Morgunblaðið - 09.03.1974, Qupperneq 32
iÞEIR flUKfl
uiosKiPTin seih
nucLvsn í
Jílor0imbIaí)inu
jRúrgmiltlatúfc
nucivsmGRR
«g,*-*22480
LAUGARDAGUR 9. MARZ 1974
Kílóið af loðnu-
hrognum 27 kr.
Á FUNDI vfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins í gær var
ákveðið, að lágmarksverð á loðnu-
hrognum til frvstingar á loðnu-
vertfð 1974 skuli vera: Hvert kg
kr. 27.00.
Verðið miðast við það magn,
sem frvst er.
Verðið var ákveðið af odda-
manni og fulltrúum seljenda í
nefndinni gegn atkvæðum full-
trúa kaupenda.
1 yfirnefndinni áttu sæti: Jón
Sigurðsson hagrannsóknarst jóri
sem var oddamaður nefndarinn-
ar. Ingimar Einarsson og Ingólfur
Ingólfsson af hálfu seljenda og
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson og
Evjólfur Martinsson af hálfu
kaupenda.
40%
hækkun
gjalda
SVR
VERÐLAGSNEFND
hefur samþykkt að
heimila Strætisvögnum
Reykjavíkur að hækka
farmiðagjaldið um 40%
fyrir fullorðna og 45,5%
fyrir börn. Meðaltals-
hækkun fargjaldanna er
rétt rúmlega 40%, þar
sem barnafargjöldin
vega það lítið í meðal-
talshlutfallinu. Fargjald
fyrir fullorðna hækkar
úr 15 krónum í 21 krónu
og fargjald fyrir börn
hækkar úr 5,50 krónum í
8 krónur.
Farmiðaspjöld með af-
sláttarmiðum hækka
hlutfallslega. Þó kostar
hvert spjald fyrir full-
orðna 100 krónur og
stærra spjald 300 kr.,
semær sama verð og áð-
ur, en miðar á spjaldinu
verða færri. Barnamiða-
kort verða áfram á sama
verði, 100 krónur, en far-
miðum á kortinu fækk-
að.
Minningarathöfn um
sjómann, sem fórst
Borgarfirði eystra, 8. marz.
í DAG var haldin minningarat-
höfn i Bakkagerðiskirkju um Ás-
grim Inga Jónsson, sem fórst með
bátí sínum Svanatindi hinn 3.
desember síðastliðinn. Sóknar-
presturinn hélt minningarræðu,
en karlar úr söngflokki kirkjunn-
ar sungu. Mikið fjölmenni var við
athöfnina, svo að fólk varð að
standa fram í yztu dyr. Veður var
eitt hið fegursta, sem hér hefur
komið um langan tíma, og hvar-
vetna í þorpinu blöktu fánar í
hálfa stöng. — Sverrir.
Fjársöfnun
vegna dvalar
írskra barna
HJÁLPARSTOENUN kirkjunnar
hefur í hyggju að bjóða hingað til
iands nú í ár eins og undanfarin
tvö ár nokkrum hópi írskra
barna. Telur Ifjálparstofnunin,
að þessar heimsóknir hafi þegar
sýnt gagnsemi sína, þar sem þessi
börn, sem búa við mjög óhollt og
róstusamt umhverfi, fá við dvöl
hér á landi nokkra hvíld frá
ófriðnum heima fyrir, frið og inn-
sýn í eðlilegt mannlíf, en einnig
er talið, að slík dvöl sé raunhæft
ráð til að eyða hinu mikla hatri,
sem oft er á milli þeirra inn-
byrðis. En dviil þessara barna á
Islandi kostar sitt og því hafa
aðstandendur hennar í hyggju að
hefja fjársöfnun vegna hennar.
Irsku börnin munu væntanlega
dvelja i Hveragerði, og er áætlað,
að unglingar í Hveragerði reyni
að afla fjár á ýmsan hátt, en
kostnaður við dvöl 25—30 barna
er talinn nema 300—350 þúsund
krónum. Vænta aðstandendur
heimsóknarinnar þess, að þeir
aðilar, sem leitað verður tíl, taki
vel í að styrkja þetta mál með
fjárframlagi.
