Morgunblaðið - 28.07.1974, Page 9

Morgunblaðið - 28.07.1974, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUK 28. JULI 1974. 9 hefndu hans og fóru síðan til ís- lands 22. Þrándur mjögsiglandi nam land f Eystrahrepp og bjó f Þránd- arholti. 23. Ásmundur Öndóttsson kom út I Eyafirði og gaf Helgi magri honum land i Hllð. 24. Ásgrimur Öndóttsson kom einnig f Eyafjörð og gaf Helgi hon- um land næst bróður sinum og bjuggu þeir á syðri og ytri Glerá. Vegna viðurnefnis föður sins voru þeir kallaðir kræklingar og siðan var hliðin við þá kennd og kölluð Kræklingahlíð, sem hún heitir enn i dag. Ásgrimur var afi Ásgrims Elliaðgrimssonar. 25. Öndóttur Öndóttsson kom út i Skagafirði. nam þar og bjó i Viðvik. 26. Sleitu-Björn átti Þuriði dótt- ur Steinólfs lága og nam hálfan Saurbæ i Dölum. Hann hafir verið af Egðum. Jaðar 1. Finnur hinn auðgi Halldórs- son. Högnasonar. fór af Stafangri til fslands. Hann nám Leirársveit og bjó að Miðfelli (sem nú telst til Strandarhrepps). 2. Hafnar-Ormur nam Mela- hverfi inn til Andakilsár og bjó i Höfn. Landnáma talar um þessi tvö landnám eins og það hefi verið eitt, „landnám þeirra Finns og Orms". Má þvi telja liklegt að Ormur hafi einnig verið frá Staf- angri. en þá er átt við fjörðinn, en ekki borg þá er nú stendur þar. Sagt er að þeir feðgar Ásvaldur og Þorvaldur á Dröngum hafi flúið af Jaðri fyrir vlgasakir, en þeirra er getið hér áður. 3. —4. Fóstbræðurnir Vest mann og Úlfur fóru einu skipi til fslands og námu Reykjadal i S. Þing. að austan. Úlfur bjó undir Skrattafelli, en Skrattaland var á Jaðri og þykir fágætt og einkenni- legt nafn. Þelamörk Úlfur gyldir hér hersir rfkur á Þelamörk og bjó að Filavöllum. Sonur hans var Ásgrimur, er bjó þar siðan. Hann vildi ekki greiða Haraldi konungi skatt og þess vegna lét konungur drepa hann. Tveir synir hans, Þorsteinn og Þorgeir fóru þá til islands. 1. Þorsteinn Ásgrimsson nam land á Rangárvöllum efri suður af Heklu og bjó i Skarðinu eystra. 2. Þórgeir Ásgrímsson keypti Oddalónd af Hrafni Hængssyni og bjó siðan i Odda. 3. Þórunn móðursystir þeirra bræðra. er út kom með þeim, nam Þórunnarhálsa hið næsta við land- nám Þorsteins. :ItU- <'M v jí'x í4 $ —lir !' ■ v $..*yr i;-V/ fí'Vl fó:. C V ^ Haddingjadalur Grfmur hét maður Ingjaldsson, Hróaldssonar úr Haddingjadal, bróðir Ása hersis. Hann fór til fslands og hafði vetursetu i Grims- ey á Steingrimsfirði. Hann drukknaði i fiskiróðri. En Bergdis kona hans og Þórir son þeirra námu siðan land i neðanverðum Hnappadal. 1. Þórir Grfmsson bjó á Rauða- mel ytra langa ævi. Hann var kall- aður Sel-Þórir og var höfðingi mik- ill. f elli sinni var hann blindur en sá þó fyrir eldsuppkomu þar sem Eldborg er nú. Hann dó I Þóris- björg. 2. Þórir son Ása hersis Ingjalds- sonar, Hróaldssonar, nam Kald- nesingahrepp og bjó á Selfossi. 