Morgunblaðið - 28.07.1974, Síða 28

Morgunblaðið - 28.07.1974, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JULl 1974. „Þjóðhátíðarárið er fyrir allra hluta sakir merkasta og minnisverðasta ár í sögu íslendinga á 19. öid. Á Þingvöllum mættust menn úr flestum sveitum landsins. Snortnir af helgi staðarins og hrifnir af þeirri hátíð endurminninga og vona, sem þar var haldin, hljóp þeim kapp í kinn, og heima fyrir urðu margir þeirra aflgjafar nýrra framkvæmda og þjóðernislegrar vakningar. Þeir minntust Þingvalladaganna til æviloka. — Samhugur þjóðarinnar varð meiri og inni- legri en áður. Trú á land og þjóð glæddist þessa hásumar- daga. Þjóðernisvitundin varð skýrari en áður. Þjóðin söng öll hina nýju söngva Matthiasar og Steingrims, og áttu þeir eigi lítinn þátt i þjóðernisvakningunni. — Sr. Matthias Jochumsson, höfuðskáld þjóðarinnar, kallar hana „hin miklu aldamót í sögu lands vors í ýmsan veg."" ÞjÓÖ- hátíð n Gísli Sigurðsson ——i tðksaman Svo segir Brynleifur Tobfasson I riti stnu „ÞjóShátiðin 1874". Nú, að hundraS árum liðnum frá þjóð- hátiðinni 1874, er fróðlegt að Ifta um öxl og meta stöðu okkar f Ijósi sögunnar. Ef dæma má eftir þvf. sem sagt var og ort 1874, þá hafa Ifklega orðið einhver merkustu þáttaskil f allri sögu þjóðarinnar. Kannski mætti orða það svo, að nútfminn hafi byrjað þá. Svipuð vakningaralda fór um landið um aldamótin 1900 og þriðju þátta- skilin urðu um 1940, þegar nú- tfma véltækni hélt ínnreið sfna fyrir alvöru, og segja má að bændaþjóðfélagið hafi þá heyrt sögunni til. En við þau þáttaskil varð engin vakning. enginn sér- stakur þjóðemismetnaður. Nú eru enn tfmamót og þjóðhátíð. En tæpast er hægt að gera sér Ijóst, að við stöndum á þröskuldi nýrra tfma. eða að þetta ár marki veruleg þáttaskil. Við njótum velmegunarinnar, erum flest södd og sæl, það er allt og sumt. Skáldin hafa ekki orðið fyrir teljandi innblæstri; ekkert hátfða- Ijóð þótti verðlauna vert. Það segir llka sfna sögu. Þjóðhátfðin f ár hefur verið skipulögð eins og sæmir velferðarþjóðfélagi. En eld- móðurinn, sem fyllti hugi manna fyrir 100 árum, virðist ekki lengur fyrir hendi. Liklega er það ofur eðlilegt; þegar öllu er á botninn hvolft, hefur óteljandi takmörkum verið náð. Steinhús og stytta HalldórKr. Friðriksson. alþingis- maður og latfnuskólakennari, hreyfði þvf fyrstur manna opinber lega. að íslendingar ættu að halda þjóðhátið 1874. Kom þessi skoðun Halldórs fram f grein. sem hann ritaði f Þjóðólf f nóvember 1863. Það var hinsvegar Sveinn Skúlason. þingmaður NorðurÞing- eyinga, sem fyrstur hreyfði þjóð- hátíðarmálinu á Alþingi. sumarið 1865. Þar flutti hann „Uppástungu um þjóðhátfð i minningu islands byggingar". Varð brátt verulegur áhugi á mál- inu og töldu sumir. að á þessum tfmamótum ætti að reisa steinhús handa Alþingi og styttu af Ingótfi Arnarsyni. Hafin voru samskot t þvf skyni að koma þessu áleiðis. Þegar kom fram á árið 1871. varð Ijóst. að samskotaféð væri „öldungis ónógt" til þess að koma upp steinhúsi handa Alþingi og var það tekið af dagskrá. En úr- slitaþýðingu fyrir væntanlega þjóðhátfð hafði. að á árinu 1871 var stofnað Hið fslenzka þjóðvina- félag og stóð það fyrir þjóð hátfðarhaldinu. f stofnskrá félags- ins segir. að það vilji „kappkosta að vekja og Iffga meðvitund Is- lendinga um. að þeir séu