Tvær sölur
í Grimsby
TOGARINN Rán seldi siðastlið-
inn miðvikudag í Grimsby 123
tonn fyrir 34.307 sterlingspund,
sem er jafnvirði 6,8 milljóna
króna. Meðalverð á hvert kg var
55,30 krónur. Þá seldi togarinn
Hjörleifur í Grimsby í fyrradag
155 tonn fyrir 34.654 sterlings-
pund, sem er jafnvirði rúmlega
7,3 milljóna króna. Meðalverð á
hvert kg var 47,20 krónur. Mark-
aðurinn var mjög eðlilegur.
ENGEY KEM-
UR Á MORGUN
NÝR skuttogari er væntanlegur
til landsins á morgun. Er það
togarinn Engey RE 1, sem smíð-
aður hefur verið i Póllandi.
Skipið kemur til Reykjavíkur í
fyrramálið, en það er eign
útgerðarmannanna Einars Sig-
urðssonar og Ingvars Vilhjálms-
sonar.
Togarinn er samkvæmt hinni
nýju mælingu tæplega 800 rúm-
lestir og aðalvél skipsins 3 þús-
und hestöfl. I reynsluferð gekk
skipið 16,5 sjómílur. Skipstjóri er
Arinbjörn Sigurðsson, sem verið
hefur aflakóngur undanfarin 5
ár.
Ekki veitir af regnfatnaðinum
á voru landi. Fyrir þvi verða
fataframleiðendur að sjá. Það
gera þeir líka, ef dæma má
eftir þessum vel regnvörðu
sýningarstúlkum á kaupstefn-
unni „Islenzkur markaður" á
Loftleiðahótelinu. Sjá bls 3.
Ljósm. Ól.K.M.
Allt óákveðið um sölu-
tíma verzlana 1 Reykjavík
ÁKVEÐIÐ hefur verið, hvernig
verzlanir í Keflavfk, Ilafnarfirði,
Garðahreppi og á Akranesi verði
opnar í framtiðinni. Fundir hafa
verið haldnir með kaupmönnum í
Reykjavík og vildi yfirgnæfandi
meirihluti loka verzlunum á
laugardögum, en málið strandaði
á því, að ekki fékkst um það full-
komin samstaða. Hagkaup vildi
ekki hafa lokað á laugardögum og
því trevstu aðrir sér ekki til þess
að hafa lokað.
Magnús E. Einnsson fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasam-
taka íslands sagði i viðtaii við
Mbl. í gær, að sú regla gilti í
Hafnarfirði og Garðahreppi, að
verzlunum væri lokað klukkan
17.30 alla daga vikunnar nema
föstudaga, en þá væri opið til
klukkan 18. Með þessu teldu
kaupmenn sig geta sparað eftir-
vinnugreiðslur, en samkvæmt ný-
gerðum kjarasamningi skal t.d.
vinna á laugardögum greiðast
með helgidagaálagi, svo og hver
stund eftir klukkan 18 aðra daga
með eftirvinnuálagi. Algjör sam-
staða náðist i Hafnarfirði um
opnunartímann og verður fram-
vegis lokað á laugardögum.
Þorskblokkin á Ameríkumark-
aði hefur lækkað um 8,54%
ÞORSKBLOKKIN á Bandarfkja-
markaði er nú komin niður í 75
cent, en var fyrir skömmu í 82
centum. Hér er um að ra*ða
lækkun, sem nemur 8.54%. Lækk-
un þessi hefur orðið í áföngum,
en ekki er alilangt síðan þorsk-
hlokkín hrapaði niður í 78 cent.
Flökin hafa enn ekki lækkað, en
sala á þeim hefur þó dregizt veru-
lega saman. Ottazt er. að enn sé
ekki séð fyrir endann á þessum
lækkunum.
