Morgunblaðið - 17.07.1974, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JULÍ 1974
Attræður í daa:
Johan Ronning forstjóri
I dag, 17. júlf, verður Johan
Rönning áttræöur. Hann er fædd-
ur I Hadsel í Vesterálen í Norður-
Noregi árið 1894, þriðji í röð sjö
systkina.
Snemma beindist hugur Rönn-
ings að tækninni og ungur að
árum hóf hann nám f rafvirkjun
og starfaði hjá hinu þekkta fyrir-
tæki Elektrisk Bureau í Osló, en
það kom í hlut þessa fyrirtækis að
afgreiða rafvélar og búnað í
Elliðaárstöðina og var það hlut-
verk Rönnings, þá aðeins 26 ára
að aldri, að annast þessa verk-
framkvæmd. En það var fyrsta
dag janúar 1921 að Rönning fyrst
steig á íslenzka grund.
Verk þetta leysti hann af hendi
með ágætum og fór aftur til
Noregs 12. ágúst 1922.
Ekki hafði Rönning dvalið lengi
í Noregi, er hann hugði á fram-
haldsnám og fór því til Þýzka-
lands og brautskráðist þaðan frá
tækniskóla sem rafmagnstækni-
fræðingur.
Svo er það vegna tilmæla Stein-
grfms Jónssonar, fyrrum raf-
magnsstjóra, að Rönning kemur
aftur til tslands 2. nóvember 1926
og tekur upp störf hér að nýju, þá
sem verkstjóri í fyrirtæki Júlíus-
ar Björnssonar, rafvirkjameist-
ara. En árið 1933 er Rönning orð-
inn svo mikill Islendingur, að
hann gerist rfkisborgari og setur
á stofn sitt eigið fyrirtæki.
Þetta fyrirtæki verður brátt eitt
hið stærsta sinnar tegundar og
tekur stóran þátt í allri uppbygg-
ingu næstu þrjá áratugina. En
1961 er verktakastarfseminni
hætt og rekstur fyrirtækisins
breytt í umboðs og heildverzlun
með rafmagnsvörur.
Af þessu má sjá, að Rönning er
óumdeilanlega einn af brautryðj-
endum rafmagnsmála hér á landi,
enda haft með að gera mjög marg-
ar og mikilvægar framkvæmdir á
þessu sviði.
Sem rafvirkjameistari hefur
Rönning brautskráð á sjötta tug
sveina, sem allflestir starfa áfram
við rafvirkjun.
Á ferðum sfnum um landið
heillaðist hann af fegurð þess og
gerðist því snemma félagi í
mörgum félögum m.a. Ferða-
félagi Islands, Jöklafélaginu og
Skíðafélagi Reykjavíkur og var í
stjórn þess sfðastnefnda fyrstu ár-
in. Samt á hann sér aðra íþrótt,
sem er öllum öðrum fremri, það
eru laxveiðar, en þá íþrótt iðkar
hann af slfkri snilld, að fáir leika
það eftir.
Rönning hafa verið falin mörg •
trúnaðarstörf innan sinna sam-
taka m.a. setið f stjórn Félags
rafverktaka og er nú formaður í
stjórn Rafvirkjadeildar samein-
aðra verktaka.
Þrátt fyrir sérgrein okkar í
notkun fornafna, þá höfum við
alltaf kallað þig Rönning, ekki
Jóhann. Ég get ekki skýrt þetta
með öðru en því, að það eru marg-
ir Jóhannar en aðeins einn Rönn-
ing.
Eg óska þér og fjölskyldu þinni
til hamingju með þennan merkis-
dag.
Jón Magnússon.
★
Þeim, sem vilja samfagna
Rönning á þessum merka degi,
skal á það bent, að hann og kona
hans frú Svava hafa opið hús í
Domus Medica milli kl. 5 og 7 f
dag.
í nokkur ár voru skrif-
stofur fslenzku flugfélag-
anna gegnt hvor annarri
við Vester Farimagsgade.
Skrifstofa Flugfélags ís-
lands að no. 1 og skrifstofa
Loftleiða að no. 4. Þessi
skipan húsnæðismálanna
hélzt enn um sinn eftir að
stjórn og verkefni voru
sameinuð um áramótin
síðastliðin.
