Morgunblaðið - 16.08.1974, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. ÁGUST 1974
5
Sósíalisminn — kerfi án mannlegrar ásjónu
BÖK Solzhenitsyns, „Eyjahafið
Gulag“, kemur senn út í Noregi á
vegum tidens Norsk Forlag, sem
sósfalistar reka. Með meiri eða
minni ánægju þrýsta norskir
sósíalistar hinum óbugandi Rússa
að barmi sér. En það er þó með
þeim mun blandaðra geði, þeim
mun lengra til vinstri sem þeir
eru, því að maðurinn sem gagn-
rýnir hið sósíalistiska einræðis-
ríki, er hugrakkari, hættulegri og
hreinskilnari en nokkur annar, —
hann er reiðubúinn að láta lífið
hvenær sem er, af því að hann vill
ekki þegja yfir hinni takmarka-
lausu illmennsku Malokrfkisins.
(Molok var austurlenzkur guð,
sem færðar voru mannfórnir,
helzt börn. Aths. þýð.)
1 laugardagsblaði Arbeider-
bladets 26. jan. s.l. skrifar Bengt
Calmeyer m.a. um bókina:
„Bókin rökstyður á allt annan
hátt en áður hefur verið gert
ákærurnar um glæpi Stalíns
gagnvart rússnesku þjóðinni —
og öðrum þjóðum innan Ráð-
stjórnarríkjanna — og þar með
einnig ákærurnar gegn þeim, sem
kæra sig um reikningsskil við for-
tfðina af ótta við þær afleiðingar,
sem þau gætu haft fyrir nútfð og
framtíð Ráðstjórnarríkjanna ...“
Calmeyer snertir hér kjarna
málsins, en sá ótti, sem hann
ræðir um, byggist einmitt á því,
að þrælabúðir Stalíns heyra ekki
fortíðinni til, þær eru við lýði enn
þann dag f dag, og ekkert bendir
til annars en að þær muni halda
áfram að vera það í framtíðinni,
jafnmiskunnarlausar og ómannúð
legar og á tíma Stalfns. Af hverju
ræðir hann ekki málið til hlítar?
Hvorki hann né hinir sósíalist-
arnir, sem þrýsta Solzhenitsyn að
barmi sér, tala um það, af hverju
óttinn ógni nútíð og framtíð Ráð-
stjórnarrfkjanna.
Skýringuna gefur hann óbeint
sjálfur stuttu síðar:
Stærðfræði-
fyrirlestur
FÖSTUDAGINN 16. ágúst kl.
16.30 mun dr. Erik M. Alfsen frá
Oslóarháskóla halda fyrirlestur á
vegum fslenzka stærðfræðafélags-
ins með heitinu: „Um integral-
hugtakið. Atriði úr sögu stærð-
fræðinnar".
Fyrirlesturinn verður haldinn í
húsakynnum Raunvísinda-
stofnunar Háskólans á Dunhaga 3
og er öllum heimill aðgangur.
Herstyrkurinn
Hamborg 14. ágúst — NTB
SVONA er talið, að hernaðarleg
styrkleikahlutföll á Kýpur lfti út:
Tyrknesku innrásarsveitirnar:
um 40.000 hermenn, 330 skrið-
drekar, 7000 manna varalið.
Grísku hersveitirnar: 950 her-
menn.
Þjóðvarðliðið: 15.000 hermenn,
og lögreglusveit grfskumælandi
Kýpurbúa: 2000 manns.
Brezku hersveitirnar: 10.000
hermenn, og nokkrir skriðdrekar.
Sveitir Sameinuðu þjóðanna:
nokkuð á fimmta þúsund her-
menn, og brynvarðir vagnar.
Leiðrétting
FÖÐURNAFN Helga Hjálmars-
sonar arkitekts misritaðist í blað-
inu í fyrradag undir mynd, sem
birtist með grein um byggðina á
Eiðsgranda. Var hann þar sagður
Vilhjálmsson.
nucLVSincnR
«g,*-*224BQ
„Vissulega er okkur kunnugt
um það, að Stalfn vék til hliðar
eigi aðeins mannlegum, heldur og
sósíalistískum grundvallarreglum
Þar kom það. Hann vill — eins
og hinir sósíalistarnir — varð-
veita sfna barnatrú á sósíal-
ismann sem eitthvað annað en
komið hefur í ljós, að hann væri f
reynd. Það var nefnilega ekki
Stalfn, sem stofnaði til morðanna
og þrælabúðanna í Rússlandi, það
var Lenin sjálfur, og grimmdin
hófst, um leið og kommúnistar
náðu völdum. Ögnarstjórnin hélt
áfram allt Stalínstfmabilið, og
henni er engan veginn lokið í dag.
