Morgunblaðið - 28.07.1974, Síða 13

Morgunblaðið - 28.07.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLl 1974. 13 SKÝRINGAR VIÐ LANDNÁMSKORT: 1. Ingólfur Arnarson • Reykjavík. 2. Skalla-Gnmur Kveld-Ólfsson • Borg. 3. Þórólfur Mostrarskegg • Helgafell. 4. Auður djúpúðga • Hvammur. 5. Geirmundur-Heljarskinn • Geir- mundarstaðir. 6. Úlfur skjálgi • Miðjanes. 7. Ingimundur gamli • Hof. 8. Sæmundur suðureyski • Sæmund- arstaðir. 9. Helgi magri • Kristsnes. 10. Bárður Heyangurs-Bjarnason • Lundarbrekka. 11. Uni danski • Unaós. 12. Hrollaugur Rögnvaldsson • Breiðabólstaður. 13. Þorgerður ekkja Ásbjarnar Heyangurs-Bjarnason- ar og synir hennar • Sandfell. 14. Gnúpa-Bárður • Gnúpir (sjá 10. Bárður Heyangurs-Bjarnarson). 15. Ketill fíflski • Kirkjubær. 16. Ketill hængur • Hof. 17. Ketilbjörn gamli • Mosfell. fjarðardölum. Merfcastur þeirra var Þóröur gellir. sem uppi var é fyrri hluta sögualdar. Olfur skjálgi Högnason Úlfur skjélgi (rangeygi) sonur Högna hins hvlta fór af Rogalandi fyrir ófriSi Haralds hérfagra til (s- lands og nam land milli Berufjarft- ar og Þorskafjarftar, — Reykjanes allt milli Þorskafjarftar og Hafra- fells, segir Hauksbók. Úlfur var höfftingi mikill og er hans vlfta getift I sögnum, s.s. Þorskfirftinga- sögu. Knrteikar voru meft Úlfi og Geirmundi heljarskinn og höfftu þeir samflot til fslands. Úlfur hús- afti bn sinn é Miftjanesi. Kona hans var Björg systir Helga magra og voru synir þeirra Jörundur og Atli hinn raufti, en Reyknesingar voru komnir af Ara Méssyni Atla- sonar raufta. Geirmundur Hjörsson heljarskinn Geirmundur var afkomandi Hjörleifs Hörftakonungs hins kvensama og var sjélfur fylkiskon- ungur I Noregi. Hann var vlkingur mikill og herkonungur og haffti herjaft I vesturvlking. Geirmundur étti rlki é Rogalandi, en Haraldur hérfagri hrakti hann frá völdum, svo aft hann tók þaft ráð aft leita fslands. Haffti hann samflot meft Úlfi hinum skjélga eins og áftur greinir. Geirmundur nam fyrst land fré Fábeinsá til Klofasteina é Skarftsströnd, en þótti landnám sitt of lltift og fór þvl vestur á Strandir og nam þar land fré Rygtagnúp vestan til Horns og þaftan austur til Straumness. Geir- mundur bjó é Geirmundarstöðum undir Skarfti, en snemma munu bœjarhúsin hafa verið flutt, þar sem Skarft á Skarðsströnd stendur enn i dag. Skarð á Skarðsströnd mun hafa haldizt I ætt Geirmundar fram á vora daga. Ingimundur gamli Þorsteinsson Ingimundur var sonur Þorsteins Ketilssonar hersis I Raumsdal I Noregi. Hann var víkingur mikill og herjaði jafnan I vesturveg. Ingi- mundur var I kærleikum við Harald konung hárfagra og gifti konungur honum Vigdlsi dóttur Þóris jarls þegjanda. Ingimundur undi hag sínum illa I Noregi og þvl fýsti Haraldur konungur hann að leita forlaga sinna til fslands. Áður en Ingimundur lagði upp i íslands- förina, var honum vísað til landa „I dal einum milli holta tveggja". Ingimundur tók fyrir sunnan land og var um veturinn á Hvanneyri með Grirni fóstbróðir sinum. I Vatnsdal kenndi Ingimundur lönd þau, er honum hafði verift visað til, og nam hann dalinn allan upp frá Helgavatni og Urðarvatni fyrir austan. Hann reisti bæ sinn að Hofi. Um Ingimund er sagt. að ekki hafi meiri öðlingur til fslands komið, og er fræg sagan, er hann i andarslitrunum skaut banamanni sinum undan til að forða honum frá hefndum. Synir Ingimundar voru Þorsteinn, Jökull, Þórir og Högni og tóku þeir við mannafor- ráðum eftir föður sinn, en frá þeim voru Vatnsdælir komnir. Sæmundur suðureyski Sæmundur hét maður, suður- eyskur, félagi Ingimundar