I síðustu viku fluttist svo
starfsemin að Vester
Farimagsgade 1. Stutt var
að flytja, aðeins þvert yfir
5
Vilhjálmur
Guðmundsson
Flugfélögin
flytja sam-
an í Höfn
götuna, og á myndinni
sjást starfsmenn félaganna
flytja skilti Loftleiða að
hinni sameiginlegu skrif-
stofu, þar sem nafn Flug-
félagsins, eða Icelandair
eins og félagið heitir er-
lendis, var fyrir.
Forstjóri íslenzku flug-
félaganna í Danmörku og
hinnar sameiginlegu skrif-
stofu að Vester Farimags-
gade 1 er Vilhjálmur Guð-
mundsson og aðstoðarfor-
stjóri Milton Lundgren.
Sigling um 1 safjarðardjúp,
heimsóttar eyjarnar nafnfrægu
Æðey og Vigur og fleiri
markverðir staðir.
Ferðir á landi til næstu héraða,
Bilferðir um Skaga-
fjörð, ferðir til Siglu
fjarðar og þaðan
um Ólafsfjörð, Ólafs
fjarðarmúla, Dalvík
og Árskógsströnd
til Akureyrar.
Hofuðsfaður Norðurlands.
Kynnisferðir um gjörvalla Eyja-
fjarðarsýslu og til nærliggjandi byggða.
i Vaglaskógur og Goðafoss prýða
1 leiðina til Mývatnssygitar.
! mm' ramfarhöfn
\húsavík
iSWíí, Á
Nýtt og glæsilegt
hótel. Þaðan eru
skipulagðar ferðir og
steínsnar til Ásbyrgis
Hljóðakletta, Detti-
foss, Mývatnssveitar,
Námaskarðs og
Tjörness.
ÍSAFJÖRÐUR; ’v
ÞINGEYRl
PATREKSFJÖRÐUR^ L
Hér er látrabjarg J
skammt undan og \
auðvelt er að ferðast *
til næstu fjarða.
>: _ wí
ÞÓRSHÖFN
■ ; ’
■' ■: ' :■:•■
neskaupstaður
■
Höfuðborgín sjálf.
Hér er miðstöð lands-
manna fyrír list og
mennt, stjórn, verziun
og mannleg viðskípti.
Hóðan ferðast menn
á Þingvöll, til Hvera-
gerðis, Gullfoss og
Geysis eða annað,
sem hugurinn leítar.
Áætfunarferðir bíf-
reíða tíl nærlíggjandi
fjarða. Fljótsdals-
hérað, Lögurinn og
Hallormsstaðaskagur
Innan seilingar.
' i
t
\ á
REYKJAVIK
FAGURHÓLl
Ferðir i þjöðgarðinn
að Skaftafelii, Öraefa-
sveit og sjáið jafn-
framt Breiðamerkur-
sand og Jökulsárlón.
Skipulagðar kynnísferðír
á landí og á sjó.
Gott hótel. y
Merklíegt sædýrasafn.
Og auðvjtað gldstöðvarnar,
sama hvar ferðirt hefst. Sé Isafirði sieppt kostar hringur-
inn kr. 6.080. Allir venjutegir afstættir eru veíttír af þessu
fargjaidi, fyrir hjón, fjötskyldur, hópa o. s. frv.
Kynnið yður hinar tfðu ferðir, sem skipulagðar eru frá
flestum lendingarstöðum Fiugfélagsins til nærliggjandi
byggða og eftirsóttustu ferðamannastaða.
Stærrl áætlun en nokkru slnnl — allt með Fokker
skrúfuþotum.
Frekarl upplýsingar veita umboðsmenn, ferðaskrifstof-
urnarog skrifstofur flugfélaganna.
Áætlunarflug Flugfélagsins tryggir fljóta, þægilega og
ódýra ferð, og tækifæri til að leita þangað sem veðriö
er bezt.
í sumar fljúgum við 109 áætlunarferðir í viku milli Reykja-
víkur og 13 ákvörðunarstaða um land ailt. Og til þess að
tengja einstaka landshluta betur saman höfum við tekið
upp hringfiug. Hringfiug okkar umhverfis landið með áætl-
unarferðum er sérstakt ferðatilboð til yðar. Fyrir kr. 7.630
getið þér ferðast hringinn Reykjavík — ísafjörður — Akur-
eyri — Egilsstaðir —- Hornafjörður — Reykjavik. Það er