Morgunblaðið - 09.03.1974, Síða 10

Morgunblaðið - 09.03.1974, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1974 Skúli G. Johnsen lœknir: Dreifing heilbrigðisþjónustu Hvað er við að glíma ? dreifing og bygging orkuvera að verulegu leyti tæknilegt vanda- mál og einnig á það við um sima- þjónustu. Lítið er um ágreinings- atriði varðandi innihald þeirrar verkfræðilegu þekkingar, sem að baki er. Það er tiltölulega viðráð- anlegt vandamál að halda raf- straumnum gangandi, eftir að einu sinni hefur verið lagt inn til notandans, svo fremi orkugjafinn sé fyrir hendi. I hei lbrigðisþjón- ustunni eru hins vegar önnur vandamál áberandi, svo sem að fá nægilega mikið af rétt þjálfuðu starfsfólki i vinnu, að stjórna og samræma störf alls þess fólks (á Islandi vinna upp undir 4000 manns við heilbrigðisþjónust- una), og svo það vandamál, sem er ef til vill ekki sízt, en það er að fylgja eftir hinum stórstígu fram- förum í læknisfræðiþekkingu, sem m.a. veldur því, að menn eru alls ekki sammála um, hvernig dreifa beri kröftunum eða hvern- ig hlutföll hinna ýmsu þátta heil- brigðisþjónustunnar eigi að vera. Þvi hefur verið litill gaumur gef- inn, að læknisfræði er ekki sú raunvisindagrein, sem menn vilja vera láta, þvi að i raun og veru er þar mjög mikið byggt á félagsleg- um grundvelli og aðferðum. Óhætt er að segja, að dreifing heil j brigðisþjónustunnar er eitt flókn- S yfirlits og samræmingar milli ein- stakra þjónustusviða og því gætir þar ótrúlegs misræmis, að ekki sé meira sagt. Grundvallarhlutinn, sem er hin almenna heimilis- læknaþjónusta, hefur verið van- ræktur að mestu leyti áratugum saman. Fekar hefur sigið á ógæfu- hliðina með læknisþjónustu landsbyggðarinnar. Fáir skilja, hvers vegna tilraunir til úrbóta hafa ekki dugað og ýmsar fyrir- hugaðar úrbætur (sbr. heil- brigðisþjónustulög frá apríl 1973) eiga ennþá mjög langt i land hvað framkvæmd snertir. Annað og þriðja stig heilbrigðisþjónust- unnar hefur fengið að taka til sin næstum alltþað fjármagn, sem til uppbyggingar hefur verið varið, en meira að segja innan þess þátt- ar er að finna stórkostlega galla svo sem skort á þjónustudeildum sjúkrahúsa, sem verka sem flöskuhálsar á sjúklingaflæði, þannig að sjúklingar teppast inni á sjúkrahúsum af þeim sökum. ORSAKIR VANDANS. Hvar er svo orsaka að leita? Því vil ég svara með þeirri full- yrðingu, að i heilbrigðisþjónust- unni hafa lögmál og aðferðir stjórnunarfræðinnar alls ekki verið nýtt. Varla er hægt að segja, að hingað til hafi á íslandi verið SAM ANBURÐUR OG ÞÖRF. í okkar þjóðfélagi er það hið opinbera, sem hefur það verkefni að stjórna og sjá um dreifingu margs konar þjónustu fyrir al- menning, er þegnar þessa Iands geta ekki verið án. Þannig á rikis- valdið að sjá fyrir menntun lands- manna, heilbrigðisþjónustu, póst- og simaþjónustu, orkuframleiðsiu og orkudreifingu, vegagerð o.s.frv. Það er ekki ótitt, að menn berí saman mikilvægi hinna ýmsu þjónustugreina og því gæti sú spurning vaknað, hvern af þess- um þjónustuþáttum menn vildu sizt misst. Nú er það mjög ein- kennandi, að mönnum hættir við að gera samanburð, sem er óraun- hæfur, vegna þess að forsendur er ekki látnar fylgja með. Það er því rétt að geta þess, að eðli flestr- ar þjónustu er, að því meiri og betri sem hún er.