Morgunblaðið - 09.03.1974, Side 11

Morgunblaðið - 09.03.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1974 11 Islenzkar flugvélar í hjálparflutningum HJALPARSVEITIR kirkna á Norðurlöndum sendu s.l. mánu- dag tvær fullhlaðnar flugvélar til Eþíópiu með nýstárleg hjálpar- gögn til hjálpar fórnarlömbum þurrkanna þar. Tveir stórir borar voru í þessum flutningum; með þeim verður freistað að ná vatni úr iðrum jarðar til svölunar lang- hrjáðum fbúum og eftirlifandi búpeningi. Samkvæmt fréttatilkynningu eru það Hjálparstofnanir kirknaí Svíþjóð, Danmörku, Noregi, og Is- landi, er hafa samvinnu um þetta verkefni, sem er liður í umfangs- miklum hjálparaðgerðum Lút- herska heimssambandsins á þurrkasvæðunum í Norður- Eþíópíu. Flugvélarnar fóru frá Stokk- hólmi og Osló. Frá Stokkhólmi voru fluttir tveir stórir jarðborar, sem borað geta niður á allt að 250 metra dýpi. Vonir standa til, að á næstu 2—3 mánuðum verði unnt að ná vatni upp á 20—30 stöðum í Wolló-héraði, þar sem milljónir þjást nú vegna þurrkanna undan- farin ár. Sænskur verkfræðingur frá framleiðanda mun hafa umsjón Félagslíf Kvenfélag Bústaðasóknar — Mæðrafundur Fundur verður haldinn mánudag- inn 11. marz í safnaðarheimili Bústaðakirkju kl. 8.30. Miðar á fyrirhugaða leikhúsferð verðá af- hentir á fundinum Allar eldri konur í sókninni eru sérstaklega velkomnar. Stjórnin. Kvenfélag Hallgrimskirkju heldur sína árlegu samkomu fyrir aldrað fólk, karla og konur n.k. sunnudag 1 0. marz kl. 2.30 e.h. Dr. Jakob Jónsson talar. Glaðir félagar úr Karlakór Reykja- víkur syngja. Sunnudagsgöngur 10.3. kl. 9,30 Skíða- og gönguferð á Hengil. Verð 600 kr. kl. 13 Skarðsmýrarfjall, Verð 400 kr. Brottfarastaður B.S í Ferðafélag islands. K.F.U.M. á morgun: Kl. 10.30 fh. Sunnudagaskólinn við Amtmannsstíg 2b. Barnasam- komur i fundahúsi KFUM&K í Breiðholtshverfi 1 og Digranes- skóla i Kópavogi. Drengjadeildirn- ar: Kirkuteig 33,, KFUM&K hús- unum við Holtaveg og Langagerði og í Framfarafélagshúsinu I Ár- baejarhverfi. Kl. 1.30 eh Drengjadeildirnar að Amtmannsstig 2b Kl. 3.00 eh Stúlknadeildin að Amtmannsstíg 2b. Kl 8 30 eh Almenn samkoma að Amtmannsstig 2b Jóhannes Sigurðsson talar. Allir velkomnir. Heimatrúboðið Munið vakningasamkomurnar að Óðinsgötu 6a i kvöld og annað kvöld kl. 20.30 Allir velkomnir Hjálpræðisherinn Sunnudag kl. 11: Helgunarsam- koma Kl. 20.30. Kveðjusamkoma fyrir major Aase Olsen, Bjarg. Foringjar og hermenn taka þátt í söng og vitnisburðum. Allir velkomnir með uppsetningu og tilfærslu bor- anna, jafnframt þvi að kenna inn- fæddum meðhöndlun þeirra. Frá Osló fóru einnig tæknimenn ásamt miklum matvælum o.fl. nauðsynjum til þessa verkefnis, í flugvél frá Cargolux undir stjórn íslenzkrar áhafnar. Þessi hjálparaðgerð er nýmæli og tilraun þarna, sem fylgst verður með í eftirvæntingu. Ef vel gengurmá væntaþess að unnt verði á næstu árum að bjarga þúsundum og jafnvel að koma í veg fyrir hörmungar eins og þarna eiga sér stað nú. Heild- arkostnaður Hjálparstofnananna vegna þessa verkefnis næstu 2—3 mánuði mun nema u.þ.b. 13 millj- ónum ísl. kr. Ingólfs - Café GÖMLU DAIMSARIMIR í KVÖLD. HLJÓMSVEIT RÚTS KR. HANNESSONAR LEIKUR. Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 7. sími 1 2826. Lelkfélag Olafsvíkur sýnir sakamálaleikritið Músagildruna eftir Agöthu Christie í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi, sunnudaginn 1 0. marz kl. 21.00. Leikstjóri Benedikt Árnason. Miðasala frá kl. 5. Simi 22676. Leikfélag Ólafsvíkur. Alþý6uhúsi6 HafnarfirÓi HljómsveiHn Dansleikur í kvöld frá kl. 9—2. Er Alþýðuhúsið að slá öll met? Festi - Grindavík Ugla sat á kvisti LUDO SEXTETT OG STEFÁN SKEMMTA Innifalið í aðgöngumiða vinningar til Kaupmanna- hafnar. Aldurstakmark 18 ára. Hótel o Akranes Opið í kvöld Hljómsveitin NÆTURGALAR HLÉGARÐUR Stórkostlegt LAUGARDAGSKVÖLD Hljómsveilin ÍSLANDÍA ásamt söngvurunum Þuriði Sigurðardóttur og Pálma Gunnarssyni skemmta. Fjölmennið og skemmtið ykkur að Hlégarði. Sætaferðir frá B.S.Í. kl. 9 og 10. UNGÓ UNGÓ CHANGE Sætaferðir frá Umferðamiðstöðinni kl. 9.30. Ungó Keflavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.