Morgunblaðið - 28.07.1974, Page 27

Morgunblaðið - 28.07.1974, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JULÍ 1974. 27 ÍSLENDINGUM hefur löngum leikið mikil forvitni á uppruna sin- um og hafa reyndar ekki verið á eitt sáttir þar um. Vilja ýmsir telja okkur skyldari írum og Skotum en okkar helztu heimildir, Landnáma og islendingabók. gefa visbend- ingu um, en aðrir vilja leggja meg- ináherzlu á skandinaviskan upp- runa þjóðarinnar. Dr. Jens Páls- son, mannfræðingur, hefur á und- anfömum árum unniS að mann- fræSirannsóknum viSa um land, svo og i Danmörku, Noregi, Skot- landi og frlandi. meSal annars meS þaS fyrir augum aS kanna skyldleika þessara þjóSa viS fs- lendinga. ViS snerum okkur þvi til dr. Jens í þvi augnamiSi aS fræSast um, hvaS rannsóknir hans hafa leitt I Ijós um uppruna fslendinga. Dr. Jens sagSi. aS þaS virtist vera tvennt. sem stangaSist á. Annarsvegar væru þaS niSurstöS- ur blóSrannsókna og hins vegar rannsókna á ýmsum ytri „Itkams- einkennum," eins og hára- og augnalit. „Ef fariS er eftir niSurstöSu blóSrannsókna". sagSi dr. Jens. „þá gefa þær til kynna. aS viS sáum aS yfirgnæfandi meiri hluta komnir af frum eSa Skotum. Upp- haflega kynni jafnvel 80—90% fslendinga aS hafa veriS af Irsku eSa skozku bergi brotnir. En viS. sem þekkjum sögumar, fornleifa- rannsóknir og fleira, vitum. aS hér er full mikiS staShæft. En þetta getur sannfært útlendinga. sem IftiS vita um okkar sögu og menn- ingu frá upphafi. Persónulega hef ég aldrei veriS mjög trúaSur á gildi blóSflokka- rannsókna til aS leysa vandamál viSvikjandi uppruna kynþátta eSa þjóSflokka. Nú á síSustu árum hefur lika ýmislegt komiS fram. sem veikt hefur kenninguna um mikinn skyldleika fslendinga og fra vegna svipaSrar blóSflokka- skipunar. BlóSflokkar eru t.d. ekki eins stöSugir gagnvart umhverf- inu og áður var hafdiB. Það er ýmislegt sem hefur getað breytt btóSflokkaskipun, t.d. farsóttir eins og bólan, og svartidauði. Það er þess vegna ekki eins mikið á blóðflokkunum að byggja og menn áður héldu. Llk blóðflokka- skipan þjóða sannar ekki ákveðið skyldleika þeirra. Rannsóknir á ýmsum ytri líkamseinkennum, hlutföllum þeirra og sambandi virðast hins- vegar samrýmast þeirri mynd, sem sögurnar gefa um uppruna fslendinga og fornfræðin. Sér- staklega á þetta v'ð um athuganir á hár- og augnalit. Beinarannsóknir prófessors Jóns Stephenssen sýndu að höfuðkúphæð fslendinga er nokkru lægri en Norðmanna, en aftur líkari þeim fáu frá Irlandi, sem til eru til samanburðar. Eftir minum rannsóknum i ýms- um landshlutum. og Danmörku og Noregi að dæma, þá eru ungir menn á íslandi sláandi Itkir jafn- öldrum sinum þar. hvað háralit snertir. En hjá þessum þjóðum virðist rúmlega fjórði hver maður vera Ijóshærður. — Eru fslendingar ekki mismunandi eftir landshlutum? — Jú. Dalamenn skera sig e.t.v. töluvert úr. Hjá þeim fara oft saman Ijós augu eða kembd og dökkt hár. sem algengt er á ír- landi. Þeir eru lika mjög margir I O blóðflokki, allt upp I 70%. Þetta allt gæti bent til mikils Frsks skyld- leika. sem samræmist þeirri mynd sem sögurnar gefa. Dalamenn skera sig einnig úr I sambandi við fingraför. þar sem þau eru mjög bogadregin. Ég stóð fyrir fingra- og handafararann- sóknum á frlandi,. en niður- stöðurnar liggja ekki enn fyrir, svo að enn er of snemmt að futtyrða um. hvort frar og Dalamenn llkist, hvað þessi atriði snertir. En ís- lendingar almennt eru mjög svip- aðir Skandinövum. hvað fingraför snertir. Það. sem liggur Ijóst fyrir af rannsóknum okkar. er, að við er- um tvimælalaust nauðallkir Skandinövum I ýmsum greinum, en skerum okkur fré frum og