því háðari verða menn henni. Þessi staðhæfing á sennilega sizt við um heilbrigðis- þjónustuna og því er almenn af- staða til hennar sjaldan eða ekki mótuð af tilbúinni þörf. Mest af hinni raúnverulegu þörf á þessu sviði er á hverjum tíma falið sjón- um sem leyndir sjúkdómar. Meiri hluti þeirra, sem vitandi eða óað- vitandi þjást af veikindum, leitar ekki læknis. Ýmsar aðferðír eru notaðar til að ná til þeirra, sem ganga með leynda sjúkdóma, en ekki skal farið lengra út i það hér. Allir gera sér grein fyrir, því þvílíkt grundvallarmál góð heil- brigðisþjónusta hlýtur að vera í hverju þjóðfélagi og þarf ekki að leiða fram nein vitni því til stuðn- ings. Það má einnig nota aðra tegund samanburðar. Bera má saman, hversu vel hinu opinbera tekst að rækja hlutverk sitt hvað varðar hinar ýmsu þjónustugreinar. Til sanns vegar má færa, að á sviði raf magnsdreifingar og dreifingar þjónustu pósts og síma hafa fram- farirnar verið mjög stöðugar og náð þvi marki, að langsamlega flestir landsmenn búa að þessu leytí við það, sem kalla mætti fullnægjandi þjónustu. Dreifing sjálfvirks simakerfis um allt land er sannarlega gott afrek, sérstaklega þegar miðað er við ástandið á ýmsum öðrum svið- um. Vegakerfi landsmanna er enn ekki i því ástandi, að kallazt geti viðunandi, en þó eru menn farnir að byggja í allstórum stíl varanlega vegi, þar sem kostnað- urinn við hvern kílómetra er tal- inn í milljónum eða milljónatug- um. Um menntamálin er að minnsta kosti hægt að segja, að öllum er'tryggð viss grundvallar- menntun. Þessa sögu er því miður ekki hægt að segja um þá þjónustu- grein, sem hér er til umræðu. A íslandi er fólki víða ekki tryggð lágmarksheilbrigðisþjónusta. Verður hér gerð tilraun til skýr- ingar á því, hvers vegna svo er ekki. AÐFERÐIR Stjórnunarfræði er sú fræði- grein, sem fæst við að skilgreina og lýsa þeim aðferðum, sem bezt- ar þykja til að ná árangri í rekstri fyrirtækja og stofnana og aðerðir hennar hafa þótt mjög vel not- hæfar í rekstri opinberrar þjón- ustustarfsemi. Frá sjónarhóli þessarar fræðigreinar eru verk- efni, sem við blasa í hverri þjón- ustugrein, ekki ólik. Hin ýmsu vandamál í hverri grein eru að- eins mismunandi yfirgnæfandi og áberandi. Þannig eru rafmagns- asta viðfangsefnið, sem glímt er við, miðað við aðrar þjónustu- greinar. SKILGREINING. Heilbrigðisþjónustu er gjarnan skipt í þrjú stig. Frumstig er hin almenna heilsugæzla og heilsu- vernd, sem fram fer utan sjúkra- húsa. Annað stig er hin almenna sjúkrahúsaþjónusta, sem skipt er í tvær grundvallargreinar, hand- lækningar og lyflækningar. Þriðja stigið er svo enn sér- hæfðari lækningar, sem miðast við svokallaðar undirsérgreinar læknisfræðinnar og grund- vallaðar eru á sérdeildum, svo sem hjartadeildum, sykursýkis- deildum, brjóstholsaðgerðadeild- um o.s.frv. Á því sviði getum við Íslendíngar aldrei byggt okkar þjónustu, svo sem milljónaþjóðir gera, vegna mannfæðar. Hvað sem við gerum á sviði þessa þriðja stigs hlýtur hjá okkur að verða óhæfilega kostnaðarsamt