Það, sem er þorskútflutningí ís-
lendinga á Bandaríkjamarkaði
hættulegast nú, er samkeppni
Suður-Kóreu, sem ekki hefur ver
ið fyrir hendi áður. Suður-Kóreu
menn eru að byggja upp fiskiðnað
fyrir Bandaríkjamarkað, ein-
göngu blokkaframleiðslu. Verða
Suður-Kóreumenn komnir með
meiri slíka framleiðslu á Banda-
ríkjamarkað en Islendingar árið
1975. Á árinu 1974 er búizt við, að
þeir framleiði svipað magn af
fiskblokk og Islendingar.
Fiskurinn, sem Suður-Kóreu
menn nota í blokkirnar, er svo-
kallaður Alaska-ufsi. Sam-
keppnisaðstaða Köreumanna er
og mun hagstæðari en Íslend-
inga, þar sem timakaup fólks
í fiskiðnaði þar er aðeins 17
krónur á tímann, en hér
er það um 200 krónur í
dagvinnu, en að auki greiðast
ýmsir liðir, svo sem orlof, lífeyris-
sjóðsgjald o.fl., sem hækka veru-
lega raunverulegt tímakaup hér.
Þá munu Japanir einnig auka
framleiðslu sína á blokk, en þeir
nota eínnig Alaska-ufsa. Alaska-
ufsi er öllu ljósari tegund af ufsa
en við þekkjum og getur hann því
betur keppt við íslenzka þorsk-
inn.
Flökin hafa ekki lækkað enn.
Hins vegar dróst sala á þeim all
verulega saman eftir að flaka-
verðið var hækkað í nóvember
siðastliðnum og stafar það senni-
lega af því, að verðið sé orðið of
hátt. Yfirleitt er flakaverðið um
10 centum hærra en verðið á
blokkinni.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við Guðjón B. Ólafsson
framkvæmdastjóra sjávarafurða-
deildar SIS, en hann er nú stadd-
ur í Harrisburg i Phiiadelphiu i
Bandaríkjunum til þess að kynna
sér síðustu þróun verðlagsmála
þar vestra. Guðjón sagði, að sein-
asta verð á þorskblokk, sem flutt
hefði verið út frá Sambandinu,
hefði verið 82 cent, en síðan væru
Frainhald á bls. 18
í Keflavik loka verzlanir alla
daga klukkan 18 frá mánudegi til
föstudags og er lokað á laugardög-
um. Sama regla gildir um
opnunartíma sölubúða á Akranesi
og gildir i Hafnarfirði og Garða-
hreppi.
Magnús sagði, að reynt hefði
verið að ná samstöðu meðal kaup-
manna í Reykjavfk, en Hagkaup
hefði ekki viljað hafa lokað á
laugardögum. Þar sem ekki náðist
samstaða, vildu t.d. eigendur
Glæsibæjar ekki loka álaugardög-
um né heldur stjórnendur KRON.
Hins vegar benti Magnús á, að
samkvæmt kjarasamningunum
yrði skilyrðislaust að loka 10
laugardaga yfir sumarmánuðina
frá 1. júní og bjóst hann ef til vill
við því, að eftir þann reynslutima
yrði grundvöllur fyrir að taka
málið upp að nýju og myndu
menn þá ekki óttast eins afleið-
ingar lokunar á laugardögum.
Verzlanir Sláturfélagsins voru
einar lokaðar á laugardögum
síðastliðið sumar. Reynsla þeirra
af lokun var mjög góð, viðskipti
minnkuðu ekki, en reksturs-
kostnaður hins vegar stórlega.
Mikill hluti kaupmanna í
Reykjavík er fylgjandi því, að
verzlunum verði lokað á laugar-
dögum og jafnframt að lokunar-
tiini aðra daga verði klukkan
17.30. í gær héldu vefnaðarvöru-
kaupmenn fund, þar sem fjallað
var um lokunartíma tizku-
verzlana. Þar kom fram sá vilji að
hafa opið fram eftir á fimmtudög-
um, þar sem það gæfi möguleika á
— væri nauðsynlegt að fram-
Framhald á bls. 18