Morgunblaðið - 16.08.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. AGUST 1974 3
Friðþór Hjelm.
Bátsmaðurinn
lézt, þegar
stroffa slitnaði
EINS og skýrt hefur verið frá í
blaðinu lézt bátsmaðurinn á skut-
togaranum Bjarti NK af völdum
mikils höfuðhöggs í sl. viku.
Stroffa, sem fest var í stóran bein-
hákarl, sem skipið hafði fengið,
slitnaði og slóst hún af miklu afli í
bátsmanninn, sem lézt skömmu
síðar. Hét hann Friðþór Hjelm.
Friðþór heitinn var fæddur í
Viðfirði 26. ágúst 1940 og var
hann því tæplega 34 ára, þegar
hann lézt. Hann fluttist til Nes-
kaupstaðar árið 1965 og bjó þar
með aldraðri móður sinni og bróð-
ur.
Akureyrartog-
arar veiða vel
AFLI Akureyrartogaranna hefur
verið mjög góður upp á sfðkastið.
Hafa þeir verið að koma inn með
þetta 150—200 tonn eftir veiði-
ferð. Uppistaðan f aflanum er
vænn þorskur, en einnig er f hon-
um ufsi og karfi. Togararnir hafa
veitt á Halanum og úti fyrir Norð-
urlandi. Mikil atvinna er f frysti-
húsi Utgerðarfélags Akureyringa
um þessar mundir.
Utgerðarfélagið geriri út 5 tog-
ara, 3 nýlega skuttogara og 2
gamla siðutogara. I vikunni kom
Sléttbakur inn með 213 lestir og
Svalbakur gamli með 131 lest. Sól-
bakur var væntanlegur f dag með
góðan afla.
Akureyrarprent
1853-1862
AMTSBÓKASAFNIÐ á Akureyri
hefur opnað sýningu á allflestum
þeim bókum, sem prentaðar voru
á fyrsta áratug prentsmiðjurekst-
urs í bænum. Elzta bókin á sýn-
ingunni er „Sálma og bænakver“
eftir séra Jón Jónsson, seinast
prest á Möðruvöllum i Hörgárdal,
og Hallgrim djákna Jónsson, 2.
útgáfa (1. útgáfa var prentuð í
Kaupmannahöfn árið 1832). Bók-
in er gefin út árið 1853 og er
fyrsta bók, sem prentuð var á
Akureyri.
Af því, sem „látið var á þrykk
út ganga“ á þessum bernskuárum
akureyrskrar prentlistar, ber
fyrst að nefna Norðra og siðar
Norðanfara, fyrstu blöð, sem ú'
voru gefin á Akuréyri. NrVI-
ber á rímum, en þarna getur
ig að líta markaskrár, sma
og galdrakver, að ógleyn
ýmsum guðrækilegum
Ekki má heldur gleyma F
borgarsögum, sem n.
hneyksluðu á þeim tima, og flestir
muna, er lesið hafa Heimsljós
Laxness.
Alls eru á sýningunni um 70
titlar auk blaðanna.
Er ekki að efa, að ýmsum mun
þykja fýsilegt að kynna sér, hvert
lesefni bezt hefur þótt hæfa al-
menningi á þessum árum.
Sýningin mun standa til 13.
septemb^t»c.*s*a*
Svanhildur, Olafur Gaukur, Jörundur Guðmundsson, Agúst Atlason, Carl MöIIer, Benedikt Pálsson.
Þau skemmta á héraðsmótunum
NÚ hafa verið haldin tólf
héraðsmót Sjálfstæðis-
flokksins á þessu sumri, á
Vesturlandi, Austurlandi,
Norðurlandi vestra og
Vestfjörðum, hvarvetna að
viðstöddu fjölmenni, og
hafa jafnt ræðumenn sem
hinir ágætu skemmtikraft-
ar fengið hinar beztu mót-
tökur og verið klappað lof í
lófa. Á . héraðsmótunum
eru sem kunnugt er flutt
fjölbreytt skemmtiatriði,
grín og gamanþættir, eftir-
hermur og söngur, og eru
flytjendur allt þekkt lista-
fólk, þau Svala Nielsen,
söngkona, Jörundur Guð-
mundsson, sem sér um
glens og gaman ásamt
Svanhildi og hljómsveit
Ólafs Gauks.