af sömu ástæðu. Heilbrigðisþjónusta okkar (og margra annarra landa) hefur lengi fengið að þróast án verulegrar tilraunar til heildar- Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum. tekizt á við það verkefni, sem heitir stjórnun, skipulagning og áætlunargerð í heilbirgðis- þjónustu. Yfirstjórn heilbrigðismála í landinu var lengst af aðölluleyti í höndum landlæknisembættisins og mannafli þess embættis hefur verið óbreyttur í marga áratugi fram á daginn f dag, en i því embætti hafa starfað ásamt land- lækninum, skólayfirlæknir, sem hefur verið fulltrúi landlæknis i forföllum, ritari og ein sima- stúlka. Eftir að heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytið var stofnað 1970 má segja, að góður liðsauki hafi fengizt, en verkefn- in, sem hlaðizt höfðu upp, eru lík, að enn sér vart högg á vatni. Að visu hafa héraðslæknar þessa lands frá fyrstu tíð átt að sjá um og stjórna heilbrigðisþjónustu, hver í sínu héraði, en það hlut- verk hafa þeir þurft að rækja til viðbótar starfi, sem telja ætti tveggja til fjöggurra manna starf, en ekki eins manns, mismunandi eftir stærð héraða. Héraðslæknar hafa jú þurft einir að sjá fyrir ali’-' h iibrigðisþjónustu, hverju nafni sem hún nefnist, í hinum fjölmörgu einmenningshéruðum landsins. Það hafa því ekki verið ástæður til mikilla stjórnunarum- svifa í þessum litlu einingum, sem flest læknishéruð landsins hafa verið. Aðeins eitt héraðs- læknis embætti hefur verið fullt stjórnunar- og skipulagningar- starf, og er það borgarlæknis- embættið í Reykjavik, og hefur það lengstum verið unnið af borg- arlækni einum ásamt aðstoðar- lækni og ritaraaðstoð. Borgar- læknir hefur einnig haft með höndum stjórn heilbrigðiseftir- litsins í Reykjavík, sem er um- fangsmikið starf. RÁÐ TIL URBÓTA A sama tima og allar þjónustu- greinar hins opinbera hafa fengið að byggja upp og safna að sér miklu starfsliði með nauðsynlega þekkingu og reynslu, til þess að séð væri nægilega fyrir stjórnun- ar-, skipulagningar- og áætlunar- þættinum i rekstri þeirra, hefur mátt heita, að fullkomin stöðnun hafi ríkt varðandi allt þetta starf í heilbrigðisþjónustunni. Er því ekki að furða, þótt heilir lands- hlutar séu meira og minna án læknisþjónustu og sífellt sígi á ógæfuhlið, því að hvorki hefur verið til mannafli né nægilega sterkar stofnanir til að sjá um, að þjónustu þessari væri haldið gangandi. Það, sem nauðsynlegt er að gera til úrbóta, er að efla embætti landlæknis og ráðuneytið stór- kostlega af mannafla og aðstöðu, skipta landinu í stór læknishéruð eftir kjördæmum, er öðlist aukið sjálfstæði varðandi málefni heil- brigðisþjónustunnar, bæði hvað varðar rekstur og uppbyggingu stofnana, stofna verður í hverju hinna nýju héraða vel útbúin héraðslæknisembætti með full- komnu starfsliði og aðstöðu. Gera verður kleift að ástunda þá undir- búningsvinnu og rannsóknir, sem eru undirstaða allra ákvarðana i stjórnun og skipulagsstarfi, hvort sem unnið er hjá orkustofnun, rafmagnsveitum, pósti og síma eða í heilbrigðisþjónustu. Gera verður grundvallarbreytingar á fjármögnunaraðferðum, bæði hvað varðar rekstur og uppbygg- ingu