974
íslenzkur
fatnaður
KAUPMENN og innkaupastjórar víðs
vegar að af landinu eru þessa
dagana að velja fatnað til að hafa á
boðstólum fyrir viðskiptavini sína.
En kaupstefnan „íslenzkur fatn-
aður" var sett á fimmtudag. Þar
sýna 20 islenzkir fataframleiðendur
það sem þeir hafa upp á að bjóða.
Þetta er 13. kaupstefnan, sem
efnt er til í þessu skyni, en kaup-
stefnurnar eru jafnan haldnar haust
ogvor. Þær erumjög gagnlegarþviþá
geta innkaupastjórar fyrirtækjanna
séð á einum stað það sem ur er að
velja hjá islenzkum framleiðendum.
Við birtum hér með nokkrar
myndir, sem Ijósmyndari Mbl. Ólafur
K. Magnússon, tók þegar hann gekk
um sýninguna á Hótel Loftleiðum og
horfði á sýningarfólk sýna fatnaðinn.
Krabbameinsfélag
Reykjavíkur 25 ára
Alfreð Gislason,
Bjarni Bjarnason
og Gísli Sigur-
björnsson kjörnir
heiðursfélagar
KRABBAMEINSFÉLAG
Reykjavíkur átfi 25 ára afntæli
í gær. Félagið hefur alla tíð
beitt sér fyrir öflugu fræðslu-
starfi varðandi krabbamein,
það hefur komið á leitarstöð
fyrir krabbamein og beitt sér
fyrir stofnun krabbameins-
félaga um allt land. Félagið
minntist afmælisins með fundi
fyrir almenning í Norræna hús-
inu í gærkvöldi, þar sem hin
ýmsu störf félagsins voru
kynnt í máli og myndum. Þá
voru kjörnir þrír heiðurs-
félagar — þeir Gísli Sigur-
björnsson forstjóri, Alfreð
Gíslason læknir og Bjarni
Bjarnason læknir.
Krabbameinsfélag Reykja-
víkur var stofnað hinn 8. marz
1949. Hugmyndina að stofnun-
inni átti Gísli Sigurbjörnsson
forstjóri elliheimilisins
Grundar, en Alfreð Gíslason
læknir beitti sér fyrir þvf, að
Læknafélag Reykjavíkur
boðaði til fundar til að stofna
sérstakt félag, er hefði barátt-
una gegn krabbameini að
markmiði.
Fundarboðið var svohljóð-
andi:
„Undirri taðir læknar, nem
kosnir voru af Læknafélagi
Reykjavfkur til að undirbda
stofnun félagsskapar til bar-
áttu gegn krabbameini, leyfa
sér hér með að bjóða yður á
fund í I. kennslustofu Háskól-
ans þriðjudaginn hinn 1. febrú-
ar og verða ráðstafanir gerðar
til að stofna félagið, sem ætlazt
er til að nái yfir allt landið."
Undir þetta fundarboð rituðu
nöfn sfn eftirtaldir læknar:
Alfreð Gfslason, Gísli Fr. Peter-
sen, Ilalldór Hansen, Niels P.
Dungal og Ólafur Bjarnason.
Allir tóku þeir til máls á undir-
búningsfundinum, ásamt þeim
Gfsla Sigurbjörnssyni for-
stjóra, Páli Sigurðssyni lækni,
frú Sigríði J. Magnússon.
Ófeigi J. ófeigssyni lækni og
Sigurði Sigurðssyni þáverandi
berklalækni. Að loknum um-
ræðum var nokkrum fundar-
manna falið að auglýsa stofn-
fund í húsakynnum Háskólans
þ. 8. marz 1949, eins og áður
segir. 1 fyrstu stjórn félagsins,
sem hlaut nafnið Krabbameins-
félag Reykjavfkur, voru kosnir:
Niels Dungal formaður, Alfreð
Gíslason varaformaður, Gísli
Fr. Petersen ritari og Gfsli
Sigurbjörnsson gjaldkeri. Með-
stjórnendur voru Magnús
Jochuinsson, Sigríður J.
Magnússon, Katrín Thoroddsen
og Sveinbjörn Jónsson lögfræð-
ingur.
Strax á fyrsta starfsári mót-
Gísli Sigurbjörnsson flytur
þakkarávarp fyrir hönd nýkjör-
inna heiðursfélaga. Til hægri á
myndinni er formaður Krabba-
meinsfélagsins, dr. Gunnlaug-
ur Snædal læknir. (Ljósm. Mbl.
Ól. K, Mag.).
aðist með eftirfarandi fram-
kvæmdum sú stefna félagsins
sem haldið hefur verið áfram:
Byrjað var að gefa út Frétta-
bréf um heilbrigðismál. Flutt
voru fjögur fræðsluerindi í út-
varp á vegum félagsins. Komið
var á samningum milli Rann-
sóknastofu Háskólans annars
vegar og Tryggingastofnunar
ríkisins og Sjúkrasamlags
Revkjavíkur hins vegar um
framkvæmd vefjarannsókna
vegna krabbameinsgreiningar.
Tekin var upp skrásetning
krabbameinssjúklinga. ísland
gerðist aðili að alþjóðakrabba-
meinsrannsóknum, unnið var
að fyrirgreiðslu fyrir krabba-
meinssjúklinga utan af landi,
sem þurfa að leita sér lækninga
í Reykjavík, og félagið bauðst
til að gefa röntengendeild
Landspítalans nýtfzku röntgen-
lækningatæki til þess að greiða
fyrir auknu öryggi í röntgen-
lækningum. Þá fól félagið Ólafi
Bjarnasyni lækni að kynna sér
sérstaklega nýjustu aðferðir
frumurannsókna til að þekkja
krabbamein í legi á byrjunar-
stigi og hvatt var til stofnunar
krabbameinsfélaga utan
Reykjavfkur.
Á aðalfundi félagsins 1952
var Alfreð Gíslason kosinn for-
maður félagsins, en Niels P.
Dungal gerðist formaður
Krabbameinsfélags tslands,
sem þá var nýstofnað, eftir til-
lögu Alfreðs Gislasonar. í
stjórnartfð Alfreðs var koniið á
leitarstöð fyrir krabbamein.
Arið 1960 urðu formanna-
skipti hjá félaginu, er Alfreð
Gfslason lét af því starfi eftir
eigin ósk. Við formennsku í
félaginu tók þá Bjarni Bjarna-
son læknir og gegndi því starfi
til ársins*1966, er hann var kos-
inn formaður Krabbameins-
félags Islands. Hann beitti sér
mjög fyrir aukinni fræðslu
fyrir almenning, enda var
Krabbameinsfélagi Reykja-
vfkur falið það verkefni f
Framhald á bls. 18
Heiðursfélagar Krabbameinsfélagsins, talið frá vinstri: Alfreð Gfslason læknir, Gísli Sigurbjörns-
son forstjóri og Bjarni Bjarnason læknir.