Um næstu helgi verða
haldin héraðsmót á Suður-
landi, í Árnesi á föstudags-
kvöld, Hellu á laugardags-
kvöld og á Akranesi á
sunnudagskvöldið, en um
aðra helgi haldið norður á
bóginn, til Dalvíkur föstu-
daginn 23. ágúst, Skjól-
brekku í Mývatnssveit á
laugardegi, en Raufarhafn-
ar á sunnudegi. Þar
nyrðra lýkur svo héraðs-
mótum þessa sumars.
Fólk er hvatt til að fjöl-
menna á þau héraðsmót,
sem fram fara um næstu
helgar, og láta ekki fram
hjá sér fara hina ágætu
skemmtun og tækifærið til
að skemmta sér í góðum
hópi, hlýða á ávörp framá-
manna Sjálfstæðisflokks-
ins og njóta þess, sem hið
þekkta listafólk hefur fram
að færa.
Svala Nielsen
HESTAMANNAMÓT Snæ-
fellinga var haldið að Kaldár-
melum sfðast liðinn sunnudag.
Góð þátttaka var f mótinu og
voru til dæmis sýndir fleiri
gæðingar nú en nokkru sinni
fyrr á mrótum hjá Snæfell-
ingum. Bendir það til þess, að
áhugi þeirra á hestamennsku
fari vaxandi.
Samkvæmt upplýsingum
Hauks Sveinbjörnssonar á
Snorrastöðum var keppt í fjór-
um greinum og sýndir voru
alhliðagæðingar og klárhestar
Bræðurnir Tvistur og Þristur koma samsfða f mark f 250 metra stökkinu. Þeir skiptu með sér fyrsta og
öðru sæti. Ljósm. Mbl. Sveinn Þorm.
Góð þátttaka í hestamannamóti Snæfellinga
með tölti. Úrslit í einstökum
greinum voru þessi:
250 metra skeið
1. Þokki, eigandi Emanúel
Guðmundsson, Ölafsvík, 23,9
sek.
2. Tvistur Halls Jónssonar í
Búðardal, 24,4 sek.
3. Rjóð Jóns Hallssonar í
Búðardal 24,5 sek.
250 metra stökk, unghrossa-
hlaup
1.—2. Tvistur Stefáns Aðal-
steinssonar á Hellissandi á 20,5
sek.
1.—2. Þristur Aóalsteins
Jónssonar á Hellissandi, 20,5
sek.
3. Blossi Helga Jónssonar á
Grenjum á 22,2 sek.
Þess má geta, að Tvistur og
Þristur, sem urðu jafnir, eru
bræður.
300 metra stökk
1. Sóti Einars Marelssonar í
Borgarnesi á 22.7 sek.
2. Rauðka Guðmundar
Halldórssonar á Syðri-Rauða-
mel á 24,1 sek.
3. Loftur Ragnars Tómas-
sonar í Vatnsholti á 24,4 sek.
600 metra brokk
1. Máni Halldórs Sigurðs-
sonar á Grenjum á 1 mín.28,6
sek.
2. Blakkur Svans Aðalsteins-
sonar á Hellissandi á 1 mín.33,5
sek.
3. Bliki Bjarna Eyjólfssonar i
Grundarfirði á 1 min.34,1 sek.
í flokki alhliðagæðinga varð
efstur Snæfari Leifs Kr.
Jóhannssonar í Stykkishólmi.
Snæfari er fjögurra vetra.
Annar var Sörli Jóns Björns-
sonar í Ölafsvík, fimm vetra, og
þriðji Stjarna Högna Bærings-
sonar í Stykkishólmi, en hún er
sjö vetra.
1 flokki klárhesta varð efst
Stjarna Hallmans Thomsen i
Ölafsvík, 5 vetra. Annar var
Ljúfur Rögnvalds Guðlaugs-
sonar i Grundarfirði, 12 vetra
gamall, og þriðji Blakkur Svans
Aðalsteinssonar á Hellissandi,
9 vetra.
Efstu hestarnir f flokki alhliða gæðinga. Frá vinstri: Snæfaxi, Sörli
og Stjarna.
Þokki, sem varð fyrstur f skeiðinu.