gamla. Hann kom skipi sinu i Göngu- skarðsós og nam Sæmundarhlíð alla til Vatnsskarðs fyrir ofan Sæmundarlæk og bjó á Sæmund- arstöðum (Geirmundarstöðum — Hauksbók). Hans sonur var Geir- mundur, er þar bjó siðan. Sæ- mundur hefur löngum verið talinn fyrir landnámsmönnum i Skaga- firfti. Helgi magri Eyvindarson Eyvindur faftir Helga var sonur Bjöms Hrólfssonar frá Ám á Gaut- landi. Hann hafði farift i vesturvik- ing og gengið að eiga Raförtu. dóttur Kjarvals frakonungs, og staðfestst á frlandi. f bemsku var Helgi sendur I fóstur i Suðureyjar, en var sveltur i fóstrinu, svo að foreldrar hans þekktu hann ekki. er þau komu aft vitja hans. Fékk hann af þvi viðumefnið hinn magri. Er Helgi varft fulltiða. fékk hann Þórunnar hyrnu, dóttur Ketils flatnefs. systur Auðar djúp- úftgu. Um Helga segir Landnáma, aft hann hafi verift mjög blendinn i trúnni. Hann trúði á Krist. en hét á Þór til sæfara og harðræða og alls þess, er honum þótti mestu varða. Helgi lét Þór visa sér til landa. Hann nam allan Eyjafjörð milli Sigluness og Reynisness og gerði eld mikinn vift hvem vatnsós og helgaði sér svo allt héraftift. Bæ sinn kenndi Helgi við Krist og kallaði Kristsnes. Niðjar Helga magra réðu lögum og lofum i Eyja- firði fram eftir öldum. Einn afkom- anda hans var Viga-Glúmur, sem miklar sögur gengu af á seinni hluta 10. aldar. Bárður Heyangurs- Bjarnason (Gnúpa-Bárður) Bárður var sonur Heyangurs- Bjarnar hersis úr Sogni. Hann kom skipi sfnu I Skjálfandafljótsós og nam Bárðardal upp frá Kálfa- borgaré og Eyjardalsá og bjó að Lundarbrekku um hrið. Þá mark- aði hann af veðmm. að landviðri voru betri en hafviðri, og ætlaði af þvi betri lönd fyrir sunnan heiði. Hann fluttist þvi suður yfir öræfi með búslóft sina, fór Vonarskarð, sem siðan heitir Bárðargata og settist að suður i Fljótshverfi. Þar reisti hann bæ sinn að Gnúpum og nefndist upp frá þvi Gnúpa- Bérður. Bárftur var maður kynsæll og átti fjölda barna. Frá honum var kominn Þorgeir goði að Ljósa- vatni, sem hafði úrslitavald um það, að kristni var lögtekin á alþingi. Uni danski Garðarsson Uni danski var sonur Garðars Svavarssonar, þess er fyrstur fann landið norrænna manna. Hann fór til fslands að ráfti Haralds hár- fagra og ætlafti að leggja landið undir sig. og hafði konungur heit- ið að gera hann síðan jarl sinn. Uni tók land. þar sem nú heitir Unaós og húsaði þar, — hann nam land fyrir sunnan Lagarfljót. allt hérað til Unalækjar. En er landsmenn vissu ætlan hans, tóku þeir að ýfast við hann, svo að hann hrökklaftist með menn sina til Leiðólfs kappa i Leiðólfsstöðum á Siftu. Þar lenti hann I ástar- ævintýri með Þórunni. dóttur Leiðólfs. og var hún með bami um vorift. Vildi Uni þá hlaupast á brott, en Leiðólfur vildi, að hann ætti dóttur sina og tæki arf eftir sig. Lauk viðskiptum þeirra þannig, að Leiftólfur drap Una og förunauta hans. Sonur Una og Þórunnar var Hróar Tungugoði. sem tók arf eftir Leiftólf. og segir Landnáma, aft hann hafi verift „hift mesta afarmenni". Hrollaugur Rögnvaldsson Hrollaugur var einn af frilluson- um Rögnvalds jarls á Mæri. og segja heimildir, að hann hafi verið hálfbróftir Göngu-Hrólfs. sem vann Normandí á Frakklandi. Um Hrollaug sagði faftir hans, aft hann mundi eigi jarl verfta, þar eft hann heffti ekki skap til styrjalda. — „munu vegir þinir liggja til is- lands. Muntu þar göfugur þykja á þvi landi og verða kynsæll. en engi em hér forlög þin". Fór Hrollaugur þá til Haralds konungs og var með honum um hrift, þvi að þeir feðgar áttu ekki skap saman eftir þetta. Hrollaugur fór til