3. Kollur hét maður Veðrar- Grimsson. Ásasonar hersis. Hann kom út með Auði Djúpúðgu og hafði forráð með henni. Hann gift- ist sonardóttur Auðar og gaf hún honum Laxárdal úr landnámi sínu. Síðan var hann kallaður Dala-Koll- ur. Haddingjadalur kallast nú Hall- ingdal. Valdres 1. Bjöm hét maður auðugur og ofláti mikill. Hann fór til fslands af Valdresi. nam land milli Kerlingar- dalsár og Hafursár og bjó á Reyni. Var hann siðan kallaður Reyni- Bjöm. Hann var forfaðir Þorláks biskups helga. Rogaland Þaðan voru þeir bræðurnir Geir- mundur heljarskinn og Hámundur heljarskinn. Eru þeir taldir synir Hjörs konungs, sonar Halfs kon- ungs. Þeir voru I hernaði vestan- hafs um þær mundir er Haraldur konungur brauzt til valda i Noregi. 1. Geirmundur heljarskinn fór úr Suðureyjum til fslands og nam Skarðsströnd milli Fábeinsár og Klofasteina og bjó á Geirmundar- stöðum undir Skarði. 2. Hámundur heljarskinn réðist til lags við Helga magra og kom út með honum og nam land. Hann bjó á Espihóli syðra i Eyafirði. 3. Örn hét maður. frændi þeirra bræðra og kom hann hingað af Rogplsndi. Hann nam fyrst land i Arnaríirði og er sá fjörður við hann kenndur. En er hann spurði til Hámundar frænda sins fyrir norðan. fluttist hann þangað og fékk land út með Eyafirði og bjó i Arnamesi. 4. Þórir sonur Grims Gráfetdar- múla á Rogalandi nam land um Ljósavatnsskarð. Hannvarafi Þor- geirs Ljósvetningagóða. Hörðaland Ætt Hörða-Kára: Snorri Sturlu- son segir i Heimskringlu, að á dögum Ólafs konungs Tryggva- sonar hafi ættbogi Hörða-Kára verið mestur og göfgastur á Hörðalandi. Koma þeir frændur vfða við sögur. Sonur Hörða-Kára var Þo leifur spaki. sem aðstoðaði Úlfljót. við að semja fyrstu stjórn- arskrá fslands. Annar sonur hans var Ögmundur faðir Þórólfs skjalgs. föður Erlings á Jaðri. Þriðji sonur hans hét Þórður og var hann faðir Klypps hersis, er drap Sigurð konung slefu; dóttir klypps var Guðrún kona Einars Þveræings. Fjórði sonur Hörða- Kára var Ölmóður gamli, faðir Ás láks Fitjaskalla. sem varð bana- maður Erlings Skjalgssonar og þótti það frændvig óskaplegt. Dóttir Hörða-Kára var Vilgerður móðir Hrafna-Flóka. Önnur dóttir hans var Þóra móðir Úlfljóts lög- sögumanns. Landnáma segir að Hjörleifur fóstbróðir Ingólfs hafi verið af þessari ætt. Þóra mostur- stöng, móðir Hákonar konungs Aðalsteinsfóstra var f frændsemis- tölu við Hörða-Kára. — Þórður hreða. sem bjó að Ósi f Miðfirði, er talinn Þórðarson. Hörða-Kára- sonar. 1. Hrafna-Flóki hugðist fyrstur Norðmanna nema hér land. Hann hafði vetursetu hjá Brjánslæk og aðra i Borgarfirði, en sigldi svo heim. Seinna kom hann svo og nam þá fyrst land norður í Fljótum I Skagafirði. Hann hefir liklega átt heima i Etnesókn á Hörðalandi áður. 2. Eyvindur Þorsteinsson hersis á Hörðalandi, nam fremri hluta Reykjadals i Suður Þingeyarsýslu og bjó á Einarsstöðum. 3. Ketill hörðski bróðir hans nam einnig Reykjadal og bjó á Helgastöðum. 4. Grenjaður Hrappsson nam Þeojandadal i Suðursýslu og bjó á Grenjaðarstöðum.(Ekki er annað til marks um að hann hafi verið frá Hörðalandi en hann skfrir dalinn Þegjandadal, en svo hét þá dalur á Sunnhörðalandi og er er það fá- gætt nafn). 