Skot- um — Dalamenn þó minna. Þeirra Ifkamseinkenni eru mjög lík ein- kennum fra. Þetta styður aftur mynd sagnanna. Við getum auðvitað ekki fullyrt neitt nákvæmlega um þessi mát, fyrr en við höfum gert rannsóknir I öllum landshlutum, en að þvf er stefnt. Við Ijúkum rannsóknum I Þingeyjarsýslu næsta sumar. f Árnessýslu, þar sem fólk er all- miklu Ijóshærðara en f Dölunum, sérstaklega f Hreppunum og upp- sveitum, erum við Ifka að Ijúka rannsóknum. j Rangárvallasýslu. þar sem töluverð frsk áhrif eiga að vera samkvæmt sögnunum virðist fólk heldur dekkra á hár, þó að við höfum þaðan aðeins tiltölulega lit- ið úrtak til samanburðar, og eins virðast margir V-Skaftfellingar mjög dökkhærðir. — Hvemig er með skyldleika við Lappa? — Lappar hafa sennilega flutzt Rætt við flp. Jens Pálsson, mannfræðing hingað á landsnámstið. Hinsvegar er erfitt að greina þá. þvf að f Noregi var um að minnsta kosti fjögur kyn að ræða, sem greina þarf á milli. Þá eru Lappar og Finnar eða Kvenir, sem er aust- baltneskur þjóðflokkur, sem blandast Löppum. f sögunum er oft talað um Finna, þegar Ifklega er átt við Lappa. Þriðja kynið er svo kyn, sem Egill Skallagrimsson virðist hafa verið af öðrum þræði, dökkt og stórskorið. f Vestur- Noregi er töluvert um slikt fólk. Að lokum kom svo norræna kynið til skjalanna „Ef svo margir frar hafa flutzt hingað, sem margir vilja vera láta. þá væru fslendingar sennilegast yfirgnæfandi dökkhærðir. Þá má ekki gleyma þvf að gera t.d. ráð fyrir að allverulegur hluti land- námsmanna, sem komið höfðu frá Noregi, hafi Ifka verið dökk- hærður. Nægir t.d. að benda á Egil Skallagrlmsson og Þormóð Kolbrúnarskáld sem afkomendur slfkra manna. Varla var skáldgáfa þeirra heldur frsk. Aðeins nálega 1/5 hluti fslendinga getur kallast svart- hsérður. en um fjórðungur manna i Skandinaviu og á íslandi er af hinu svokallaða norræna kyni eða manngerð þeirri, sem er langhöfða Ijóshærð og með Ijós augu. Sú manngerð. sem sumir kalla keltneska. eru langhöftsr með dökkt hár og Ijós augu. Um það bil 14% af fólki í Skandinaviu og á fslandi eru af þeirri manngerð. Þessi manngerð er mjög algeng á þeim svæðum, þar sem Vfkingur settust að i Skotlandi og jrlandi. Ef við förum eftir Landnámu og athugum, hvaðan menn komu. finnum við visst samband á milli einkenna manna eins og þeir eru f dag oa uppruna landnámsmanna. Einkenni fólks i dag virðist þvi falla vel inn f þá mynd. sem Land- náma gefur. En þetta sannar auðvitað ekkert, en gæti gefið góða vfs- bendingu. En fólk má ekki telja sig sjá fra þó það sjái dökkhærðan mannl - Norskir landnemar Framhald af bls. 23 Arneiðarstöðum, en við Atla er kennd Atlavfk. 7. Björn gullberi var frá Orkadal i Þrándheimi. Hann nam Lundar- reykjadal og bjó á Gullberastöð- um. Sonur hans var Grtmkell goði faðir Harðar. 8. Þórhaddur hinn gamli var hofgoði á Mærinni f Þrándheimi. Hann fór til fslands og hafði með sér mold og súlur úr hofinu. Hann nam Stöðvarfjörð og lagði Hærinahelgi á allan fjörðinn. Naumudalur. 1. Þorsteinn svörfuður. Hann var sonur Rauðs ruggu i Naumudal. Hann nam Svarfaðar- dal. 2. Ketill hængur hét ágætur maður. sonur Þorkels Namdæla- jarls. Ketill hefndi frænda sfns Þórolfs Kveldulfssonar og flýði svo land. Hann nam land f Rangár- þingi og bjó að Hofi. Sonur hans var Hrafn, fyrsti lögsögumaður á fslandi. 3. Ketilbjörn hét ágætur maður f Naumudal. Hann kom út á skipi sem hann kallaði Elliða, og af þvi skipi draga Elliðaár nafn. Ketil- björn nam Grfmsnes fyrir ofan Höskuldslæk, Laugardal og Biskupstungur upp til Stakksár. Hann bjó að Mosfelli. 