Harka mannaveiðanna getur
verið mismunandi á ýmsum
tímum. Þíðviðriskaflar koma og
hverfa aftur, og aðferðum er að
einhverju leyti breytt. Nú eru
geðveikrahælin í tfzku sem
dvalarstaður fyrir gagnrýnendur
kerfisins.
Og ástæðan er harla ljós: Sósíal-
ismi í reynd táknar einræði
og kúgun allrar gagnrýni. Það er
einfaldlega ekki hægt að fram-
kvæma sósíalisma á lýðræðis-
legan hátt, þannig að þjóðin gæti,
hvenær sem væri með frjálsum
kosningum, leyst upp ríkisein-
okunina og afnumið þvingunar-
kerfið, sem er sjálfur sósfalism-
inn.
Þess vegna krefst hin sósíalis-
tíska barnatrú þess, að fólk trúi
þvi, að Stalín hafi „vikið til hliðar
grundvallarreglum sósfalismans“.
En það gerði hann einmitt ekki.
Gefum gaum að okkar eigin marx-
leninistum! Þeir leggja áherzlu á
það, að þeir fylgi í fótspor Leníns.
Sumir þeirra afneita Stalfn og
segja, að hann sé ekki,,á dag-
skrá“. En ákveðnustu og einbeitt-
ustu úrvalssveitirnar hylla Stalín
einnig.
En hinir prúðu og snyrtilegu
sósíalistar innan Verkamanna-
flokksins fordæma Stalín. Þeir
telja sér trú um eða trúa því
hreinskilnislega, að Stalín hafi
verið undantekningin, sem
sannaði hina sósíalistísku reglu,
kenninguna um mannúðlegan
sósíalisma.
Ef þetta væri rétt, af hverju
ættu þá bækur Solzhenitsyns að
ógna „nútfð og framtfð Ráð-
stjórnarríkjanna"? Ef hann er
sovétkerfinu hættulegur, er hann
jafnhættulegur sósíalismanum f
Noregi.
Um mál Solzhenitsyns skrifar
einnig tveimur dögum sfðar
í sama blað Dag Halvorsen, sem
sérstaklega fjallar um utanríkis-
mál. Hann harmar það, að Solz-
henitsyn skuli ekki vera sósial
isti, að það vanti vísindalega
skilgreiningu á „Eyjahafinu
GULag að „margir" muni ekki
geta fallizt á hin öfgafullu
sjónarmið bókarinnar, að
ekki verði séð, að eitt upp-
byggilegt muni geta fengizt út
ur þessum deilumálum í Moskvu
o.s.frv. o.s.frv. 1 stuttu máli: Það
er borið lof á hinn rússneska rit-
höfund fyrir að segja sannleikann
— f aukablaði laugardagsútgáfu
Arbeiderbladets, — en síðan er
hann tortryggður f mánudags-
blaðinu. „Baráttan milli fylgis-
manna rfkisins og tveggja and-
stæðinga þess í Moskvu" er ekki
„dæmigerð fyrir Evrópu 1974“.
Þetta er sú huggun, sem Halvor-
sen hefur að veita lesendum
sínum að lokum.
Hið dæmigerða — að minnsta
kosti fyrir sósialista f Evrópu
utan Rússlands — er trúin á það,
að til sé sósíalismi með mannlega
ásjónu — einhvers staðar ...
OKKAR LANDSFRÆGA AGUST
ÚTSALA1
HEFST MÁNUDAGINN
19ÁGÚST
OG NU HOLDUM VBÐ HANA Á
2 STÖÐUM
i
A LAUGAVEGI 37 OG 89
FÖT FRÁ KR. 5.900.
PEYSUR FRÁ KR. 690.—
STAKIR JAKKAR FRÁ KR. 3.500 —
SKYRTUR FRÁ KR. 690,—
KULDAJAKKAR FRÁ KR. 1.950.—
KULDAÚLPUR FRÁ KR. 1.750.—
GALLABUXUR FRÁ KR. 890.—
BOLIR FRÁ KR. 250 — O.FL. O.FL.
GEFJUNNAR ALULLARTEPPI 2m x 1,50m
FYRIR AÐEINS KR. 1.480.-.
10% AFSLATTUR
AF ÖLLUM HLJÓMPLÖTUM.
Laugavegi 89.