5. Þrasi sonur Þórólfs horna- brjóts Herjúlfssonar kom af Hörðalandi og bjó i Skógum undir Eyafjöllum. Hann átti illdeildur við Loðmund gamla i Sólheimum. Sagt er að hann hafi falið gullkistu undir Skógafossi. 6. Þórolfur Mostrarskegg kom frá eynni Mostur. sem er undan Sunnhörðulandi. Hann kom út 884 og nam Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Hann var mikill Þórsdýrkandi og kallaði landnám sitt Þórsnes og reisti mikið hof. Hann stofnaði héraðsþing og hann lagði bannhelgi á Helgafell og dó i fellið. 7. Sölmundur sonur Þórólfs smjörs hefir sennilega átt heima á Sunnuhörðalandi. Eyrbyggja segir að margir vinir Þórolfs Mostrar- skeggs hafi ráðist til ferðar með honum, og hafa þeir þá verið af meginlandinu og haft sin eigin skip. Meðal þeirra hygg eg að Sölmundur hafi verið, en hann nam land i Brynjudal i Hvalfirði. Margir Hörðar hafa komið út Kortin með greininni eru úr Egils sögu Forn- ritaútgáfunnar. með Þórolfi, þótt ekki sé þess getið. 8. Hallsteinn sonur Þórolfs Mostrarskeggs kom út nokkuru siðar. Þótti honum litilmannlegt að þiggja land af föður sinum og nam þvi land utan Þorskafjarðar á Hallsteinsnesi. 9. —10. Frá Vors á Hörðalandi voru þeir bræðurnir Þormóður og Þórður gnúpa. Námu þeir land sunnan á Snæfellsnesi innarlega. Bjó Þórður i Gnúpudal, en Þor- móður á Rauðkollsstöðum. 11.— 12. Frá Vors voru þeir lika fóstbræðumir Loðmundur gamli og Bjolfur. Loðmundur nam milli Fúlalækjar og Hafursár og bjó að Sólheimum, en Bjolfur nam Seyð- . isfjörð. 13. Þórir hin hávi var kominn af Vors. Hann nam Geitisvfk á milli Gerpis og Reyðarfjarðar. 14. Krumur var frá Vors. Hann nam Hafranes, Þernunes og Skrúð. 15. Böðvar hinn hviti á Vors, sonur Vikinga-Kára, fór til fslands og nam Alftafjörð hinn syðra i Austfjörðum. Hann bjó að Hofi og reisti þar hof mikið. Dóttir Böðvarðs var Ólöf er átti Teitur Ketilbjarnarson og var Gissurhviti sonur þeirra. Sonur Böðvars var Þorsteinn, faðir Siðu-Halls. Þeir feðgar bjuggu á Hofi þar til dfsir drápu Þiðranda son Halls, þá fluttist Hallur að Þvottá. 16. Brandönundur, frændi Böðvars kom út með honum og nam Kambsdal og inn til Hamarsár. 1 7. Önundur tréfótur var bróðir Guðbjargar móður Guðbrands kúlu, en föðurkyn hans var mest um Rogaland og Hörðaland. Hann nam Kaldbaksvik á Ströndum. sonur hans var Þorgrimur hæru- kollur, faðir Ásmundar á Bjargi, föður Grettis. 18. Ulfur vorski keypti land af Hrollaugi jarlssyni frá Heinabergs á að Hregggerðismúla og bjó að Skálafelli fyrst, en síðan á Breiða bólstað i Papsýli. 19. Reistur sonur Bjarneyja Ketils. nam land milli Reistar- gnúps og Rauðagnúps og bjó i Leirhöfn. Ketill faðir hans hefir liklega verið kenndur við Bjarn- eyar hjá Sunnmæri. Ketill var gift- ur Hildi, systur Ketils þistils. 20. Ketill þistill nam Þistilfjörð milli Hundsness og Sauðaness Sonur hans var Sigmundur land námsmaður undir Jökli, faðir Laugarbrekku-Einars. 