Morgunblaðið - 09.03.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1974
13
I hópi skólasystra: Helgi Tómasson tíu ára gamall, þá í Þjóðleikhússkólanum.
*
UtgerÓarmenn - Vélstjórar
Til sölu MWM 400 hö árgerð 1 959, einnig skrúfa (4
blaða).
Remkgír2:1 nýlega yfirfarinn.
Rafall 5 kw 1 1 0 volt DC 1000/1 600 sm / mín.
Flender Bacholt tengi með eða án kúplingar, ný hjól og
legur.
Spildæla G 1618.
Leitið upplýsinga. Hagstætt verð Sími 92-6039 eftir kl.
7 á kvöldin.
Tæknllelknarar
Aðalfundur Félags tækniteiknara verður haldinn í Glæsi-
bæ uppi, mánudaginn 11. marz 1 974 kl. 8.30.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Mætið vel og stundvislega.
Stjórnin.
Kristinn
Erik er í fyrstu heimsókn sinni á Islandi. Honum finnst
gott að kúra hjá mömmu.
Ljósm. Öl. K. Mag.
skólann, eftir að ég hafði verið ár
hjá Sif Þórs og Sigriði Ármann,
hjálpaði hann mér líka mikið.
Hann skildi þetta svo vel, enda
þótt ballettinn væri miklu grónari
í Danmörku en hér, og þar þætti
sjálfsagt að drengir væru við ball-
ettnám.
— Hver var kveikjan?
— Ég bjó í Vestmannaeyjum,
barn. Fimm ára gamall kom þang-
að flokkur frá Konunglega
danska ballettinum. Ég fékk að
fara að horfa á. Ég hef víst fengið
eitthvað í mig þá. Eitthvað í þessu
höfðaði til mín. Ég man ég var
stundum að reyna að sprikla og
gera æfingar eins og ég hafði séð
dansarana gera, svona fyrir
sjálfan mig og í einrúmi. Þá var
auðvitað enginn ballett skóli í
Vestmannaeyjum, en við flutt-
umst til Reykjavíkur, þegar ég
var sjö átta ára að aldri og þá
byrjaði ég að læra .. . Það var
annar strákur í skólanum líka,
jafnvel tveir, þegar ég fer nú að
velta þessu fyrir mér. En mig
minnir ég hafi verið eini strákur-
inn þegar í Þjóðleikhússkólann
kom. Ég þarf ekki að kvarta und-
an viðmóti skólasystra minna þar,
þær voru mjög notalegar og þar
var mér ekki strítt.
— Geturður gefið þér tíma til
að hafa áhugamál utan starfsins?
— Eiginlega ekki. Kannskihelzt
að slappa af. Hvíla mig. Við reyn-
um að sækja leikhús, fara á
hljómleika, en stundum veit ég
með svo skömmum fyrirvara,
hvenær ég á að dansa, að of seint
er að gera ráðstafanir til að kom-
ast eitthvað út.
En nú eftir helgi förum við
Marlene til Parísar. Flokkurinn
er í tveggja vikna leyfi og við
ætlum að skilja strákana eftir hér
og vera viku í París.
•Mig langar til að taka fram,
sagði Helgi, að hópurinn er ákaf-
lega ánægður með dvölina hér.
Þeim finnst að vísu sviðið
þrengra en við eigum að venjast,
en ég hafði sagt þeim frá því. En
þau eru hrifin af öllum aðbúnaði,
vistinni á hótelinu, hvað allir séu
ljúfir, gestrisnir og greiðviknir.
Eiginlega þurfi ekki að biðja um
neitt, það sé búið að uppfylla allar
óskir, áður en þær eru lagðar
fram.
h.k.
Fóstrur athugið
Óskum að ráða forstöðukonu að nýju dagheimili í
Háaleitishverfi. Fóstrumenntun áskilin.
Laun samkvæmt kjarasamningum Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar. Umsóknir sendist skrifstofu Sumar-
gjafar, Fornhaga 8, fyrir 1 5. marz.
Barnavinafélagið Sumargjöf.
Útboð - Dagheimlll
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í byggingu dag-
heimilis í Norðurbæ. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu
bæjarverkfræðings, Strandgötu 6, gegn fimm þúsund
króna skilatryggingu.
Tilboð verða opnuðá sama stað, þriðjudaginn 2. apríl kl.
1 1 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Bæjarverkfræðingur.
Árshátfð
Breiöfiröinga-
félagsins
1974
verður haldin á Hótel Borg laugardaginn 16. marz og
hefst með borðhaldi kl. 1 9 stundvislega.
Dagskrá:
Ávarp: formaður Breiðfirðingafélagsins Kristinn Sigur-
jónsson.
Heiðursgestir: Einar Kristjánsson skólastjóri og Kristín
Tómasdóttir.
Söngur: Leikbræður o.fl.
Minni Breiðfirðingafélagsins: séra Árelíus Níelsson.
Afhending heiðursskírteina.
Dans.
Aðgöngumiðar seldir á Hótel Borg, suðurdyr, sunnudag
10. marz kl. 5 — 7 og miðvikudag 1 3. marz kl. 6—8.
Uppl. í símum 81702 — 33088 — 19179.
Fjölmennið.
Stjórnin.
BARNASKEMMTUN
í Austurbæjarbíói laugardag 9. marz kl. 2.
Til skemmtunar:
Fimleikaflokkur drengja frá Ármanni sýnir, Hrafn Jökulsson 8 ára les sogu,
danssýning ungra nemenda frá Heiðari Ástvaldssyni Jazzballett. Kaffibrúsa-
kallarnir, 3 skessur koma i heimsókn, popphljómsveitin Berlln, samleikur
tveggja barna á selló og pianó, Andarungakórinn syngur, Sigurður Rúnar
leikundir. Ýmis fleiri skemmtiatriði.
Aðgöngumiði gildir sem happdrættismiði. Fjöldi vinninga. Verð miða kr.
1 50/- Miðasala frá kl. 1 laugardag i Austurbæjarbíói.
Allur ágóði rennur [ minningarsjóð Félags einstæðra foreldra.