fs- lands með ráði konungs og hafði með sér konu sina og syni. Kom hann að landi austur við Hom og skaut þar fyrir borð öndvegissúl- um sfnum, og bar þær á land i Homafirði. Þar nam Hrollaugur land austan fré Horni til Kviér og bjó fyrst undir Skarðsbrekku, en siðan á Breiðabólstað i Fellshverfi. Hrollaugur var höfðingi mikill, og var jafnan vingott með honum og Haraldi konungi. Segir sagan. að konungur hafi sent honum ger- semar, ölhorn gott og sverð, sem Kolur. sonur Siðu-Halls, eignaðist siðar, og gullhring er vó 5 aura silfurs. Þorgerður á Sandfelli Ásbjöm Heyangurs-Bjamason maður Þorgerðar, lézt f hafi á leiðinni til fslands, en Þorgerður og synir þeirra tóku land og námu Ingólfshöfðahverfi. „En þar var mælt, að kona skyldi ei vfðara nema land, en leiða mætti kvigu tvævetra vorlangan dag sólsetra milli", segir Landnáma. Þorgerður leiddi kvigu sina undan Tóttafelli skammt frá Kviá suður og í Kiðja- klett hjá Jökulsfelli fyrir vestan og nam þvf land um allt Ingólfshöfða- hverfi á milli Kviár og Jökulsár. Hún bjó að Sandfelli og Guðlaugur sonur þeirra Ásbjamar eftir hana. Annar sonur þeirra var Þorgils. sem Hnappfellingar voru frá komnir og sá þriðji var Össur, faðir Þórðar Freysgoða. Ketill fíflski KetHI var sonur Jórunnar mannvitsbrekku, dóttur Ketils flatnefs. Hann fór af Suðureyjum til fslands og nam land milli Geir- landár og Fjarðarár I Skaftafells- sýslu. Ketill var vel kristinn og hlaut af þeim sökum viðumefnið hinn fiflski. Ketill bjó að Kirkjubæ á Siðu. og er sagt. að þar hafi engir heiðnir menn mátt búa. Ketill var kynsæll og átti margt barna. Ketill hængur Þorkelsson Ketill hængur var sonur Þorkels Naumdælajarls og Hrafnhildar dóttur Ketils hængs úr Hrafnistu Hallbjarnarsonar hálftrölls. Ketill hængur hefndi Þórólfs Kveldúlfs- sonar og brenndi inni þá Hárek og Hrærek Hildiriðarsyni. Eftir það var honum ekki vært f Noregi fyrir Haraldi hárfagra. og tók hann það ráð að sigla til fslands. Hann kom skipi sfnu i Rangárós og nam öll lönd milli Þjórsár og Markarfljóts og bjó að Hofi. Kona Ketils var Ingunn og áttu þau margt bama, en einn sona þeirra var Hrafn, sem síðar varð lögsögumaður. Ketils er víða getið í sögum, s.s. Egils sögu, og einnig hafa afkomendur hans orðið frægir i sögum þ.á.m. Ormur sterki Stórólfsson og Gunnar á Hliðarenda. Ketilbjörn gamli Ketilsson Ketilbjörn átti Helgu, dóttur Þórðar skeggja. og bjó i Naumudal i Noregi. Hann fór til fslands, þá er landið var vifta byggt með sjó. Hann átti skip það, er Ellifti hét, og tók land i Elliðaárós fyrir neðan heifti. Ketilbjörn nam Grímsnes allt upp frá Höskuldslæk, Laugar- dal og alla Biskupstungu upp til Stakksár. Hann byggði bæ sinn aft Mosfelli. Sagt er. að Ketilbjörn hafi verið svo auðugur að iausafé, að hann hafi boðift sonum sinum að slá þvertré úr silfri i hofift, sem þeir létu gera. Þessu neituðu syn- irnir, en Ketilbjörn lét þá klyfja tvo uxa með silfri og hélt ásamt þræli sinum og ambátt, Haka og Bót, upp á fjalt eitt. þar sem þau fólu féð. Siðan drap hann Haka i Haka- skarði og Bót i Bótarskarði. Landnáma segir. að margt stór- menni hafi verift frá Ketilbirni komift. Teitur sonur hans. sem fyrstur reisti bú i Skálholti, var faftir Gissurar hvita, sem var faðir fsleifs biskups föftur Gissurar biskups. Hér lýkur þessu yfirliti, en rétt er aft benda á. aft með þvi fylgir landnámskort mönnum til nánari glöggvunar. sv.g. Heimildarit: Landnáma, útg. Helgafels. Ný íslandssaga, Björn Þorsteinsson. íslendingasaga I, Jón Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.