Morgunblaðið - 16.08.1974, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1974
11
Reglur um leiguflug
verði gerðar frjálsari
Ályktun norræna veitinga-
og gistihúsasambandssins
Blaðinu hefur borizt eftirfarandi
frá Sambandi veitinga- og gisti-
húsaeigenda:
I TILEFNI af blaðaskrifum þeim,
sem fram hafa farið að undan-
förnu um það, hvort halda eigi
óbreyttum reglum þeim, sem nú
gilda um leiguflug til og frá Is-
landi, vegna hagsmuna flugfélaga
þeirra, sem halda uppi reglu-
bundnu áætlunarflugi, telur Sam-
band veitinga- og gistihúsaeig-
enda rétt að vekja athygli á eftir-
farandi:
Á ársþingi Nordisk Hotel- og
Restaurantforbund, sem haldið
var í Reykjavík sumarið 1972,
ályktaði þingið að undirbúa um-
ræður og aðgerðir til þess að
rýmkaðar yrðu þær reglur, sem
gilt hafa um leiguflug innan
Norðurlandanna.
Á ársþingi N.H.R.F., sem haldið
var í Stokkhólmi sumarið 1973,
var málið tekið á ný til umræðu
og afgreiðslu og ályktaði ársþing-
ið, að gagnkvæmar heimsóknir
íbúa Norðurlanda væru liður í
raunhæfu samstarfi Norðurland-
anna og betur til þess fallnar en
nokkuð annað að efla menningar-
og viðskiptatengsl þessara þjóða.
Beindi ársþingið þeirri áskorun
til Norðurlandaráðs, að reglur um
leiguflug á milli Norðurlandanna
yrðu gerðar mun frjálsari en nú
er til hagsbóta fyrir íbúa land-
anna.
Sambandi veitinga- og gistihúa-
eigenda hefir borist eftirfarandi
Mikil laxagengd
í Kollafirðinum
N(J HAFA 2609 laxar gengið upp
og verið taldir f laxeldistöðinni f
KoIIafirði og allmiklu meira af
laxi er komið þar í geymslutjarn-
ir. Er þetta mun meiri laxagengd
en f fyrra en þá gengu f stöðina
alls 1957 laxar.
Forráðamenn laxeldisstöðvar-
innar eru að vonum ánægðir yfir
þessum árangri en leggja þó ekki
minna upp úr stórbættri endur-
heimtingu á laxaseiðum, einkum
eins árs seiðum, sem aó sögn virð-
ast nú ekkert standa að baki 2ja
ára seiðum. Árni ísaksson, fiski-
fræðingur hjá Veiðimálastofnun-
inni, tjáði Morgunblaðinu í gær,
að nýjustu niðurstöður um endur-
heimting á seiðunum væru nú
komin upp í 8—12% miðað við
2% á eins árs seiðunum í fyrra og
5—6% á 2ja ára seiðunum.
Ástæðuna fyrir þessari miklu
aukningu í endurheimtingu seið-
anna kvað Árni vera þá, að und-
anfarin ár hefur verið unnið að
því að bæta þessi seiði og fá þau í
betri göngubúning en áður er þau
færu I sjóinn. Þetta starf væri nú
að skila árangri svo um munaói,
og taldi Arni það geta gjörbreytt
rekstrargrundvelli fiskeldisstöðv-
arinnar í Kollafirði.
KROSSVIÐUR:
Harðviðarkrossviður
(4, 6, 9, 12, 18 mm)
Mótakrossviður plasthúðaður
(12, 15, 18 mm)
Combi-krossviður (greni, birki)
(3, 4, 61, 9, 12 mm)
Klapparstíg 1, Skeifan 1 9
símar: 18430-
Kodak Kodak 1 Kodak I
K Litmqml DDAK lir iöqum o •
HANS PETERSEN H/f. BANKASTR. 4 SÍMI 20 313 -GLÆSIB/E SÍMI 82590
fréttatilkynning frá forseta
N.H.R.F., Carl O. Steinmetz, Dan-
mörku:
„Nordisk Hotel- og Restaurant-
forbund eru samtök stéttarsam-
banda veitinga- og gistihúsaeig-
enda á Norðurlöndum, og er til-
gangur samtakanna m.a. að gæta
sameiginlegra hagsmuna sam-
bandanna.
Við umræður á ársfundi
N.R.H.F., sem haldinn var í
Stokkhólmi 1973, var vakin at-
hygli á því, að ferðamannafjöldi á
milli Norðurlandanna innbyrðis
hefði ekkert aukist, þrátt fyrir
almenna aukningu ferðamanna í
heiminum.
