Morgunblaðið - 17.07.1974, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JULÍ 1974
GÆZLUVARÐHALD
VEGNA GRUNS UM
KYNFERÐISAFBROT
RUMLEGA fertugur maður hefur
verið úrskurðaður f 30 daga
gæzluvarðhald vegna gruns um að
hafa hellt vfni f 6 ára dreng og
haft f frammi við hann kynferðis-
lega tilburði. Málsatvik liggja
ekki Ijós fyrir, en maðurinn
hefur hvorki játað né neitað
sakargiftum. Atvik þetta átti sér
stað f fyrradag.
Málsatvik eru þau, að kona, sem
var að hengja þvott sinn til þerris,
tók eftir dreng, sem lá í garði þar
skammt frá. Við nánari athugun
virtist drengurinn vera undir
Fyrirlestur
um yoga
INDVERSKI yogameistarinn Sri
Chinmoy heldur opinberan fyrir-
lestur næstkomandi sunnudags-
kvöld, 21. júlf, kl. 20.30 í stofu 201
f Árnagarði.
Sri Chinmoy er fæddur í Bengal
á Indlandi árið 1931. Tólf ára
gerðist hann félagi f ashrami, eða
trúarlegu samfélagi, þar sem
hann dvaldist næstu tuttugu árin
við iðkun hugleiðslu og öfluga
andlega þjálfun.
Árið 1964 kom hann til
Ameríku til þess að bjóða fram
reynslu sína. Sfðan hefur hann
komið á fót andlegum setrum
vfðsvegar um Bandarfkin,
Kanada, Vestur-Evrópu og Ástra-
líu. Hann hefur gefið út nokkrar
bækur um hugleiðslu og andleg
mál og haldið fyrirlestra víða um
heim. Daglega er hugleiðslum Sri
Chinmoy útvarpað víðsvegar um
Bandarfkin og nokkrar sjónvarps-
stöðvar senda reglulega út bæna-
stund hans.
Sri Chinmoy-hugíeiðsluhópur
hefur starfað í Reykjavík frá því í
desember 1973, en tveir læri-
sveinar Chinmoy hafa komið
hingað til lands, gftarleikarinn
Mahavishnu John McLaughlin og
kona hans Mahalakshmi.
annarlegum áhrifum og var hann
fluttur á Slysavarðstofuna, þar
sem dælt var upp úr honum og
síðan á sjúkrahús til öryggis.
Samkvæmt síðustu upplýsingum
frá lögreglunni er ekki enn vitað,
hvort víni var hellt í drenginn eða
átt við hann kynferðislega. Að
sögn drengsins bað maðurinn,
sem hefur aðgang að kjallaraíbúð
foreldra sinna, hann um að
skreppa fyrir sig út í búð til að
kaupa pilsner. Síðan segist hann
hafa farið inn í íbúðina til manns-
ins, þar sem hann drakk
,,pilsner“. Þá segir drengurinn, að
maðurinn hafi reynt að fá sig með
sér í bað, en þvf hafi hann neitað.
Eftir þetta er frásögn drengsins
mjög ruglingsleg og man hann
ekki, hvernig hann komst út úr
íbúðinni. Drengurinn hefur dval-
ið drykklanga stund í íbúðinni,
því að leit var hafin að honum í
hverfinu, sem ekki bar árangur
fyrr en hann fannst skyndilega í
garðinum, sem leitað hafði verið
í. Virðist svo sem maðurinn hafi
komið drengnum út um glugga á
kjallarafbúðinni og haft sig síðan
á brott, en hann var handtekinn á
öðrum stað í borginni.
Mbl. hafði fregnir af máli þessu
í fyrrakvöld, en þá voru málsatvik
mjög óljós og í gær voru margir
þættir þess enn á huldu.
-------------------
SÖNGUR VIÐ
OPNUN VEGAR
I FRÁSÖGNINNI af hátíðarhöld-
unum f sambandi við opnun
hringvegarins féll niður að geta
þess, þegar skýrt var frá söng
kórs Skaftfellingafélagsins í
Reykjavík, að með þeim kór
sungu kirkjukórar úr Vestur-
Skaftafellssýslu. Þá söng einnig
sameiginlegur karlakór úr Aust-
ur- og Vestur-Skaftafellssýslu
undir stjórn Friðjóns Bjarnason-
ar.
Minkadráp
Húsavík, 15. júlí.