21. Sigmundur Ketilsson þistils námu land fremst á Snæfellsnesi og bjó á Laugarbrekku. 22. Eysteinn meinfretur, sonur Alfs úr Ostu, nam fyrst Hrúta fjarðarströnd og bjó þar nokkra vetur, áður en hann fékk Þórhildar sonar dóttur Auðar djúpúðgu. Þá réðist hann norðan i Dali og bjó þar siðan. — Nafnið Osta hefi ég hvergi getað fundið. en gæti ekki skeð að hér væri átt við Ostru i Ostrarfirði fyrir norðan Bergen?. 23. Þorgeir hörðski keyðti land af Ásgeiri kneif undir Eyafjöllum og bjó i Holti. Kenningarnafn hans virðist ótvirætt benda til þess. að hann hafi verið frá Hörðlandi. en i Landnámu segir að hann hafi „farið af Viggjum i Þrándheimi" til íslands. Hann var faðir Holta- Þóris. Hjörleifur Hörðakonungur átti Æsu hina Ijósu. Þeirra son Ótrygg- ur, faðir Óblauðs, föður Hógna hins hvíta, föður Ulfs skjalga. 24. Ulfur skjalgi Högnason kom út samtímis Geirmundi heljar- skinn og nam Reykjanes milli Þorskafjarðar og Berufjarðar. Hann átti Björgu dóttur Eyvindar Austmanns, systur Helga magra (Þórðarbók telur hann kominrt frá Rogalandi). 25. Geirolfur Eiriksson, Högna- sonar hins hvlta nam Barðaströnd Hann var afi Gests Oddleifssonar hins skyggna 26. Örlygur Böðvarsson fór til íslands fyrir ofríki Haralds konungs hárfagra. Kona hans var Signý, systir Högna hins hvita. Hann hafði veturvist hjá Geir- mundi heljarskinn, en um vorið gaf Geirmundur honum bú sitt i Aðalvik. Örlygur nam Sléttu og Jökulfjörðu. 27. Ketill gufa var sonur Örlygs Hann kvæntist Ýri Geirmundar- dóttur og nam siðan Gufufjörð og Gúfudal. Sogn. Ætt Bjarnar bunu: Björn buna hét ágætur hersir í Sogni. sonur Gríms hersins f Sogni, Hjaldurs sonar, Vatnarssonar konungs. Frá Birni er nær allt stórmenni komið á íslandi, segir Landnáma. Hann átti 3 sonu. Einn var Ketill flat- nefur Böm hans voru: Björn austræni. Helgi bjóla, Auður djúpúðga. Þórunn hyrna. Jórunn mannvitsbrekka. Annar sonur Bjarnar bunu var Helgi faðir Heyangurs Bjarnar. Þriðji bróðir- inn hét Hrappur, faðir Þórðar skeggja og Örlygs gamla Þeir voru þremenningar Björn buna og Olvir barnakarl. 1. Auður djúpúðga var gift Ólafi hvíta konungi i Dyflinni, hann fell i orustu. Sonur þeirra var Þor- steinn rauði, er fell á Katanesi. Þá brá Auður til íslandsferðar. Hún nam Dali, öll lönd í innanverðum Hvammsfirði frá Dógurðarár til Skraumuhlaupsár. „Auður var vegskona mikil". 2) Björn austræni bróðir hennar var vinur Þórolfs Mostrarskeggs og nam land næst fyrir utan hann á Snæfellsnesi, hann bjó i Bjarnar- höfn. 3. Helgi bjóla bróðir þeirra nam Kjalarnes og bjó að Hofi. 4. Ketill fiflski. sonur Jórunnar mannvitsbrekku. nam land á Siðu og bjó I Kirkjubæ. þar sem Papar höfðu áður setið. Sá bær kallast nú Kirkjubæjarklaustur. Þórunn hyrna og Helgi magri áttu mörg börn. Synir þeirra eru taldir með landnámsmönnum, en Helgi verður ekki talinn hér vegna þess að hann var ekki norskur. faðir hans var sænskur en móðir irsk, en hann sjálfur fæddur á írlandi. Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.