Tfðar einsdags ferðir íbúa, sem
nærri landamærum búa, sýna, að
mikill áhugi er fyrir hendi á gagn-
kvæmum heimsóknum til
nágrannalandanna, en íbúum,
sem fjær búa, ætti að skapa sömu
möguleika til gagnkvæmra heim-
sókna f annað norrænt land, t.d.
með skipulögðum helgarferðum,
sem seldar yrðu á viðráðanlegu
verði fyrir allan almenning, með
innifalinni gistingu og uppihaldi.
Siíkar helgarferðir íbúa
Norðurlanda krefjast þess, fjar-
lægðanna vegna , að farið sé með
flugvélum á milli áfangastaða, en
verð á venjulegum áætlunarflug-
leiðum er svo hátt, að það er of-
viða venjulegri fjölskyldu að ferð-
ast þannig.
Hinsvegar er unnt með skipu-
lögðu leiguflugi að lækka svo far-
gjöldin, að þau verði viðráðanleg.
Núgildandi reglur um leiguflug
heimila ekki stutt leiguflug á
milli Norðurlandanna, jafnframt
því sem það er vitað, að sætanýt-
ing á áætlunarflugi á þessum leið-
um er mjög léleg um helgar
(föstud./sunnud.)
Fólk, sem myndi notfæra_ sér
slíkar helgarferðir með léigu-
flugi, þar sem gisting og uppihald
væri innifalin, myndi ekki taka
sér sllka ferð á hendur nema
vegna þess, að hún fengist með
svo hagkvæmu verði sem leigu-
flugferðir bjóða upp á.
Þar sem gangverk viðskiptalífs-
ins hægir verulega á sér og jafn-
vel stöðvast um helgar, er á þeim
tíma á öllum Norðurlöndunum
mikið ónotað gistirými, sérstak-
lega utan hins hefðbundna ferða-
mannatfma, sem skapar grund-
völl fyrir þvl að gefa hinum al-
menna borgara kost á ódýrum
helgarferðum af þessu tagi, ef
rýmkaðar yrðu núgildandi reglur
um leiguflug á milli Norðurland-
anna.
Hér fara þvi saman hagsmundir
hins almenna borgara, eigenda
gisti- og veitingastaðanna svo og
flugfélaganna, sem einmitt á
þessum tímum hafa lélega sæta-
nýtingu.
Þvi leggur Nordisk Hotel- og
Restaurantforbund eindregið til,
að gildandi ákvæðum um leigu-
flug milli flugstöðva á helgum
verði rýmkaðar svo á öllum
Norðurlöndunum, að unnt sé að
skipuleggja ferðir, sem hefjast
með brottför á föstudegi eða
laugardegi og komu á sunnudegi
eða mánudegi. Umræður blaða á
Norðurlöndum eftir ársfund
Nordisk Hotel- og Restaurantfor-
bund og skrif þeirra um möguleik
ana á slíkum helgarferðum verða
ekki skilin á annan veg en þann
að ibúar landanna séu okkur sam-
mála um, að þörf sé breytinga á
þeim reglum, sem nú gilda um
leiguflug á milli Norðurlandanna,
sérstaklega að þvf er varðar
helgarferðir.
Samhljóða áskorun hefir verið
send öllum ráðherrum samgöngu-
mála á Norðurlöndum, skrifstofu
Norðurlandaráðs og formanns
Skandinavisk Charterudvalg."
Carl O. Steinmetz (sign)
Forseti.
H. Bendixen (sign)
aðalritari.
Til viðbótar þessu vill S.V.G.
benda á, að fram hefir komið til-
laga I Norðurlandaráði þar sem
mælt er með því við ráðherra-
nefnd Norðurlandaráðs, að
reglurnar um leiguflug innan
Norðurlandanna verði gerðar
frjálsari.
Verður að treysta því, að hags
munir hins almenna borgara
verði látnir sitja I fyrirrúmi fyrir
þröngum hagsmunum einstakra
fyrirtækja við mat á þvf, hvort
reglurnar um leiguflug verði
gerðar frjálsari i framtíðinni
heldur en nú er.
Fréttatilkynning frá S.V.G.
G1 asgow-London
tvisvar í viku
British Airways flýgur nú bæöi á miðvikudögum og
sunnudögum frá Keflavík til Glasgow og London - og
áfram til yfir 200 staöa í 88 löndum.
Brottfarartími kl. 16.05 frá Keflavík, kl. 11.35 frá London..
Flogiö meö hinum þægilegu Trident 2 þotum i samvinnu
vió Flugfélag íslands og Loftleióir.
Kodak Kodak I Kodak rmm
British airways
Now worldwide you 11 be in good hands