I MORGUN varð Leifur Baldurs-
son var við ðkyrrð f öndum, sem
voru á Búðarárstfflunni f miðjum
Húsavfkurbæ. Þegar hann fór að
gæta betur að sá hann til tveggja
minka og tilkynnti það strax lög-
reglunni, sem fór vopnuð á stað-
inn. Þegar þangað kom sá lögregl-
Póstþjónusta
á Þingvöllum
EINS OG áður hefur verið til-
kynnt verður sérstakt pósthús
starfrækt á Þingvöllum á þjóðhá-
tíðinni sunnudaginn 28. júlf n.k.
og sérstakur hátíðarpóststimpill
notaður.
í því sambandi tekur póst-
stjórnin fram, að öll pósthús
landsins taka við frfmerktum um-
slögum, kortum o.s.frv. til stimpl-
unar á Þingvöllum. Slíkar send-
ingar verða að sjálfsögðu að vera
frímerktar fyrir réttu burðar-
gjaldi eftir eðli þeirra (bréf 20 g:
17 kr., póstkort 13 kr., prent 20 g:
13 kr.
Fólki er eindregið ráðlagt að
hafa þennan hátt á, ekki sízt ef
það hefur í hyggju að fá stimpluð
umslög með Þjóðhátíðarfrímerkj-
unum ellefu, en þau eru nú öll
komin út og fást á pósthúsum.
Með því móti sparar fólk sér
óþarfa fyrirhöfn á Þingvöllum,
þjóðhátíðardaginn.
Unnið aS uppsetningu Þróunar 874—1974 I Laugardalshöllinni.
Þróun 874-1974:
á Húsavík
„Orka með dyggð
reisi bæi og byggð”
UnniS er nú aS uppsetningu
sýningarinnar Þróun 874—1974
I Laugardalshöllinni, en sýningin
er sett upp I tilefni þjóShátiBarðrs-
ins. Á sýningunni verSur sýnd þró-
un og framfarir i atvinnuvegum
landsmanna, sjávarútvegi, iSnaSi,
landbúnaSi og verzlun, en einnig
verSa sýningardeildir frá stjórnar-
ráSinu, Reykjavikurborg og um
samgöngur og menntamál. Alls
verSa þvi 8 sýningardeildir á þess-
ari sýningu og hafa þærtil umráSa
alla Laugardalshöllina og útisvæS-
iS næst henni. Mest áherzla verS-
ur lögS á aS sýna þróun frá árinu
1874. Forseti íslands er vemdari
sýningarinnar og mun opna hana
25. júli nk., en gert er ráS fyrir, aS
sýningin verSi opin til 11. ágúst.
ViS opnunina er búizt viS, aS for-
sætisráSherra og borgarstjórinn í
Reykjavík flytji ræSur. Fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar er
Agnar GuSnason ráSunautur.
í anddyri hússins verður sýningar-
deild stjórnarráðsins. Þar verður
reynt að varpa Ijósi á hlutdeild Al-
þingis og rikisstjórna í atvinnuupp-
byggingu og þróun atvinnuveganna
m.a. með myndasýningum, likönum
og töflum. Rakin er saga stjórnar-
ráðsins og myndir sýndar af öllum
ráðuneytum, sem setið hafa við
völd. Að sögn Jónasar Jónssonar I
landbúnaðarráðuneytinu, sem situr I
sýningarráði af hálfu stjórnarráðs-
ins, verður lögð áherzla á að hafa
þessa sýningardeild sem fjölbreyti-
legasta.
( kjallara anddyris hússins er
kynning á menntakerfinu og skólum
an f jögur dýr og fékk til liðsauka
Ingimund Jónsson, sem var með
haglabyssu, en lögreglan var
vopnuð skambyssum.
Ingimundur skaut læðu og þótti
lfklegt, að hann hefði skotið ann-
að dýr. Nokkru seinna fann Helgi
Pálmason í húsagarði sínum
hvolp, sem hann sálgaði. Hafa því
unnizt 2—3 dýr af þeim fjórum,
sem sáust. Minkabaninn hér í hér-
aðinu var ekki staddur f bænum,
en hann er væntanlegur í kvöld
og mun hann leggja til atlögu við
dýrin, sem eftir eru. Minkur hef-
ur ekki áður sézt á Húsavík og eru
uppi margar tilgátur um það,
hvaðan hann sé kominn.