4. Hallkell bróðir hans kom út seinna. Hann skoraði á Grfm f Búrfelli til landa eða holmgöngu. Þeir börðust og fell Grimur. en Hallkell settist þar að löndum. 5. Án sonur Grfms loðinkinna úr Hrafnistu átti Grélöðu dóttur Vest- mars jarls á írlandi. Þau komu út og settust að í Dufansdal. Þar þótti Grélöðu illa ilmað úr jörðu. Sfðan keypti Án lönd Arnar. er hann fluttist norður. Þá bjuggu þau á Hrafnseyri og þar þótti Grélöðu hunangsilmur úr grasi. Lófót 1. Ólafur tvennumbrúni fór af Lófót til íslands og nam Skeið. Hann bjó á Ólafsvöllum. Kona hans hét Áshildur og við hana er Áshildarmýri kennd. Hálogaland 1. Sighvatur rauði hét göfugur maður á Hálogalandi. Hann fekk land hjá Katli hæng efst f Fljóts- hlfð. Synir hans voru Sigmundur faðir Marðar gfgju og Sigfús f Hlfð. en dóttir Rannveig móðir Gunnarsá Hlfðarenda. 2. Geirröður hét maður er kom af Hálogalandi til fslands og nam land á Snæfellsnesi og bjó á Geir- röðareyri, sem nú kallast Narfeyri. 3. Finngeir Þorsteinsson öndurs kom út með Geirröði. nam Alfta- fjörð og bjó á Kársstöðum. Hann var afi þeirra Þorbrandssona. 4. Úlfar kappi var félagi Geirröðs. Hann bjó á Úlfarsfelli. 5. Þuriður sundafyllir og Völu- Steinn son hennar komu frá Hálogalandi og námu Bolungavfk. 6. — 7. Ulfur vfkingur og Ólafur bekkur komu samskipa til Islands. Olafur nam Olafsfjörð og bjó f Kvfabekk, en Ulfur nam Ulfsdali. 8. Þórir Þursasprengir hét mað- ur og var fæddur á Ömd á Háloga- landi. Hann fór til fslands og nam Öxnadal og bjó á Vatnsá. 9. Þengill mjögsiglandi fór af Hálogalandi til fslands og nam að ráði Helga magra land frá Dals- mynni til Grenivfkur og bjó f Höfða. 10. Eyvindur Loðinsson á Öngley á Hálogalandi kom út og nam Flateyrardal upp til Gunn- steina „og blótaði steinana". 11. Eysteinn hét maður, sonur Þorsteins drangakarls. Hann braut skip sitt við fsland og bjó siðan i Fagradal i Mýrdal. 12. Ölver sonur Eysteins nam land fyrir austan Grfmsá. „Þar hafði engi maður þorað að nema fyrir landvættum, síðan Mjörleifur var drepinn". Ölver bjó f Hjörleifs- höfða. 13. Grímur hinn háleygski Þórisson, Gunnlaugssonar, Hrolfs- sonar, Ketilssonar kjölfara, kom út með Skallagrimi, nam land milli Andakils og Grimsár og bjó á Hvanneyri. 14. Hrómundur bróðir hans nam Þverárhlíð og bjó á Karlsbrekku. 15. Skjöldulfur hét maður er nam stræti fyrir utan Gnúp og inn til óss og Skjöldulfsnes. Sonur hans hét Háleygur, er bjó þar sið- an, þaðan er Háleygjaætt komin. Menn munu spyrja til hvers ver- ið sé að gera skrá sem þessa. hvort nokkurt gagn muni geta að henni orðið. Þvi má svara þar til, að vér verðum aldrei offróðir um sögu vora. En þessi útdráttur úr Land- námu mætti vel verða til þess. að vekja menn til umhugsunar og athugunar á ýmsu. sem lítill gaumur hefir verið gefinn að þessu. Það er I sjálfu sér fróðlegt og skemmtilegt að vita frá hvaða fylkjum f Noregi landnámsmenn- irnir komu, og hvaðan flestir hafa komið. Þessi skrá sýnir, að land- flóttinn í Noregi hefir verið mjög mismunandi eftir héruðum. Úr sumum héruðum koma margir, en öðrum héruðum fáir eða engir. Hverjar voru ástæður til þessa? Það hefir verið bamalærdómur hér á landi um margar aldir, að orsök landflóttans f Noregi hafi eingöngu verið harðstjórn og of- rfki Haralds konungs hárfagra. Ætti þá mismunandi mikill flótti úr hinum ýmsu héruðum að benda til þess. að ofrfki Haralds hafi verið mismunandi eftir landshlutum? Trúi þvi hver sem vill. Það er augljóst, að eitthvert annað og sterkara afl en harðstjórn Haralds. hefir stjórnað flóttanum. Þetta sannar Ifka Ari fróði þar sem hann segir f íslendingabók: „En þá varð för manna mikil mjög út hingað úr Noregi tii þess unz konungurinn