sjálf- stætt þjóðfélag. og hafi þvf sam- boðin réttindi. Nú sem stendur liggur næst að fylgja þvf fram, að vér fáum þá stjórnarskrá. er veiti oss fullt stjórnfrelsi f öllum fslenzkum málum. ..." Hugsjónamönnunum f þjóðvina- félaginu varð að ósk sinni; stjórnarskráin „um hin sérstak- legu málefni tslands" var undir- rituð f janúar þjóðhátfðarárið og birt f heild f Þjóðólfi með tilhlýði- legum formála: „Vér Christian hinn Nf- undi, af Guðs náð Dan- merkur konungur, Vinda og Gauta, hertogi í Slésvík, Holtsetalandi. Stórmæri, Þéttmerski, Lauenborg og Aldinborg gjörum kunn- ugt" o.s.frv. Heima á Fróni töldu menn mikið vanta uppá. að komið hefði verið til móts við óskir ísfendinga i hinni nýju stjórnarskrá. Þó var sjálfsagt að senda kónginum þakkarávarp. sem hófst með svofelldum orðum: „Yðar Konunglega Hátign hefir af landsfoðurlegri mildi látið að bænum Alþingis og gefið oss fs- lendingum þá stjómarbót. er veitir þessu þingi fullt löggjafarvald og fjárforræði. ..." Kóngurinn kemur Sjðlf þjóðhátfðin var ákveðin á Þingvöllum dagana 5.—7. ágúst. Þjóðhátiðamefnd var starfandi og auglýsti hún f júnfmánuði eftir frjálsum framlögum, þvf fjármagn hafði nefndin nálega ekki neitt til umráða. Um allt land fóru fram eldheitar umræður um það, hvaða mál ætti helzt að tengja þjóðhátfð- Halldór Kr. Friðriksson, yfir- kennari, einn af frumkvöðl- um þjóðhátíðarhaldsins 1874 og stjórnandi þess. inni og bera fram til sigurs. Hvatn- ingargreinar voru skrifaðar f blöð- in og vorið 1874 tók skáldið Matthias Jochumsson við ritstjórn Þjóðólfs. Hann skrifaði meðal ann- ars: „Þetta sumar á þjóð vor í andlegum skilningi að halda heilagt; tíminn er helgitími, Drottinsdagur sögu vorrar; nú er vitjunar- dagur; nú eigum vér að vera trúmenn og minnast leyndardómanna er byrja og enda lífið, minnast guð- legrar forsjónar." Þegar bloðin frá þessum tfma eru lesin, verður Ijóst, að þrátt fyrir hugsjónahitann og frelsisandann, er konungskoman þungamiðja hátfðarinnar. Fór sú frétt eins og eldur f sinu um bæinn. þegar kon- ungsskipið nálgaðist Seltjarnar- nes. Reykvfkingar drifu sig niður f fjöru. hver sem betur mátti, en skautbúnar hefðarkonur fengu að standa á bak við gler og horfa á dýrðina þaðan, þvf skúraveður var. Heiðursbogi hefði verið reistur á landgöngubryggjunni og hjá honum stóð embættisaðallinn. Mannfjöldinn hrópaði húrra, þegar kóngurinn gekk eftir rauða dregl- inum, sem hafði verið lagður á bryggjuna og landshöfðinginn ávarpaði „Vorn allramildasta kon- ung". Þetta var áhrifamikill og eftir- minnilegur dagur. Ólafur læknir Finsen hefur minnzt hans svo: ,. Mikil var hrifning okkar Reykjavikurbarna Það, sem vakti hana. var svo margt; skreytingin f bænum, hinn mikli fjöldi aðkom- andi gesta hvaðanæva, skipa- mergðin á höfninni, prúðbúnir, einkennisklæddir hermenn og konungsþjónar. hin yndisfagra hljómsveit, sem fylgdi flestum skipunum og oft létu til sfn heyra og hrifu alla. unga sem gamla. Allt þetta höfðum við bömin hvorki Kristján konungur í við- hafnarbúningi Ekki sáu menn það á honum að honum þætti mikið til um Ijóðin, sem ort voru til hans og lesin, en hinsvegar vann hann hugi manna með alúð- legri framkomu. séð né heyrt áður, og getur það aldrei liðið úr minni, þrátt fyrir háan aldur." Hér var brotið blað á fásinninu. Kóngurinn bauð á hverjum degi