Síldveiðiskipin hafa nú selt
fyrir 273 millj. í Danmörku
mörku fyrir 273.3 millj. kr., en f
sfðustu viku seldu þau sfld f
Hirtshals og Skagen fyrir 49.2
millj. kr. Á sama tfma f fyrra
höfðu skipin selt sfld fyrir 212
millj. kr. Guðmundur RE er sem
fyrr söluhæsta skipið og hafði f
lok sfðustu viku selt fyrir 30.2
millj. kr.
I vikunni sem leið seldu skipin
47 sinnum, samtals 1.626 lestir og
meðalverðið, sem þá fékkst fyrir
síldina, var kr. 30.29. Er það
hæsta meðalverð, sem fengizt
hefur á þessu sumri. Hæsta
meðalverðið í vikunni fékk
Magnús NK, 38.73 kr. Hæstu
söluna fékk Guðmundur RE, 3
millj. kr. Mörg skipanna seldu nú
fyrir meira en 1 milljón og yfir-
leitt voru sölurnar með betra
móti. Skipin hafa nú byrjað síld-
veiðar við Hjaltland, en sfldin,
sem þar fæst, er yfirleitt stærri og
betri en sú, sem veiðist í Skage-
rak.
Fyrsta salan á þessu sumri var
7. maí og frá þeim tíma hafa
skipin selt fyrir 273.3 millj. kr.
eins og fyrr segir. Aflamagnið er
orðið 11.436 lestir og meðalverðið,
sem fengizt hefur fyrir síldina, er
kr. 23.90. I fyrra var fyrsta salan
þann 23. maí og fram til 14. júlí
höfðu skipin þá selt fyrir 212.1
millj. kr. Aflamagnið var þá
10.482 lestir og meðalverð fyrir
hvert kfló kr. 20.24.
Guðmundur hefur selt 1.111
lestir fyrir 30.2 millj. kr. og
meðalverð fyrir þennan afla er
kr. 27.20. Næsta skip í röðinni er
aflahæsta skipið f fyrra, Loftur
Baldvinsson, sem búinn er að
selja 875 lestir fyrir 22.7 millj. kr.
Meðalverðið er kr. 25.92. Þriðja
skipið í röðinni er svo Faxaborg
Gk.
landsins og sýndar þær breytingar,
sem orðið hafa i þeim efnum
Reykjavikurborg og atvinnuveg-
irnir sýna á aðalgólfi Laugardalshall-
arinnar. I deild Reykjavikur, sem
m.a. verður á sviði hússins, verður
sýnd söguþróun borgarinnar í
myndum. Áherzla verður lögð á að
sýna borgarlifið í dag, gróðurinn i
borginni og grænu byltinguna. Að
sögn Aðalsteins Guðjohnsen raf-
magnsstjóra, sem er i sýningarráði
fyrir Reykjavlkurborg, verður á sýn-
ingunni stórt llkan af borginni og
einnig annað minna af gamla mið-
bænum. Þá verða I tengslum við
sýninguna skipulagðar skoðunar-
ferðir um borgina I deild Reykjavik-
ur verða ennfremur sýndir leikþættir
og skemmtiatriði unnin upp úr
gömlum revium. Verður reynt að
hafa sýningardeild borgarinnar sem
líflegasta.
Á miðju salargólfi hallarinnar
verður byggður bær I 1 9. aldar stll,
sem tengir saman allt sýningar-
svæðið. Þar verður sýning á göml-
um munum og mun Egill Ólafsson
bóndi á Hnjóti I Örlygshöfn, sem á
eitt bezta minjasafn í einkaeign á
landinu, skýra fyrir gestum forna
Framhald á bls. 16
Agnar GuSnason framkvæmdastjóri sýningarinnar og Gunnar Bjamason
leiktjaldamálari virSa fyrir sér likan af sýningardeild um samgöngur.
Nei, þessi mynd er ekki tekin f fslenzku fiskidjuveri, sfíur en svo. Hún er tekln f
sndarnidurlagnlngarverksmiðju f Ilirtshals f Danmðrku. Fyrlr fslenzka sjómenn hafa nú
Hirtshals og Skagen tekið við hlutverki Siglufjarðar, Seyðisf jarðar og Norðfjarðar, sem elnu
sinni voru mestu sfidarbæir á tsiandi. LJósm.Mbi. Þ.Ó.
— Fréttaritari.
ÍSLENZKU sfldveiðiskipin f
Norðursjó hafa nú selt sfld f Dan-