Haraldur bann- aði, af þvf að honum þótti land- auðn nema. Þá sættust þeir á það. að hver maður skyldi gjalda kon- ungu fimm aura. sá er eigi væri frá þvf skiliður og þaðan færi hing- að". Nú hafði fjöldi Norðmanna flutzt áður til Vesturlanda: Hjalt- lands, Orkneya, Suðureya og ír- lands og dvalist þar lengur eða skemur. Hvemig stóð á þvf, að f þetta norska lið brast landflótti um sama leyti og íslandsferðir hófust úr Noregi. og allur skarinn streymdi til islands? Þaðhlýturað hafa verið vegna þess, að fsland hafði eitthvert sérstakt aðdráttar- afl, sem skyndilega lætur til sfn taka. Þetta aðdráttarafl hefir ver- ið, að þar var hægt að fá stórar og góðar jarðir fyrir ekki neitt og auk þess fjölda sauðfjár fyrir ekki neitt. Menn gátu orðið rikir þar á augabragði. Lftum þá aftur á skrána og at- hugum betur hinn mikla mun á landflótta úr ýmsum héruðum. Hann hlýtur að geta sagt sfna sögu, ef vel er eftir leitað. Stafaði hann af þvi hver IHskjör manna voru ólik eftir héruðum? Gat ein- hverju hafa ráðið um þetta, að skipakostur hafi verið misjafn i héruðunum? Svo virðist, að það hafi ekki verið fátæklingar sem flykktust til fslands, heldur efnað- ir menn og höfðingjar, og hvort munu þeir hafa búist við. að verða enn meiri hofðingjar f nýa land- inu? Þannig geta spurningar hrúg- ast upp. og það hefir nokkra þýð- ingu fyrir sögu vora, að þeim sé unnt að svara. En þó er merkasta atriðið enn eftir. Það er augljóst, að fjölda mörg örnefni og bæanöfn hér á landi hafa norskir landnámsmenn gefið í öndverðu. Þeir hafa beinlfnis flutt þau með sér frá Noregi. Með þvi hefir þeim fundist að þeir flytti nokkuð af sál fósturjarðarinnar hingað og gróðursettu hana f nýa landinu. Og fyrir þetta varð hið framandi land ekki framandi leng- ur, þegar fjöll þess og hálsar. ár og vötn. dalir og nes höfðu eignast kær nöfn frá heimabyggðinni. Eins hafa þeir gefið bústöðum sfnum nöfn bæa sinna I Noregi og voru því „heima", þrátt fyrir breyting- una. Slik nafnatryggð hefir verið rfkur þáttur f skapgerð norrænna manna allt fram að þessu. Þegar fslenzkir bændur fóru á seinna hluta fyrri aldar að nema land f Vesturheimi. völdu þeir nýu bæ- unum sfnum kærustu nöfnin úr heimahögum. Þessi rótgróni siður getur orðið lykill að aukinni þekkingu. Ef vér athugum örnefni og bæanöfn f landnámi einhvers manns, sem vér vitum hvaðan var kominn. og berum þau saman við nöfn f ætt- byggð hans f Noregi, kemur f Ijós að nöfnin eru mörg hin sömu á báðum stöðum. Þetta er vfða svo áberandi, að um tilviljan getur ekki verið að ræða. Slfkar athuganir eru vel til þess fallnar að staðfesta sannleiksgildi frá- sagna Landnámu. Sá sem tekur sér fyrir hendur að rannsaka þetta. þarf að vita hvar voru ætt- stöðvar landnámsmanna, og þá ætti skráin hér að framan að koma að notum. En hér mætti halda lengra áfram. Vér ættum lika að geta fundið ættstöðvar þeirra land- námsmanna, sem Landnáma segir engin deili á. Þá verður að byrja á þvf, að gera skrá um forn örnefni og bæanöfn í einhverju landnámi. Má mikið vera ef þar skýtur ekki upp einhverju fágætu nafni, sem kallast á við samskonar nafn í Noregi. En sé svo ekki, þá er að reyna að finna þann stað í Noregi, þar sem flest nöfn eru hin sömu og i þessu landnámi, og þá má telja fullvíst, að þar hafi verið heimabyggð landnámsmannsins. Bæanöfn hafa verið mörg hin sömu i flestum sveitum Noregs. en þó eru altaf undantekningar og þær skera sig úr. Grunur minn er, að örnefni reynist bezt til þess að leysa vandann, t.d. nöfn á ám og tækjum. En hér skal ekki lengra farið út i þessa sálma að sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.