einhverjum embættismönnum i miðdegisverð og purpurakæddir þjónar báru út boðskort. Þeir þóttu jafnvel skrautlegri en kóngurinn sjálfur. Gylltir skufar og fallbyssuskot Svo var að sjálfsögðu fylgzt með þvf, þegar kóngurinn gekk sjálfur um bæinn. Það gerði hann einkum á morgnana. Þá heilsaði hann vegfarendum og þeir heils- uðu kurteislega á móti. Hann langaði til að koma f islenzkan torfbæ og kotbýlið Lækjarkot varð fyrir valinu. Það stóð, þar sem nú er Lækjargata 10. Þessi torfbær fékk talsverðan frægðarljóma vegna þess að kóngurinn leit þar inn. Þegar farið er yfir frásagnir af Þjóðhátíðinni 1874, fær maður varla varizt þeirri hugsun, að allt umstangið hefði orðið miklu dauf- legra án kóngsins. Svo mjög virð- ist athygli fólks hafa beinzt að nærveru hans. Brynleifur Tobfas- son segir svo f bók sinni: „Auðvitað var Reykjavík eins og annar bær, meðan konungur dvaldist þar með fylgdarliði sínu og hátíða- höldin stóðu yfir. Konungs- fylgdin setti svip sinn á bæ- inn og herskipin á höfnina. Öðru hvoru drundu við fall- byssuskotin, svo að Reyk- víkingarnir stóðu sem steini lostnir. Gullfjaðraðir sjóliðsforingjar stikuðu strætin, og hirðþjóna gat að líta i alla vega litum einkennisbúningum, sumir í rauðum, aðrir í bláum klæðum, með mislitum fjaðraskúfum f höttunum, með gylltum og silfruðum axlaskúfum og skúf- um......." Sú spurning hlýtur að vakna hvort við á þessu herrans ári 1974 höfum nokkuð, sem jafnast á við allt þeð gullfjaðraða stáss og fall- byssuskyttirf, sem fylgdi kóngin- um fyrir 100 árum. En hverfum frá slfkum hugleiðingum. Áfram með kónginn. Um hríð höfum við hér f höfuð- staðnum haft mynd hans fyrir augum, þar sem hann stendur teinréttur, steyptur f eir á blettin- um framan við Stjórnarráðshúsið og réttir fram stjórnarskrána, þetta þráða plagg. Á þjóðhátíðar- samkomunni í Reykjavík, annan dag ágústmánaðar 1874. var kóngurinn miðpunktur herlegheit- anna og Pétur biskup komst svo að orði i hátfðarræðunni: „Nú hefur vor allramild asti konungur Kristján 9. af landsföðurlegri mildi sinni fullkomnað þetta verk og gefið Alþingi sína fullu þýð- ingu sem löggjefandi þingi; með þessari dýrmætu frelsisveitingu hefir vor allramildasti konungur stofnað hér sannarlegt þjóðllf. . . . Þessum allra- mildasta konungi vorum eigum vér íslendingar þvi meira að þakka en nokkrum öðrum Danmerk- ur konungi. . . ." ÞjóSsöngur og sjö kvæði í einum hvelli Já, mikil var sú mildi. En fleira gerðist fréttnæmt á þjóðhátiðar- samkomu f Reykjavfk. Meðal þess, sem þá heyrðist sungið f alfyrsta sinn. var nýr lofsöngur eftir höfuðskáld þjóðarinnar á þeim tfma. Matthfas Jochumsson: Ó guðs vors lands. Gerðu menn góðan róm að hinum verðandi þjóðsöng fslendinga og þótti hann hljóma fagurlega úr Dómkirkj- unni. Þó var þar maður meðal hátfðargesta, sem lét sér fátt um finnast. Það var höfundurinn sjálfur, séra Matthfas. „Fannst sál minni það sem „hljómandi málm- urog hvellandi bjalla". og gladdist ég hvorki né metnaðist", sagði skáldið sfðar. Ekki má gleyma þvf. að eins- konar listahátfð fór fram á Þjóð- hátfðinni 1874. Myndlistar- frömuðurinn Sigurður málari var að vfsu deyjandi maður og átti um þetta leyti mánuð ólifaðan, sjúkur og misskilinn. En ég kem nánar að þætti hans sfðar. Hin lifandi list

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.