heilbrigðisþjónustunnar. Tryggingaskilmálar sjúkratrygg- ingakaflans í almannatrygginga- lögum svo og flest annað í þeirri úreltu tryggingahugsun, sem enn fær að standa i lögum eftir að öll iðgjöld hafa verið felld niður, er einhver helzti hemill á framfarir i almennri (fyrsta stigs) heil- brigðisþjónustu og hefur raunar verið svo um áraraðir. í dag gilda allt önnur sjónarmið en þau, er réðu, þegar sjúkrasamlög voru mótuð fyrir meir en hálfri öld. Fjármagni þvi, sem félagið ver til heilbrigðisþjónustunnar, verður að ráðstafa af aðilum, sem hafa þekkingu á rekstri heilbrigðis- þjónustu, og hverfa verður hið bráðasta frá því dæmalausa fyrir- komulagi að ákvarða gerð og gæði heilbrigðisþjónustunnar með þeim hætti, sem hingað til hefur tíðkazt, þ.e. láta yfirstjórn félags- mála, (áður félagsmálaráðuneyti) smíða um það lagafyrirmæli og fella inn i almannatryggngalög. Með stofnun heilbrigðis- og trygg ingaráðuneytis fyrir 4 árum voru skapaðir möguleikar til að hverfa frá þessu úrelta fyrirkomulagi, en ennþá hafa hvorki breytingar né áætlanir um breytingar i þessu efni séð dagsins ljós. Með öðru móti verða vandamál íslenzkrar heilbrigðisþjónustu ekki leyst og þó að kostnaður af slíku stjórnunarkerfi verði nokk- ur, mun hann skila sér strax á fyrstu árum með betri nýtingu mannafla, fjármagni og aðstöðu, sem fyrir hendi er i heilsugæzlu innan og utan sjúkrahúsa. ATH. Grein sú, sem hér birtist, var skrifuð áður en opið bréf, er Félag islenzkra lækna i Bretlandi sehdi heilbrigðismálaráðherra, bortist í Morgunblaðinu nú fyrir skömmu. í bréfinu eru margar góðar hugmyndir, ýmist sjálfsagð- ar eða íhugunarverðar. í Bret- landi hafa verið starfræktar göngudeildir við sjúkrahús, á sama hátt og lagt er til i bréfinu og er því fengin löng reynsla á starfsemina þar. Að sjálfsögðu hefur komið í ljós, að þessu fyrir- komulagi fylgja bæði kostir og gallar. Bretar eru nú að gera grund- vallarbreytingar á stjórnunarupp- þyggingu i heilbrigðisþjónustu sinni, sem fyrst og fremst beinist að því að gera hana alla að stjórnunarlegri heild, en áður var heilbrigðisþjónustunni brezku skipt í þrjá sjálfstæða hluta. Annað höfuðinntak þessara breytinga er að dreifa valdi niður i sem smæstar og hagkvæmastar einingar og nýta til fulls aðferðir þeirrar greinar læknisfræði sem kölluð er Community Medicine eða samfélagslækningar. Bretar hafa lært það á þeim 26 árum, sem hin rikisrekna heilbrigðis- þjónusta þeirra hefur starfað, að hið þrískipta fyrirkomulag hefur valdið mjög miklum misræmi og misvexti milli hinna þriggja þátta, sjúkraþjónustu, heimilisþæknaþjónustu og heilsu- verndar. Er nú að því stefnt að færa þessi svið öll undir sam- eiginlega stjórn á öllum stigum nýs stjórnkerfis heilbrigðis- þjónustunnar, sem samið hefur verið af færustu stjórnunarsér- fræðingum Bretlands. Megininntak bréfsins tiL heil- brigðismálaráðherra er, að óskað er eftir skynsamlegri samræm- ingu í uppbyggingu og. rekstri sjúkrahúsaþjónustu landsmanna. Skynsamleg samræming er hins vegar ekki aðeins nauðsynleg þar, heldur er hún eínnig nauðsynleg milli einstakra sviða i heilbrigðis- Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.